Morgunblaðið - 04.05.1999, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999 73
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egiisstöðum er opið alla daga nema mánudaga kl. 11-
17 til 1. september. Alla sunnudaga frá kl. 14-17 má
reyna sig við gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn
eldri borgara. Safnbúð með minjagripum og handverks-
munum. Kaffi, kandís og kleinur. Sími 471-1412, net-
fang minaust@eldhorn.is.______________________
MINJASAFN RAFMAGNSVEITU ReyHJavíkur v/rafstöó-
ina v/Elliðaár. Opið sunnudaga kl. 15-17 eöa eftir sam-
komulagi. S. 567-9009.________________________
MÍNJASAFN SLYSAVARNARFÉLAGS ISLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið á laugardögum og
sunnudögum frá kl. 13-16. Hægt er að panta á öðrum
timum i sima 422-7253._______________________
MINJASAFNIÐ Á AKUEEVRI: Aíalstræti 58 er lokaO í
vetur vegna uppsetningar nýrrar sýningar sem opnuð
verður sumarið 1999. S. 462-4162, bréfs: 461-2562.
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI verður opið framvegis á
sunnudögum kl. 14-16 í vetur. Að auki geta gestahópar og
bekKjardeildir skóla haft samband við safnvörð í síma 462-
3550, sem opnar þá fúslega samkvæmt nánara umtaii.
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, sími 569-9964. Opið virka daga kl. 9-17 og á öðr-
um tima eftir samkomulagi.___________________
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12.
Opið miðvikud. og laugd. 13-18. S. 554-0630._
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hvcrfisgötu 116
eru opnir sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. kl.
13.30-16.____________________________________
NESSTOFUSAFN, Yfir vetrartímann er safnið einungis
opið samkvæmt samkomulagi.____________________
NORRÆNA HÚSIÐ. Bðkasafniö. 13-18, sunnud. 14-17.
Kaffistofan 9-18, mánud. - laugard. 12-18 sunnud. Sýn-
ingarsalir: 14—18 þriðjud.-sunnud. Lokað mánud._
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgolu 11, Ilafnar-
firði. Opið þriðjudaga og sunnudaga 15-18. Slmi 555-4321.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551-3644. Sýning á uppstillingum og iandslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin laugardaga og sunnudaga kl.
13.30- 16. ______________________________
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
opið laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-17 og eftir sam-
komulagi fyrir skólanema og aðra hópa. S: 565-4242,
bréfs. 565-4261._____________________________
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS
HINRIKSSONAR, Súðarvogi 4. Opið þriðjud. - laugard.
frá kl. 13-17. S. 681-4677,__________________
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Ilðpar skv. samkl.
Uppl.is: 483-1165, 483-1443._________________
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR: Handritasýning opin
þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 14-16 til 14.
maí. _________________________________
STEINARÍKIÍSLANDS Á AKRANESI: Opið alla daga kl.
13- 18 nema mánudaga. Simi 431-5566._______
SÖGU- OG MINJASAFN Slysavarnafélags Islands,
Garðinom: Opið um helgar frá kl. 13-16.______
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Opið alla daga nema
mánudaga kl. 11-17,_____________________________
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mánudaga til rðstu-
daga kl. 10-19. Laugard. 10-16.______________
IJSTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl.
14— 18. Lokað mánudaga. ___________________
NÁTTÚRUGRIPASAFNTD Á AKUREYRI: Lokað í vetur
nema eftir samkomulagi. Sími 462-2983.________
NORSKA HÚSIÐ 1 STYKKISHÓLMI: Opið daglega f sum-
ar frá kl. 11-17._____________________________
ORÐ DAGSINS
Reykjavík síml 551-0000. ~
Akureyri s. 462-1840._________________________
SUNDSTAÐIR __________________________________
SÍINDSTADIR 1 RKYK.IAVlK: SundhOllin er opin v.d. kl.
