Morgunblaðið - 04.05.1999, Side 70
70 ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Sigurður Páll
sigrar á Landsmót-
inu í skólaskák
SKAK
Skáksamband
í s I a n ð s
LANDSMÓT í
SKÓLASKÁK
30. apríl-2. maí
SIGURÐUR Páll Steindórs-
son varð Islandsmeistari í eldri
flokki á Landsmótinu í skóla-
skák, sem fram fór um síðustu
helgi. Sigurður hlaut 10 vinninga
í 11 umferðum. Jafn honum varð
Guðjón Heiðar Valgarðsson.
Þeir háðu einvígi um efsta sætið
á mótinu. Sigurður Páll sigraði í
einvíginu, hlaut tvo vinninga
gegn einum vinningi Guðjóns
Heiðars. I þriðja sæti varð
Guðni Stefán Pétursson með 8
vinninga. Þeir eru allir úr
Reykjavík.
Islandsmeistari í yngri flokki
varð Dagur Amgrímsson úr
Reykjavík með 10 vinninga af 11.
Hann sigraði einnig á Landsmót-
inu í fyrra og á eftir að tefla eitt
ár til viðbótar í yngri flokki. Dag-
ur á því möguleika á að jafna met
Helga Ass Grétarssonar ef hann
vinnur þriðja árið í röð. I öðru
sæti í yngri flokki varð Guð-
mundur Kjartansson úr Reykja-
vík með QVz vinning. Helgi Egils-
son úr Hafnarfirði varð þriðji
með 9 vinninga.
Keppendur voru 12 í hvorum
flokki. í yngri flokki kepptu
skákmenn fæddir 1986 og síðar,
en í þeim eldri skákmenn fæddir
1983-5.
Mótið sem haldið var um helg-
ina var úrslitakeppni Landsmóts-
ins, en keppnin í heild er afar
umfangsmikil. Undirbúningur
Landsmótsins fer þannig fram,
að fyrst eru haldin skólamót og
komast efstu menn úr þeim á
sýslumót. Síðan eru haldin kjör-
dæmamót þar sem sigurvegarinn
fer á Landsmót. Sum kjördæmi
senda fleiri en einn keppanda á
Landsmótið, en góð frammistaða
þar tryggir kjördæminu fleiri
sæti á næsta móti. Talið er að yf-
ir 3.000 keppendur taki þátt í
undankeppnum víðs vegar um
landið og er þetta því fjölmenn-
asti skákviðburður sem haldinn
er hér á landi. Það er því umtals-
vert afrek að komast í loka-
keppnina á Landsmótinu.
Mótið var nú haldið í 21.
skipti. I gegnum tíðina hafa
margir af okkar sterkustu skák-
meisturum sigrað á Landsmót-
unum og má þar á meðal nefna
stórmeistarana Jóhann Hjartar-
son, Þröst Þórhallsson, Hannes
Hlífar Stefánsson og Helga As
Grétarsson.
PC-útgáfa af
Deep Blue?
í nýjustu útgáfu IEEE Micro
(mars/apríl 1999, bls. 70-80) er
athyglisverð grein eftir Feng-hsi-
ung Hsu, en hann var aðalhugs-
uðurinn á bak við Deep Blue-
skáktölvu IBM. í greininni fjallar
hann ítarlega um þann sérhæfða
vélbúnað sem hann hannaði sér-
staklega og var hjartað í Deep
Blue.
I greininni segir Hsu einnig að
hann sé að vinna að því að stofna
sjálfstætt fyrirtæki sem hafi það
markmið að hanna og framleiða
búnað svipaðs eðlis og Deep Blue
fyrir almennan markað. Hann
fullyrðir að jafnvel á næsta ári
verði hægt að fá þennan búnað í
einkatölvur. Hsu býst við að
skákstyrkleikinn verði slíkur að
einkatölva með þessum búnaði
gæti lagt heimsmeistarann að
velli í hefðbundnu einvígi.
Stefnt er að því að búnaðurinn
geti skoðað og metið u.þ.b. 30
milljón stöður á sekúndu, en til
samanburðar má geta þess að
Deep Blue var byggð upp af 480
einingum, sem hver um sig skoð-
aði 2-2,5 milljón stöður á sek-
úndu. Með þessum afköstum gat
Deep Blue skoðað allar stöður 6
leiki fram í tímann, en ákveðin af-
brigði voru skoðuð u.þ.b. 20 leiki
fram í tímann.
