Morgunblaðið - 04.05.1999, Side 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
mm mM
» ss
«» ■
SS SS 3
Mpggigy
það kemur
fleira frá
Færeyjum en
\ . fiskur...“
SJSÖ>«B,U
♦
Auðunn Arnórsson og Kjartan Magnússon fjalla m.a. um tengsl
Færeyinga og íslendinga í atvinnulífinu, færeysk fyrirtæki
og samstarf þjóðanna í sérútgáfu um Færeyjar.
I blaðinu á miðvikudaginn.
Yel dansað í
Hafnarfírði
DAJ\S
fþrðttahúsið
Strandgutn
ÍSLANDSMEISTARAKEPPNI
í SAMKVÆMISDÖNSUM
EINS og fram hefur komið í
Morgunblaðinu fór fram íslands-
meistarakeppni í samkvæmisdöns-
um helgina 24.-25. aprfl. Islands-
meistarakeppni í dansi með grunn-
sporum er ákaflega viðamikil
keppni, ekki síst vegna fjölda þeirra
aldurshópa og flokka sem þar
keppa venjulega. Það keppnisfyrir-
komulag sem notað hefur verið hef-
ur verið í örri þróun og breytzt mik-
ið til batnaðar undanfarin misseri.
Menn eru jú sífellt að læra.
A sunnudeginum var keppt í A
og K flokkum, auk þess sem F-
flokkur fékk líka að spreyta sig á
gólfinu. I A-flokki keppti flokkur
Börn I í suður-amerískum dönsum.
Gaman var að fylgjast með þessum
flokki. Það er gaman að sjá svo
unga dansara dansa svona vel og
vandvirknislega. Flokkur Börn II,
dansaði einnig suður-ameríska
dansa og gerði það einnig prýðis-
vel. Þarna eru þó nokkuð þroskaðri
dansarar á ferðinni og því gerðar
til þeirra meiri kröfur. Það eru fá-
einir punktar sem mig langar að
benda á eins og dansstaðan, það
vottaði svolítið fyrir ójafnvægi í
dansstöðunni hjá sumum paranna,
þ.e. ekki samræmi á milli herrans
og dömunnar t.d. hæð handa
o.s.frv. Fótaburður er á réttri leið
og í nokkuð góðu samræmi við ald-
ur og þann tíma sem þessir kepp-
endur hafa stundað dansíþróttina.
Unglingar I dönsuðu sígilda sam-
kvæmisdansa og stóðu pörin sig
nokkuð vel, hér þyrfti einnig að at-
huga dansstöðuna svolítið og eins
fótavinnu sem var á stöku stað
ábótavant. Það sama á reyndar við
hjá hópnum Unglingar II.
í K-flokki eru þau pör sem hafa
ákveðið að „hella“ sér út í dansinn
af lífi og sál. Nokkuð miklar kröfur
eru gerðar til þessa hóps og er það
vel. Enda eigum við mörg mjög góð
pör í þessum flokki. Börn I dönsuðu
sígilda samkvæmisdansa og gerðu
það mjög vel, dansstöður nokkuð
góðar og ágætismýkt í dansinum.
Þið eruð á réttri braut! Börn II var
mjög sterkur og spennandi riðill og
dansaði þessi hópur suður-amer-
íska dansa. Nokkuð bar á því að
„börnin" notuðu dálítið mikið
staccato sem gerði dans paranna
nokkuð stífan og uppgerðarlegan á
stundum. Ég held að betra væri að
kenna börnunum að nota fætur bet-
ur og ná upp meiri „fóthraða/fót-
krafti“ í stað þess að búa þetta til
með efri hluta líkamans. Við
komumst kannski alltaf að því
sama, NOTIÐ ÞIÐ GÓLFIÐ
BETUR! Það sem mér fannst þó
skemmtilegast við þennan hóp er
hve glöð og ánægð þessi pör virtust
vera á gólfinu, dansgleði þessara
para er svo innileg og „ekta“. Hóp-
ur unglingar I dansaði sígilda sam-
kvæmisdansa og gerði það með
stakri prýði. Þessum hóp hefur far-
ið mikið fram og er ánægjulegt að
sjá þessar framfarir, sérstaklega í
sígildu samkvæmisdönsunum. Hóp-
urinn Unglingar II var að gera
góða hluti í sígildu samkvæmis-
dönsunum og er í góðum gír. Ung-
menni, áhugamenn og fullorðnir
dönsuðu sígilda samkvæmisdansa
og gerðu það einnig mjög vel, sér-
staklega var gaman að sjá pör í
flokki fullorðinna með svo góðan
fótaburð sem raun bar vitni. Þau
eru um margt góðar fyrirmyndir!
Á sunnudeginum fór einnig fram
keppni í línudönsum. Línudansar
hafa notið mikilla vinsælda út um
allan heim um nokkurra ára skeið
og er það vel. Línudansar eru marg-
ir hverjir mjög líflegir og skemmti-
legir og hefur það gefið fólki mikið
að getað stundað þessa dansa und-
anfarin misseri. Fólk fær mikinn fé-
lagsskap út úr því að stunda línu-
dansa að ég tali nú ekki um líkams-
ræktina sem línudansarar stunda í
leiðinni. Þessi keppni var mjög
skemmtilegt innlegg í annars
skemmtilegan dag, hóparnir með
glaðlega og fjöruga dansa sem voru
vel æfðir.
I heildina séð gekk þessi helgi vel
fyrir sig. Þónokkrar tafir urðu þó á
laugardeginum og stöfuðu þær af
því að keppendur sem höfðu skráð
sig til leiks komu ekki og því riðlað-
ist tímaplan keppninnar töluvert.
Það er ekki sæmandi keppendum að
gera slíkt, alltof mikil vinna hefur
verið lögð í að gera nákvæmt
tímaplan til þess að keppendur af-
skrái sig á síðustu stundu. Það er
spurning hvort ekki ætti að beita
þeirri reglu sem er víst til, að hafí
keppandi ekki skráð sig úr keppni
með einhverjum ákveðnum fyrir-
vara þá sé hægt að setja hann í
keppnisbann komi hann ekki til
keppninnar? Frá þessu eru vissu-
lega frávik. Dómarar voru þeir
sömu og fyiTÍ daginn og voru þeir í
öllum tilfellum mjög ánægðir með
þessa keppni og stöðu dansins á Is-
landi.
Jóhann Gunnar Arnarsson
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
KÚREKAR kepptu um íslandsmeistaratitil.
BJÖRN Ingi Pálsson og Ásta Björg Magnúsdóttir
gerðu það gott um helgina. Unnu til bronsverðlauna
í suður-amerískum dönsum.