Morgunblaðið - 04.05.1999, Síða 88
MORGUNBLAÐÍD, KRINGLAN1, 103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Hlutalj áraukningu fslandssíma lokið
Burðarás og Hof
meðal hluthafa
EIGNARHALDSFÉLÖGIN Burð-
arás og Hof eru stærstu aðilamir í
hópi nýrra hluthafa í Islandssíma, en
hlutafjáraukningu fyrirtækisins, sem
stofnað var á síðasta ári af tölvufyr-
irtækinu Oz og einstaklingum í við-
skiptalífinu, er lokið. Aðrir í hópi
nýrra hluthafa eru Eignarhaldsfélag
Valfells fjölskyldunnar, Tölvubank-
inn og Radíómiðun.
Nú er unnið að því að ráða starfs-
fólk og gera verkáætlun fyrir félagið.
Gert er ráð fyrir því að hún verði
kynnt í lok mánaðarins og að fyrir-
tækið hefji sölu á þjónustu sinni síð-
JpWar á þessu ári. Á hvaða sviði fjar-
skiptaþjónustu það mun hasla sér
völl í byrjun liggur þó ekki fyrir enn-
þá, að sögn Páls Kr. Pálssonar,
stjórnarformanns fyrirtækisins.
„Það er lagt upp með viðskipta-
hugmynd sem lýtur að því að stofna
til fyrirtækis með alhliða starfsemi í
fjarskiptaþjónustu. Við erum núna
að gera verkáætlun og ráða starfs-
fólk,“ sagði Páll í samtali við Morg-
unblaðið, en auk hans sitja í stjóm
félagsins Eyþór Arnalds, Kristján
Gíslason, Margeir Pétursson og
'•'-■'^Sveinn Valfells.
Frelsi í fjarskiptum
mun stóraukast
„Við sjáum fyrir okkur að frelsi í
fjarskiptum muni stóraukast hér.
Hversu langt menn ná á næstu árum
skal ég ekkert fullyrða um, en ég held
að menn komist ekki hjá því að undir-
búa margs konar afnám sérleyfa og
einokunar í þessari grein vegna aðild-
ar okkai- að alþjóðlegum viðskipta-
samningum, auk þess sem ég geri
mér vonir um að ný ríkisstjóm hafi
þann metnað til að bera að vilja stíga
ákveðin og föst skref í átt til einka-
væðingar Landssímans," sagði Páll.
Hann sagði að þeir gerðu sér þar af
leiðandi vonir um að þetta yrði vax-
andi og mjög spennandi markaður á
næstu árum. Pyrirtækið væri stofnað
til þess að veita alhliða þjónustu á
fjarskiptasviði. „Við vitum að þetta er
umhverfí sem er í mikilli þróun. Það
munu vonandi og án efa eiga sér stað
miklar breytingar á þessu umhverfi
og við ætlum okkur einfaldlega að
taka þátt í þessu áhugaverða rekstr-
arsviði,“ sagði Páll.
Hann sagði einnig að þeir vildu
gjarnan aðstoða samkeppnisaðila
sína við að stíga skref inn á sam-
keppnismarkað hvort sem það gerð-
ist með því að knýja á um breytingar
á sérleyfum og einokunaraðstöðu á
þessum markaði eða með útvíkkun á
þeirri þjónustu sem Landssímanum
væri gert að veita samkepnisaðilum
sínum. Einnig væri hugsanlegt að
efna til samstarfs af ýmsu tagi.
Páll sagði aðspurður að endanleg
upphæð hlutafjái- félagsins og skipt-
ing þess milli einstakra aðila lægi
ekki fyrir, en það yrði kynnt í lok
maímánaðar um leið og stefnumörk-
un þess, verkáætlun og helstu starfs-
menn.
Morgunblaðið/Ómar
Morgunblaðið/Christopher Tucker
JESSE Jackson heilsar yfirmönnum Varnarliðsins, David Architzel flotaforingja, til vinstri, og Allen
Efraimson kafteini á Keflavíkurflugvelli í gærmorgun.
Heldur
hægir á
bflainn-
flutningi
INNFLUTNINGUR á nýjum bíl-
um jókst um 38,06% fyrstu fjóra
mánuði ársins miðað við sama tíma
í fyrra. AIls voru fluttir inn 5.213
bflar fyrstu fjóra mánuði þessa árs
en 3.776 bflar á sama tíma í fyrra.
Heldur hefur því hægt á aukn-
ingu í bílainnflutningi sem var 45%
fyrstu þrjá mánuði ársins.
í aprflmánuði var fluttur inn
1.431 bíll, en í sama mánuði í fyrra
voru fluttir inn 1.182 bflar, sem er
aukning um 21,07%.
Mest var flutt inn af Toyota
fyrstu fjóra mánuðina, alls 793 bfl-
ar, eða 15,2% heildarinnflutnings-
ins. Fluttir voru inn 564
Volkswagen, sem er 10,8% hlutur,
490 Nissan, 9,4%, 352 Mitsubishi,
6,7%, og 339 Subaru, 6,5%.
Skóburst-
un á Lækj-
artorgi
ÞAÐ er ekki verra að mæta
sumrinu á hreinum og gljáandi
skóm. Ekki skemmir fyrir að fá
að sifja í hægindastól meðan
fagmaðurinn sinnir verki sínu
og virða fyrir sér úr hásætinu
mannlifið á Lækjartorgi. Að
vísu bendir höfuðfatið í þessu
tilfelli til annars en konungs-
tignar. Hyggilegt væri fyrir
skóburstarann að færa sig um
set til Akureyrar og stunda þar
iðn sína næstu daga, því búist
er við rigningu sunnanlands.
