Morgunblaðið - 04.05.1999, Side 14

Morgunblaðið - 04.05.1999, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sigurður Snævarr, forstöðumaður á Þjóðhagsstofnun Ekkí verið að bera saman sambærilega hluti HÉR fer á eftir bréf Sigurðar Snævarr, forstöðumanns á Þjóð- hagsstofnun, til Benedikts Davíðs- sonar, formanns Landssambands eldri borgara. „I fjölmiðlum hefur verið fjallað um útifund sem Landssamband eldri borgara og Öryrkjabandalag Islands héldu í miðborg Reykjavík- ur hinn 21. apríl síðastliðinn. I dag- blaðinu Degi 22. apríl er vitnað í Benedikt Davíðsson, formann Landssambands eldri borgara, þar sem hann segir dapurlegt að heyra stjórnmálamenn slá ryki í augu fólks með villandi talnaefni. Vitnað er orðrétt í hann „(o)g ég vil segja að það sé ljótt af embættismönnum að skrökva tölum inn í ræður ráð- herra, sem svo aðrir stjórnmála- menn hafa eftir án þess að þekkja rangfærslurnar". Gera verður ráð fyrir því að rétt sé eftir haft, enda hafa engar athugasemdir borist við þessa frétt. Þá hefur opinberlega verið vitnað í útreikninga hagdeild- ar ASI þess efnis að kaupmáttur hámarksbóta hafí hækkað um helming þess sem haldið hafí verið fram af stjórnvöldum. Þótt hvorki hafí verið nefndir með nafni embætti né embættis- menn fer vart á milli mála að skeyt- um yðar er beint að Þjóðhagsstofn- un, enda hafa stjórnmálamenn vitn- að til minnisblaðs stofnunarinnar um kaupmátt bóta. Undimtaður mótmælir tilvitnuðum ummælum yðar sem órökstuddum og ósönnum og lýsir furðu sinni á að þér ráðist að heiðri embættismanna sem hafa af samviskusemi og trúnaði unnið upplýsingar fyrir stjórnvöld og aðra aðila. í minnisblaði Þjóð- hagsstofnunar um kaupmátt launa og bóta eftir 7% hækkun grunnlífeyris 1. apríl 1999 kemur fram að frá upphafí kjörtíma- bilsins til 1. apríl 1999 hafí lágmarksbætur hækkað um 31,9% og eru rúmlega 66 þús. kr. á mánuði. Kaup- máttur bótanna hefur að mati Þjóðhagsstofn- unar hækkað um 22% samanborið við 21% hækkun kaupmáttar launavísitölu. Stofnun- in gerir grein fyrir for- sendum útreikninga sinna og getur meðal annars um breytingu á af- notagjöldum RÚV og meðferð ein- greiðslna. Óeðlilegt að reikna kaupmátt bóta eftir skatt Lesa má úr tölum frá hagdeild ASI að kaupmáttur lágmarksbóta hafí hækkað um 10,4% á sama tíma- bili og skýrist munurinn að mestu af því að ASI reiknar tekjuskatt af bótunum og dregur frá afnotagjald af síma sem fellt var inn í heimilis- uppbót árið 1997. Ástæða er til að gera athugasemdir við forsendur útreikninga ASÍ. Helstu athugasemdir mínar eru þessar. 1. Hagdeild ASÍ reiknar kaupmátt bóta eftir skatt en ekki þeg- ar kemur að saman- burði við laun. I um- ræðunni um kaupmátt bóta á undanfórnum vikum, mánuðum og árum hefur ekki verið miðað við bætur eftir skatt og kröfur Lands- sambands eldri borg- ara hafa t.d. ekki hing- að til verið byggðar á þeim grunni. Launa- vísitalan sýnir hækkun launa að meðaltali án tillits til skatta og verður að gæta þess að bera bæturnar við það á sama grunni. Vafasamt er að bera saman launabreytingar tveggja manna með þeim hætti að launum annars eftir skatt er stillt á móti launum hins fyrir skatt. Einnig má benda á að hagdeild ASI ber saman bætur