Morgunblaðið - 04.05.1999, Qupperneq 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Gerum ekki geðsjúk börn
að pólitísku deilumáli!
Á undanförnum vik-
um hafa málefni geð-
sjúkra barna og ung-
linga verið til umræðu
og er öllum neyðin ljós.
Trúum við foreldrar því
að nú sé tími uppbygg-
ingar að fara í hönd.
Ekki þykir foreldrum
það vænlegur kostur að
leita að blóraböggli fyrir
því ástandi sem nú ríkir.
Geðsjúk börn hafa verið
til á öllum kjörtímabil-
um á Islandi. Svo látum
kyn-t liggja og horfum
til framtíðar.
Barna- og unglinga-
geðdeild
I umræðunni undanfarið hefur
gleymst að þakka það góða starf sem
starfsfólk á BUGL innir af hendi.
Þjónustan er byggð utan um 0,2%
barna, en alls staðar í nágrannalönd-
um okkai- er viðurkennd þörf 2% og
er það væntanlega hópurinn sem
bankar á dyrnar hjá BUGL. Ef til
vill er það skýringin á biðlistanum.
Gerum við foreldrar okkur fulla
grein fyrir því að starfsfólk á BUGL
gerir allt sem í þess valdi stendur
okkur til hjálpar og að þar hefur ver-
ið unnið ómetanlegt starf við mjög
erfiðar aðstæður?
Við skulum beina sjónum að því
sem bæta þarf. BUGL þarf að
stækka svo biðlisar hverfi, fjölga
innlagnarplássum, bráðamóttaka
þarf að vera fyrir hendi, göngudeild
þarf að efla því stórum hópi má
hjálpa með göngudeildarþjónustu.
Skólamál þarf að bæta, stærsta
hópnum má sinna úti í almennum
skóla í sérdeildum eða með stuðn-
Jenný
Steingrfmsdóttir
ingi. En lítill hópur
barna þarf á sérskóla
að halda, Dalbrautar-
skóli tekur við
innfiiggjandi börnum
og unglingum, en út-
skrift miðast i lang-
flestum tilfellum við frá
báðum stöðum í einu.
Verður einnig að horfa
til þeirrar ábyrgðar
sem lögð er á kennara
og annað starfsfólk
skóla að bera ábyrgð á
alvarlega geðsjúkum
einstaklingi inni í stór-
um hópi barna.
Deildin þarf fjár-
magn til þess að hafa
opið 365 daga á ári,
þegar greiningarvistun lýkur þarf að
vera til langtímameðferðarheimili
fyrii- þau börn sem ekki geta dvalið
heima. Hvíldarheimili er langþráður
draumur sem væntanlega myndi
létta mörgum foreldrum lífið og
einnig vera tilbreyting fyrir börnin,
sem mörg hver lifa í félagslega ein-
angruðu umhverfi.
Pólitískt bitbein
Börnin okkar eru veik og finnst
okkur foreldrum hálfskrítið til þess
að hugsa að þau séu orðin að póli-
tísku bitbeini, okkur langar mun
meira til þess að heyra að fyiir
haustið verði bætt úr þó ekki sé
nema einni af brýnum þörfum okkar.
Þessi barátta snýst ekki um pólitík
heldur um mannréttindi, hættum að
kasta á milli okkar gatslitnum bolt-
anum og spyrjum að leikslokum. A
lokuðum fundi sem haldinn var á
Túngötu 7 hinn 24. apríl sl. kom fram
að ailir frambjóðendur hefðu vilja til
Velferðarmál
Börnin okkar eru veik
og finnst okkur foreldr-
um hálfskrítið til þess
að hugsa, segir Jenný
Steingrímsdóttir, að
þau séu orðin að póli-
tísku bitbeini.
að styðja við bakið á börnum og ung-
lingum með geðsjúkdóma. Allir voru
sammála um alvöru málsins.
