Morgunblaðið - 04.05.1999, Qupperneq 74
74 ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Ferdinand
Smáfólk
4-9
Ég sé að mótherji þinn verður að
gefa þér tvö högg á hveija holu...
truflar það þig?
Jói hógværi!
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
„ Af því bara“
Frá Sigurði R. Ragnarssyni:
FYRIR nokkrum dögum bað ég
þig, Steingrímur J. Sigfússon, að
útskýra_ afstöðu þína til Kísiliðj-
unnar. Eg tek svar þitt sem móðg-
un við mig og aðra kjósendur í
kjördæminu sem langar til að vita
hvers vegna þú telur að hætta
verði starfsemi fyrirtækisins.
Máttu ekki vera að því að segja
kjósendum á hverju afstaða þín
byggist? Málskrúð um hverjum er
að kenna hvernig komið er, um leið
og þú ert tilbúinn að ganga lengra
en meintir sökudólgar, er með ólík-
indum. Eina svar þitt er að þú
munir ekki ganga gegn skoðunum
vísindamanna eða náttúruverndar-
yfirvalda. A að kokgleypa hvað
sem frá þeim kemur? Hver eru
náttúruverndaryfirvöld?
Það er ekki stórmannlegt að
skýla sér bak við aðra
Ovissan um framtíð Kísilverk-
smiðjunnar er ekki gamanmál fyrir
kjördæmi þitt. Veigameiri rök en
getgátur þurfa að liggja fyrir áður
en aftakan er ákveðin. Allt tal úr
þínum munni um eflingu byggðar í
kjördæminu tek ég sem innantómt
orðagjálfur meðan þú vilt ganga af
öflugu og arðsömu fyrirtæki dauðu
með þessum dæmalausu rökum „af
því bara“.
Því í ósköpunum er ekki hægt að
fá skýr svör við því hverju Kísiliðj-
an hefur spillt í Mývatni og hverju
hún muni spilla?
Um rannsóknir
Eg starfaði við Kísiliðjuna um
árabil. Eg hef verið oddviti og
sveitarstjóri í Mývatnssveit. Eg
hef setið í stjóm Náttúrurannsókn-
arstöðvarinnar við Mývatn. Eg átti
sæti í sérfræðinganefnd um Mý-
vatnsrannsóknir sem ætlað var að
komast að niðurstöðu um hvort og
þá hvemig starfsemi Kísiliðjunnar
hefði áhrif á lífríki Mývatns. Ég
hef kynnst mörgum þeim er stund-
að hafa rannsóknir á lífríki vatns-
ins. Ég er þess fullviss að rann-
sóknarmenn hafa gert mælingar
sínar af nákvæmni og rannsókna-
áætlanir hafa staðist akademískar
kröfur. Hins vegar hefur val á
rannsóknaverkefnum stundum
vakið spurningar í huga mér. Síð-
ast en ekki síst hafa sumir rann-
sóknamenn túlkað niðurstöður
mælinga langt út fyrir það sem
þær gefa tilefni til. Það hefur vakið
tortryggni og skapað tiúnaðar-
brest gagnvart viðkomandi.
Ekki er ástæðulaust að sam-
gönguráðherra hefur vakið spurn-
ingu um tiltrú vísindamanna. Við-
brögð við því sanna fyrir mér að
sannleikanum er hver sárreiðastur.
Að sjá ekki laufblaðið fyrir
skóginum
Lífsskilyrði í Mývatni munu
breytast hvort sem Kísiliðjan
starfar áfram eða ekki. Það verða
bæði breytingar milli ára og lang-
tímabreytingar. Engar breytingar
sem kísilgúrvinnslan kann að hafa
í för með sér eru óafturkallanleg-
ar. Einkenni vatnsins er mikil
framleiðsla kísilþörunga. Skeljar
þeirra munu að lokum fylla vatnið.
Kísilgúrvinnslan er inngrip í nátt-
úrulegt ferli. Hún frestar óumflýj-
anlegum endalokum. Hún er tæki-
færi til að eiga ögn lengur þá
ásýnd Mývatns sem allir vilja
vemda.
Að lokum
Þú vilt vita hvort spurningar
mínar séu fram settar í nafni hér-
aðsnefndar Þingeyinga. Þær eru
frá mér persónulega. Þú vilt líka
vita hvort aðrir frambjóðendur eða
flokkar verði krafðir svara eins og
þú. Steingrímur minn, þú ert eini
frambjóðandinn í kjördæminu sem
ég hef heyrt segja að slá skuli fyr-
irtækið af. Ég get því ekki spurt
aðra „hvers vegna“.
SIGURÐUR R. RAGNARSSON,
framkvæmdastjóri Héraðsnefndar
Þingeyinga.
Bankainnstæður
Frá Halldóri Finnssyni:
MIG langar að vekja athygli á að
Búnaðarbankinn hefur opnað sér-
staka reikninga sem sniðnir eru
fyrst og fremst að þörfum eldra
fólksins. Þarna á ég við fasteigna-
lífeyrisreikninga, svo og innstæðu-
lífeyrisreikninga, þar hefur Búnað-
arbankinn haft frumkvæði að því
að opna sérstaka reikninga fyrir
eldra fólk, og kemur eflaust á eftir
að semja megi um tilhögun þessa
reikninga á ýmsa vegu.
Því vek ég athygli á þessu, að
ég skrifaði smágrein í Morgun-
blaðið á sl. ári, þar sem ég ræddi
lítillega um bankaviðskipti eldri
borgara, og þótti mér bankarnir
vera seinir að taka upp sérstaka
þjónustu við aldraða fólkið, sér-
staklega þar sem ég benti á að
aldurshópurinn 60 ára og eldri
eiga 62% af innstæðum einstak-
linga í bönkum.
Satt að segja fékk ég að heyra,
að óþarfi væri að vekja athygli á
því að eldri borgarar ættu ein-
hverja aura, og því síður kannski
skuldlaust hús. Því miður hefur því
verið haldið ansi mikið á lofti að
þetta gamla fólk séu þurfalingar á
þjóðfélaginu. Eflaust má margt
gera betur fyrir eldra fólkið, og
það á það skilið, en það má heldur
ekki gleyma þeim sem eiga ein-
hverjar eignir, að þær haldi sínu
verðgildi.
Því vil ég endurtaka að mér
fmnst Búnaðarbankinn opna þarna
nýja möguleika í fjármálum, fyrir
eldra fólkið, og eiga þau þökk
skilda, sem að þessu hafa komið.
HALLDÓR FINNSSON,
Grundarfirði.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.