Fritz sigrar
Judit Polgar
Judit Polgar tefldi 8 skáka ein-
vígi við Fritz 5.32-skákforritið
dagana 27.-30. apríl. Einvígið fór
fram í Ungverjalandi. Urslitin
urðu þau, að Fritz sigraði með
5!4 vinningi gegn 2Vz. Tefldar
voru atskákir með 30 mínútna
umhugsunartíma.
Fritz-forritið keyrði á Compaq
DeskPro EN 6350-tölvu með
Pentium II 350MHz-örgjörva og
128 MB innra minni.
Judit valdi e.t.v. ekki skynsam-
legustu aðferðina til að tefla gegn
Fritz og skákirnar voru ekki í
mjög háum gæðaflokki.
Júlíus sigrar á
öðlingamóti
Júlíus Friðjónsson sigraði á
skákmóti öðlinga 1999. Hann
hlaut 514 vinning í 7 umferðum. I
2.-3. sæti urðu Vigfús Oðinn Vig-
fússon og Jón Torfason með 5
vinninga. Skákmótið var haldið
11. mars til 29. apríl.
íslandsmeistarinn
teflir fjöltefii
Hannes Hlífar Stefánsson,
stórmeistari og núverandi ís-
landsmeistari í skák, teflir
fjöltefli við börn og unglinga á
fimmtudaginn. Nú er orðið nokk-
uð langt síðan farið hefur fram
opinbert fjöltefli og því hafa
vafalítið margir áhuga á að nýta
sér þetta tækifæri til að tefla við
einn af okkar sterkustu skák-
mönnum. Fjölteflið er í boði
Taflfélagsins Hellis og er að-
gangur því ókeypis.
Fjölteflið verður haldið
fimmtudaginn 6. maí kl. 17 í Hell-
isheimilinu, Þönglabakka 1 í
Mjódd. Greiðar strætisvagna-
ferðir eru að Hellisheimilinu,
enda er það örstutt frá skipti-
stöðinni í Mjódd. Ollum börnum
og unglingum 15 ára og yngri er
heimilt að taka þátt í fjölteflinu.
Skákmót á
næstunni
Tilkynningar um skákmót og
aðra viðburði sem eru á dagskrá
má senda til umsjónarmanna
skákþáttar Morgunblaðsins.
Tölvupóstfangið er dadi@vks.is.
Einnig má senda annað efni og
athugasemdir við skákþættina á
sama póstfang.
6.5. TR. Hraðskákmót öðlinga
6.5. Hellir. Hannes HHfar: Fjöltefli
8.5. Hellir. Kosningamót í Mjódd
10.5. Hellir. Atkvöld
17.5. Hellir. Fullorðinsmót (25+ ára)
28.5. Hellir. Helgaratskákmót
29.5. SÍ. Aðalfundur
30.5. Hellir. Kvennamót
Daði Örn Jónsson
Hannes Hlífar Stefánsson
AFMÆLI
GUÐJON
MATTHÍASSON
ALLTAF finnst mér
skemmtilegast að flytja
mál mitt beint, það er
án stuðnings blaðs. En
eigi að vanda sig og
vera formlegur er sjálf-
sagt best að festa hugs-
anirnar á pappír. Það
geri ég hér með.
Eg var í áttræðisaf-
mæli frænku minnar
fyrir nokkrum árum,
sem við skulum nefna
Guðrúnu. Þar söfnuð-
ust margir ættmenn
hennar saman að von-
um og nutu ágætra
veitinga. Allt, sem líkaminn gat not-
ið, var fram borið. Þar var engu
gleymt, að því er virtist, og við-
staddir voru ánægðir. En eitt
gleymdist þó: Enginn kvað upp úr
um það, hvers vegna allt þetta fólk
var saman komið. Raunar vissu allir
með sjálfum sér, að hún Guðrún átti
afmæli þennan dag, og það meira að
segja merkisafmæli. Þegar ég flutti
stutta ræðu í hófi þessu, gat ég
fyrstur manna um þetta tilefni, og
sagði eitthvað á þessa leið: „Við er-
um hér stödd vegna áttræðisafmælis
hennar frænku minnar, sem við ósk-
um til hamingju með það að hafa lif-
að þessi ár.“ Eg er ekki viss um, að
fólki, sem þarna var viðstatt, hafi
þótt þetta upphaf minnar stuttu
ræðu, nauðsynlegt. Við íslendingar
erum oft svo óformlegir, að engu tali
tekur. Okkur finnst eins og allir
hljóti að þekkja okkur, í landi þar
sem sagt er að allir þekki alla.
