Morgunblaðið - 29.05.1999, Qupperneq 30
30 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
„Veiðistjórnun í
Noregi of dýru
Kostnaður hér um 5% af aflaverðmæti
KOSTNAÐUR við stjórnun fisk-
veiða hérlendis nemur um 5% af
verðmætum þess afla sem Islend-
ingar veiða og hefur kostnaðurinn
lítið breyst á undanfómum árum.
Kostnaðurinn er hinsvegar nokkuð
hærri í Noregi og reynar alltof hár,
enda er afkastageta norska físki-
skipaflotans of mikil í hlutfalli við
fiskistofna. Þetta kemur fram í
skýrslu sem Rögnvaldur Hannes-
son, prófessor við norska viðskipta-
háskólann, hefur unnið með þeim
Ragnari Arnasyni, hagfræðipró-
fessor við Háskóla Islands, og Willi-
am E. Shrank, prófessor á
Nýfundnalandi, um kostnað við
fiskveiðistjómun í löndunum þrem-
ur.
Rögnvaldur telur að til að draga
úr kostnaði við norska fiskveiði-
stjómunarkerfið verði að fækka í
fiskiskipaflota Norðmanna. Einnig
verði að fækka löndunarhöfnum og
fiskvinnslum. Þannig verði til færri
en hagkvæmari einingar.
í Noregi hefur kostnaður við
stjóm fiskveiða lækkað talsvert á
undanfómum áram, eða úr 13% af
heildaraflaverðmætinu árið 1990 í
nærri 8% árin 1994-1996. Það má að
mestu rekja til aukins aflaverðmæt-
is en einnig hefur kostnaður við
veiðamar dregist saman ef marka
má skýrsluna. A Nýfundnalandi
hefur kostaðurinn hinsvegar verið
mun hærri eða 15-26% á umræddu
tímabili, enda er þorskstofninn þar í
mikilli lægð og mjög lítið veitt úr
honum.
Sé hinsvegar tekinn saman kostn-
aður að frádregnum aflaverðmæt-
um era útgjöld norskra útgerðar-
manna mest í löndunum þremur.
Ein helsta ástæða þess er að Norð-
menn greiða háar fjárhæðir í eftirlit
og stjómun fiskveiða innan norsku
lögsögunnar, enda veiða að jafnaði
mun fleiri erlend fiskiskip þar en
innan lögsögu íslands eða
Nýfundnalands. Rögnvaldur segir í
skýrslunni að erlend fiskiskip eigi
að greiða fyrir veiðileyfi í norskri
fiskveiðilögsögu. Eins telur hann að
norskir útgerðarmenn eigi að
greiða fyrir aflaheimildir og kvótinn
gerður framseljanlegur, líkt og gert
sé á Islandi. Reynsla íslendinga
hafi sýnt að með slíku fyrirkomulagi
fækki skipum og hagkvæmni aukist.
Morgunblaðið/Ólafur Jens Sigurðsson
Nýr bátur bætist
í flotann í Rifi
ENN bættist nýr bátur í flotann
í Rifi fyrir skömmu þegar Esjar
SH 75, 30 tonna bátur sem
feðgamir Ragnar Guðjónsson og
Anton Ragnarsson létu smíða
hjá Ósey í Hafnarfirði, sigldi í
fyrsta sinn til heimahafnar.
Skrokkur bátsins er smíðaður í
Póllandi, 5 metrar að breidd og
15,60 metrar að lengd. Ósey sá
síðan um að smíða ofan á bátinn
og gera hann kláran til veiða.
Báturinn er búinn öllum nýjustu
siglingartækjum og útbúinn til
alhliða veiða, línu-, net- og snur-
voðarveiða. í honum er 470 hest-
afla Caterpillarvél og tvær Perk-
ins ljósavélar. Báturinn er í eigu
þeirra feðga Ragnars og Antons
en auk þeirra verða þeir með
þriðja mann með sér í áhöfn.
Mikill fjöldi var á bryggjunni í
Rifi þegar báturinn lagðist að og
mátti sjá að menn töldu bátinn
vandað og vel búið fley. Ragnar
Guðjónsson er margreyndur
skipstjóri og aflakló og hafa þeir
feðgar róið saman í nokkur ár og
ævinlega verið með aflahæstu
mönnum.
Morgunblaðið/High North Alliance/Sveinn Guðmundsson
FRÁ ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins á Grenadaeyju í Karíbahafi.
Fulltrúar 8 þjdða gengu
af fundi í mdtmælaskyni
MIKLAR deilur einkenndu 51. árs-
fund Alþjóðahvalveiðiráðsins, IWC,
sem fór fram á Grenadaeyju í Karí-
bahafi í vikunni og lauk í gær. í ráð-
inu era 40 þjóðir en fulltrúar 34
þeirra mættu og vora hvalfriðunar-
sinnar með öraggan meirihluta.