6.30- 21.30, helgar kl. 8-19. Opið í bað og heita potta aila
daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30-21.30, helgar 8-
19. Laugardalslaug er opin v.d. 6.50-21.30, helgar 8-19.
Breiðholtslaug er opin v.d. kl. 6.50-22, helgar kl. 8-20.
Grafarvogslaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helgar ki. 8-
20.30. Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helgar kl.
8-20.30. Kjalarneslaug opin mán. og fimmt. kl. 11-16.
þri., mið. og föstud. kl. 17-21._____________
SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin mád.-föst. 7-21. Laugd. og
sud. 8-18. Sölu hætt hálftíma fyrir lokun.___
GARÐABÆR: Sundlaugin opin mád.-föst. 7-20.30. Laugd.
og sud. 8-17. Sölu hætt hálftima fyrir lokun._
HAFNARFJÖRÐUR. Suðurbæjarlaug: Mád.-fóst. 7-21.
Laugd. 8-18. Sud. 8-17. Sundhöll Hafnarfjarðar: Mád.-
föst. 7-21. Laugd. 8-12. Sud. 9-12.___________
VARMÁRLAUG í MOSFELLSBÆ: Opið virka daga kl.
6.30- 7.46 og kl. 16-21. Um helgar kl. 9-18._
SUNDLAUGIN I GRINDAVlK:Opið alla virka daga ki. 7-
21 08 kl. 11-15 um helgar. Sfmi 426-7555.____
SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.45-8.30 og 14-22,
helgar 11-18.________
SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVÍKUR: Opin mánud.-fflstud. kl.
7-21, Laugard. kl.8-17. Sunnud. kl. 0-16.____
SUNDLAUGIN í GARDI: Opin mán.-föst. kl. 7-8 og 16.30-
21. Laugardaga og snnnudaga. kl. 10-17. S: 422-7300.
SUNDLAUG AKUREYRAR cr opin v.d. kl. 7-21. Laugard.
og sunnud. kl. 8-18. Slmi 461-2532.__________
SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mád.-fost. 7-
20.30. Laugard. og sunnud. kl. 8-17.30._______
JADARSBAKKALAUG, AKRANESI: Opin mád.-föst. 7-
21, laugd. og sud. 9-18. S: 431-2643.________
BLAalÓNIÐ: Opið v.d. ki. 11-20, helgar kl. 10-21.
ÚTIVIST ARSVÆDI _____________________________
FJÓLSKYLDU- OG HÚSDÝRAGARÐURINN er cipinn alla
daga kl. 10-17, lokað á miðvikudögum. Kaffihúsið opið á
sama tfma. Sími 6757-800.__________________
SQRPA
SKRIFSTOFA SORPU er opin kl. 8.20-16.15. Endurvinnslu-
stöðvar eru opnar a.d. kl. 12.30-19.30 en lokaöar á stórhá-
tíðum. Að auki verða Ánanaust, Garðabær og Sævarhöfði
opnar kl. 8-19.30 virka daga. Uppl.sími 520-2205.
Ljósmynda-
sýningu
að ljúka
WORLD Press Photo fréttaljós-
nryndasýningunni í Kringlunni lýkur
þi'iðjudaginn 4. maí. Sýningin er
stærsta og virtasta fréttaljósmynda-
sýning í heimi og á hverju ári sér um
ein milljón manna sýninguna í 35
löndum.
Vinningsmyndin í ár er af ungri
ekkju í sorgartrega yfir gröf eigin-
manns síns, sem var meðlimur í
frelsisher Kosovo, KLA. Myndin var
tekin af Dayna Smith hjá bandaríska
dagblaðinu The Washington Post ná-
lsegt Izbica í Kosovo 6. nóvember á
síðasta ári.
Sýningarsvæðið er öll Kringlan og
er sýningin opin á afgreiðslutíma
verslana í húsinu sem er mánudága
til föstudaga frá kl. 10-21, laugar-
daga kl. 9-18 og sunnudaga kl.
