Morgunblaðið - 29.05.1999, Side 2
2 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Annasamur
dagur hjá Selmu
Björnsdóttur
Jcnísalcm. Morgunblaðid.
ÞAÐ var annasamur dagur hjá Selmu
Björnsdóttur og fóruneyti í gær þegar
haldin voru tvö rennsli á Eurovision með
áhorfendum. Voru þau tekin upp og
verða notuð ef eitthvað fer úrskeiðis í
sjálfri útsendingunni frá Jerúsalem í
kvöld.
Miklar vangaveltur eru hjá íslenska
hópnum svo og fleirum, um hver muni
vinna keppnina, en í veðbönkum í
Bretlandi eru íslenska og sænska lagið í
1. sæti. Æfíngar gengu áfallalaust fyrir
sig og var síðasta sýningin hin
tilkomumesta. I dag er síðasta rennsli á
keppninni og í kvöld munu íslendingar
ásamt 100 milljónum Evrópubúa komast
að því hver stendur uppi sem
sigurvegari í þessari siðustu Eurovision
keppni á öldinni.
■ Eurovision/41-43
Dæmdur fyrir að svíkja 11,2 m.kr. út úr íslandsbanka í Keflavík
N ígeríumaður
fékk 12 mánaða
fangelsi í héraði
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef-
ur dæmt 24 ára Nígeríumann í 12
mánaða fangelsi fyrir að hafa í febr-
úarmánuði sl. haft 11,2 milljónir
króna af Islandsbanka í Keflavík
með skjalafalsi og fjársvikum. 28 ára
Nígeríumaður, sem einnig var
ákærður í þessu peningaþvættismáli,
var sýknaður af öllum ákærum.
Mönnunum var geflð að sök að
hafa notað tvo falsaða tékka, samtals
að fjárhæð 96.920 sterlingspund, eða
11,2 milljónir króna, til að blekkja
með í lögskiptum. Tékkana seldi
hinn dæmdi í útibúi Islandsbanka í
Keflavík og lagði inn á gjaldeyris-
reikning sinn, en hann hefur búið
hér í nokkur ár og rekið fyrirtæki.
Málið sætti umfangsmikilli lög-
reglurannsókn og sátu þeir í gæslu-
varðhaldi í á annan mánuð. I niður-
stöðum Jónasar Jóhannssonar, hér-
aðsdómara, segir að ekki verði talið
sannað að sá dæmdi hafi vitað að
tékkarnir tveir væru falsaðir. Ekki
sé upplýst hver eða hverjir hafi gefið
tékkana út. M.a. beindist rannsókn
að því að hafa uppi á öðrum Nígeríu-
manni sem ýmist hefur gengið undir
nafninu Mike Brown eða Kevin West
en komst úr landi daginn eftir hand-
töku hins dæmda. Segir í dóminum
að ekki hafi verið aðhafst nægilega
til að upplýsa um útgáfu tékkanna.
Timburviðskipti
í upphafi rannsóknar málsins
sagðist Nígeríumaðurinn hafa fengið
tékkana sem greiðslur í timburvið-
skiptum, sem hann hefði annast milli
erlendra fyrirtækja, en hvarf seinna
frá því og sagði tékkana útgefna af
starfsmanni fýrirtækis í slagtogi við
hinn ákærða og tvo aðra til þess að
þvo illa fengið fé. Sá dæmdi sagði að
meðákærði hefði fengið sig til að
taka þátt í athæfinu, hann hefði látið
mönnunum í té upplýsingar og tékk-
arnir verið gefnir út þótt engin við-
skipti stæðu að baki. Sannað þótti að
engin viðskipti hefðu búið að baki
tékkunum og maðurinn logið vísvit-
andi að bankamönnum að svo hefði
verið, en það var samkvæmt starfs-
reglum forsenda þess að bankinn
keypti tékkana.
„Er vafalaust að hvorugt [banka-
mannanna, sem tóku við tékkunum
og báru vitni í málinu] hefði tekið við
tékkunum ef ákærði hefði sagt þeim
hvernig í pottinn væri búið og að út-
gáfa tékkanna væri liður í peninga-
þvætti erlendra aðila,“ segir dómar-
inn, Jónas Jóhannsson, héraðsdóm-
ari. Með þessu hafi sá dæmdi blekkt
bankastarfsmenn og framið fjársvik.
Dómarinn telur hins vegar að ekki
njóti við beinna sannanna um aðild
hins mannsins, sem ákærður var; að-
eins sé til að dreifa framburði þess
sem dæmdur er í málinu. Sá hafi
orðið margsaga um veigamikil atriði
málsins og verði sakfelling ekki reist
á reikulum, mótsagnakenndum og á
köflum fjarstæðukenndum fram-
burði hans, gegn eindreginni neitun.
