Morgunblaðið - 29.05.1999, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Variety
Mars kvik-
mynduð á Is-
landi
KVIKMYNDIN Mars, sem gerð
verður á vegum Wamer Bros undir
leikstjórn Anthony Hoffman, verður
kvikmynduð á íslandi að því er stað-
hæft er í frétt sem birtist í banda-
ríska tímaritinu Variety í gær. Skv.
heimildum Morgunblaðsins mun
kvikmyndaverið gefa út fréttatil-
kynningu um tökur myndarinnar á
íslandi eftir helgina.
Val Kilmer og Carrie-Anne
Moss til íslands?
í frétt Variety í gær kemur einnig
fram að tveir heimskunnir leikarar
muni leika aðalhlutverk í myndinni,
þau Val Kilmer og Carrie-Anne Moss.
Myndin fjallar um geimfara í fyrstu
mönnuðu ferðinni til plánetunnar
Mars og hefjast tökur hennar í haust.
-------------------
Hrapaði til jarð-
ar á svifvæng
FLUGMAÐUR svifvængs var fluttur
á slysadeild með sjúkrabifreið eftir
slys á Geirsnefi skömmu eftir mið-
nætti á fimmtudag. Hann ökklabrotn-
aði og meiddist í baki er hann féll til
jarðar er verið var að draga hann á
svifvængnum á loft með bifreið.
Að sögn lögreglunnar hafði flug-
maðurinn verið dreginn níu sinnum á
loft áfallalaust en í tíundu ferðinni
var skipt um ökumann á dráttarbif-
reiðinni og var talið líklegt að hann
hafi ekið of hratt með þeim afleiðing-
um að svifvængurinn fór fram úr bif-
reiðinni og varð flugmaðurinn því að
sleppa dráttartauginni og hrapaði
þannig til jarðar.
í^k
ÚBVAL ÚTSÝN
5854000
•
FERÐASKRIFSTOFA ÍSIANDS
RÁÐSTHFNDR
585 4400
♦
FERÐASKRIFSTOFA ÍSIANDS
VÍÐSKIFTAFERÐÍR
505 4400
FERÐASKRIFSTOFA ÍSIANDS
1NNANLANDSDH1LD
5854300
FYRR í þessum mánuði reyndu þeir Ed McGough (t.v.), Leifur Öm Svavarsson (t.h.) og Guðjón Marteinsson að klífa Einar Mikaelsens-fjall á Austur-
Grænlandi. Vegna slæmra veðurskilyrða, þ.e. mikillar snjókomu, sem olli m.a. mikilli snjóflóðahættu, þurftu þeir frá að hverfa, en áður höfðu
þeir klifið tvö hæstu fjöll Grænlands.
Leiðangnr íslenskra fjallaleiðsögumanna á Austur-Grænlandi
Reyndu að klífa
Einar Mikael-
sens-fjall
LEEÐANGURSMENN úr leiðangri
íslenskra fjallaleiðsögumanna urðu
að yfirgefa Watkinsfjöll á Austur-
Grænlandi án þess að hafa lokið
ætlunarverki súiu, en þeir hugðust
klífa Einars Mikaelsens-fjall. Efli'ðar
fjallsins eru það brattar og fjallið
þannig af guði gert að enn hefur
engum tekist að klífa það. Þess ber
að geta að áður en þeir skoðuðu að-
stæður við fjallið óklifna höfðu þeir
klifið tvö hæstu fjöll Grænlands.
Leiðangursmennirnir voru þrír,
Leifur Öm Svavarsson, Guðjón
Marteinsson og Skotinn Ed
McGough, en leiðangurinn hófst
hinn 11. maí og lauk á flmmtudag-
inn. Leifur Örn sagði f samtali við
Morgunblaðið að þeir hefðu lent á
jöklinum í um 2.000 metra hæð. Þá
hefði verið búið að snjóa mjög
mikið og snjórinn náð upp í mitti.
40 stiga frost og sterkur vindur
„Næstu daga gengum við á tvö
hæstu fjöll Grænlands, þ.e. á
Gunnbjörnsfjall, sem er um 3.700
metra hátt, og Dome, sem er um
10 metmm lægra,“ sagði Leifur
Öra. „Þetta vom kannski ekki
tæknilega erfiðar fjallgöngur, en
það var mikill kuldi, sérstaklega á
leiðinni upp á Dome. Við vomm
ekki komnir á toppinn fyrr en á
miðnætti og þá var yfir 40 stiga
frost, sterkur vindur og gríðarleg
kæling," sagði hann.
„Si'ðan gengum við að Einars
Mikaelsens-fjalli á fimm dögum,
eina 50 til 60 kílómetra, og þá vor-
um við í góðum ham og fannst eins
og ekkert gæti stöðvað okkur því
við vorum í mjög góðu líkamlegu
formi og vel útbúnir. En þegar við
komum að fjallinu byijaði að snjóa
og morguninn eftir var kominn
snjór upp á mið læri og það snjóaði
allan næsta dag líka og þá var
kominn snjór upp í klof.“
Gríðarlega formfagur tindur
„Einars Mikaelsens-fjall er gríð-
arlega formfagur tindur, en fjallið
rís rúma 2.000 metra upp úr jökl-
inum og er um 3.300 metra hátt.
Fjallið er orðið nokkuð þekkt
vegna þess hversu fallegt það er
og margir leiðangrar hafa reynt
að klifra það en enginn haft erindi
sem erfiði.