12-18. Afgreiðslutími verslana er
mánudaga til fimmtudaga frá kl.
10-18.30, föstudaga kl. 10-19 og
laugardaga kl. 10-18.
ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR
„ Morgunblaðið/Kristinn
FRIÐA Einarsdóttir, eigandi Creole-Mex
Eigendaskipti á
Creole-Mex
Skipta þarf
um sand í
sandkössum
SAMSTARFSHÓPUR Hollustu-
verndar ríkisins og Heilbrigðiseftir-
litssvæða hefur fjallað um vandamál
sem tengjast sníkjudýrasmiti af
völdum katta og telur rétt að koma
eftirfarandi ábendingum til aimenn-
ings:
Heilbrigðiseftirlit og Hollustu-
vernd beina því til fólks að nauðsyn-
legt er að skipta um sand í sand-
kössum á hverju vori. Með því er
hægt að verjast smiti af völdum
sníkjudýra. Mikilvægt er einnig að
hindra aðgang katta að sandkössum
með því að loka þeim þegar þeir eru
ekki notkun og ef vart verður við
saur í sandkassa þarf að fjarlægja
hann.
Egg eða þolhjúpur sníkjudýranna
í köttum berast út með saur. Kettir
grafa saurinn í sandinn og þegar
frost er í jörðu sækjast þeir eftir að
gera þarfir sínar í sand vegna þess
að sandurinn er laus í sér allan árs-
ins hring. Þegar börn leika sér í
sandkössunum geta egg eða þol-
hjúpar sníkjudýranna borist ofan í
þau með því t.d. að þau borða sand,
sleikja leikföng eða fingur.
Á veturna liggja sníkjudýrin í
dvala en á vorin hefst þroskunin,
þ.e. þegar sandurinn fer að hitna.
í sandkössum hér á landi hafa
fundist þrjár tegundir sníkjudýra,
þ.e. katta- og hundaspóluormar
(Toxocara cati og T. cani) og bog-
frymill (Toxoplasma gondii).
Ef konur smitast af bogfrymla-
sótt á meðgöngu er hætta á fóstur-
skaða. Til að hindra smit af bog-
frymlasótt ættu barnshafandi konur
að hafa eftirfarandi í huga: Ekki
þrífa saur eftir ketti. Hafa góða
hanska við garðvinnu.
Fyrirlestur á
vegum matvæla-
fræðiskorar
INGIBJÖRG Gunnarsdóttir, mat-
vælafræðingur og meistaranáms-
stúdent í næringarfræði, heldur
MS-fyrirlestur miðvikudaginn 5.
maí um verkefnið: Næringarástand
sjúklinga á Landspítalanum.
Fyrirlesturinn er á vegum mat-
vælafræðiskorar í Raunvísindadeild
Háskóla Islands og verður haldinn í
VR II við Hjarðarhaga í stofu 157 kl
14.
NÝLEGA urðu eigendaskipti á
veitingastaðnum Creole-Mex að
Laugavegi 178 þar sem áður var
veitingastaðurinn Gullni haninn.
Creole-Mex sérhæfir sig í mex-
ikóskum mat. Einnig er boðið
upp á almennan matseðil og
heimsendingarþjónustu og að
Fyrirlestur
um varðveislu
minninga
SUSAN Tucker, þókasafnsfræðing-
ur og Fulbright fræðimaður frá Tu-
lane University í New Orieans, flyt-
ur opinberan fyrirlestur miðviku-
daginn 5. maí í boði Rannsókna-
stofu í kvennafræðum við Háskóla
Islands. Susan Tucker hefur tvo
undanfarna mánuði stundað rann-
sóknir við Borgarskjalasafn. Fyrir-
lesturinn nefnist: Varðveisla minn-
inga. Orð og myndir í úrklippubók-
um amerískra kvenna.
