Morgunblaðið - 04.05.1999, Síða 32

Morgunblaðið - 04.05.1999, Síða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Leiðtogi skoskra þjóðernissinna segir að ísland geti átt von á vinsamlegum samskiptum við sjálfstætt Skotland Þykir umdeild- ur en öflugur stjórnmála- maður Skoskum þjóðernissinnum hefur heldur vaxið ásmegin, ef marka má skoðana- kannanir fyrir kosningar sem fram fara í Skotlandi á fímmtudag. Davíð Logi Sigurðsson fór og fylgdist með Alex Salmond, leiðtoga þeirra, í Glasgow í lokahnykk kosningabaráttunnar. Morgunblaðið/Davíð Logi Sigurðsson ANDREW Wilson, einn frambjóðenda Skoska þjóðarflokksins (SNP) og Alex Salmond, leiðtogi SNP, á fréttamannafundi í Glasgow á föstudag. Fyrirtæki í skoskum viðskiptaheimi litið hrifín af hugmyndum SNP „Ahyggjur okkar hljóta að skipta talsverðu máli“ ALEX Salmond, leiðtogi Skoska þjóðarflokksins (SNP), sagði í sam- tali við Morgunblaðið að Islending- ar gætu átt von á vinsamlegum og frjósömum samskiptum við sjálf- stætt Skotland, en SNP hefur sem kunnugt er á stefnuskrá sinni að- skilnað Skotlands frá Bretlandi. SNP hefur undanfarna daga verið að sækja í sig veðrið í kosningabar- áttunni og þótt flokkurinn eigi varla möguleika á því lengur að vinna sigur í kosningunum, sem fram fara á fimmtudag, var sannar- lega enginn uppgjafartónn í Salmond á föstudag þegar blaða- maður Morgunblaðsins hitti hann að máli. SNP birti á föstudag skýrslu um sýn flokksins á efnahagsumhverfið í Skotlandi, yrði landið sjálfstætt. Andstæðingar flokksins hafa lengi krafíð SNP um þessa skýrslu enda halda Salmond og félagar því statt og stöðugt fram að skoskur efna- hagur myndi styrkjast segðu Skot- ar skilið við Bretland. Salmond fullyrti á fréttamanna- fundi á Moat House-hótelinu í Glasgow að sjálfstætt Skotland ætti að geta aukið hagvöxt sinn verulega, og skv. útreikningum þeirra SNP-manna yrði Skotland komið upp í sjöunda sæti yfír rík- ustu lönd heimsins á einungis örfá- um árum fengju þeir að ráða. Fréttamenn, sem viðstaddir voru fréttamannafundinn, virtust ekki ýkja sannfærðir og gerðu harða hríð að málflutningi Salmonds. Þeir vildu fá að vita hvar Skotland stæði efnahagslega ef þær forsendur sem SNP gefur sér stæðust ekki og þeir bentu á að ekki væri nægilegt að sýna Skotum fram á hvað gæti gerst ef allt gengi að óskum, líka yrði að útlista fyrir fólki hvað gæti gerst ef allt færi á versta veg. Salmond lét hins vegar engan bilbug á sér finna og bar sig vel í samtali við Morgunblaðið. Sagði Salmond að ísland væri einmitt ágætt dæmi um að smáríki geti plumað sig vel eitt síns liðs. „ísland er auðvitað eitt af rík- ustu löndum í heiminum og okkur í SNP fínnst ótrúlegt að til séu þeir í þessari kosningabaráttu sem halda því fram að, ólíkt íslandi, þá geti Skotland ekki með neinu móti orðið velmegandi sjálfstætt ríki. En við stefnum sannarlega að því að eiga vinsamleg og uppbyggileg sam- skipti við okkar nánustu nágranna á íslandi.“ Kvartar yfír fjölmiðlum Salmond var þægilegur og skýr- mæltur í svörum sínum á frétta- mannafundinum í Glasgow og hann lét fréttamenn ekki setja sig út af laginu, þótt þeir gerðu að honum harða hríð. SNP hefur hins vegar ít- rekað kvartað yfír því í kosninga- baráttunni að skoskir fjölmiðlar væru meira en lítið hlutdrægir, og harla óvinveittir þjóðemissinnum. Sú meðferð sem ræða leikarans Seans Connerys á fundi SNP í Ed- inborg fyrir viku fékk í einu slúð- urblaðanna gekk svo fram af for- ystu SNP að ákveðið var að flokk- urinn myndi sjálfur hefja útgáfu dagblaðs. Hér var að vísu aðeins um fjórblöðung að ræða, og í fyrsta tölublaði á fimmtudag gleymdist algerlega að segja frá glæstum sigri skoska knattspyrnu- landsliðsins á Þjóðverjum í Bremen á miðvikudag, sem þó vakti án alls efa mesta athygli í Skotlandi og kitlaði líklega þjóð- arstoltið lítillega. Reyndar rennur þeim í hug, sem fylgist með kosningabaráttunni í Skotlandi, að kvartanir SNP yfir umfjöllun fjölmiðlanna séu ekki fyllilega sanngjarnar, og að e.t.v. henti það þjóðernissinnum ágæt- lega að leika hlutverk uppreisnar- flokks sem alls staðar mætir mót- BARÁTTA Skoska þjóðarflokksins (SNP) fyrir sjálfstæði Skotlands hef- ur ekki fallið sérstaklega vel í kramið meðal aðila í viðskiptaheim- inum og hvað sem líður öllum stað- hæflngum SNP í þá veru að sjálf- stæðu Skotlandi myndi vegna vel efnahagslega þá virðast stærri fyrir- tæki í Skotlandi á þeirri skoðun að hag þeirra yrði verr borgið heldur en ella fengi SNP sínu framgengt. Alan Young, talsmaður lífeyris- og líftryggingafyrirtækisins Scottish Widows, sagði í samtali við Morgun- blaðið að fíármálastofnanir í líkingu við Scottish Widows hafí áhyggjur af þeirri staðreynd að aðskilnaður Skotlands og Bretlands reisi landa- mæri milli rfkjanna. 