Morgunblaðið - 29.05.1999, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999
VÍÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
MARGRÉT Kr. Sigurðardóttir, markaðsstjóri Morgunblaðsins, tók við
verðlaununum. Á myudinni eru einnig (t.h.) Colin Phillips, útgefandi
tímaritsins Editor & Publisher, og Joe Frederickson, forseti INMA.
Auglýsing fyrir mbl.is hlýtur
verðlaun í alþjóðlegri samkeppni
viðurkenning“
AUGLÝSING frá Morgunblaðinu
hlaut fyrstu verðlaun í auglýsinga-
keppni á vegum alþjóðasamtaka
markaðsfólks á dagblöðum, INMA,
og tímaritsins Editor & Publisher.
Auglýsingin bar heitið „mbl.is -
alltaf eitthvað nýtt“ og var sýnd í
sjónvarpi og kvikmyndahúsum.
Auglýsingastofan Gott fólk hafði
umsjón með gerð auglýsingarinn-
ar en um framleiðsluna sá listhóp-
urinn Gus Gus.
Margrét Kr. Sigurðardóttir
markaðsstjóri Morgunblaðsins tók
á móti verðlaununum á heimsþingi
INMA í Miami í Bandaríkjunum.
„Það er alltaf gaman að fá viður-
kenningu og hún sýnir að Morgun-
blaðið er að gera hluti sem jafnast
á við það sem erlendu blöðin eru
að gera. Þau hafa þó yfirleitt úr
meira ljármagni að spila við aug-
lýsingagerð. Mikill fjöldi auglýs-
inga er sendur í keppnina og því
var ánægjulegt að íslenskt efni
skyldi ná athygli dómnefndar með
þessum árangri," segir hún.
Helgi Helgason, hjá auglýsinga-
stofunni Góðu fólki, segir að verð-
launin hafi þýðingu fyrir stofuna.
„Auðvitað er þetta ágætis auglýs-
ing fýrir stofuna út á við, en ég
legg áherslu á að þýðingin sé engu
minni fyrir starfsfólkið sjálft, sem
er að fá viðurkenningu fyrir verk
sín,“ segir hann.
Clil B
■ ■
F a x t æ k i
Sendingahraði A4:6 sek
Prenthraði: 6 blöð / mín
Vinnsluminni: 90 bls í móttöku og sendingu
Skammval: 16 númer
Hraðval: 100 númer
Sendir og tekur á móti í e'mu.
Tekur á móti í minni ef pappír klárast
Tóner og tromla endist 2800 bls.
Verö kr. 59.900
Faxtæki verð
frá kr. 29.900
NÝHERJI
Skipholt 37 ■ Sími: 569 7700
www.nyherji.is
Kaupir
bréf í
Básafelli
LÍFEYRISSJÓÐUR Vestfirð-
inga hefur keypt hlutabréf í
Básafelli á Isafirði að nafnvirði
tæplega 12.550 þúsund krónur
og eftir kaupin á lífeyrissjóður-
inn 6,58% í Básafelli.
Verðbréfaþingi Islands var
tilkynnt um kaupin í gær en
bréfin sem um ræðir voru í
eigu Básafells.
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi olía
Stefnuyfirlýsinff ríkisstjórnarinnar
Anægja meðal fjár-
málafyrirtækja
í STEFNUYFIRLYSINGU nýrrar
ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks eru ýmis atriði
sem snerta fjármagnsmarkað og
rekstur fjármálafyrirtækja hér á
landi. I samtölum við forsvarsmenn
fjármálafyrirtækja kemur fram al-
menn ánægja með það sem fram
kemur í stefnuyfirlýsingunni hvað
þetta varðar.
„Þetta er í raun mjög í samræmi
við stefnuyfirlýsingu ríkisstjómar-
innar frá 1995 og kosningayfirlýs-
ingar flokkanna," segir Sigurður
Atli Jónsson, forstöðumaður eigna-
stýringar hjá Landsbréfum hf.