I fréttatilkynningu segir: „Um-
ræða nítjándu og tuttugustu aldar -
jafnt hin almenna sem hin fræði-
lega - hefur skilgi-eint konur sem
kynið sem varðveitir og miðlar fjöl-
skylduminningum til framtíðar.
Konur hafa í gegnum tíðina haldið
til haga og varðveitt persónulegar
heimildir og fjölskyldualbúm. í
upphafí 20. aldar var algengt að
bandarískar unglingsstúlkur og
konur notuðu drjúgan tíma í að
safna saman skjölum og bókum
sem innihéldu minningar af ýmsu
tagi, s.s. úrklippubókum, dagbók-
um, minnisbókum, myndaalbúmum,
auki sérstakan barnamatseðil.
Mexíkóskt hlaðborð með tug-
um rétta er alla föstudaga og
laugardaga og opið frá kl. 18.
Einnig er opið í hádeginu alla
virka daga.
Lifandi tónlist er alla jafna um
helgar.
o.fl. í fyrirlestri sínum mun Susan
Tucker sýna skyggnur með texta
og myndum úr slíkum bókum og
fjalla um þessi gögn í ljósi kenninga
um tengsl sjálfsmynda og minninga
og með hliðsjón af rannsóknum
hennar hér á landi og í Bandaríkj-
unum.“
Fyrirlesturinn verður í stofu 101
í Odda og hefst kl. 17.00. Hann er
öllum opinn.
Endurmenntunar-
stofnun HÍ
Námskeið um
prófun hugbún-
aðar og Intranet
TVEIR erlendir leiðbeinendur
verða með tvö töivunámskeið á veg:
um Endurmenntunarstofnunar HÍ
dagana 6. og 7. maí nk.
Fyrra námskeiðið nefnist Próf-
un hugbúnaðar. Kennari verður
Hans Schaefer, en hann hefur unn-
ið að hugbúnaðargerð frá árinu
1979 og sem ráðgjafi í prófun hug-
búnaðar og gæðastjórnun frá 1987.
Hann er m.a. ráðgjafi hjá stærstu
bönkuum í Skandinavíu og hjá
símafyrirtækjunum L.M. Ericson
og Nokia. Hann heldur námskeið
um prófun hugbúnaðar víða um
heim og hefur tvisvar áður haldið
námskeið á vegum Endurmennt-
unarstofnunar sem hafa verið full-
setin.
Seinna námskeiðið nefnist
„Intranet“: Þróun og uppbygging.
Námskeiðið er ætlað fólki sem tek-
ur þátt í að leggja drög að Intra-
neti á sínum vinnustað. Á nám-
skeiðinu verður ekki farið í tækni-
leg smáatriði, einungis verður tæpt
á slíkum atriðum að því marki sem
þau hafa áhrif á uppbyggingu
Intranetsins. Kennari er Mats
Tallving, en hann er sjálfstætt
starfandi ráðgjafi á sviði fjölmiðla-
og upplýsingafræði.
Námskeið í
skyndihjálp
REYKJAVÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir námskeiði í almennri
skyndihjálp sem hefst fímmtudag-
inn 6. maí kl. 19. Kennsludagar
verða 6., 10. og 11. maí. Kennt
verður frá kl. 19-23. Námskeiðið
telst vera 16 kennslustundir og
verður haldið í Ármúla 34, 3. hæð.
Þátttaka er heimil öllum 15 ára og
eldri.
Meðal þess sem verður kennt á
námskeiðinu verður blástursmeð-
ferðin, endurlífgun með hjarta-
hnoði, hjálp við bruna, beinbrotum
og blæðingum úr sárum. Einnig
verður fjallað um helstu heimaslys
þ.m.t. slys á börnum og forvarnir ai-
mennt. Að námskeðinu loknu fá
nemendur skírteini sem hægt er að
fá metið í ýmsum skólum.
