Morgunblaðið - 04.05.1999, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999 43
___________UMRÆDAN_________
Hvað á ég að gera við
norðlenska atkvæðið mitt?
ÉG tek hlutverk
mitt sem leikmaður í
lýðræðishefð þjóðar-
innar alvarlega; ég
velti iyrir mér fram-
bjóðendum, hvað þeir
setja á oddinn og
hvernig þeir era vaxn-
ir til stórræða. Á kjör-
degi ætla ég síðan að
kjósa þann listann sem
er vænlegastur til að
áorka einhverju fyrir -
heimahaga mína.
Mergurinn málsins
er sá að ég vil bua
áfram í fæðingarbæ
mínum, Akureyri. Ég
er þó engan veginn
reiðubúinn að taka að mér hlutverk
síðasta móhíkanans; hvað þá að
gerast hrópandinn í eyðimörkinni.
Ég skil vel alla þá fjölmörgu sam-
borgara mína sem era annaðhvort
teknir að hugsa sér til flutnings á
suðvesturhomið eða eru þegar
farnir. Launin virðast að jafnaði
allmiklu hærri fyrir sunnan (sumir
tala um 30% að meðaltali) og at-
vinnulífið fjölskrúðugra.
Nú hljótum við Akureyringar að
spyrja í tilefni komandi þingkosn-
inga: Hafa frambjóðendur eitt-
hvað annað að bjóða en almennan
(og handónýtan) orðavaðal um
styrkingu byggða til að sporna
gegn því að unga fólkið flykkist
suður? Og hvað hafa þeir aðhafst á
undanförnum áram til að vinna
gegn þessari öfugþróun? Næsta
lítið, liggur mér við að segja, en
væri þá sjálfsagt að gera einhverj-
um rangt til. Einn er þó sá maður
sem hefur unnið jafnt
og þétt að því að gera
Akureyri að raun-
verulegum keppinauti
Reykjavíkur um
vinnuaflið. Sá er
Tómas Ingi Olrich.
Nú síðast hefur elja
hans kristallast í sam-
starfssamningi milli
Háskólans á Akureyri
og Ferðamálaráðs Is-
lands um kennslu og
rannsóknir á sviði
ferðamála.
Hyggjum svolítið
nánar að forsögu
þessa samnings því
hún varpar ljósi á
starfshætti Tómasar Inga og gerir
okkur fært að meta hann sem al-
þingismann. Förum þó fljótt yfir
sögu. Árið 1993 vakti hann athygli
á því í Rannsóknaráði ríkisins (þar
sem hann átti sæti) að rannsóknir í
ferðaþjónustu á Islandi væra
næsta fátæklegar. I kjölfarið var
stofnað til starfshóps, undir for-
ustu Tómasar Inga, sem útlistaði
meðal annars hvað bæri að gera til
að efla ferðaþjónustu. Tveimur ár-
um síðar tók hann þátt í því, með
fleiram, að marka stjórnvöldum
stefnu í ferðaþjónustu og flutti þá
jafnframt þingsályktunartillögu
sem gekk út á það í meginatriðum
að efla Akureyri sem miðstöð
rannsókna í ferðaþjónustu. Þessi
draumur er nú byrjaður að rætast
með áðumefndum samningi
Ferðamálaráðs og Háskólans á
Akureyri.
Og þó að ég muni kannski aldrei
Kosningar
Einn er þó sá maður,
segir Jón Hjaltason,
sem hefur unnið að því
að gera Akureyri að
raunverulegum keppi-
nauti Reykjavíkur
um vinnuaflið.
verða flokksbróðir Tómasar Inga
þá deili ég með honum þeirri
draumsýn að Akureyri eigi eftir að
verða miðpunktur rannsókna á
sviði ferðamála á íslandi. Ég tek
líka undir með Þorsteini Gunnars-
syni háskólarektor að ferðaþjón-
ustan felur í sér mikinn vaxtar-
brodd.
Að þessu öllu sögðu hlýt ég að
komast að þeirri niðurstöðu að það
sé í þágu Ákureyringa, og reyndar
allra þeirra sem vilja vöxt og við-
gang á Eyjafjarðarsvæðinu, að
Tómas Ingi Olrich sitji áfram á Al-
þingi Islendinga. Hann hefur knúið
málefni ferðaþjónustunnar áfram í
gegnum kerfið, ekki síst með það í
huga að í náinni framtíð rísi öflug
stofnun á Akureyri í anda þeirra
tveggja sem sjávarútvegur og
landbúnaður hafa notið góðs af um
langt árabil; nema hvað að hér yrði
um að ræða Rannsóknamiðstöð
ferðamála.
Höfuntlur er sagnfræðingvr.
Jón
Hjaltason
&. HEILSUBOTARDAGAR
á SÓLHEIMUM í GRÍMSNESI
20. maí-25. maí 28. júlí-3. ágúst
11. júní-16. júní 12. ágúst-17. ágúst
Nánari upplýsingar og skráning hjá
Sigrúnu Olsen og Þóri Barðdal í síma
566 8003, 564 0023, 564 3555
eða gsm 897 1021.
Við latum
verkin tala
FRAMS0KNARFL0KKURINN
Vertu með á miðjunni
Árni, Kjartan, Drífa, Ólafur,
Við löndum verkefnum.