og lágmarkslaun en þau hækkuðu úr 54.469 kr. í 73.08 kr. eða um 34% að nafnvirði að mati hagdeildar ASI og er engin tilraun gerð til að reikna tekjuskatta af laununum, þrátt fyrir að bæturnar séu sýndar eftir skatt. Sigurður Snævarr, forstöðumaður á Þjóðhagsstofnun, hef- ur sent Benedikt Davíðssyni, formanni Landssambands eldri borgara, bréf þar sem hann mótmælir fullyrðingum sem Benedikt lét falla á útifundi 21. apríl sl. um kjör aldr- aðra og öryrkja. Segir hann að með þeim sé ráðist að heiðri embættismanna sem vinni af samviskusemi fyrir stjórnvöld. í kjölfarið sendi Edda Rós Karlsdóttir, hag- fræðingur ASÍ, forsætisráðherra bréf þar sem hún mót- mælir útreikningum Sigurðar og sakar hann um að vega að starfsheiðri sínum. Bréfín eru birt hér orðrétt. Sigurður Snævarr Edda Rós Karlsdóttir, hagfræðingur ASÍ Forsendur valdar í and- stöðu við ráðleggingar ASI BRÉF Eddu Rósar Karlsdóttur, hagfræðings ASI, er stflað til for- sætisráðherra, fjármálaráðherra, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, forstjóra Þjóðhagsstofnunar, ráðu- neytisstjóra forsætisráðuneytis og skrifstofustjóra fjármálaráðuneyt- is. Bréf hennar fer hér í heild: „I dag var ykkur sent afrit af bréfí Sigurðar Snævarrs forstöðu- manns á Þjóðhagsstofnun til Bene- dikts Davíðssonar. I bréfínu er for- stöðumaðurinn að verja heiður sinn sem embættismaður vegna um- mæla Benedikts í dagblaðinu Degi þann 22. apríl síðastliðinn. Ég tel eðlilegt að embættismaður sem unnið hefur „af samviskusemi og trúnaði fyrir stjórnvöld og aðra að- ila“ verji heiður sinn og get staðfest hér að ég sem forstöðumaður hag- deildar ASI hef átt sérstaklega gott samstarf við Þjóðhagsstofnun. Við Sigurður vinnum bæði af samviskusemi og trúnaði og mér er gjörsamlega óskiljanlegt hvernig það má vera að hann skuli vega að starfsheiðri mínum til að verja sinn. Þó að við komumst ekki að sömu niðurstöðu í útreikningum okkar hefur hvorugt okkar unnið ófag- lega. Ég sé mig tilneydda til að senda eftirfarandi athugasemdir. Fyrst þetta Forstöðumaður á Þjóðhagsstofn- un hefur fengið minnisblað það sem ASÍ gerði fyrir samtök lífeyris- þega. Hann fékk minnisblaðið á tölvutæku formi með öllum reikn- ingsfoimúlum og nákvæmum at- hugasemdum um alla fyrirvara og forsendur. Ég hef ekki minnisblað Þjóðhagsstofnunar undir höndum. Það er hins vegar greinilegt af um- ræddu bréfí að minnisblað Þjóð- hagsstofnunar er skrif- að áður en launavísi- tala marsmánaðar var birt. Kaupmáttur skv. launavísitölu hefur hækkað um 22% frá apríl 1995 til mars 1999. Rétt er að geta þess að launavísitala aprflmánaðar birtist ekki fyrr en í lok maí. Athugasemd við at- hugasemd nr. 1. Athugasemdin byggir á forsendum sem eru aðrar en þær sem ég tek augljóslega fram í minnisblaði mínu. Enda skrifar forstöðumaður- inn_„Lesa má úr tölum frá hagdeild ASI að ?