Morgunblaðið - 29.05.1999, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 29.05.1999, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999 VÍÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ MARGRÉT Kr. Sigurðardóttir, markaðsstjóri Morgunblaðsins, tók við verðlaununum. Á myudinni eru einnig (t.h.) Colin Phillips, útgefandi tímaritsins Editor & Publisher, og Joe Frederickson, forseti INMA. Auglýsing fyrir mbl.is hlýtur verðlaun í alþjóðlegri samkeppni viðurkenning“ AUGLÝSING frá Morgunblaðinu hlaut fyrstu verðlaun í auglýsinga- keppni á vegum alþjóðasamtaka markaðsfólks á dagblöðum, INMA, og tímaritsins Editor & Publisher. Auglýsingin bar heitið „mbl.is - alltaf eitthvað nýtt“ og var sýnd í sjónvarpi og kvikmyndahúsum. Auglýsingastofan Gott fólk hafði umsjón með gerð auglýsingarinn- ar en um framleiðsluna sá listhóp- urinn Gus Gus. Margrét Kr. Sigurðardóttir markaðsstjóri Morgunblaðsins tók á móti verðlaununum á heimsþingi INMA í Miami í Bandaríkjunum. „Það er alltaf gaman að fá viður- kenningu og hún sýnir að Morgun- blaðið er að gera hluti sem jafnast á við það sem erlendu blöðin eru að gera. Þau hafa þó yfirleitt úr meira ljármagni að spila við aug- lýsingagerð. Mikill fjöldi auglýs- inga er sendur í keppnina og því var ánægjulegt að íslenskt efni skyldi ná athygli dómnefndar með þessum árangri," segir hún. Helgi Helgason, hjá auglýsinga- stofunni Góðu fólki, segir að verð- launin hafi þýðingu fyrir stofuna. „Auðvitað er þetta ágætis auglýs- ing fýrir stofuna út á við, en ég legg áherslu á að þýðingin sé engu minni fyrir starfsfólkið sjálft, sem er að fá viðurkenningu fyrir verk sín,“ segir hann. Clil B ■ ■ F a x t æ k i Sendingahraði A4:6 sek Prenthraði: 6 blöð / mín Vinnsluminni: 90 bls í móttöku og sendingu Skammval: 16 númer Hraðval: 100 númer Sendir og tekur á móti í e'mu. Tekur á móti í minni ef pappír klárast Tóner og tromla endist 2800 bls. Verö kr. 59.900 Faxtæki verð frá kr. 29.900 NÝHERJI Skipholt 37 ■ Sími: 569 7700 www.nyherji.is Kaupir bréf í Básafelli LÍFEYRISSJÓÐUR Vestfirð- inga hefur keypt hlutabréf í Básafelli á Isafirði að nafnvirði tæplega 12.550 þúsund krónur og eftir kaupin á lífeyrissjóður- inn 6,58% í Básafelli. Verðbréfaþingi Islands var tilkynnt um kaupin í gær en bréfin sem um ræðir voru í eigu Básafells. Súrefnisvörur Karin Herzog Vita-A-Kombi olía Stefnuyfirlýsinff ríkisstjórnarinnar Anægja meðal fjár- málafyrirtækja í STEFNUYFIRLYSINGU nýrrar ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eru ýmis atriði sem snerta fjármagnsmarkað og rekstur fjármálafyrirtækja hér á landi. I samtölum við forsvarsmenn fjármálafyrirtækja kemur fram al- menn ánægja með það sem fram kemur í stefnuyfirlýsingunni hvað þetta varðar. „Þetta er í raun mjög í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjómar- innar frá 1995 og kosningayfirlýs- ingar flokkanna," segir Sigurður Atli Jónsson, forstöðumaður eigna- stýringar hjá Landsbréfum hf. „Reyndar er kveðið mun fastar að orði um einkavæðingu og sölu ríkis- fyrirtækja en í yfirlýsingunni frá ‘95, beinlínis sagt að hlutabréf í rík- isbönkunum verði seld og er ástæða til að fagna