Morgunblaðið - 04.05.1999, Síða 22

Morgunblaðið - 04.05.1999, Síða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Sérfræðingur á Viðskiptastofu íslandsbanka um gengistap útvegsfyrirtækja Taka áhættu með því að veðja á að jenið styrkist ekki SLÖK afkoma í sex mánaða uppgjöri nokkurra sjávarútvegsfyrirtækja hefur að hluta til verið rakin til gengistaps og þá aðallega gengistaps á skuldum í japönskum jenum, en að sögn Einars Pálma Sigurðssonar, sérfræðings hjá Viðskiptastofu ís- landsbanka, hafa lágir grunnvextir á jeni valdið því að algengt er að fyrir- tæki hafa valið að vera með 10-40% af lánum sínum í jenum. Hann sagði að fyrirtækin hefðu tekið ákveðna áhættu með því að veðja á að jenið styrktist ekki verulega, en það styrktist hins vegar talsvert í októ- ber síðastliðnum og hefur verið að koma í ljós í uppgjörum fyrirtækj- anna að það hafði veruleg áhrif. „Fyrirtækin bóka gengistap á lán- unum sínum í jenum en sum sjávar- útvegsfyrirtæki eru að selja afurðir sínar í jenum og njóta þá hækkunar á jeninu í sölu á afurðunum. Það er hins vegar hvorki bókað sem gengis- tap né gengishagnaður, en kemur hins vegar fram í hærra söluverði. Það má því kannski ekki líta á þetta þannig að fyrii'tækin séu öll að tapa á hækkun jensins, en mörg þeirra eru samt að gera það. Það er þá vegna þess að þau hafa valið að hafa hlutfall jena í lánakörfu sinni hærra en hlutfallið er í íslensku gengiskörf- unni,“ sagði Einar Pálmi. Hann sagði að sveiflur í jeninu hefðu verið miklar síðustu árin og því gæti gengistapið hafa gengið til baka í sex mánaða uppgjöri eða í næsta tólf mánaða uppgjöri. „Það er þó í raun og veru engin af- Þetto er rétti staðurinn... Bílaland B&L er ein stærsta bílasala landsins með notaða bíla af öllum stærðum og gerðum. Bílaland er í nýja B&L húsinu við Grjótháls 1 (rétt ofan við Select vió Vesturlandsveg) og þú gengur inn frá Fosshálsi. Sfminn er 575 1230, vió erum með rétta bílinn á réttum staó - og á rétta veróinu. Vió bjóðum allar tegundir bílalána. Visa/Euro raðgreiðslur. ...fyrir rétta bílinn: Járnháls Hestháls Fossháls Grjótháls (Select) Vesturlandsvegur BMW 316i árg. 96, 1600^| 5g, 4d, svartur^jjl ek. 51 þús., R. kr. 1.620.000,- árg. 97, 1400, Hyundai Sonaca V6, árg. 97, 3d, blár, ek. 28 þús 3000, ss, 4d, grár, ek. 31 þús., ■kr. 930.000,- kr. 1.660.000, Land Rover Discovery diesel, 5g, Só, 5j|L dökkgrænn, Fiat Brava ELX árg. 97, 1800 5g, 5d, Ijósgrænn, ek. 55 þús. kr. 1.190.000,- Hyundai H-100, árg. 97, ^ diesel, 5g, 4d, grænn, 1.140.000,- kr. 3.100.000, Toyota Carina Wagon, árgu^ 96, 2000, 5g, 5d, blár, ek. 115 þús kr. 1.190.000,- WHBl- GMC Jimmy Vortec, TBr árg. 96, 4300, ss, (P 5d, rauóur, ek. 46 þús., kr. 2.950.000,- ■PHFRenault Meganó ™ RT Berline, árg. 98, 1600, 5g, 5d, dökkblár, : r 1.390.000. ek. 13 þús., Renault Laguna RT, árg. 98, 2000, ss, 5d, vínrauður, ek. 6 þús., - Ren.iult 1 I árg. 93, 1800, ss, 4d, vínrauóur, ek. 61 þús., kr. 890.000,- corH fsco Hyundai Accent GLSi, árg. 98, 1500, 5g, 