Morgunblaðið - 04.05.1999, Qupperneq 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Gusmao hugsanlega
gefnar upp sakir
Djakarta. Reuters.
DÓMSMÁLARÁÐHERRA
Indónesíu sagði í gær að hann teldi
réttast að Xanana Gusmao, leið-
toga sjálfstæðissinna á Austur-
Tímor, yrði veitt almenn uppgjöf
saka. Þannig geti Gusmao, sem
verið hefur I haldi sl. sjö ár, lagt
enn meir af mörkum við friðarum-
leitanir á svæðinu.
Muladi, dómsmálaráðherra,
sagðist „persónulega þeirrar skoð-
unar“ að veita ætti Gusmao al-
menna sakaruppgjöf þar sem hann
hefði átt sinn þátt í jákvæðri þróun
friðarviðræðna á svæðinu.
Muladi sagði ríkisstjómina ekki
hafa gefið honum fyrirmæli þessa
efnis. Muladi sagðist óttast um ör-
yggi Gusmao. „Spumingin er
hvort Gusmao geti vemdað sjálfan
sig ef hann verður látinn laus,“
sagði Muladi.
Gusmao var handtekinn árið 1992
og dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir
að leiða vopnaða uppreisn gegn
Indónesíustjóm. Dómur hans var
síðar mildaðui’ í 20 ár en í febrúar á
þessu ári vai- hann færður úr Cipin-
ang fangelsinu í Djakarta, höiuð-
borg Indónesíu, í stofufangelsi til
að auðvelda þátttöku hans í friðar-
umleitunum sem staðið hafa yfu sl.
vikur.
Ödýrir bamaskór
Mikið úrval
Stærðir: 24-35
Litir: Rautt og blátt
Verð: 1.995-
STEINAR WAAGE
SKOVERSLUN
Kringlunni, sími 568
us Medica v. Snorrabraut sími 551 851 9, Rvík.
Hundruð þúsunda Kosovobúa hafa hrakist á flótta vegna
átakanna i Júgóslavíu að undanförnu. Fólkið þarf á brýnustu
nauðsynjum á boró við mat, hreinlætisvörur og teppi að halda.
Munið söfnunarreikning okkar i SPRON, 1151-26-12
(kt. 530269-2649) og gíróseðla í bönkum og sparisjóóum.
Nánari upplýsingar í síma 570 4000
+
Rauði kross íslands
Reuters
CHRISTOPHER Stone, einn bandarísku hermannanna þriggja, held-
ur á fjögurra ára syni sínum við hlið eiginkonu sinnar, Tricia, á svöl-
um herspítala bandaríska hersins í Landstuhl í Þýskalandi í gær.
Bandarísku
hermennirnir
lausir úr haldi
Mikill straumur flóttafólks
frá Kosovo um helgina
Belgrad, Washington, Tirana, Skopje, Blace. Reuters. AP. The Daily Telegraph.
FANGARNIR þrír, sem serbneskir
hermenn tóku til fanga fyrir rúmum
mánuði, voru látnir lausir úi' haldi á
sunnudag fyrir tilstuðlan hins banda-
ríska Jesses Jacksons, sem barist
hefur fyrir mannréttindum blökku-
manna í Bandaríkjunum. Sl. daga
hafa töluverðar þreifingar verið í við-
ræðum um hugsanlega lausn á
Kosovo-deilunni og funduðu banda-
rískir þingmenn með rússneskum og
serbneskum fulltrúum í Vínarborg
um helgina. Gífurlegur straumur
flóttafólks hefur legið frá Kosovo sl.
daga og komu a.m.k. 11.000 manns að
landamærunum við Makedóníu í gær.
Bandarísku hermönnunum þrem-
ur var sleppt úr haldi sl. sunnudag
eftir að Jackson hafði farið þess á
leit við Slobodan Milosevic, forseta
Júgóslavíu.
Var Jackson staddur í Serbíu er
mennirnir voru látnir lausir og voru
lausn þeirra gerð góð skil í serbnesk-
um ríkisfjölmiðlum. Að mati frétta-
skýrenda er ljóst að forsetinn hefur
með þessu viljað bæta ímynd sína
meðal íbúa Vesturlanda.
Hermennimir voru fluttir til
Landstuhl í vesturhluta Þýskalands
þar sem þeir gengu undir bráða-
birgðalæknisskoðun í gær á lækna-
miðstöð bandaríska hersins. David
Grange, liðsforingi í bandaríska hem-
um, sagði að þrátt fyrir fullyrðingar
mannanna um að þeir hefðu fengið
góða meðferð serbneskra hermanna,
hefði læknisskoðun gefið ýmislegt til
kynna um að svo hefði ekki verið.
