Morgunblaðið - 04.05.1999, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999 35
LISTIR
Beinið stendur
nakið eftir
ÖNNUR Ijóðabók Sindra Freys-
sonar heitir Harði kjarninn
(Njósnir um eigið líf) og er nýút-
komin. Fyrsta ljóðabók Sindra
kom út árið 1992 og fyrir síðustu
jól kom út fyrsta skáldsaga hans.
Hann hefur líka samið smásögur
og leikrit.
Stemmningar og augnablik
ljóðanna í Harða kjarnanum eru
staðsett víðsvegar um heiminn, í
ókunnugum og ekki ókunnugum
herbergjum og rúmum, við ólík-
ar götur, í bíómyndalegu um-
hverfi og hversdagslegu og síð-
ast en ekki síst í heiminum sem
ekki hefur verið svo nákvæmlega
kortlagður þar sem tilfinningar
mannanna búa.
- Ljóðið Stór eyru heyra fátt
segir frá því „gríðarstóra eyra“
sem stendur við útvarpshúsið í
Efstaleiti og hlustar eftir við-
burðum heimsins en greinir ekki
„bylgjurnar af ástarleik okkar í
Vesturbænum..." Ef lagt er útfrá
Ijóðinu má segja að ljóð Sindra
hafi lítil eyru og heyri gjarnan
það sem ekki má heyrast eða
heyri það sem hefur á einhvern
hátt gleymst. Þegar Sindri er
spurður um þetta segir hann:
„Við lifum á tímum þar sem
njósnahnettir geta tekið nær-
mynd af litla fingri manns í
Malasíu, þar sem hægt er að
miða út farsíma til að finna eig-
anda hans af svo mikilli ná-
kvæmni að varla skeikar nema
nokkrum sentímetrum, þar sem
hægt er að fylgjast með hvað þú
eyddir miklu á krítarkortinu
þínu, klukkan hvað og í hvaða
verslun þú keyptir bók í gær eða
buxur á morgun. Stríð eru háð í
beinni útsendingu í sjónvarpi, á
Netinu geturðu horft á daglegt
amstur fólks allan sólarhringinn.
Og svo framvegis.
Hvernig bregðast menn við
þegar heimurinn virðist gegnum-
lýstur? Jú, þeir horfa inn á við og
leita í þau skjól sem þeir telja
enn ósnortin. Það eru eins konar
undirheimar einkalífsins, veröld
neðanjarðar í þér sjálfum. Þver-
sögnin er auðvitað sú að maður
veitir öðrum innsýn í þennan
heim þegar maður skrifar um
hann. Höfundurinn ræður hins
vegar hvað hann sýnir og enginn
getur verið viss um hvað er
skáldskapur og hvað veruleiki.
Þau forréttindi nýti ég mér til
fulls.“
- Njósnir um eigið líf... Þetta
er góð lína og hún býr til sér-
staka afstöðu til sjálfsins. Hvern-
ig varð titillinn til?
„Hann varð til í baksýn einsog
margir góðir hlutir, það er svo
auðvelt að vera vitur eftirá að
hyggja. Harði kjarninn getur vís-
að til þess að í Ijóðunum er allur
óþarfi skorinn frá skepnunni og
beinið stendur nakið eftir; en í
því leynist mergurinn. Harði
kjarninn getur lfka vísað til þess
að tónninn í þessum textum er
oft hörkulegur og sömuleiðis
áberandi þættir í bókinni: borgin,
tæknin, djammið, nóttin, víman,
skyndikynnin og árekstrar fólks
heima og heiman, fólks sem vill í
raun og veru frekar vera í faðm-
lögum. Sumir telja einnig að
harði kjarninn tengist innsta
hluta mannsins.
Ein vinkona mín kom lika með
þá ágætu tilgátu að harði kjarn-
inn væri taugaendi nokkur í ann-
ars mjúku umhverfi og ég er svo-
lítið skotinn í þeirri skýringu.
Ekki síst minnist ég hennar þeg-
ar strokið er yfir rauða upp-
hleyiita punktinn á forsíðu bók-
arinnar. Undirtitillinn, Njósnir
um eigið líf, skýrir sig sjálfur
held ég, því textinn er oft á tíð-
um nærgöngull við höfundinn og
nánasta umhverfi hans. Lesendur
fá útrás fyrir hneigð sína til að
l*ggja a gægjum á meðan höf-
undurinn eltir sjálfan sig, hlerar
tninaðarsamtöl og tekur eftirlits-
myndir úr leynum. Allar hreyf-
ingar eru skrásettar, skjalfestar
og skilgreindar. Einkalífið fær
engan frið.“
- Ljóðin fá heldur ekki að vera
í friði eins og venjuleg ljóð í
ljóðabók því þú tekur út setningu
úr hveiju ljóði og birtir (stækk-
aða) á undan því, óháð titli ljóðs-
ins. Þannig býrðu til aukaljóð úr
ljóðinu. Hver er hugmyndin á
bakvið, ef það er ekki of frakkt
að spyrja?