Flestar ályktanir og tillögur vora í
þá vera að treysta áframhaldandi
bann við hvalveiðum en engar
ákvarðanir í þá vera að leyfa hval-
veiðar vora teknar.
Þegar gengið var til kosninga í
fyrradag um tillögu varðandi hnísu-
veiðar Japana, þar sem Japönum var
gert að skila IWC upplýsingum um
veiðamar og þeir
jafnframt hvattir til
að draga úr þeim,
gengu fuUtrúar átta
þjóða af fúndi. Þeir
vora frá Japan,
Antigua og Barbuda,
Dóminíkanska lýð-
veldinu, Grenada, St.
Kitts og Nevis, St.
Lucia, St. Vincent og
Grenadines, og
Sólomoneyjum. 18
samþykktu tillöguna,
tveir sátu hjá en Kína,
Danmörk, Kórea,
Mexíkó, Noregur og
Rússland vora á móti.
Fulltrúamir sem
gengu af fundi sögðu
að IWC væri ekki hæft til að stjóma
veiðum á hnísum og höfrangum held-
ur á skíðishvölum, búrhvölum og and-
amefjum.
Tillaga um hrefnuveiðar
felld 1 12. sinn
Tillaga Japans um að fjögur
strandhérað mættu veiða 50 hrefnur
*
Arsfundur
Alþjóðahvalveiði-
ráðsins á
Grenadaeyju
í Okhotskhafi í Norðvestur-Kyrra-
hafi var felld í 12. sinn en Japan hef-
ur lagt fram tillögu þess efnis árlega
frá 1988. 15 fulltrúar vora andvígir
umræddri tillögu Japans, tólf sögðu
já en sjö sátu hjá.
Norðmenn vora gagnrýndir fyrir
hvalveiðar á ársfundinum í fyrra og
sama var upp á teningnum nú.
Reyndar var ekki flutt tillaga um
fordæmingu á veiðunum eins og áð-
ur en Bretar gagnrýndu þá fyrir að
hafa ekki farið eftir tillögunni í fyrra
og hætta þegar í stað veiðum. Norð-
menn bragðust hart við, sögðu að
leyfður heildarafli byggðist á
ástandsmati vísindanefndarinnar og
væri ákvarðaður heildarafli sam-
kvæmt kvótareiknireglum ráðsins.
Veiðarnar væra því fullkomlega lög-
legar.
Tillaga um hvalaþjóðgarð
dregin til baka
Endurskoðun stjórnkerfisins var
eitt stærsta málið. I sérstakri vinnu-
nefnd var rætt um tilhögun eftirlits
hvalveiða. Hvalveiðiríkin vildu ljúka
málinu en hvalfriðunarríkin vildu fá
meiri tíma og var ákveðið að nefndin
kæmi aftur saman á næsta ári rétt
fyrir fund IWC.
Tillaga frá Brasilíu um hvalaþjóð-
garð í Suður-Atlants-
hafi, sem næði frá
Suður-íshafssvæðinu
þar sem er griða-
svæði frá 1994 norð-
ur að miðbaug, var
dregin til baka. Bras-
ilíumenn höfðu ekki
rætt við öll lönd sem
liggja að hafsvæðinu
og drógu tillöguna
frekar til baka en að
eiga á hættu að lenda
í mótstöðu. Astralir
og Nýsjálendingar
höfðu boðað tillögu-
flutning um griðland
fyrir hvali í Suður-
Kyrrahafi en þegar
til kom var engin slík
tillaga borin fram. Hins vegar sögð-
ust þeir ætla að flytja tillöguna síðar.
Japanir fengu því framgengt að
fundir ráðsins yrðu teknir upp á
myndband sem allir fjölmiðlar hefðu
greiðan aðgang að en tillaga Japana
og Norðmanna um leynilega at-
kvæðagreiðslu krefðist ákveðinn
fjöldi fulltrúa þess var felld.
iifflnissím
28th APRIL - 2Í
Morgunblaðið/High North AJliance/Sveinn Guðraundsson
MICHAEL Canny, formaður IWC, og Ray Gambell fram-
kvæmdasfjóri stjórnuðu fundinum.
Dagskrárblað Morgunblaðsins inniheldur dagskrá sjónvarps-
og útvarpsstöðva í hálfan mánuð. ( blaðinu er einnig að
finna viðtöl, greinar, kvikmyndadóma, fræga fólkið og
stjörnurnar, krossgátu, yfirlit yfir beinar útsendingar frá
(þróttaviðburðum og fjölmargt annaö skemmtilegt efni.
Hafðu Dagskrárblað Morgunblaðsins alltaf til taks
nálægt sjónvarpinu!
mtmm*