Morgunblaðið - 04.05.1999, Síða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Breska lögreglan handsamar mann sem grunaður er um að
hafa staðið fyrir mannskæðum sprengjuárásum í London
Leiddur fyrir rétt og
ákærður fyrir morð
Lögreglan segir manninn ekki tengjast samtökum nýnasista
sem lýst hafa ódæðunum á hendur sér
London. Reuters, The Daily Telegraph.
TUTTUGU og tveggja ára gamall
verkfræðingur var í gær leiddur
fyrir rétt í London og ákærður fyrir
morð eftir að þrjár naglasprengjur,
sem hann er sakaður um að hafa
komið fyrir á ýmsum stöðum í
London undanfamar tvær vikur,
höfðu orðið þremur að bana og sært
meira en eitt hundrað manns.
David Copeland var handtekinn á
heimili sínu í Suður-Englandi
snemma á laugardag, einungis
nokkrum klukkustundum eftir að
þriðja naglasprengjan, sem spring-
ur í London á tveimur vikum, hafði
sprungið á krá í Soho-hverfí og
valdið dauða þriggja. Hann var
leiddur fyrir rétt í gær og ákærður
fyrír morð og fyrir að hafa komið
sprengjunum f'yrir í þeim tilgangi
að valda sem mestum meiðslum.
Urskurðaði dómari Copeland í
gæsluvarðhald til tíunda maí.
Talsmenn bresku lögreglunnar
sögðu í gær ekkert benda til að
Copeland væri tengdur þeim nýnas-
istahreyfingum sem lýstu ódæðun-
um á hendur sér, en mikil skelfíng
TEIKNING listamanns af
David Copeland, sem leiddur
var fyrir rétt í London í gær
og ákærður fyrir þrjár
sprengjuárásir.
greip um sig í London efth- að
naglasprengja sprakk fyrst í
Brixton og síðan í Brick Lane.
Sprengjuherferð þessari virtist
beint gegn minnihlutahópum en í
Brixton búa svartir menn, í Brick
Lane fólk sem á rætur að rekja til
Bangladesh, og kráin í Soho, sem
varð slíkur blóðvöllur á föstudag, er
mikið sótt af samkynhneigðum.
Sprengjur fai'a hins vegar ekki í
manngreinarálit og meðal þeirra
sem létust á föstudag var ófrísk
kona, sem gekk nýlega í hjónaband.
Eiginmaður hennar liggur þungt
haldinn á sjúkrahúsi en í sprenging-
unni létust einnig tveir vinir þeirra
hjóna, annar þeirra hafði verið
brúðkaupsvottur við kirkjuathöfn-
ina. t>au höfðu ætlað að fá sér bjói'-
glas áður en þau héldu í leikhús.
Sterk viðbrögð í Bretlandi
Sprengingin á föstudag vakti afar
sterk viðbrögð í Bretlandi og í gær
heimsótti Karl Bretaprins vettvang
ódæðisins. í viðtali, sem Sky-sjón-
varpsstöðin tók við Karl, mátti ber-
B R
■
K A
m&M:
Auglýsendur!
Minnum á hinn árlega
blaðauka Brúðkaupsem
kemur út fimmtudaginn
13. maí nk., en þess má
geta að blaðaukinn
verður nú gefinn út í
miðformsstærð.
Allar nánari upplýsingar veita
sölu- og þjónustufulltrúar á
auglýsingadeild.
Meðal efnis:
Skipulag brúðkaupsveislunnar • Undirbúningur ungs pars fyrir brúðkaup • Fatahönnuður hannar brúðarföt
á brúðina • Hvað kostar að leígja brúðarkjól * Ráðgjöf fyrir farsælt hjónaband • Hvernig viðhalda á rómantíkinni
Gifting á gamlárskvöld • Brúðkaup að gömlum sið • Brúðkaupsskreytingar • Uppskriftir að mat og kökum
Hárgreiðsla • Förðun • O.m.fl.
Skilafrestur auglýsingapantana er til kl. 12 miðvikudaginn 5. maí.
AUGLYSINGADEILD
Sími 569 1111 • Bréfasími 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is
Reuters
KARL Bretaprins heimsótti vettvang sprengingarinnar á fóstudag í
gær. I samtali við fjölmiðla lýsti Karl hversu harmi sleginn hann varð er
honum bárust fregnir af ódæðinu.
sýnilega sjá að prinsinn hafði kom-
ist við. „Eins og allir aðrir komst ég
í mikið uppnám yfír fréttum af
þessu ódæði,“ sagði Karl. „En það
er mikilvægt að gera sér grein fyrir
að þessum árásum er ekki beint
gegn tilteknum minnihlutahópum
heldur í raun gegn okkur öllum.“
Þúsundir fólks söfnuðust saman í
London á sunnudag í minningu
fórnarlambanna þriggja, og allra
þeirra sem særðust alvarlega í
sprengingunum. Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, hvatti
breskan almenning jafnframt til
þess um helgina að sameinast í bar-
áttunni gegn hatri eins og því sem
liggur að baki slíkra atburða.
Höfum í einkasölu fjögur 212 fm bil í þessu glæsil. atvinnuhúsnæði á 1. hæð sem skiptis! í 160,5
fm sal með 6 - 7 metra lofthæð og 52 fm millilofti. Álklæddir gluggor. Innkeyrsluhurð er meö 3,6
metra lofthæð. Húsið afh. tilb. utan með malbikuðu bílaplani og góðu útiplássi. Að innan verður
húsnæðið lilbúið að öllu leiti og komið inn rafmagn, vatn og hitaveita. Viðhaldslétt húsnæði.
Verðkr. 11.867.500, Þ.e. kr. 55.000 áfm.
Valhöll fasteignasala, sími 588 4477.
OPIÐ8-20
MÁNUDAGA
■FÖSTUDAGA
OPIÐ10-16
LAUGAR-
DAGA
Bílavarahlutaverslun
& bflaverkstæði
• Bónvörur
• Hreinsiefni
• Aukahlutir
20% afsláttur
á bremsuklossum og bremsuboröum
HYUNDAi - MITSUBISHI - NISSflN - SUBARU - T0Y0TA - VOLKSWAGEN
Fréttir á Netinu víC> m b I. i s
/\LLTAF= G/TTH\SA£) A/ÝT7