Jesse Jackson
hafði viðdvöl
á Islandi
BLOKKUMANNALEIÐTOGINN
Jesse Jackson hafði, ásamt nítján
öðrum fulltráum í bandariskri
sendinefhd, skamma viðdvöl hér á
landi í gærmorgun á leið sinni frá
Serbíu, þar sem nefndin hafði feng-
ið þrjá bandaríska hermenn lausa
úr haldi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Varnarliðinu voru í sendinefndinni,
íKtuk Jacksons, ýmsir bandarískir
trúarleiðtogar og öldungadeildar-
þingmaðurinn Rod Blagojavich,
sem er af serbneskum ættum.
Jackson sagði að hermennimir
þrír hefðu verið hafðir í einangmn í
þrjátíu daga áður en sendimönnun-
um var leyft að hitta þá, en hefðu þd
verið við gdða heilsu. Hann sagði að
ífcegi síðar, þegar þeir vora látnir
lausir, hefðu þeir grátið af gleði.
KEA opnar
matvöru-
verslun í
Kópavogi
KAUPFÉLAG Eyfirðinga hef-
ur, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins, tekið húsnæði
Borgarbúðarinnar í vesturbæ
Kópavogs á leigu og hyggst
opna þar matvöruverslun í
byrjun næsta mánaðar.
Um er að ræða svokallaða
„þægindaverslun," með lengri
afgreiðslutíma en lágvöruversl-
unin Nettó, sem KEA opnaði í
Reykjavík á síðasta ári.
Nokkrar minni
verslanir opnaðar
Borgarbúðin er í tæplega
500 fermetra húsnæði en sam-
kvæmt upplýsingum blaðsins
ætlar KEÁ að opna nokkrai-
minni verslanir á höfuðborgar-
svæðinu með lengri afgreiðslu-
tíma, auk þess sem Nettó-
verslun verður sett á lóð Um-
ferðarmiðstöðvarinnar í
Reykjavík.
Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustj óra kannar svik erlendis vegna bflainnflutnings
EMBÆTTI ríkislögreglustjóra hef-
ur undanfarna mánuði gripið til þess
ráðs að senda rannsóknarlögreglu-
menn efnahagsbrotadeildar til Evr-
ópu og Norður-Ameríku í þvi skyni
að rannsaka svik í tengslum við inn-
flutning bifreiða. Jón H. Snorrason,
saksóknari hjá embætti ríkislög-
reglustjóra, segir þessar rannsóknir
mjög kostnaðarsamar en dómsmála-
ráðuneytið hafi samþykkt að tryggja
embættinu auknar fjárveitingar til
að standa undir þeim.
Umræddar rannsóknir beinast að
innflutningi á vel á annað hundrað
bifreiðum og málunum tengjast á
annan tug einstaklinga, fyrirtækja
og kennitalna.
Að sögn Jóns hafa þegar sprottið
upp sakamál erlendis vegna þessara
rannsókna, þar sem komið hafi í ljós
að þeir erlendu aðilar sem íslending-
ar hafa átt í viðskiptum við, hafa í
sumum tilvikum gefið út falska
reikninga, stundað skjalafals og
Rannsóknir
hafa leitt til
sakamála ytra
gerst með öðrum hætti brotlegir við
lögin. „Þarlend lögregluyfirvöld fara
með okkur og vinna þessi mál og
þegar kemur í ljós að menn hafa ver-
ið að fikta við reikninga, bakfæra
bókhald, stunda falsanir eða gefið
tollyfirvöldum þar upp rangar upp-
lýsingar, verða til sjálfstæð sakamál
í þessum löndum. Við vitum um all-
mörg dæmi um slíkt,“ segir Jón.
Rannsóknarlögreglumennirnir eru
aldrei færri en tveir saman og hafa
þeir aðallega farið til Þýskalands,
þar sem flest bflaviðskiptin, sem til
rannsóknar eru, fóru fram, en einnig
til Kanada og Bandaríkjanna. „Þetta
eru vinnubrögð sem við höfum tekið
upp og munum stunda þau áfram og
sem betur fer hefur okkur verið gert
kleift að standa straum af rannsókn-
unum með stuðningi ráðuneytisins,"
segir Jón.
Jón segir mikla þörf á að afla
þessara upplýsinga og bendir á að á
fimmtudaginn seinasta hafi fallið
dómur í Hæstarétti vegna svika í
bflainnflutningi, þar sem sönnun
hafði fengist um skjalafals í tengsl-
um við bflainnflutning en ekki var
fullsannað hversu háan toll sakbom-
ingar komu sér undan að greiða þar
sem ekki var ljóst hvert verð bifreið-
anna var úti í Þýskalandi.
„Við gáfum út ákæiu fyrir um ári í
því máli sem dómur féll í fyrir helgi
og í ljósi þess máls höfum við í þeim
málum sem við erum að vinna að,
ákveðið að fara til þeirra landa sem
bflarnir voru keyptir í og rannsakað
kaupin þar með atbeina þarlendra
lögregluyfirvalda og á stundum toll-
yfirvalda. Við yfnheyrum alla þá
sem tengjast þessum málum ytra,
húsleitir eru gerðar ef því er að
skipta o.s.frv. Þessar rannsóknir
hafa borið mikinn árangur og þegar
leitt til að við höfum aflað okkur
góðra og traustra sönnunargagna,“
segir hann.