En nóg um þetta. Síðastliðinn
fostudag átti einn ágætur listamað-
ur áttræðisafmæi. Hann er fæddur
30. apríl 1919 á Einarslóni í Breiða-
víkurhreppi á Snæfellsnesi. Þar ólst
hann upp til 11 ára aldurs, en fluttist
þá að Helludal í Beruvík í sama
hreppi, og bjó þar fram yfir tvítugt.
Hann eignaðist sína fyrstu harm-
oniku, þegar hann var orðinn 28 ára
að aldri. Fátækur var hann af ver-
aldarauði, og til að eignast hljóðfær-
ið seldi hann 20 kindur, sem hann
átti, og fyrir þær fékk hann 2.000
krónur, en harmonikan kostaði 1.800
krónur. Taldi hann þetta bestu fjár-
festingu, sem hann hafði gert fram
að þeim tíma.
flMARIA
iTLÖVISA
FATAHONNUN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 3A • S 562 6979
Hver er svo maður-
inn? Hann heitir Guð-
jón Matthíasson. Kunn-
ur er hann bæði sem
harmonikuleikari og
tónskáld. Hann stund-
aði nám í hljóðfæraleik
hjá Gretti Björnssyni
og Karli Jónatanssyni.
Hjá Guðna S. Guðna-
syni naut hann kennslu
í tónfræði í hálft annað
ár, og lærði þar nótna-
skrift og að útsetja lög
fyrir mismunandi
hljóðfæri.
Guðjón hefur leikið
inn á fimmtán harmonikuplötur og
þrjár hljómsnældur, einnig á geisla-
disk, sem út kom hjá Skífunni 1995.
Þar eru hans 19 bestu lög, eins og
það heitir, á forsíðu textablaðsins.
Lög eftir Guðjón hafa verið gefin út
á 100 plötum og hljómsnældum. AIls
mun hann hafa samið um 200 lög.
Mörg þeirra hafa hvorki komið fyrir
almenningseyru né -augu. Væri
æskilegt, að lögin hans Guðjóns
gætu sem flest komið út, áður en
hann er allur. Hitt er annað mál, að
lögin hans Guðjóns lifa, þó að hann
hverfi af sjónarsviðinu. Oll góð list
lifir höfund sinn löngu dauðan. Guð-
jóni hefur ekki verið hátt hampað af
þeim, sem um tónlist fjalla, en það
er að sjálfsögðu þjóðin sem dæmir
verk listamanna. Hún á síðasta orð-
ið, en ekki listdómarar samtímans.
Ég hefi nú senn þekkt Guðjón í
hálfa öld. Það var á Hellissandi, þar
sem hann var þá að heilsa upp á
móður sína og hálfsystkini. Guðjón
var þar með harmonikuna sína og
hélt dansleik í samkomuhúsi staðar-
ins. Hann fékk mig, ungan mann,
kennara á staðnum, til að syngja
með sér dægurlög þessa tíma. Skipt-
um við síðan ágóðanum af ballinu,
sem var víst ekki stór, eftir að búið
var að greiða húsaleigu og dyra-
vörslu. En þessa er gott að minnast,
þegar við kembum báðir hærurnar.
Endurminningarnar ylja manni á
ævikvöldinu.
Ég vona, að enn um sinn megum
við eiga von á að hlýða á lögin hans
Guðjóns á öldum ljósvakans. Þau
lifa. Við samfögnum harmonikuleik-
aranum og tónskáldinu Guðjóni
Matthíassyni með að hafa lifað og
starfað í áttatíu ár. Hann lengi lifi!
Auðunn Bragi Sveinsson.
Krqftur,
þekking og
frumkvæði fyrir
Reyknesinga
Siv FriSleifsdóttir
Hjdlmar Arnason
Páll Magnússon
Ko»ninara«krlf»tofa
Bæjarhraani 26
Hafnarfirði,
s.565-4790
565-5740
565-5742
Tölvupóstur:
reykjanes@xb.is
I