Loksins hætti að snjóa og við
reyndum að troðast áfram til að
komast hálfhring í kringum fjallið
þar sem við ætluðum að reyna við
tindinn, en komumst með miklu
erfiði aðeins 3,1 kflómetra, sem er
óvenju stutt vegalengd.
Þegar komið var að hlíðinni sem
við ætluðum að klífa voru stöðugt
að falla smá snjóflóð úr brattri
hlíðinni þannig að við lögðum ekki
í að fara lengra og snerum við og
eyddum deginum í að horfa á flóð-
in falla á um 10 mínútna fresti
þannig að það dmndi f öllum fjöll-
unum.“
Fallnir á tíma
„Þar með vomm við fallnir á
tíma og þurftum að ganga til baka
og bíða eftir flugvélinni. Við biðum
í þijá daga eftir að komast burt, en
það var mjög sorglegt að fara því
það var komið glimrandi veður og
aðstæður orðnar allar hinar
bestu,“ sagði Leifur Örn. „Það er
alveg á hreinu að við ætlum að
reyna við fjallið aftur að ári, þegar
við biðum eftir flugvélinni voram
við komnir á þá niðurstöðu.11
Framkvæmdastjóri Sjóvár-Almennra um viðmiðun við lög frá 1993
Gefur heildstæða mynd
fyrir allan markaðinn
Féll 6
metra til
jarðar
KARLMAÐUR var fluttur á slysa-
deild eftir vinnuslys í Langholts-
kirkju í gær. Hann féll 6 metra til
jarðar er hann var við vinnu í kirkj-
unni og fótbrotnaði fyrir neðan hné.
Maðurinn stóð í stiga og var að
undirbúa vinnu við breytingafram-
kvæmdir í kirkjunni er stiginn rann
undan honum með fyrrgreindum af-
leiðingum.
EINAR Sveinsson, framkvæmda-
stjóri Sjóvár-Almennra trygginga,
segir að ástæðan fyrir því að áhrif
nýju skaðabótalaganna séu borin
saman við skaðabótalögin eins og þau
voru árið 1993 sé að tjón frá seinni
hluta ársins 1993 séu þekkt safn upp-
gerðra tjóna fyrir öll íslensku félögin.
Það gefi því heildstæða mynd fyrir
allan markaðinn og sé marktækt.
Jón Steinar Gunnlaugsson, hæsta-
réttarlögmaður, sagði á fimmtudag
að skrítið væri að gera samanburð á
útgjöldum vegna breytinga á skaða-
bótalögum við ástand sem gilt hafi
fyrir sex árum þegar bótaréttur hafi
örugglega verið rýrastur, en ekki við
ástandið 1998 eða 1997. Trygginga-
stærðfræðingur Sambands íslenskra
tryggingafélaga hefur reiknað út að
kostnaðarauki lagabreytinganna nú
miðað við lögin 1993 sé 58%.
„Við hér hjá Sjóvá-Almennum höf-
um h'ka endurmetið öll uppgerð
slysatjón áranna 1994 og 1995, ásamt
því að við létum skoða þróun á árinu
1996 til þess að kanna áhrif breyttra
skaðabótalaga. Þessi gögn verða lögð
til grundvallar mati á tjónakostnaði
félagsins eftir lagabreytinguna 1. maí
og iðgjaldsútreikningar félagsins
byggðir á því. Ekki dugar að líta ein-
göngu til síðustu tveggja ára, 1997 og
1998, því fæst þeirra slysa sem urðu
á þeim árum eru uppgerð og greidd
og óvissan þar með mest. Hins vegar
verðum við að hafa þau ár líka til
skoðunar, því ákveðna þróun má lesa
út úr þeim, svo sem tjónatíðni, áhrif
hæstaréttardóma, launaþróun, upp-
gjörskostnað og fleira," sagði Einar.
Hann sagði að iðgjaldsákvörðun
yrði þannig byggð á því sem best
væri þekkt úr fortíðinni og jafnframt
væri tekið tillit til þeirra breytinga
sem vitað væri um í dag til hækkunar
eða lækkunar og því speglað inn í
framtíðina til þess að áætla iðgjalds-
þörfina.
Varfæmissjónarmið höfð í huga
Varðandi þær fjármunatekjur sem
færðar eru á bótasjóði tryggingafé-
laganna, sagði Einar að hlutdeild vá-
tryggingarekstrarins í fjármunatekj-
um væri reiknuð samkvæmt reglu-
gerð um ársreikninga vátrygginga-
félaga. „Það vaxtaviðmið sem þar er
notað byggir á meðalávöxtun spari-
skírteina ríkissjóðs á Verðbréfa-
þingi, sem var um 5% auk verð-
tiYggingar í síðasta uppgjöri. Ég tel
að það sem vakti fyrir reglugerðar-
höfundum hafi verið að miða við
stöðuga og örugga langtímaávöxtun
sem ríkisskuldabréf vissulega eru,
eða m.ö.o. að varfærnissjónarmið
væri haft til hliðsjónar,“ sagði Einar.
Hann sagði að að sjálfsögðu væru
heildarfjármunatekjur félagsins
hafðar í huga þegar iðgjaldaákvarð-
anir væru teknar. „Góð afkoma fé-
lagsins þýðir minni iðgjaldsþörf,"
sagði Einar að lokum.