Morgunblaðið - 18.05.1999, Side 1
109. TBL. 87. ÁRG.
Reuters
SONIA Gandhi heilsar stuðn-
ingsfólki við heimili sitt í gær.
Sonia
Gandhi seg-
ir af sér
Nýju Delhí. Reuters.
SONIA Gandhi sagði af sér sem for-
maður indverska Kongress-flokksins
í gær, eftir að þrír forystumenn í
flokknum fullyrtu að erlendur upp-
runi hennar og reynsluleysi gerði
hana vanhæfa um að taka við stjóm
landsins. Kongress-flokkurinn er nú
í stjómarandstöðu en þingkosningar
fara fram á Indlandi í haust.
Þetta var tOkynnt eftir fund
æðstaráðs flokksins í Nýju-Delhí í
gær, þar sem rædd var krafa áhrifa-
mannanna þriggja um að Sonia
Gandhi yrði ekki forsætisráðherra-
efni flokksins í komandi kosningum.
„Mig tekur sárt að verða vör við
þennan skort á trausti til hæfni
minnar til að þjóna flokknum og
landinu," sagði Pranab Mukharjee,
sem sæti á í æðstu stjóm flokksins,
Soniu Gandhi hafa skrifað í afsagn-
arbréfí sínu, en hún er ítölsk að upp-
mna og ekkja Rajivs Gandhi, fyrr-
verandi forsætisráðherra. í bréfinu
segir hún Indland vera valfóðurland
sitt, „ég er indversk og mun verða
það til hinztu stundar."
Hvött til að sitja áfram
Þrátt fyrir afsögnina hvatti æðsta-
ráðið hana til að gegna formanns-
embættinu áfram og lýsti fullu
trausti til hæfni hennar til að fara
fyrir stjóm landsins. Sonia Gandhi
hafði forystu um að fella ríkisstjóm
Atal Biharis Vajpayees í síðasta
mánuði og í formannstíð hennar hef-
ur Kongress-flokknum vegnað vel í
fylkisstjórnakosningum. Stuðnings-
fólk hennar safnaðist saman við
heimili hennar í gær og skoraði á
hana að sitja áfram.
ÞRIÐJUDAGUR 18. MAI1999
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Netanyahu hyggur á afsögn eftir hrakfarir í útgönguspám í Israel
Stórsig’ur Ehuds Baraks
í forsætisráðherrakjöri
Þingsætin 120
deilast á fjórtán
stjórnmálaflokka
Reuters
STUÐNINGSMENN Ehuds Baraks söfnuðust saman til sigurhátiðar á Rabin-torgi í Tel Aviv í gærkvöldi. Þar
var pólitískur lærifaðir Baraks, Yitzhak Rabin, fyrrverandi forsætisráðherra, veginn af ísraelskum öfgamanni
á útifundi ( þágu friðar síðla árs 1995. Ekkja hans, Leah, sagði sigur Baraks binda enda á mikla „óheillatíð".
Tel Aviv. Morgunblaðið.
BENJAMIN Netanyahu, forsætis-
ráðherra Israels, lýsti því yfír strax
eftir að útgönguspár voru birtar við
lokun kjörstaða í ísrael í gærkvöldi
að hann hygðist segja af sér sem for-
maður Likud-flokksins. Samkvæmt
útgönguspá ísraelska ríkissjónvarps-
ins hlaut Ehud Barak, leiðtogi
Verkamannaflokksins, 58,5% at-
kvæða til embættis forsætisráðherra
í kosningunum en Netanyahu 41,5%.
I útgönguspá annarrar sjónvarps-
stöðvar fékk Barak 57% fylgi og
Netanyahu 43%.
Netanyahu óskaði Barak strax til
hamingju með sigurinn sem hann
sagði ákvörðun þjóðarinnar. Hann
kvaðst stoltur af þeim árangri sem
náðst hefði í þriggja ára valdatíð
sinni og nefndi þar sérstaklega að
tekist hefði að stöðva hiyðjuverk.