því. Eg held að reynslan af sölu hlutafjár í bönkunum í fyrra hafi verið mjög góð og að sama verði uppi á teningnum í framhald- inu. Það er einnig mjög skýrt að stefnt verður að því að reka ríkis- sjóð með umtalsverðum tekjuaf- gangi og er það jákvætt og í anda þess sem aðilar á fjármálamarkaði hafa mælt með. Sömuleiðis verður ekki betur séð en lánsfjárþörf ríkis- ins muni halda áfram að dragast saman og það þýðir að langtíma- vextir munu fara lækkandi," segir Sigurður Atli. Um þau áform að færa Seðla- bankann undir forsætisráðuneytið segir hann að það sé gríðarlega mikilvægt í hagstjóminni að Seðla- bankinn sé mjög sjálfstæður. „Við viljum sjá nánari útfærslu á þessum áformum áður en við getum sagt nokkuð um þau,“ sagði hann. Sigurður Einarsson, fram- kvæmdastjóri Kaupþings hf., segir margt jákvætt koma fram í stefnu- yfirlýsingunni. „Sérstaklega em áform um að halda áfram einkavæð- ingu ríkisíyrirtækja og að selja hlutabréf í ríkisbönkunum af hinu góða og við viljum gjaman sjá að það verði gert sem fyrst. Almennt séð lýst okkur ekki illa á þessa stefnuj'firlýsingu en vonum að í framhaldinu verði verkin látin tala,“ segir Sigurður. Fagna sérstaklega boðuðum aðgerðum í ríkisrekstrinum Halldór J. Kristjánsson, banka- stjóri Landsbankans, sagði að frá sjónarhóli fjármálafyrirtækja kæmi margt athyglivert fram í stefnuyfir- lýsingunni. „Við fógnum sérstak- lega aðgerðum sem boðaðar em í ríkisrekstrinum og áherslu á að efla spamað, m.a. frjálsan lífeyrissparn- að. Við tökum eftir því að gerðar verða auknar arðsemikröfur til rík- isfyrirtækja sem er afar mikilvægt, ekki síst gagnvart opinbemm aðil- um sem era í samkeppni, má í því sambandi nefna t.d. íbúðalánasjóð. Ég held einnig að þær áherslur sem kynntar era og miða að því að örva starfsemi lítilla og meðalstórra fyrirtækja og að styðja framkvæði og framtak í atvinnurekstri séu af hinu góða. Landsbankinn hefur lagt aukna áherslu á þetta svið í sinni starfsemi. Ennfremur fógnum við áformum um áframhaldandi sölu á ríkisfyrirtækjum og teljum að það sé rétt leið sem á að fara, þ.e. að þetta verði gert á viðskiptalegum forsendum og þess gætt að ríkið fái hámarksverð fyrir eignir sínar,“ segir Halldór. Hann nefnir einnig skipulags- breytingar í atvinnumálum og end- urmat á eftirlitshlutverki ríkisins. „Vegna hagsmuna Landsbank- ans á landsbyggðinni fagna ég því að atvinnuþróun á landsbyggðinni verði felld að öðru atvinnuþróunar- og nýsköpunarstarfi þar og að kraftar ríkisins verði sameinaðir betur á því sviði. Einnig er jákvætt að áfram verði haldið við að endur- skoða eftirlitshlutverk ríkisins sem raunar var einnig gert á síðasta kjörtímabili, m.a. með stofnun fjár- málaeftirlitsins. Það er að mínu viti mjög mikilvægt að ljúka þeirri vinnu og tryggja að öll fjármála- starfsemi lúti eftirliti sömu stofn- unar og að hún verði rekin á sem hagkvæmastan hátt,“ sagði Hall- dór. Ýmis skynsamleg markmið Stefán Pálsson, bankastjóri Bún- aðarbankans, sagði að í stefnuyfír- lýsingunni væri að finna ýmis skyn- samleg markmið og að áform um áframhaldandi sölu hlutafjár í ríkis- bönkunum komi ekki á óvart. „Ég held að þetta sé í samræmi við það sem almennt er skoðun manna núorðið, að fjármálafyrir- tæki eigi að vera í einkaeign," seg- ir Stefán. „Það er einnig jákvætt að sjá að ríkisstjórnin ætlar áfram að stuðla að auknum sparnaði sem hefur verið baráttumál okkar í bönkunum. Við teljum þannig að það sé rétt að halda áfram að veita skattaívilnanir til að örva sparn- að.