“ Forstöðumanninum er fullkunnugt um að það var ákvörð- un samtaka lífeyrisþega að bera „kaupmáttarþróun lífeyrisþega eft- ir skatt“ saman við „kaupmátt launavísitölu". Sú ákvörðun er auð- vitað óheppileg og gegn ráðlegging- um mínum. Hún er hins vegar skilj- anleg í ljósi þeirra yfirlýsinga sem ráðherrar og embættismenn hafa gefið um áhrif skattbreytinganna 1997 á kjör launafólks. I fí-umvarpi til fjárlaga fyrir árið 1998, bls. 26 stendur t.d.: „Almennar launahækkanir vegna nýgerðra kjarasamninga eru metn- ar á 6% á þessu ári. Þannig er búist við að launavísitalan verði 5-5'/2% hærri á þessu ári. Kaupmáttur launa eykst því um 3% á þessu ári, en vegna lækkunar tekjuskatts snemma árs eykst kaupmáttur ráð- stöfunartekna heimilanna enn meira, eða um 4,7%. í byrjun næsta árs hækka taxtalaun almennt um 4% og er búist við að hækkun launavísitölu milli áranna 1997 og 1998 verði um 7'/2%. Þar sem tekjuskattur lækkar enn frekar í byrjun næsta árs er búist við áframhald- andi aukningu kaup- máttar ráðstöfunar- tekna, eða um 4V2-5%.“ Það er ljóst af þess- um texta að fjármála- ráðuneytið metur það svo að þegar skattur hefur verið reiknaður af meðallaunum sé kaupmáttarhækkun launafólks þó nokkuð meiri en launavísitala segir til um. Það er greinilegt að lífeyrisþegar hafa tekið mark af þessum óg sam- bærilegum málflutningi og talið óhætt að nota launavísitölu, án leið- réttingar fyrir sköttum, til saman- burðar við hækkun lífeyrisbóta eft- ir skatta. Ef textinn í fjárlagafrum- varpinu er réttur, eru lífeyrisþegar meira að segja að gera of lítið úr muni á kaupmáttarþróuninni. Það vekur furðu að i bréfí for- stöðumanns á Þjóðhagsstofnun er ekki gerð nokkur tilraun til að meta hver hin rétta útkoma á kaupmætti lífeyrisþega og launþega er eftir skatt. Þetta er sérstaklega undar- legt í ljósi þess hvað athugasemdir í tölulið 2 eru nákvæmar. Væri ekki málefnalegt í framhaldinu að birta hinn „sanna samanburð"? Getur verið að þessu bréfí sé ætlað að leka í fjölmiðla og að það þyki ekki passa í hina viðkvæmu pólitísku umræðu að tilkynna að fyrri yfir- lýsingar um að skattbreytingarnar 1997 hafí aukið við kaupmátt launa- hækkana standist ekki? Niðurstað- an sé e.t.v. þveröfug! Athugasemd við athugasemd nr. 2 I athugasemdum á minnisblaði ASÍ er skýrt tekið fram að hluti líf- eyrisþega hafí „hagnast" á þeirri breytingu sem gerð var á aðstoð hins opinbera við greiðslu afnota- gjalda RUV. Því er algjör óþarfí af forstöðumanni á Þjóðhagsstofnun að láta sem um ókunnugleik sé að ræða. Dæmið í minnisblaðinu á við um lífeyrisþega sem er á hámarks- bótum almannatrygginga. Dæmið er valið, vegna þess að ráðherrar hafa stöðugt viljað nota hámarks- bætur til viðmiðunar, þrátt fyrir mótmæli samtaka lífeyrisþega. Inn- an við 3% lífeyrisþega fá hámarks- bætur. Það voru samtals 1.382 ein- staklingar í desember 1998. Ef RÚV fékk 3.210 nýja áskrif- endur eftir breytingarnar sé ég ekki að rök séu komin til að gera lítið úr samanburði hagdeildar ASÍ. Við erum hér að bera saman ein- stakling á hámarksbótum, eins og ráðherrar hafa kallað eftir, og þá skulum við líka reikna það dæmi til enda. Þessir einstaklingar hagnast ekki á bættum kjörum annarra. Athugasemd við athugasemd nr. 3 Umræðan um eingreiðslur er með ólíkindum og ekki er annað að sjá en að hér sé með orðum fræði- mannsins verið að slá ryki í augu lesandans. Sem fyrrverandi starfs- maður Kjararannsóknarnefndar og sem fulltrúi ASI í þriggja manna vinnuhóp sem hefur endurskoðað allar aðferðir Kjararannsóknar- nefndar vegna nýrrar launakönn- Edda