Brottvísun hafnaö
í málinu krafðist ákæruvaldið
þess að mönnunum yrði vísað úr
landi að lokinni afplánun. Báðir
gengu að eiga íslenskar unnustur
sínar eftir að þeir losnuðu úr gæslu-
varðhaldi og áður en dómur gekk. Sá
sem sýknaður var á bam með konu
sinni en hinn hefur lögbundna forsjá
sonar konu sinnar. Telur dómarinn
að hagsmunir barnsins mæli ein-
dregið gegn því að honum verði vís-
að úr Iandi og synjaði þeirri kröfu.
Auk árs fangelsis varþeim dæmda
gert að greiða Islandsbanka
11.166.046 krónur í bætur auk
málsvarnarlauna og sakarkostnaðar.
Þá var honum gert að sæta upptöku
á um 1,8 milljón króna.
Gangbraut-
arvarsla
uns undir-
göng verða
tilbúin
HAFIN er gangbrautarvarsla á
gangbrautinni við gatnamót
Reykjanesbrautar, Kaldársels-
vegar og Oldugötu í Hafnar-
firði. Varslan verður frá kl. 7.30
á morgnana til kl. 19.30 á kvöld-
in alla daga vikunnar þangað til
framkvæmdum við undirgöng
nálægt gangbrautinni lýkur.
Gatnamótin hafa reynst
hættuleg slysagildra á liðnum
árum en þar hafa orðið þrjú
banaslys síðan árið 1977.
Til að tryggja umferð gang-
andi vegfarenda við gatnamótin
var ítrekað á fundi bæjarráðs
Hafnarljarðar hinn 6. maí sl., að
öi-yggi gangandi vegfarenda
yrði tryggt tafarlaust og sam-
þykkti bæjarráð að hafinn yrði
undirbúningur að gerð undir-
ganga undir Reykjanesbrautina
og að höfð yrði varsla við gang-
brautina þangað til. Var gerður
samningur við Hjálparsveit
skáta í Hafnarfirði og björgun-
arsveitina Fiskaklett um að ann-
ast vörsluna, sem hófst fyrir fá-
einum dögum.
Gangbrautarvörðurinn, sem
nú er tekinn til starfa, heitir
Sveinsína Björg Jónsdóttir. Hún
heldur einnig tölu yfír gangandi
vegfarendur sem fara yfir
gangbrautina dag hvern meðan
á vaktinni stendur og hafa tæp-
lega 900 vegfarendur gengið yf-
ir hana síðan 25. maí. Talningin
er gerð fyrir byggjendur gang-
anna, svo betri yfirsýn fáist yfir
umferð gangandi vegfarenda á
gatnamótunum þar sem göngin
verða grafin. Lítið var að gera
hjá Sveinsínu þegar ljósmynd-
ara Morgunblaðsins bar að í
gær.
Jeppaleiðangurinn á Grænlandi
Fjórðungnr baka-
leiðar á fyrsta degi
ICE225 JEPPALEIÐANGURINN
á Grænlandi ók sína fyrstu dagleið
til baka áleiðis til Syðri-Straumfjarð-
ar í gær eftir að hafa náð takmarki
sínu seint á þriðjudagskvöld er þeir
félagar renndu niður af Grænlands-
jökli á austurströnd Grænlands og
urðu þar með fyrstir til að aka þvert
yfir Grænlandsjökul.
Er Morgunblaðið hringdi í leið-
angursmenn í gærkvöldi hafði leið-
angurinn lagt að baki um 200 kíló-
metra af rúmlega 700 kílómetra leið
sem framundan er til Syðri-Straum-
fjarðar og var staddur í rúmlega
2.000 metra hæð.
Áætlað er að aka að ratsjárstöð-
inni DYE 2 í dag og gista þar í nótt.
Ekið er á um 20 km hraða á klukku-
stund í 30-40 cm jafnföllnum snjó og
að sögn leiðangursmanna fór veður
batnandi í gær og var færðin breyti-
leg en yfirleitt þokkaleg.
Leiðin sem ekin er til baka vestur
yfir jökulinn er ekki sú sama og farin
var austur yfir. Valin var ný leið
vestur yfir, sem er lítið eitt styttri en
austurleiðin.
Áætlað er að koma niður í Syðri-
Straumfjörð á mánudagskvöld. Ekki
hafa teljandi óhöpp orðið í ferðinni
utan þess þegar lega í framdrifi eins
jeppans skemmdist en ekki tók
langa stund að gera við þá bilun.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sérblöð í dag
ALAUGARDOGUM
Utah Jazz úr leik í NBA-
körfuboltanum/B7
Gulidrottningin Silja með
neglur í fánalitum/B1
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is