Morgunblaðið - 29.05.1999, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fimm nýir ráðherrar í rflrisstjórn Davíðs Oddssonar taka við embættum
Morgunblaðið/Þorkell
ARNI M. Mathiesen tekur við lyklunum að sjávarútvegs-
ráðuneytinu af Davíð Oddssyni.
Morgunblaðið/Þorkell
HALLDÓR Ásgrímsson fær Guðna Ágústssyni lyklavöld
að landbúnaðarráðuneytinu.
Morgunblaðið/Þorkell
HALLDÓR Blöndal afhendir Sturlu Böðvarssyni lyklana
að samgönguráðuneytinu.
Stefnumótun
í anda stjórnar-
sáttmála
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
SÓLVEIG Pétursdóttir tekur í hönd Davíðs Oddssonar eftir að hafa
tekið við embætti dómsmálaráðherra.
Morgunblaðið/Halldór Koibeins
SIV Friðleifsdóttir tekur við lyklunum að umhverfisráðuneytinu
af Halldóri Ásgrímssyni.
RÁÐHERRARNIR fimm sem tóku
við nýjum embættum í gær, Ámi M.
Mathiesen, Guðni Ágústsson, Siv
Friðleifsdóttir, Sólveig Pétursdóttir
og Sturla Böðvarsson, segja flestir
að stórra stefnubreytinga muni ekki
gæta, að minnsta kosti ekki í fyrstu,
og þeir muni taka mið af þeim
áherslum sem lagðar eru í stjórnar-
sáttmálanum.
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra bendir á þær áherslur sem
fram koma i stefnuyfirlýsingu ný-
skipaðrar ríkisstjórnar, aðspurð
hvort vænta megi stefnubreytinga í
umhverfismálum með nýjum ráð-
herra.
Engar U-beygjur teknar
„Ég mun að sjálfsögðu takast á
við þau verkefni sem koma fram í
sáttmálanum, enda um mörg
spennandi verkefni að ræða,“ segir
Siv. „í honum kemur til dæmis
fram mikil áhersla á að stuðla að
náttúruvernd og öflugum mengun-
arvörnum. Sérstaklega er spenn-
andi að takast á við að ljúka gerð
rammaáætlunar til langs tíma um
nýtingu vatnsafls og jarðhita, sem
tekur tillit til verndargildis ein-
stakra landsvæða. Einnig er brýnt
og spennandi að efna til umhverf-
isátaks, þar sem sveitarfélög, fyrir-
tæki og einstaklingar verða hvött
til að endurnýta efni og flokka úr-
gang. Mörg slík áhugaverð verkefni
eru framundan og ég mun takast á
við þau fyrir hönd ríkisstjórnarinn-
ar og Framsóknarflokksins. Mér
finnst það spennandi fyrir ungan
stjórnmálamann að fá að takast á
við eins mikilvægan og vaxandi
málaflokk og umhverfismálin eru.
Þessi ríkisstjóm felur í sér fram-
hald á samstarfi Framsóknar-
flokksins og Sjálfstæðisflokks,
þannig að ekki verða neinar stór-
fengarlegar U-beygjur teknar í
þessum málaflokki, frekar en í öðr-
um málaflokkum. Við munum halda
áfram á þeirri braut sem við höfum
markað í umhverfismálum, en að
sjálfsögðu mun mín orka öll fara í
að sinna umhverfismálum á íslandi.
Framundan eru mjög spennandi
tímar.“
Mikilvægi málaflokka aukist
Sólveig Pétursdóttir dóms- og
kirkjumálaráðherra kveðst ánægð
og þakklát yfir því trausti sem
henni er sýnt með því að vera falið
að gegna jafnmikilvægu embætti.
„Ég tel að þeir málaflokkar sem
heyra undir dóms- og kirkjumála-
ráðuneytið séu afar mikilsverðir.
Ég þekki þá reyndar vel þar sem ég
hef verið formaður allsherjamefnd-
ar Alþingis undanfarin átta ár og
hef unnið talsvert í þessum málum,“
segir Sólveig.
„Eins og menn vita hefur ekki
verið um alllangt skeið sérstakur
ráðherra fyrir þessu ráðuneyti,
þannig að ég tel fagnaðarefni að það
verði breyting þar á, enda þótt
mjög margt gott hafi verið unnið
þar á liðnum árum. Með breyttu
þjóðfélagi held ég að mikilvægi ým-
Fimm nýir ráðherrar
tóku við embættum sín-
um í ríkisstjórn Davíðs
Oddssonar með form-
legum hætti á ríkis-
ráðsfundi á Bessastöð-
um í gær og í kjölfarið
fengu beir lyklavöld í
viðkomandi ráðuneyt-
um. Ráðherrarnir nýju
segja tilhlökkunarefni
að takast á við þau
verkefni sem embætt-
unum fylgja.
issa þessara málaflokka sé orðið
meira, og ég tel að það séu mörg
spennandi verkefni framundan. A
þessu stigi málsins held ég ekki að
sé rétt að fara nánar út í þá sálma.