Barak lagði í sigurræðu sinni
áherzlu á einingu þjóðarinnar, sem
væri nauðsynlegt að hlúa að eftir
harkalega kosningabaráttu. „Upp
frá þessari stundu emm við öll í
sama báti, ein þjóð.“
Arafat og umheimurinn
árnar heilla
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, var mjög ánægður á svip er
hann óskaði Barak til hamingju með
sigurinn í gærkvöldi. Aðspurður tjáði
hann fréttamönnum að hann vonaðist
til að forsætisráðherraskiptin hjálp-
uðu friðarferlinu aftur í gang. Bill
Clinton Bandaríkjaforseti sendi Bar-
ak „innilegustu árnaðaróskir" og hét
því að vinna með honum af krafti að
„réttlátum og varanlegum friði, sem
styrkti öryggi ísraels". Ráðamenn
margra annarra ríkja sendu Barak
hamingjuóskir í gærkvöldi.
I þingkosningunum hlaut Verka-
mannaflokkurinn 33 af 120 þingsæt-
um, samkvæmt sömu spá, en höfuð-
andstæðingur hans, Likud-flokkur-
inn, 18 þingsæti. Þá hlaut Shas,
Benjamin Ehud
Netanyahu Barak
flokkur heittrúaðra gyðinga af aust-
rænum uppruna, 15 þingsæti,
vinstriflokkurinn Meretz 10 þing-
sæti, ísrael Ba’alya, stærsti flokkur
rússneskra innflytjenda, og Shinui,
flokkur sem berst gegn áhrifum heit-
trúaðra, sex þingsæti hvor. Miðju-
flokkur Yitzhaks Mordechais og
NRP, flokkur trúaðra, hlutu fimm
þingsæti hvor.
Þá hlutu tveir hægri- og tveir
vinstriflokkar, auk smáflokka araba,
rússneskra innflytjenda og fyrirsæt-
unnar Pninu Rosenblum, sem sett
hefur baráttuna gegn heimilisofbeldi
á oddinn, tvö til fjögur þingsæti
hver.
Stjórnarmyndun talin
verða erfið
Samkvæmt þessu er Shas, undir
forystu Ariye Deri sem nýlega var
dæmdur til fjögurra ára fangelsis-
vistar fyrir spillingu, ótvíræður sig-
urvegari þingkosninganna enda ljóst
að Likud-flokkurinn, sem ekki hefur
hlotið minna fylgi frá árinu 1959,
hefur tapað gríðarmiklu fylgi til
Shas. Þá er ljóst að erfitt verður fyr-
ir Barak að mynda sterka stjóm,
eins og hann hefur talað um, án þátt-
töku Shas eða Likud. Hins vegar má
færa rök að því að afsögn Netanya-
hus greiði fyrir hugsanlegri sam-
vinnu Verkamannaflokksins og
Likud-flokksins.
Niðurstöðurnar koma ekki á óvart
enda virtist allt stefna í sigur Baraks
er kjörstaðir voru opnaðir í gær-
morgun. Þá sýndu niðurstöður kann-
ana að Barak hefði allt að 12% for-
skot á Netanyahu eftir að þrír af
fimm frambjóðendum til forsætis-
ráðherraembættisins drógu sig í hlé
og ljóst varð að úrslit myndu liggja
fyrir strax að lokinni fyrstu umferð
kosninganna.
Azmi Bishara, sem varð fyrstur
ísraelskra araba til að sækjast eftir
kjöri til forsætisráðherraembættis-
ins, varð fyrstur til að tilkynna að
hann hefði dregið framboð sitt til
baka á laugardag. Yitzhak Mor-
dechai, leiðtogi Miðjuflokksins, dró
síðan framboð sitt til baka á sunnu-
dagsmorgun og síðar um daginn
fylgdi harðlínumaðurinn Benny Beg-
in í kjölfarið.