„Hugmyndin tengist nafni bók-
arinnar; með því að taka út
stikkorð er gengið enn lengra í
því að nálgast harða kjarnann í
textanum, nánast borað inn í
liann. Fyrir vikið verður til bók
innan bókarinnar, þannig að
segja má að lesendur fái tvær
bækur á verði einnar. Stundum
minnir þetta einnig á konkret-
ljóðagerðina, en þó er útfærslan
einfaldari og stflhreinni að mínu
viti. Hugmyndin kviknaði í náinni
samvinnu við drottningarnar í
Hunangi, þær Sigrúnu Sigvalda-
dóttur og Ragnhildi Ragnarsdótt-
ur, sem hönnuðu útlit bókarinnar
af stakri snilld og lögðu ómældan
tíma og hugkvæmni í að gera
hana sem best úr garði. Um leið
eru þessi orð og setningar ekki
ósvipuð leiðarvísum eða vísbend-
ingum sem lesandinn getur tekið
mið af á ferðalagi sínu um bók-
ina, en ég minni þó á að kannski
er verið að leiða hann afvega í
sumum tilvikum. Kannski er kast-
Ijósinu varpað á orð sem hefur
ekki lykilstöðu í ljóðinu og því
varhugavert að einblína þangað
þegar textinn er lesinn, en
kannski skiptir viðkomandi orð
höfuðmáli... Síðast en ekki síst er
þetta fallegur leikur með text-
ann, leikur sem gleður augað,“
segir Sindri Freysson að Iokum.
Og Ijóðabók hans er svo sannar-
lega fyrir augun, þau innri og
þau ytri. Og að ekki sé minnst á
augu fíngurgómanna.
í kösinni
I dansi get ég gleymt mér
fargað þessum einskisverðu stundum
Eru ekki allir vinir í svartri kösinni
án minnis, án máls, án fortíðar
óraveg írá grýttu landinu
A dimmum stað í miðri borginni
erum við ekki til; rið dönsum
Við eram fætur, hendur sem sveiflast
augu að lokast á meðan tónlistin
hamrar á eyranum
Við erum svífandi höfuð
Við eram eitt andartak
Síðasta minning dyravarða
áður en þeir sofna
timbraðir af vímu annarra
I dansi get ég gleymt mér
drukkinn af hreyfingunni, snertingunni
fjarlægðinni frá næsta manni
Við vörpum engum skugga
á titrandi gólflð, við erum aðeins til
í hugum eigenda
og staðirnir skipta stöðugt
um eigendur
BIODROGA
Lífrænar jurtasnyrtivörur
HÁLSKREM
Hálskrem
Hálskrem
Hálskrem
Nýja hálskremið frá BIODROGA smitast
ekki í föt og ber frábæran árangur.
Utsölustaðir: Stella, Bankastræti,
Ingólfsapótek, Kringlunni,
Snyrtistofa Lilju, Stillholli, Akranesi,
Stjörnuapótek, Akureyri.
Bankastræti 3, sími 551 3635
NÝ ADELE
TÓIVLIST
í s 1 e n s k a « p e r a n
LEÐURBLAKAN
Á SÝNINGU íslensku óper-
unnar á Leðurblökunni á laug-
ardagskvöldið tók Hrafnhildur
Björnsdóttir við af Þóru Ein-
arsdóttur í hlutverki Adele,
þjónustustúlku Eisensteinhjón-
anna.
Þar sem þegar hefur verið
fjallað um sýninguna verður að-
eins látið nægja að geta þess að
sýningin í heild hefur slípast og
er allur leikur og söngur í góðu
jafnvægi.
Rödd Hrafnhildar er sem
sniðin fyrir hlutverkið, létt og
björt súbretturödd. Hrafnhild-
ur hefur einnig til að bera
þokka og útgeislun sem gæða
hlutverkið karakter. Leikur
hennar var finn, ekki síst í kó-
mískum samskiptum við vinnu-
veitanda hennar, Eisenstein.
Það eru tímamót í Islensku
óperunni. Um helgina var til-
kynnt ráðning nýrra forráða-
manna; framkvæmadastjóra og
listræns stjórnanda óperunnar.
Víst er að miklar vonir verða
bundnar við að þessu tvíeyki
takist að margefla Islensku óp-
erana og vinna nýja sigra í
hennar nafni og er þeim óskað
velfarnaðar á þeirri vegferð.
Bergþóra Jónsdóttir
Handboltinn á Netinu é®> mbl.is
ALLTAf^ (=/TTH\/A-E) A/ÝT7
Stökktu til
Benidorm
26. maí
í 1 eða 2 vikur
frá kr.
Heimsferðir bjðða . SíðUStU 24 SÍBtÍn
nú þetta ótrúlega til-
boð til Benidorm hinn 26. maí, þessa vinsælasta
áfangastaðar íslendinga. Þú bókar núna og tryggir
þér sæti í ferðina 26. maí og fjórum dögum fyrir
brottför hringjum við í þig og tilkynnum þér á
hvaða gististað þú gistir í fríinu. Á Benidorm er
sumarið byrjað og hér nýtur þú frísins við frábærar
aðstæður og um leið getur þú valið um spennandi
Verð kr. 29.955 Verð kr. 39.990
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, vikuferð 26. maí, skattar innifaldir. M.v. 2 í herbergi/fbúð, vikuferð 26. maí, skattar innifaldir.
Verð kr. 39.955 Verð kr. 49.960
M.v. hjón með 2 börn í íbúð, 2 vikur 26. maí, skattar innifaldir. M.v. 2 í studíó/íbúð, 2 vikur, 26. maí, skattar innifaldir.
l
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is