„Reyndar er kveðið mun fastar að
orði um einkavæðingu og sölu ríkis-
fyrirtækja en í yfirlýsingunni frá
‘95, beinlínis sagt að hlutabréf í rík-
isbönkunum verði seld og er ástæða
til að fagna því. Eg held að reynslan
af sölu hlutafjár í bönkunum í fyrra
hafi verið mjög góð og að sama
verði uppi á teningnum í framhald-
inu. Það er einnig mjög skýrt að
stefnt verður að því að reka ríkis-
sjóð með umtalsverðum tekjuaf-
gangi og er það jákvætt og í anda
þess sem aðilar á fjármálamarkaði
hafa mælt með. Sömuleiðis verður
ekki betur séð en lánsfjárþörf ríkis-
ins muni halda áfram að dragast
saman og það þýðir að langtíma-
vextir munu fara lækkandi," segir
Sigurður Atli.
Um þau áform að færa Seðla-
bankann undir forsætisráðuneytið
segir hann að það sé gríðarlega
mikilvægt í hagstjóminni að Seðla-
bankinn sé mjög sjálfstæður. „Við
viljum sjá nánari útfærslu á þessum
áformum áður en við getum sagt
nokkuð um þau,“ sagði hann.
Sigurður Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Kaupþings hf., segir
margt jákvætt koma fram í stefnu-
yfirlýsingunni. „Sérstaklega em
áform um að halda áfram einkavæð-
ingu ríkisíyrirtækja og að selja
hlutabréf í ríkisbönkunum af hinu
góða og við viljum gjaman sjá að
það verði gert sem fyrst. Almennt
séð lýst okkur ekki illa á þessa
stefnuj'firlýsingu en vonum að í
framhaldinu verði verkin látin tala,“
segir Sigurður.
Fagna sérstaklega boðuðum
aðgerðum í ríkisrekstrinum
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans, sagði að frá
sjónarhóli fjármálafyrirtækja kæmi
margt athyglivert fram í stefnuyfir-
lýsingunni. „Við fógnum sérstak-
lega aðgerðum sem boðaðar em í
ríkisrekstrinum og áherslu á að efla
spamað, m.a. frjálsan lífeyrissparn-
að. Við tökum eftir því að gerðar
verða auknar arðsemikröfur til rík-
isfyrirtækja sem er afar mikilvægt,
ekki síst gagnvart opinbemm aðil-
um sem era í samkeppni, má í því
sambandi nefna t.d. íbúðalánasjóð.
Ég held einnig að þær áherslur
sem kynntar era og miða að því að
örva starfsemi lítilla og meðalstórra
fyrirtækja og að styðja framkvæði
og framtak í atvinnurekstri séu af
hinu góða. Landsbankinn hefur lagt
aukna áherslu á þetta svið í sinni
starfsemi. Ennfremur fógnum við
áformum um áframhaldandi sölu á
ríkisfyrirtækjum og teljum að það
sé rétt leið sem á að fara, þ.e. að
þetta verði gert á viðskiptalegum
forsendum og þess gætt að ríkið fái
hámarksverð fyrir eignir sínar,“
segir Halldór.
Hann nefnir einnig skipulags-
breytingar í atvinnumálum og end-
urmat á eftirlitshlutverki ríkisins.
„Vegna hagsmuna Landsbank-
ans á landsbyggðinni fagna ég því
að atvinnuþróun á landsbyggðinni
verði felld að öðru atvinnuþróunar-
og nýsköpunarstarfi þar og að
kraftar ríkisins verði sameinaðir
betur á því sviði. Einnig er jákvætt
að áfram verði haldið við að endur-
skoða eftirlitshlutverk ríkisins sem
raunar var einnig gert á síðasta
kjörtímabili, m.a. með stofnun fjár-
málaeftirlitsins. Það er að mínu viti
mjög mikilvægt að ljúka þeirri
vinnu og tryggja að öll fjármála-
starfsemi lúti eftirliti sömu stofn-
unar og að hún verði rekin á sem
hagkvæmastan hátt,“ sagði Hall-
dór.
Ýmis skynsamleg markmið
Stefán Pálsson, bankastjóri Bún-
aðarbankans, sagði að í stefnuyfír-
lýsingunni væri að finna ýmis skyn-
samleg markmið og að áform um
áframhaldandi sölu hlutafjár í ríkis-
bönkunum komi ekki á óvart.