Aðalfundur
Nýrrar dögunar
AÐALFUNDUR Nýrrar dögunar,
samtaka um sorg og sorgarvið-
brögð, verður haldinn fimmtudag-
inn 6. maí nk. í safnaðarheimili Há-
teigskirkju kl. 19.
Á dagskrá verða almenn aðal-
fundarstörf. Áður auglýstur fyrir-
lestur um barnsmissi fellur niður.
Hafna til-
lögu BSÍ
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi samþykkt:
„Aðalfundur Bifreiðastjórafélags-
ins Sleipnis sem haldinn var 27. apr-
fl sl. hafnaði einróma tillögu skipu-
lagsnefndar ASÍ um inngöngu fé-
lagsins í Verkamannasamband ís-
lands.
Bifreiðastjórafélagið Sleipnir hef-
ur ekki óskað aðildar að Verka-
mannasambandi íslands og telur
hagsmunum sínum betur borgið ut-
an þess.
Skipulagsnefnd Alþýðusambands
íslands hefur verið send tilkynning
um ofangreinda niðurstöðu fundar-
manna.“
Lagerlausnir
Brettarekkar - Smávöruhillur
- Innkeyrslurekkar o.fl.
Lagerkerfi sem uppfylla staðla
(INSTfl, German Standard o.fl.)
Hagstætt verð - Hagstæð lausn
(Ofnasmiðjan
Verslun Háteigsvegi 7 - sími 511 1100
Verksmiðja Flatahrauni 13 - sími 555 6100
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
EINAR Steinmóðsson á bökkum Elliða-
vatns á laugardaginn, en hann hafði þá
nýlega landað vænni bleikju.
Góð byrjun
í Elliðavatni
og Minni-
vallalæk
TIL þessa í vor hefur nær ein-
göngu verið veitt á slóðum sjó-
göngusilungs, en nú bætast við
nokkrir staðir þar sem bráðin er
staðbundinn silungur. Um helg-
ina voru t.d. Elliðavatn og Minni-
vallalækui' opnuð og voru staðar-
haldarar mjög ánægðir með veiði-
skapinn.
Vignir Sigurðsson eftirlits-
maður á Elliðavatni sagðist
ánægður með vertíðarbyrjun-
ina, „sérstaklega í ljósi þess hve
mikið kólnaði um helgina. Það
olli því að menn stoppuðu ekki
eins lengi og sjálfsagt veiddist
eitthvað minna fyrir vikið. Samt
voru menn að fá veiði. Einn fór
út á Engjar og fékk 16 urriða og
á laugardeginum voru menn
einnig að fá góða bleikjuveiði og
stöku urriða í kring um bæinn
hjá mér. Á sunnudaginn stóðu
menn helst við Hornið og höfðu
skjól af hæðinni og þar voru
menn að fá góðar tökur. Bleikj-
an var mest í kring um pundið,
en stærstu urriðarnir voru upp í
rúm 2 pund. Fluguveiðin gaf
drýgst, en beitu-
veiðimönnum hefur
mjög fækkað við
vatnið. Þeir hafa þó
átt það til að ná
stærri fiskum, sér-
staklega urriðum,“
sagði Vignir.
Mok í Minnivallalæk
Mokveiði var í
Minnivallalæk sem
opnaði til veiða á
laugardaginn. Þar er
aðeins veitt á flugu
og er mönnum gert
að sleppa öllum fiski.
Einungis urriði er í
læknum og oftast
mjög vænn. „Þetta
var mok, við fengum
18 á skömmum tíma
og nenntum þá ekki
meira. Flestir vora
teknir í Stöðvarhyln-
um og þar er mikið af
fiski. Þetta voru mest 3 til 5
punda fiskar, en einnig tveir 6
punda og einn 8 punda, sem hann
tók fluguna Rektor í Djúphyl. Á
sunnudaginn veiddust svo átta
fiskar og á hádegi mánudags
vora komnir níu til viðbótar, alit
að 7 punda,“ sagði Þröstur El-
liðason, leigutaki árinnar, í gær-
dag.