Foreldrafélag
Þögnin sem ríkt hefur í kringum
þennan hóp hefur verið alger og
kannski þess vegna sitjum við svona
aftarlega á merinni. Ekki var það
ætlun foreldrafélagsins að vinna fyr-
ir okkar hóp með sorglegum sögum
af börnunum okkar en því fór sem
fór. Við stöndum nú á tímamótum,
stofnað hefur verið foreldrafélag
geðsjúkra barna og unglinga og
hvetjum við foreldra sem ekki hafa
nú þegar skráð sig í félagið að gera
það hið fyrsta. Viljum við þakka líkn-
arfélögum, stofnunum og fyrirtækj-
um fyrir styrk og hlýhug okkur til
handa. Fyrsti aðalfundur félagsins
verður þriðjudaginn 4. maí kl. 20.30 í
fundarsal Bama- og unglingageð-
deildar, Dalbraut 12. Sýnum sam-
stöðu og mætum öll.
Höfundur skrifur fyrir hönd For-
eldrafélags geðsjúkra barna og
unglinga.
> VEISTU
AF HVERJU
VIÐFÁUM
HRUKKUR
MEÐ ALDRINUM?
Húbin hægir á framleiðslu Q10,
elninu sem heldur húðinni sléttri.
Nú er hægt ab fá Q10 í dag-, nætur
og augnkremi frá Nivea Visage.
Veldu þaö sem hentar þér og
húbinni þinni best.
NIVEA
VISAGt;
QIO frá Nivea Visage
andiitskrem sem virka!
www.jsh.is
Aðgerðir tann-
lækna í þágu
þroskahamlaðra
„Aðgerðir tannlækna
til þess að fá leiðrétt-
ingu á mistökum
Tryggingastofnunar
ríkisins,“ segir Þórir
Schiöth formaður
Tannlæknafélags Is-
lands, „hafa skilað ár-
angri fyrir þroska-
hamlaða."
í Morgunblaðinu 28.
apríl síðastliðinn skrif-
ar Sæmundur Stefáns-
son grein þar sem hann
túlkar ástæður fyrir
samningsslitum á við-
ræðum milli Tann-
læknafélags íslands og
Tryggingastofnunar
ríkisins. Ennfremur gefur hann í
skyn að einungis fjórir reikningar
frá tannlæknum vegna fatlaðra
barna hafi ekki verið endurgreiddir
rétt. Hið rétta er að stjórn tann-
læknafélagsins veit um tugi reikn-
inga sem ekki hafa fengist greiddir.
Tannlæknar vita, að það hefur enga
þýðingu að senda inn reikninga sem
ekki koma til með að verða greiddir.
Ef reikningi er hafnað skráist hann
Tannlækningar
Tryggingayfírtannlækni,
segir Þórir Schiöth var
allan tímann fídlljóst
hvað hann gerði.
ekki inn í tölvukerfi Tiygginga-
stofnunar. Því hefur Sæmundur
Stefánsson ekkert yfirlit yfir
ógreidda reikninga. Ummæli hans
dæma sig því sjálf.
Forsaga samningsslita
Um árabil hefur verið samningur
í gildi á milli Tannlæknafélags ís-
lands og Tryggingastofnunar ríkis-
ins um gjaldskrá á tannlæknisverk-
um fyrir tryggða sjúklinga. Þessi
samningur er ekki lengur í gildi.
Undir þessum kringumstæðum,
samkvæmt almannatryggingalög-
um, ákveður heilbrigðisráðheiTa
hversu mikið er endurgreitt af
tannlæknareikningum. Nú hefur
slitnað upp úr samningaviðræðum
og engir samningafundir eru fyrir-
hugaðir. En, hvað rekur tannlækna
til að setja málin í slíka upplausn?
Jú, ástæðan er niðurskurður heil-
brigðisráðherra sem skerðir for-
varnir barna og unglinga. Þessi nið-
urskurður byrjaði með reglugerð,
no 664, frá 1996 sem kom til fram-
kvæmda í ársbyrjun 1998. Forvarn-
ir þroskahamlaðra vora þá einnig
skertar. Ný reglugerð, no 29, frá
síðustu árámótum skerti forvarnir
enn meira. Tilkoma fyrrgreindra
reglugerða breyttu starfsumhverfi
samningsins við tannlækna og því
var samningnum í raun sagt upp af
heilbrigðisráðherra.
Tannlæknar eru heftir faglega og
geta ekki beitt bestu lausnum vegna
munnholsvandamála tryggðra sjúk-
linga. Þetta hefur bitnað á þeim
sem síst skyldi; barnmörgum fjöl-
skyldum, vistmönnum stofnana,
þroskahömluðum og börnum með
alvarlega fæðingargalla. Ekki er
lengur endurgreitt vegna flúormeð-
höndlunar 13-17 ára, notkun á efn-
um sem hjúpa og loka tyggiskorum
hefur verið skert og fræðslu um
tannvernd hefur verið kastað út.