„Ég held að þetta sé í samræmi
við það sem almennt er skoðun
manna núorðið, að fjármálafyrir-
tæki eigi að vera í einkaeign," seg-
ir Stefán. „Það er einnig jákvætt
að sjá að ríkisstjórnin ætlar áfram
að stuðla að auknum sparnaði sem
hefur verið baráttumál okkar í
bönkunum. Við teljum þannig að
það sé rétt að halda áfram að veita
skattaívilnanir til að örva sparn-
að.“
Aðspurður sagði Stefán að sér
þætti að mörgu leyti eðlilegt að
Seðlabankinn yrði færður undir for-
sætisráðuneytið. „Þetta er náttúra-
lega stjórnsýslustofnun sem á
hverjum tíma verður að starfa náið
með stjórnvöldum þannig að mér
líst ekki illa á það,“ sagði hann.
Samtök verslunarinnar segja Baug skaða eigin
hagsmuni með drottnunartilburðum
Nýtir nú þegar ofurafl
sitt gagnvart birgjum
TALSMENN Samtaka verslunar-
innar fóra í gær á fund Samkeppn-
isstofnunar til að skýra íyrir stofn-
uninni afstöðu samtakanna til
ástandsins á matvörumarkaðnum,
en að sögn Hauks Þórs Hauksson-
ar, formanns Samtaka verslunar-
innar, telur hann að Baugur hf. hafi
með kaupum sínum á 10-11 verslun-
I þágu öryrkja, ungmenna og iþrótta
Ný símanúmer -----
hjá íslenskri getspá
Sími skrifstofu:
580 2500
Fax:
580 2501
unum stórskaðað sína eigin hags-
muni með drottnunartilburðum á
markaðnum.
„Þessa skoðun mína byggi ég á
viðbrögðum fjölmiðla og almenn-
ings, en Baugur nýtir nú þegar of-
urafl sitt gagnvart birgjum og hinn
almenni neytandi veit hver er næst-
ur í röðinni til að borga brúsann
þegar einn aðili er kominn með 60-
70% af markaðnum," sagði Haukur
Þór í samtali við Morgunblaðið.
Hann sagðist telja þörf á að Sam-
keppnisstofnun skoðaði mál þetta
vel þar sem það væri hlutverk
stofnunarinnar að grípa inn í þegar
markaðsráðandi aðili væri farinn að
misnota aðstöðu sína.
Yfirgangur og hortugheit
gagnvart innflytjendum
Haukur sagði markmiðið með
kaupum Baugs vera að auka inn-
kaupaafl, styrkja markaðsyfirburði
og ná frarn lækkun á einingarkostn-
aði.
„Afleiðingin af þessum kaupum
er að minnsta kosti 60-70% mark-
aðshlutdeild í Reykjavík og það
stefnir í fákeppni á þessum markaði
sem við þekkjum allt of vel hér á Is-
landi. Og maður veltir því fyrir sér
hvort fákeppni á einum markaði
leiði af sér fákeppni á öðram mörk-
uðum þar sem hagsmunir fákeppn-
isaðilans felast í því að upplýsingar
um verð og kjör era nánast ófáan-
legar og óeðlilegur mismunur er
milli einstakra viðskiptavina. Yfir-
gangur og hortugheit gagnvart inn-
flytjendum og birgjum er einnig
sýnilegur vottur um misbeitingu á
yfirburðastöðu," sagði Haukur Þór
Hauksson.
---------------------
Loðnuvinnsl-
an hf. á Vaxt-
arlista VÞÍ
HLUTABRÉF Loðnuvinnslunnar
hf. verða skráð á Vaxtarlista Verð-
bréfaþings Islands næstkomandi
þriðjudag, en í tilkynningu frá VÞÍ
kemur fram að borist hafi staðfest-
ing á því að félagið uppíylli ákvæði
reglna um skráningu á Vaxtarlista.
Skráð hlutafé er 500 milljónir
króna að nafnverði, en Loðnuvinnsl-
an lauk nýverið 70 milljóna króna
hlutafjárútboði og seldist það allt til
forkaupsréttarhafa. Félagið verður
tekið inn í heildarvísitölu Vaxtar-
lista og vísitölu sjávarútvegs
fímmtudaginn 3. júní næstkomandi.