90% viðskipta- vina Scottish Widows ku vera sunn- an við landamæri Skotlands og því hafí fyrirtækið augsýnilega engan áhuga á að slík landamærí séu reist. Staðreyndin er nefnilega sú, segir Young, að erfitt er að stunda við- skipti, eins og þau sem Scottish Widows stundar, yfir landamærí. „Afstaða okkar er því sú að sjálf- stæði gæti reist vegg milli okkar og 90% viðskiptavina okkar sem ætti að útskýra þær áhyggjur sem við höf- um af málinu.“ Á hinn bóginn segir Young að það sé núna almennt við- urkennt f viðskiptaheiminum að heimastjómarþingið nýja, sem kosið er til á fimmtudag, gæti orðið til gagns, og að stofnun þess sé heilla- skref. Scottish Widows meðal stærstu fyrírtækja í Skotlandi Að sögn Youngs em starfsmenn Scottish Widows um 3000 og það er því bæði stórt og umsvifamikið. Til marks um stöðu þess í skosku við- skiptah'fi má geta þess að Mike Ross, forstjóri fyrirtækisins, er jafnframt formaður Scottish Financial Enter- prise, sem em einskonar heildar- samtök allra skoskra fjármálafyrir- tækja. Young bendir reyndar á að þegar rætt er um sjálfstæði skipti tals- verðu máli hvers konar fyrirtæki menn reki. Hann viðurkennir að ekki sé útilokað að lítil og meðalstór fyrirtæki hafi aðra skoðun á málinu, enda ræðst liagur þeirra ekki í jafn ríkum mæli af útflutningi til ann- arra hluta Bretlands. „En þegar öllu er hins vegar á botninn hvolft - og þetta er kannski ekki ýkja geðfelld staðreynd - byggist efnahagur þjóð- ar fyrst og fremst á því hvemig stærri fyrirtækjum reiði af. Áhríf okkar á skoskan efnahag em ein- faldlega svo mikil að áhyggjur okk- ar hljóta að skipta talsverðu máli,“ sagði Young í samtali við Morgun- blaðið. stöðu í „kerfinu“, og stendur einn gegn „öllum hinum“, en á sér göfugan málstað. Að fréttamannafundinum á föstudag loknum fengu nokkrir fjölmiðlar, þ.á m. Morgunblaðið, að taka stutt viðtöl við Salmond, sem reyndar skýtur ögn skökku við þar sem SNP hafði tilkynnt nokkrum dögum áður að flokkur- inn hygðist algerlega forðast fjöl- miðlana, og í staðinn leggja áherslu á að hitta fólkið sem raunverulega skipti máli, þ.e. kjósendurna, og eiga orðastað við þá beint. Einung- is þannig gæti SNP korhið skila- boðum sínum óbrengluðum til skila, á fjölmiðlana væri ekki hægt að treysta. Þessu næst þusti Salmond af stað og hugðist vera viðstaddur góðgerðarmálsverð á Hilton-hótel- inu í Glasgow. Þar flutti Tony Bla- ir, forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Verkamannaflokksins, stutta hátíðarræðu þar sem hann notaði tækifærið til að gagnrýna harðlega „aðskilnaðarstefnu" SNP, og það sem hann kallaði óraunhæf- ar efnahagsáætlanir. Lýðskrumari eða maður fólksins? Eins og áður sagði hafði Salmond virst furðu afslappaður á fréttamannafundinum um morgun- inn, allavega ef tillit er tekið til þess að hörð kosningabarátta var að ná hámarki. Undir ræðu Blairs sat Salmond hins vegar ekki róleg- ur og var bersýnilega í allnokkurri geðshræringu þegar hann teygði sig í plagg, þar sem á stóð „blekk- ingar“, og hélt hátt á lofti, eins og til að stela senunni af forsætisráð- herranum breska og trufla ræðu- hald hans. Að mörgu leyti má segja að Salmond hafí með þessari uppá- komu sýnt bæði sínar bestu og verstu hliðar. Hann er ekki óum- deildur í Skotlandi og hefur m.a. verið sakaður um að vera lýð- skrumari, að baráttuaðferðir hans einkennist af því að draga að sér athyglina með ómerkilegum uppá- tækjum sem ekki sæmi leiðtoga flokks sem sækist eftir forsætis- ráðherraembætti í skoskri heima- stjórn. A hinn bóginn mættu andstæð- ingar Salmonds vara sig á því að vanmeta hann. Salmond er nefni- lega fær stjórnmálamaður, þótt nokkuð hafi blásið á móti þar til í síðustu viku í þessari kosningabar- áttu. Og um Salmond má í það minnsta segja að hann er fjarska frísklegur stjórnmálamaður, óskammfeilinn og hrífandi. Það sást berlega þegar kjósandi trufl- aði Salmond í miðju samtali við blaðamann Morgunblaðs til að segja honum að hjá sér kæmi ekk- ert annað til greina en að kjósa SNP. „Eg vildi bara segja þér að mér finnst þú standa þig frábær- lega,“ sagði maðurinn og eins og góðum stjórnmálamanni sæmir snéri Salmond sér að manninum, tók honum með kostum og kynjum og þakkaði kærlega fyrir stuðning- inn. Folk, viðtol, dagskra Skilafrestur auglýsingapantana í næsta blað er til kl. 16 miðvikudaginn 5. maí. Sími: 569 1111 * Bréfasími: 569 1110* Netfang: augl@rnbl.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.