Margt hefur áunnist en það má
alltaf betur gera og ég mun leggja
mig fram um að reyna að láta gott
af mér leiða, og athuga hvort þörf
sé á áherslubreytingum.“
Uppbygging helgast
af fjármunum
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra segir að nýtt embætti leggist
prýðilega vel í sig og hann sé afar
sáttur við að fá tækifæri til að
takast á við samgöngumál.
„Ég geri ráð fyrir að einhver
áherslubreyting verði, enda óhjá-
kvæmilegt með nýjum mönnum. Ég
hef hins vegar tekið þátt í að móta
þá stefnu í samgöngumálum sem
fylgt hefur verið af hálfu okkar
sjálfstæðismanna, þannig að ekki
verður um neinar kollsteypur að
ræða,“ segir Sturla.
„Ég mun leitast við að sinna fjar-
skiptamálunum og vegamálum sér-
staklega, og ekki síst ferðamálum
sem heyra undir þetta ráðuneyti.
Ég mun leggja ríka áherslu á þessa
þætti, sem ég tel að séu þeir allra
brýnustu. Á þessu stigi vil ég hins
vegar ekki tjá mig um einstaka
þætti, en bendi á að við þurfum að
skoða áframhaldandi uppbyggingu
vegakerfísins, en hún helgast auð-
vitað af þeim fjármunum sem við
höfum til ráðstöfunar í þjóðarbúinu.
Það verður að tengja saman annars
vegar fjáröflun og hins vegar þá
stóráfanga sem bíða úrlausna og í
hvaða röð þeir verða teknir, auk
þess sem skoða verður þessi mál í
ljósi þeirra áherslna sem við höfum
lagt í byggðamálum og hvernig við
byggjum samgöngunetið í landinu
þannig að það nýtist okkur sem best
til að bæta kjör fólksins í landinu
sem víðast.“
Sátt náist um fiskveiðistefnuna
Árni M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra kveðst líta björtum augum
til nýs embættis, þó svo að ljóst sé
að erfið verkefni bíði. Hann bendir
á að stefnuyfirlýsing ríkisstjórnar-
innar leggi mjög ákveðnar áherslur
hvað sjávarútvegsmál varðar og
hann telji að í þeim felist ákveðin
stefnubreyting frá því sem verið
hefur, en hún sé þó í samræmi við
málflutning sjálfstæðismanna í ný-
liðinni kosningabaráttu.
„Hver stjómandi hefur síðan sinn
eigin stíl og það mun koma í ljós
hvernig það gengur fyrir sig. Það
má reikna með að ég muni móta
eigin áherslur innan þessa ramma
sem stjómarsáttmálinn setur,“ seg-
ir Ámi.
„Helsta verkefnið er að sjálf-
sögðu að reyna að ná víðtækri sátt
um fiskveiðistefnuna, en ég hef
einnig persónulega mikinn áhuga á
rannsóknum í sjávarútvegi og vildi
gjaman fara vel ofan í þau mál og
sjá veg þeirra verða meiri, sem
helgast af því að ég hef ákveðnar
rætur í þessu rannsóknarumhverfi.
Þegar maður byrjar að vinna í þess-
um málum kemur hins vegar í ljós
hvert svigrúmið er á því sviði. Það
era ekki auðveld verkefni sem era
fyrir höndum en það þarf að takast
á við þau og ég mun gera það eftir
bestu getu.“
Möguleikar í breyttum heimi
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra segir að nýtt starf leggist
vel í hann og hann taki við því af
auðmýkt og þakklátur öllum þeim
sem hafi stutt hann á leiðinni.
„Nýjum mönnum fýlgir alltaf
eitthvað nýtt og breytt viðhorf, en
ég hef ekki mótað mér neinar bylt-
ingarkenndar hugsjónir til að fylgja
eftir, heldur vonast til að geta orðið
liðsmaður í að þróa íslenskan land-
búnað til sóknar," segir Guðni.
„Ég tel að við eigum mikla
möguleika í breyttum heimi, að við
eigum afurðir á heimsmælikvarða,
og tel það skyldu mína að reyna að
stuðla að sátt á milli sveitanna og
þéttbýlisins og auka skilning þar á
milli. Sveitin þarf á þéttbýlinu að
halda og þéttbýlið þarf á sveitinni
að halda. Ég vona að mér takist að
móta stefnubreytingu á ýmsum
sviðum og finnst mjög mikilvægt
að takast á við það sem í stjórnar-
sáttmálanum segir, þ.e. að styrkja
sögu landbúnaðarins og bænda, að
hagur þeirra batni og einnig að
nýta sér þá miklu möguleika sem
nú eru til að sækja inn á erlenda
markaði. Við sjáum það einnig að
ýmsar yngri búgreinar sækja
sterkt fram, svo sem garðyrkja
sem er í mjög athyglisverðum far-
vegi hér.“