Ennfremur era skertar heimildir til
röntgenmyndatöku þar sem tann-
læknar fylgjast með byrjandi tann-
skemmdum og beita tannvernd í
stað þess að bora strax í tennur og
setja fyllingar. Þessi niðurskurður
var einnig látinn ganga yfir fótluð
og þroskahömluð börn.
Sá um tölvukerfið
Starfsmenn Trygg-
ingastofnunar ríkisins
hafa einungis sagt hálf-
an sannleikann til
þessa í fjölmiðlum, því
hvergi er minnst á
eldri reglugerðina, no
664, sem er upphafið að
öllu saman.
Tryggingayfirtann-
læknir í samráði við
forstjóra Trygginga-
stofnunar sá um að
koma ákvæði eldri
reglugerðarinnar fyrir
í tölvukerfi Trygginga-
stofnunar í ársbyrjun 1998. Þá
komu þeir því þannig fyrir að niður-
skurður á forvörnum bitnaði á
þroskahömluðum, þrátt fyrir að
þeir ættu ekki að verða fyrir skerð-
ingu á forvörnum samkvæmt lög-
um. Ti'yggingayfirtannlækni var
allan tímann fullljóst hvað hann
gerði, enda sendi hann dreifibréf til
allra tannlækna og tilkynnti hertar
reglur í sambandi við forvamir.
Þetta er ekki eina dæmið um hvern-
ig Tryggingastofnun ríkisins breyt-
ir vinnureglum sínum til að skerða
réttindi fólks.
Viðurkennir mistök
Framkvæmdastjóri Þroskahjálp-
ar gekk í málið fyrir mánuði síðan
og loksins þá viðurkenndi trvgg-
ingayfirtannlæknir mistök sín. For-
vamir höfðu verið skertar hjá
þroskahömluðum.
Þann 13. 4. ‘99 var vinnureglum
Tryggingastofnunar breytt vegna
þrýstings frá Tannlæknafélagi fs-
lands og Landssamtökunum
Þroskahjálp. Þannig að forvörnum
má beita við þroskahamlaða og fjöl-
fötluð börn upp að ákveðnu marki.
Þroskahamlaðir eru því nú undan-
skildir skerðingarákvæðum reglu-
gerðanna sem þeir áttu að vera all-
an tímann, samkvæmt lögum.
Tannlæknar hafa bent á þetta í
heilt ár.
Hvernig er skatt-
peningunurn betur varið?
Starfsmenn Tryggingastofnunar
ríkisins hafa haldið því að fjölmiðl-
um að þessi mál snúist einungis um
peninga hjá tannlæknum. Þetta mál
sem nú hefur tekið rúmt ár að fá
leiðréttingu á hefur kostað Trygg-
ingastofnun sáralítið miðað við þau
lífsgæði sem það færir þroskahöml-
uðum. Heildarfjárútlát Trygginga-
stofnunar vegna tannlækninga
þroskahamlaðra voru um kr. 8,7
milljónir árið 1997 sem dreifðust á
um 500 einstaklinga og þar eru for-
vamir um 20-30% af kostnaði. Aft-
ur á móti eru heildarútgjöld Trygg-
ingastofnunar vegna tryggingayfir-
tannlæknis og skrifstofu hans um 8
milljónir á ári.
Þrýstingur frá Tannlæknafélagi
Islands hefur virkað
Nú er hægt að beita forvörnum
innan ákveðinna marka, sem ekki
hefur verið hægt að gera í rúmt ár
fyrir þroskahamlaða. Ástæða þess
að það tók svona langan tíma að
leiðrétta þetta var í raun sú, að
Tryggingastofnun ríkisins vildi ekki
fara að lögum. Þroskahamlaðir áttu
allan tfmann að vera undanskildir
skerðingarákvæðum reglugerð-
anna. Stjórn Tannlæknafélags Is-
lands fagnar árangri aðgerða sinna.
Nú þegar hafa aðgerðirnar skilað
auknum réttindum til handa þeim
sem minnst mega sín. Það er næg
réttlæting.
Höfundur slarfar scm lannlæknir
ojg er fomiaður Tannlæknafélags
Islands.
Þórir Schiöth