Sagði hann niðurstöður frekari
rannsókna lækna mundu leiða í ljós
hvað væri rétt í þeim ályktunum, en
sum meiðslanna muna mennirnir
ekki hvernig þeir hlutu.
Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna,
bauð hermennina velkomna heim en
sagði jafnframt mikilvægt að hugsa
til þeirra „milljón Kosovo-Albana sem
ekki komast til síns heima“.
FriðartiIIögur fá
ekki hljómgrunn
Jackson fór með bréf frá Milosevic
til Bandaríkjanna um hugmyndir
forsetans um lausn á deilunni og
hugsanlegan fund serbneskra og
bandarískra ráðamanna. Jackson
sagði bréfið „mikilvægt skref' í átt
að friði en undirtektir bandarískra
ráðamanna við innihaldi þess voru
hins vegar fremur dræmar.
Sagði James Rubin, talsmaður ut-
anríkisráðuneytis Bandaríkjanna,
bréfið hafa litla þýðingu. Hann sagði
friðarumleitanir Viktors
Tsjernómýrdins, sérlegs erindreka
Rússlands í Kosovo-deilunni, líklegri
til að varpa ljósi á hvað það væri sem
vekti fyrir Milosevic.
Tsjernómýrdin og Bill Clinton,
forseti Bandaríkjanna, funduðu í
gær í Washington um hugsanlega
lausn á átökunum. Fundur þeirra
kemur í kjölfar friðarviðræðna
bandarískra þingmanna við rúss-
neska lögmenn og fulltrúa Milos-
evics um helgina í Vín í Austurríki.
Þingmennirnir lögðu friðartillögurn-
ar fyrir fulltrúa NATO eftir fundinn
og þótti þeim ekki mikið til þeirra
koma. Sagði talsmaður breska utan-
ríldsráðuneytisins tillögumar „ekki
þess virði að ræða um.“
Flóttmannastraumur
gífurlegur
Straumur flóttafólks frá Kosovo
hefur verið gífurlegur síðustu daga
og frásögnum þess af þjóðernis-
hreinsunum serbneskra hermanna í
héraðinu fjölgai- með degi hverjum.
Sl. tvo daga hafa um 3.600 Kosovo-
Albanar flúið til Albaníu og um 11.000
flóttamenn komu að landamærum
Makedóníu í gær sem var sem olía á
eldinn í flóttamannabúðum þar, sem
þegar voru orðnar yfirfullar.
Paula Ghedini, talsmaður Flótta-
mannahjálpar SÞ, sagði ástandið
ekki hafa verið svona slæmt frá því í
byrjun apríl er 68.000 Kosovo-Alban-
ar ílúðu héraðið og biðu þess að
komast yfir landamærin.
Ghedini sagði fyrirhugað að senda
eins marga og mögulegt væri til
Cegrane, sem eru nýjar flótta-
mannabúðir í vesturhluta Makedón-
íu. Að hennai- sögn er fólksfjöldinn í
búðunum þar kominn í 17.000 á að-
eins þremur dögum og hafa margir
þurft að sofa undir berum himni. I
gær fóru einnig nokkur hundruð
flóttamanna yfir landamærin hjá
Jazince, norðvestur af Skopje.
Flestir flóttamannana komu irá
Pristina, héraðshöfuðborg Kosovo,
með lest til Makedóníu. Ghedini sagði
fólkið hafa dvalið í nokkrar vikur í
fjallendi Bajgora eftir að mikil átök
höfðu geisað á svæðinu. Ghedini sagði
um 200 karla hafa verið aðskilda fi'á
konum og bömum í Pristina og því
hefðu um 70% þeirra sem komu með
lestinni verið konur og börn.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, kom til Makedóníu í gær
til að kynna sér flóttamannaástand-
ið og hitta breska hermenn. Tals-
menn NATO sögðu í gær að fyrir-
hugað væri að setja upp flótta-
mannabúðir í Albaníu fyrir u.þ.b.
160.000 flóttamenn, þ.ám. 60.000
sem flúið hefðu til Makedóníu. Að
sögn hjálparstarfsmanna á svæðinu
gengur hægar en gert hafði verið
ráð fyrir að flytja flóttafólkið til
annarra landa en nágrannaríkja
Kosovo.