Morgunblaðið - 04.05.1999, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Full vernd á tómötum og agúrkum
T ómatar helmingi
dýrari en agiírkur
ÞEGAR íslenskir tómatar komu á
markað var kílóið af þeim selt á rétt
innan við 800 krónur. Kílóið hefur
síðan lækkað um að meðaltali 200
krónur og kostar nú rétt innan við
600 krónur. Búið er að setja há-
markstolla á innflutta tómata. Til
samanburðar má geta þess að kíló-
verð af íslenskum agúrkum er um
300 krónur.
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Bónusi, segir að
skýringin á háu tómataverði sé sú
að verndartollar séu settir á rétt
áður en íslensk framleiðsla annar
eftirspurn og þannig sé búinn til
verðgrunnurinn. Hann segir að í
síðustu viku hafi skort íslenska
tómata og þá hafi Bónus flutt þá
inn frá Hollandi. Hann telur að
horfumar séu góðar í þessari viku
hvað snertir íslenska framleiðslu en
bendir þó á að það sé háð veðri.
Viktor Kieman, innkaupamaður
hjá Hagkaupi, segir að það þjóni
litlum tilgangi að flytja tómata inn
um þessar mundir þar sem tollarnir
séu mjög háir. Hann segir eins og
Guðmundur að í sfðustu viku hafi
íslensk framleiðsla ekki annað eftir-
spum.
Að sögn Ólafs Friðrikssonar,
deildarstjóra hjá Landbúnaðar-
ráðuneytinu, er 30% verðtollur á
innfluttum tómötum frá 26. apríl og
magntollar 198 krónur. A agúrkum
er 30% verðtollur og 197 krónu
magntollur.
Þegar hann er spurður hvort
rétt sé að hafa fulla vernd á tómöt-
um ef íslensk framleiðsla anni ekki
eftirspurn segist hann standa í
þeirri trú að íslensk framleiðsla
anni fyllilega eftirspum og segist
ekki hafa fengið ábendingar um
annað.
Kolbeinn Agústsson hjá Sölufélagi
garðyrlqumanna segir að verðið á ís-
lenskum tómötum hafi farið að
lækka í lok maí í fyrra en hann búist
við að verðlækkunin komi fyrr fram í
ár. „íslensk framleiðsla fór að anna
eftirspuminni í síðustu viku og nú
mun framboðið aukast í hverri viku.“
Varanlegt gólfefni
á bílskúrinn
- og bílnum (og þér) líður betur
TOPP!!
Hentar vel á álagsstaöi svo sem
iönaöargólf, sturtuklefa, verslanir
og bílskúra._______
Thppsuooo
Hentar vel á vélasali, verkstæöi,
vörugeymslur og bílskúra.
fallegt
úrval lita
auðvelt að þrífa
framúrskarandi ending
mismunandi áferð
losnar ekki
5 ára ábyrgð
Leitið upplýsinga og fáið tilboð.
aenir
IÐNAÐARGÓLF
Smiðjuvegur 72 • 200 Kópavogur
Sími: 564 1740 • Fax: 554 1769
m
V,
o
Nýtt
Brún
án sólar
ÞEIR sem vilja vera brúnir allt árið
án þess að liggja í sóiböðum eða á
ljósabekkjum geta nú fengið
TanTowel blautþurrkur og orðið
brúnir með því að strjúka yfir andlit
og'eða líkama.
Jakob R. Garðarsson hjá heild-
verslun ISON, sem flytur þurrkurn-
ar inn, segir að þær séu einfaldar í
notkun, lykti hvorki illa né smiti í föt,
engin hætta sé heldur á að húðin
verði skellótt eða appelsínugul.
„Fólk strýkur yfir andlitið að morgni
með blautum klútnum og er orðið
brúnt að um það bil þremur tímum
liðnum. Liturinn þvæst ekki af og
endist í a.m.k. þrjá sólarhringa.“
Jakob segir að sex ár séu liðin síð-
an Astralar hófu að þróa efni, sem
gæfi hraustlegt útlit án þess að auka
hrukkur og líkur á húðkrabbameini.
Afraksturinn eru þessar blaut-
Sand verslun
í Kringlunni
NYLEGA var verslunin Sand opn-
uð í nýja hluta Kringlunnar. I
fréttatilkynningu frá Sand kemur
fram að verslunin selji fatnað á
karla og konur undir eigin merki en
Sand verslanir eru bæði víða í
Skandinavíu og annarsstaðar í Evr-
ópu. „Fyrirtækið leggur áherslu á
einfaldan og sígildan tískufatnað úr
vönduðum efnum“, segir í fréttatil-
kynningunni.“
Taktu vel á roóSI skðtoni
VITABIOTICS
- þar sem náttúran og vísindin vinna saman
Fæst í flestum lyfjavenslunum
þurrkur sem eru viðurkenndar af
Hollustuvernd. Þurrkurnar fást á
ýmsum hársnyrtistofum og fara
senn í dreifingu í aptótek og á
snyrtistofur.
Kraft-
ur frá
Blá
Band
KOMINN er á
markað nýr
kraftur frá Blá
Band í Dan-
mörku sem
nefnist „Touch
of Taste“. í
fréttatilkynn-
ingu frá Nathan
& Olsen hf. kemur fram að hægt
sé að fá sex mismunandi tegundir,
kálfa-, grænmetis-, kjúklinga-, fiski-,
villisveppa- og humarkraft.
Ilmgufubað
HAFINN er innflutningur á ilm-
gufubaði sem er gegnsætt fristand-
andi hylki sem ýmist einn eða tveir
sitja innis í. í botni gufubaðsins er
einskonar hraðsuðupottur sem síð-
ur vatnið og gerir gufuna lausa við
sýkla. f fréttatilkynningu frá Her-
manni Níelssyni á Egilsstöðum sem
flytur ilmgufuböðin til landsins
kemur fram að lítið hylki sé yfir
hitaranum fyrir mismunandi ilmolí-
ur. Fram kemur þar að ilmolíurnar
séu unnar úr náttúrulegum jurtum
og hafi mismunandi áhrif. Sumum
olíum er ætlað að vinna gegn asma,
svefnleysi og höfuðverk á meðan
aðrar eru sagðar hafa áhrif á gigt,
stífa vöðva og æðabólgur svo dæmi
séu tekin.
Yfir stendur kynning á ilmgufu-
baðinu í sundlaugunum í Laugardal.
Enginn er sérfræðinmir á
Öllum SVÍðum Hringdu
Stanislas Bohic • Landslagsarkitekt • ( 898 4332