Rós Karlsdóttir | Ekki sjálfgefið að draga eigi afnotagjöldin frá 2. Hagdeildin dregur afnotagjöld RÚV frá heimilisuppbótum þar sem afnotagjöldin hafi verið færð inn í bæturnar. Við fyrstu sýn kann sú aðferð að virðast eðlileg, en við nánari skoðun er hún þó vafasöm. - Þegar litið er á hver áhrif breytinganna voru á sínum tíma kemur í ljós að samtals fengu 9.400 lífeyrisþegar sérstaka hækkun á heimilisuppbótinni, en RÚV fékk aðeins 3.210 nýja áskrifendur við breytinguna. Það segir að um 35% þeirra sem fengu hækkun á heimil- isuppbót misstu niðurfellingu á áskrift af RÚV og voru í sömu stöðu eftir breytinguna, en 65% fengu hækkun án þess að hafa áður notið niðurfellingar á afnotagjöld- um RÚV og bötnuðu því kjör þeirra. - Þessu til viðbótar halda þeir sem ekki voru með heimilisuppbót niðurfellingu á afnotagjöldum RÚV áfram og 14 þúsund lífeyrisþegar sem greiddu full afnotagjöld fengu 20% afslátt af gjöldunum. Brejd- ingin kostaði ríkissjóð margfalda þá fjárhæð sem RÚV hefði fengið í aukin afnotagjöld, ef auknum tekj- um stofnunarinnar hefði ekki verið ráðstafað í afslátt til handa öllum lífeyrisþegum. - Samkvæmt upplýsingum RÚV njóta 2.130 lífeyrisþegar ennþá nið- urfellingar afnotagjalda þrátt fyrir breytingarnar, en gæta verður að því að hluti þeirra býr á dvalar- eða hjúkrunarheimilum. 3. Loks má benda á að hagdeild ASI tekur tillit til eingi-eiðslna í mati á kaupmætti bóta, sem Þjóð- hagsstofnun gerir ekki. Það er ekki einhlít aðferð að taka eingreiðslur inn í þessa mynd. Þannig má benda á að Kjararannsóknarnefnd reiknar ekki með eingreiðslum í mati sínu á unar nefndarinnar hlýt ég að lýsa yfir furðu minni á þessari ein- greiðslu-lýsingu. Ef þessi umræða á að vera á einhverju tæknilegu plani, þá skulum við taka hana. Til _ er ég! I fyrsta lagi stendur í athuga- semdinni: „Það er því viðurkennd aðferð að halda eingi-eiðslum fyrir utan slíkan samanburð, þótt slíkt sé ekki einboðið. Það á þó sérstaklega við í tilfelli sem hér um ræðir þar sem sérstök eingreiðsla vegna við- skiptakjaraáhrifa var greidd út á viðmiðunarárinu." Þetta er beinlín- is rangt! I samanburði ASI er ekki gert ráð fyrir eingreiðslu vegna við- skiptakjaraáhrifa, enda var hún greidd út árið 1994 en ekki 1995! Prófið að reikna sjálfíir)! I öðru lagi fylgir lærð lýsing á muninum á „eingreiðslum reiknuð- um á viðmiðunarárinu" og „ein- gi'eiðslum reiknuðum á almanaks- árinu“. Þetta er fróðleg lýsing en ekkert innlegg í umræðuna. Lág- launauppbætur til lífeyrisþega voru 28% af tekjutryggingu og heimilis- uppbót á árinu 1994, en voru aðeins 26% af tekjutryggingu og heimilis- uppbót ársins 1995. Með mínum að- ferðum („almanaksárinu") er ég því í raun að vanmeta þau neikvæðu áhrif sem lækkun eingreiðslna hafði á tímabilinu. I þriðja lagi er meðhöndlun Kjararannsóknarnefndar á ein- greiðslum ekki áhugaverð í þessu sambandi, því að nefndin er ætíð að reikna laun á tímaeiningu. Nefndin fjallar um eingreiðslur í sérstökum undirköflum og birtir nákvæmar dreifingartöflur þar sem hægt er að meta áhrif eingreiðslna. Við þessar dreifingartöflur hefur Hagstofan stuðst þegar eingreiðslur hafa verið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.