■ Kosningaáróður/28
Loftárásir NATO halda áfram á Júgóslavíu en allt kapp lagt á leitina að samningslausn
Landher heitið
„helvíti á jörð“
Belgrad. Reuters.
LOFTARÁSIR Atlantshafsbandalagsins á
Júgóslavíu jukust á ný í gærkvöldi eftir að slæm
veðurskilyrði höfðu hamlað þeim nokkuð í tvo
sólarhringa. Einn æðstu hershöfðingja Serba
kom þeim skilaboðum til NATO að reyni ein-
hver að senda innrásarher inn á yfirráðasvæði
Serbíu ætti sá von á „sönnu helvíti á jörð“.
Robin Cook, utanríkisráðherra Bretlands,
vakti í gær aftur upp umræðu um möguleikann
á að senda landher inn í Kosovo. Sagði hann tU
greina koma að senda þangað takmarkaðan
fjölda hermanna eftir að „skipulögð mótstaða“
Serba hefði verið brotin á bak aftur með loft-
árásunum.
Umleitanir leiðtoga NATO-ríkjanna, Rúss-
lands og fleiri aðUa tU að finna lausn á þeim
mikla hnút sem Kosovo-deUan er komin í, á 56.
degi loftárása NATO, héldu jafnframt áfram í
gær af miklum móð.
Massimo D’Alema, forsætisráðherra Itah'u,
og Gerhard Schröder, kanzlari Þýzkalands,
unnu fram á kvöld að því að smíða nýjar tillög-
ur um lausn deUunnar sem breið samstaða
gæti tekizt um. Stefnt var að því að leiðtogam-
ir tveir gæfu út sameiginlega yfirlýsingu er
fundi þeirra lyki í dag, þriðjudag.
Serbneskir fjölmiðlar greindu frá því í gær-
kvöldi að sprengjur hefðu fallið á nokkrar elds-
neytisbirgðastöðvar í Serbíu. Einn óbreyttur
borgari hefði týnt lífi og nokkrir særzt. Loft-
vamaflautur vom þeyttar í höfuðborginni
Belgrad og loftvarnabyssur geltu.
í Brassel áttu Igor Ivanov, utanríkisráð-
herra Rússlands, Ibrahim Rugova, áður leið-
togi hófsamra Kosovo-Albana, og MUo Djuka-
novic, forseti Svartfjallalands, fundi með utan-
ríkisráðherram Evrópusambandsins (ESB).
Ivanov tjáði fréttamönnum eftir fundahöldin
í Brassel að Rússar væru enn þeirrar skoðunar
að forsenda þess að finna friðsamlega lausn
væri að loftárásunum yrði hætt; um þetta væri
enn ágreiningur mUli Rússlands og G7-hóps-
ins, sjö helztu iðnríkja heims. Hann hét því þó
að Rússar myndu áfram leitast við að leika
uppbyggUegt hlutverk við að miðla málum í
deilunni. Áður höfðu Rússar og G7 náð sam-
komulagi um að krefjast þess að Serbar
drægju herlið sitt út úr Kosovo og samþykktu
að þangað kæmi alþjóðlegt gæzlulið; Rússar
hafa þó ekki viljað faUast á að NATO leiki for-
ystuhlutverk í því gæzluliði.
Ottazt um flóttamenn
Lest, sem komin var að landamæram
Kosovo og Makedóníu í gær með allt að 2000
kosovo-albanska flóttamenn innanborðs, var
snúið aftur inn í Kosovo að skdpan serbneskra
hermanna. Uggur ríkti um afdrif flóttamann-
anna. Kiro Gligorev, forseti Mekedóníu, sagði
að flytja ætti burt úr landinu 100.000 flótta-
menn en þar dvelja nú á að gizka 230.000
Kosovo-Albanar.
■ Sjá umfjöllun bls. 26