Morgunblaðið - 04.05.1999, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 04.05.1999, Blaðsíða 60
^GO ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ HESTAR Fyrsta skrefið að öruggu húsnæði! Umsóknarfrestur til 11. maí BOURJOIS --- P A R I S - 'A‘ Stóðhestasýning í Gunnarsholti * Ungu hestarnir í aðalhlutverki EKKERT er jafn órækur vitnis- burður um ræktunarframfarir eins og góð frammistaða ungu hrossanna á sýningum. Og það á við um nýafstaðna kynbótasýn- ingu á Stóðhestastöðinni í Gunn- " * arsholti þar sem dæmd voru 53 hross, þar af 44 í fullnaðardómi. Þótt sýningin sé fyrst og fremst stóðhestasýning var það gelding- ur sem var stjarna sýningarinnar. Ormur frá Dallandi hlaut 9,19 fyr- ir hæfileika sem er næsthæsta hæfileikaeinkunn sem gefin hefur verið. Ormur vakti fyrst athygli síðastliðið vor þegar hann stóð framarlega í A-flokki gæðinga hjá Fáki og svo í þriðja sæti á lands- mótinu á Melgerðismelum í fyrra. Var Ormur sýndur í lok sýningar- innar og vakti þar mikla athygli sýningargesta og að því er best varð séð enginn ágreiningur gerð- ^ ur við dómnefndina um þær ein- kunnir sem Ormi voru gefnar. Það er kannski sorglegast að svona hestur skyldi vera geltur á sínum tíma en hann þótti ekki nógu fallegur. Nú fær hann 7,90, sem þykir fullboðleg einkunn á stóðhesti í dag. Ormur er undan Orra frá Þúfu og Lýsu frá Efri- Rotum, sem var aftur undan Fylki 707 frá Flögu og Rauðku frá Eyj- arhólum. Ef að líkum lætur verður Orm- ur sýndur í gæðingakeppni Fáks Aog verður spennandi að sjá hvort nýtt einkunnamet verður sett í gæðingakeppni. Annað, sem er athyglisvert við sýninguna í Gunnarsholti nú, er góð frammistaða sona Orra frá Þúfu og má Ijóst vera að stiga- sjóður hans í kynbótamatinu verður enn digurri í haust þegar nýtt kynbótamat verður reiknað út. Tveir afkomendur Orra röðuðu sér í efstu sætin í flokki fjögurra vetra hesta. Garpur frá Auðs- holtshjáleigu stóð efstur með 8,37 fyrir hæfileika, sem er frábær ár- angur hjá svo ungum hesti. Fær ■ qhann 9 fyrir stökk og 8,5 fyrir tölt og fegurð í reið og 8 fyrir önnur atriði. Fyrir sköpulag fær hann 8,03, allar einkunnir í 8 nema 7,5 fyrir höfuð og 8,5 fyrir fegurð reið. í aðaleinkunn hlaut Garpur 8,20. Amma Garps er hin kunna hryssa Gnótt frá Brautarholti og afinn Hrafn frá Ondólfsstöðum. Bróðursonur Garps, Gnýr frá Stokkseyri, varð í öðru sæti með 8,20 fyrir hæfileika og 8,03 fyrir sköpulag og 8,11 í aðaleinkunn. Gnýr er undan Andvara frá Ey og Gullbrá frá Kvíarhóli, sem er af Kolkuósmeiði í aðra ættina. I þriðja sæti varð svo Þyrnir frá Þóroddsstöðum sem hingað til hefur verið frægastur fyrir að vera albróðir Hams frá Þórodds- stöðum. Þyrnir fer ekki alveg eins vel af stað og bróðir hans hvað hæfileika varðar en hann er bróð- urbetrungur hvað varðar sköpu- lagið. Þar hlýtur hann 8,40, sem er talsvert hærra en stóri bróðir fékk á þessum aldri, fær hann 9,5 fyrir höfuð og fótagerð. Þótt Þyrnir fari ekki eins vel af stað og Hamur á hann alla möguleika á að ná honum. Athygli vekur hversu líkir þeir bræður eru en þó virðist Þyrnir vera heldur fínlegri en Hamur. Næstir koma Djákni frá Votmúla með 8,01 og annar Orra- sonur, Stæll frá Miðkoti, með 7,98. Af fimm vetra hestunum stóð efstur Orrasonurinn Dynur frá Hvammi en móðir hans er Djásn frá Heiði. Hann fær 8,37 fyrir hæfileika, þar af 9,5 fyrir stökk, 9 fyrir tölt, vilja og fegurð í reið. Þá fær hann 8,5 fyrir brokk og geðslag og 5 fyrir skeið en hann er skeiðlaus. Fyrir sköpulag fær hann 8,15 og má geta þess að hann er kominn með 8 fyrir háls og herðar en hálsinn á Dyn hefur þótt frekar stuttur. I aðaleinkunn hlýtur hann 8,26. Næstur kemur Keilir frá Mið- sitju með sömu aðaleinkunn en eitthvað lægri ef teknir eru fleiri aukastafir. Hann hlýtur 8,21 fyrir hæfileika og þar af 9 fyrir fegurð í reið