“ Aðspurður sagði Stefán að sér þætti að mörgu leyti eðlilegt að Seðlabankinn yrði færður undir for- sætisráðuneytið. „Þetta er náttúra- lega stjórnsýslustofnun sem á hverjum tíma verður að starfa náið með stjórnvöldum þannig að mér líst ekki illa á það,“ sagði hann. Samtök verslunarinnar segja Baug skaða eigin hagsmuni með drottnunartilburðum Nýtir nú þegar ofurafl sitt gagnvart birgjum TALSMENN Samtaka verslunar- innar fóra í gær á fund Samkeppn- isstofnunar til að skýra íyrir stofn- uninni afstöðu samtakanna til ástandsins á matvörumarkaðnum, en að sögn Hauks Þórs Hauksson- ar, formanns Samtaka verslunar- innar, telur hann að Baugur hf. hafi með kaupum sínum á 10-11 verslun- I þágu öryrkja, ungmenna og iþrótta Ný símanúmer ----- hjá íslenskri getspá Sími skrifstofu: 580 2500 Fax: 580 2501 unum stórskaðað sína eigin hags- muni með drottnunartilburðum á markaðnum. „Þessa skoðun mína byggi ég á viðbrögðum fjölmiðla og almenn- ings, en Baugur nýtir nú þegar of- urafl sitt gagnvart birgjum og hinn almenni neytandi veit hver er næst- ur í röðinni til að borga brúsann þegar einn aðili er kominn með 60- 70% af markaðnum," sagði Haukur Þór í samtali við Morgunblaðið. Hann sagðist telja þörf á að Sam- keppnisstofnun skoðaði mál þetta vel þar sem það væri hlutverk stofnunarinnar að grípa inn í þegar markaðsráðandi aðili væri farinn að misnota aðstöðu sína. Yfirgangur og hortugheit gagnvart innflytjendum Haukur sagði markmiðið með kaupum Baugs vera að auka inn- kaupaafl, styrkja markaðsyfirburði og ná frarn lækkun á einingarkostn- aði. „Afleiðingin af þessum kaupum er að minnsta kosti 60-70% mark- aðshlutdeild í Reykjavík og það stefnir í fákeppni á þessum markaði sem við þekkjum allt of vel hér á Is- landi. Og maður veltir því fyrir sér hvort fákeppni á einum markaði leiði af sér fákeppni á öðram mörk- uðum þar sem hagsmunir fákeppn- isaðilans felast í því að upplýsingar um verð og kjör era nánast ófáan- legar og óeðlilegur mismunur er milli einstakra viðskiptavina. Yfir- gangur og hortugheit gagnvart inn- flytjendum og birgjum er einnig sýnilegur vottur um misbeitingu á yfirburðastöðu," sagði Haukur Þór Hauksson. --------------------- Loðnuvinnsl- an hf. á Vaxt- arlista VÞÍ HLUTABRÉF Loðnuvinnslunnar hf. verða skráð á Vaxtarlista Verð- bréfaþings Islands næstkomandi þriðjudag, en í tilkynningu frá VÞÍ kemur fram að borist hafi staðfest- ing á því að félagið uppíylli ákvæði reglna um skráningu á Vaxtarlista. Skráð hlutafé er 500 milljónir króna að nafnverði, en Loðnuvinnsl- an lauk nýverið 70 milljóna króna hlutafjárútboði og seldist það allt til forkaupsréttarhafa. Félagið verður tekið inn í heildarvísitölu Vaxtar- lista og vísitölu sjávarútvegs fímmtudaginn 3. júní næstkomandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.