4d, silfurgrár, ek. 24 þús. kr. 1.030.000,- kr 820.000, Ford Escort Stw,árg. 97, 1400 5g, 5d, vínrauóur ek. 37 þús kr. 1.120.000,- Suzuki Vitara JLX, árg. 93, 1600 5g, 3d, hvítur, ek. 95 þús. kr. 880.000,- ^ Grjótháls 1 sími 575 1230 sökun sem fyrirtækin hafa og það eina sem þau geta sagt er að þau taka ákveðna áhættu. Þetta er ekki eitthvað sem bara gerist í ytra um- hverfmu sem þau hafa engin áhrif á. Þau velja það að hafa lánin í jenum að töluverðu leyti og þegar þau taka lán í jenum þá vita þau að þetta get- ur gerst. Ef þau vilja tryggja sig geta þau annað hvort skuldbreytt lánunum úr jenum í aðrar mynth’, eða þau geta notað fi-amvirka samn- inga, skiptasamninga og valréttar- samninga, til að annað hvort minnka eða eyða áhættunni. Fyrirtæki hafa allar leiðir sem þau kjósa í dag,“ sagði Einai’ Pálmi. Ekki búin að innleysa tapið Hann sagði að flest fyi-irtækin væru sennilega ennþá með þá áhættu sem þau hefðu tekið með því að vera með stórt hlutfall lána sinna í jenum. Þau hefðu ákveðið að bíða og sjá hver framvindan verður því jenið sé ekki með nema 0,20% grunnvexti þannig að það megi styrkjast tölu- vert áður en fyrirtækin fari að tapa á því að hafa tekið jenalán. „Þetta er yfirleitt bókhaldslegt tap sem fyrirtækin eru að sýna, en þau eru raunverulega ekki búin að inn- leysa tapið. Þau myndu gera það með því að greiða niður lánin núna eða myntbreyta þeim, þannig að þessi áhætta er ennþá í rekstrinum og þetta er alveg meðvitað hjá fyrir- tækjunum að gera þetta. Þetta er ekki beint góð afsökun þannig lagað, en þetta er þeirra val og þetta er ekki eitthvað sem þau ráða ekki neitt við. Þau ættu frekar að segja að þau hafi tekið ákveðna áhættu og dæmið hafi ekki gengið upp núna en það gæti gengið upp síðar,“ sagði Einar Pálmi. Fjöldi bankastofnana á hverja 100.000 íbúa 1997 Lúxemborg ísland Austurríkl Finnland Sviss Þýskaland Japan Bandaríkin ESB Ítalía Holland Soánn Bretland Frakkland Grikkland Listi The Economist yfír fjölda banka * Island í öðru sæti i É SAMKVÆMT vikublaðinu The f Economist er Island nú í öðru sæti g hvað snertir fjölda banka miðað við höfðatölu en hér á landi eru rúmlega 45 bankar á hverja 100 þúsund íbúa ef marka má útreikninga blaðsins. Grikkland er það land í hópi iðnríkja sem fæsta banka hefur miðað við höfðatölu eða aðeins 0,4 banka á hverja 100 þúsund íbúa en Frakkar og Bretar búa við svipaðar aðstæður, með 0,7 | banka á móti sama íbúafjölda. Þrátt fyrir að mikið hafi verið um 1 samruna banka í Bandaríkjunum undanfarin ár eru enn rúmlega þrír bankar á hverja hundrað þúsund íbúa vestanhafs en bæði Þýskaland og Japan hafa hlutfallslega fleiri banka. Lúxemborg trónir efst á listanum með næstum 53 banka á hverja 100.000 íbúa, enda er bankastarfsemi þar einn aðalatvinnuvegurinn og þar eru | starfræktar alls 221 lánastofnun. 1 Blaðið getur þess að í flestum I löndum fari bönkum fækkandi í takt við vaxandi samkeppni og samruna fyrirtækja í greininni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.