en aðeins 6,5 fyrir brokk, sem dregur hann nokkuð niður í hæfi- leikum. Fyrir sköpulag fékk hann 8,30 og þar má nefna 9 fyrir bak og lend. Keilir er undan Ófeigi frá Flugumýri og Kröflu frá Sauðár- króki. Þór frá Prestbakka, sem efstur KEILIR frá Miðsitju virðist mjög vinsæll um þessar mundir en hann hafnaði í öðru sæti fimm vetra hesta. Knapi er Vignir Jónasson. Arnarsmári 6, Kópavogi 54m2 íbúð, 203 Almennt lán Búseturéttur kr. 621.508 Búsetugjald kr. 35.248 Breiðavík 33, Reykjavík 77m2 íbúð, 203 Almennt lán Búseturéttur kr. 882.016 Búsetugjald kr. 44.750 Lerkigrund 5, Akranesi 80m2íbúð, 101 Leiguíb. lán Búseturéttur kr. 970.300 Búsetugjald kr. 35.059 Nónhæð 1, Garðabæ 80m2íbúð, 102 Leiguíb. lán Búseturéttur kr. 1.101.336 Búsetugjald kr. 35.699 Leiguíb.lán = húsaleigubætur Almenn lán = vaxtabætur Miðholt 1, Hafnarfirði 95m2 íbúð, 202 Leiguíb.lán Búseturéttur kr. 1.067.518 Búsetugjald kr. 42.895 Lerkigrund 5, Akranesi 94m2 íbúð, 102 Leiguíb. lán Búseturéttur kr. 1.115.111 Búsetugjald kr. 39.834 Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson GARPUR frá Auðsholtshjáleigu vakti mikla athygli er hann fékk 8,37 fyrir hæfileika, sem er afar gott hjá fjögurra vetra hesti. Knapi er Erlingur Erlingsson. stóð af fjögurra vetra hestum í fyrra, fylgir fast á hæla hinna tveggja með 8,24. Fyrir sköpulag hlýtur hann 8,38 enda fallegur hestur en fyrir hæfileika fær hann 8,11 og er það lægri einkunn en margir reiknuðu með. Fyrir tölt fær hann 8 og brokk 7,5 en þessar gangtegundir virtust ekki mjög sannfærandi eins og hann kom fyrir á laugardagssýningunni. Að sögn var hann betri á fimmtudeg- inum. Skeiðið er hinsvegar býsna gott. Þór er undan Svarti frá Unalæk og Gyðju frá Gerðum. Kanslari frá Efri-Rauðalæk varð í fjórða sæti með sömu einkunn og Þór en hann var með þrjár níur í hæfileikaeinkunninni, fyrir brokk, stökk og vilja. A hæla honum fylgdi Huginn frá Haga sem hlaut heila 8,47 fyrir hæfileika en 8,10 í aðaleinkunn. Af sex vetra hestum og eldri stóð efstur Þröstur frá Innri- Skeljabrekku með 8,33 í einkunn og heila 8,51 fyrir hæfiieika, sem er hæsta einkunn sýningarinnar. Þar fær hann 9 fyrir skeið og vilja. Þröstur er með 8,15 fyrir sköpulag en hann er undan Kveik frá Miðsitju og Glóu frá Innri- Seljabrekku. Næstur honum kom svo Spuni frá Miðsitju með 8,24 og hlaut hann 9 fyrir vilja og feg- urð í reið og 8,39 alls fyrir hæfi- leika. Fyrir sköpulag hlaut hann 8,10. Spuni er undan Ófeigi frá Flugumýri og Kötlu frá Miðsitju, sem er undan Kröflu frá Sauðár- króki. I þriðja sæti varð svo kunnur hestur, Blær frá Argerði, sem hefur hægt og bítandi verið að klífa upp einkunnastigann. Hann er líklega þekktastur fyrir að hafa staðið efstur í A-flokki á fjórð- SELFOSSAPÓTEK KL. 13 JARNANUM 18. Snyrtifræðingur veitir faglega ráðgjöf. Glæsilegur varalitapensill fylgir kaupum á tveimur hlutum í línunni. DYNUR frá Hvammi er kominn á toppinn með feiknagóðri hæfileika- einkunn skeiðlaus hesturinn, knapi er Þórður Þorgeirsson. ÞEIR eru samtaka efstu hestarnir í efsta flokki. Frá vinstri talið Þröst- ur frá Innri-Skeljabrekku og Jóhann Þorsteinsson, Spuni frá Miðsitju og Atli Guðmundsson, og Brynjar frá Árgerði og Sveinn Ragnarsson. Nánari upplýsingar á skrifstofu Búseta hsf. Öpið frá kl. 8.30 til 15.30. nema niiðvikudaga frá 8.30-12.00. Með umsóknum um íbúðir með leiguíb.lán. þarf að skila skattframtölum síðustu 3ja ára, en síðustu skattskýrslu með umsóknum um íbúðir með almennum lánum. Úthlutun íbúðanna fer fram miðvikudaginn 12. maí frá kl. 12.00-12.30 að Skeifunni 19. Umsækjendur verða að mæta á tilskvldum tíma og staðfesta úthiutun sína, að öðrum kosti gætu þeir misst réttindi sín og jbuðinni úthlutað til annars félagsinanns. 2ja herb. 3ja herb. 3ja herb. 4ra herb.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.