Morgunblaðið - 29.05.1999, Síða 32
32 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Molta gefur
garðinum líf
Nú færðu hana í Blómavali
og Fossvogsstöðinni
___ ______ERLENT________
Ottast að átökin í
Kasmír stigmagnist
Reuters
PAKISTANSKIR hermenn skoða flak ind-
verskrar herþotu, sem Pakistanar skutu nið-
ur í Kasmír í fyrradag.
HARKA FÆRIST I 52 ARA DEILU
1947 m H1
Indland fær sjálfstæði. Múslimar\
stofna sjálfstætt ríki, Pakistan
1948
Indverjar og Pakistanar heyja
stríð vegna deilunnar um Kasmi
Landsvæðinu varskipt milli
ríkjanna samkvæmt vopnahlés
samningi 1. janúar 1949
1965
Annað stríð ríkjanna um Kasm
1972
Samið um að leysa deiluna
1989
Islamskir skæruliðar hefja uppreisi
á yfirráðasvæði indiands.
Mannfallið: um 25.000
1999
Leiðtogar landanna lofa að flýta
sáttaumleitunum
27. mai: Pakistanar segjast hafa skotíð
niður tvær indverskar herþotur eftir
að Indverjar hófu loftárásir til að flæma
skæruliða af yfirráðasvæði sinu.
íslamabad, London. Reuters.
INDVERJAR sögðu í
gær að þeir myndu ekki
beita kjamavopnum
vegna deilunnar um Ka-
smír og sögðust vona að
átökin við markalínuna,
sem skiptir Kasmír í
tvennt, myndu ekki
magnast. Fréttaskýrend-
ur sögðu að hættan á
nýju stríði milli Indverja
og Pakistana vegna deil-
unnar réðist af því
hversu langt Indverjar
myndu ganga í barátt-
unni við íslamska skæru-
liða sem hafa laumast yf-
ir á indverska yfirráða-
svæðið í Kasmír.
Indverjar hófu loftárásir á skæru-
liðana í Kasmír á miðvikudag og þeim
var haldið áfram í gær. Indverskar og
pakistanskar stórskotaliðssveitir hafa
einnig gert árásir yfir markalínuna
sem skiptir Kasmír milli Indlands og
Pakistans.
Stjómvöld í Paldstan vömðu ind-
verska flugherinn við því að gera
árásir á yfirráðasvæði Pakistans.
„Við hvetjum Indverja til að draga úr
árásunum, rjúfa ekki lofthelgina eða
fara yfir markalínuna," sagði Sartaj
Aziz, utanríkisráðherra Paldstans.
Talsmaður pakistanska hersins
vildi ekki staðfesta fréttir um að
sveitum hans hefði verið skipað að
vera í viðbragðsstöðu vegna átakanna
í Kasmír. „Þær em alltaf í viðbragðs-
stöðu í Kasmír og undir það búnar að
grípa til aðgerða annars staðar ef
þörf krefur,“ sagði hann.
Hættulegar árásarferðir
Qureshi greindi ennfremur frá því
að indversku stórskotaliðssveitimar
hefðu haldið áfram árásum sínum yf-
ir markalínuna í gær. „Indverjar
hafa hins vegar dregið úr hemaðar-
aðgerðum sínum eftir að við skutum
niður flugvélar þeirra.“
Pakistanar segjast hafa grandað
tveimur indverskum ormstuþotum af
gerðinni MiG í fyrradag eftir að þær
hefðu flogið yfir pakistanskt land-
svæði. Annar indversku flugmann-
anna beið bana og ráðgert var í gær-
kvöldi að sýna hinn í sjónvarpi í
Pakistan.
Indverjar hafa dregið í efa að her-
þotumar hafi verið yfir pakistönsku
landsvæði og segja að önnur þeirra
hafi brotlent vegna hreyfilbilunnar.
Hin herþotan hefði orðið fyrir flug-
skeyti þegar hún hefði lækkað flugið
til að leita að flugmanni fyrri þotunn-
ar.
Flugmenn indverska hersins taka
mikla áhættu í árásunum þar sem
þeir þurfa að fljúga yfir háa fjalls-
hryggi og inn í þröngva dali til að
varpa sprengjum á skæruliðana.
„Skuggar em í hlíðunum og eftir há-
degið þegar hitinn minnkar verður
skýjað, þannig að illa sést til jarðar.
Mjög erfitt er að fljúga vélunum við
slíkar aðstæður," sagði talsmaður
indverska flughersins.
Fjórir menn biðu einnig bana í gær
þegar sprengja sprakk á mikilvægum
vegi á yfirráðasvæði Indverju, um
200 km austan við borgina Jammu.
Kjamorkutilrauna minnst
Pakistanar minntust þess í gær að
ár var liðið frá því þeir sprengdu
kjamorkusprengjur í tilraunaskyni til
að svara kjamorkutilraunum Ind-
verja. Átökin í Kasmír vörpuðu hins
vegar skugga á hátíðahöldin í tilefni
af afmælinu.
Ríkin tvö hafa tvisvar sinnum háð
stríð vegna deilunnar um Kasmír frá
því þau fengu sjálfstæði frá Bretlandi
árið 1947.
Mikil spenna hefur verið í sam-
skiptum ríkjanna frá árinu 1989 þeg-
ar íslamskir aðskilnaðarsinnar hófu
uppreisn í indverska ríkinu Jammu
og Kasmír sem nær yfir tvo þriðju
hluta Kasmír. Þriðjungur landsvæðis-
ins er undir yffrráðum Pakistana.
Óttast innrás yfir markalxnuna
Þótt Indverjar segist ekki hafa í
hyggju að herða árásimar á skæm-
liðana segjast sérfræðingar í málefn-
um Suður-Asíu óttast að átökin í Ka-
smír stigmagnist og leiði til nýs stríðs
hafi indverska stjómin ekki hemil á
hemum.
„Ég hef mestar áhyggjur af því að
þeir leiðist út í umfangsmeira stríð
með hefðbundnum vopnum,“ sagði
Sumit Ganguly, prófessor af ind-
verskum uppmna í New York.
Pakistaninn Askari Rizvi, prófess-
or við Columbia-háskóla, kvaðst ótt-
ast að Indverjar myndu ráðast inn á
yfirráðasvæði Pakistana í Kasmír til
að elta uppi íslamska skæraliða. Pró-
fessoramir tveir sögðu báðir að
nokkrir áhrifamenn í Bharatiya
Janata, flokki Atals Beharis Vajpa-
yees, forsætisráðherra Indlands,
væm hlynntir því að gefa hernum
lausan tauminn og leyfa honum að
elta skæmliða inn á yfirráðasvæði
Pakistana, sem hafa hótað að svara
slíkum árásum af fullri hörku. „I
mínum huga er ástandið mjög
hættulegt,“ sagði Rizvi.
Prófessoramir tveir og fleiri sér-
fræðingar í málefnum Suður-Asíu
sögðust þó ekki telja að átökin gætu
orðið til þess að ríkin beittu kjarna-
vopnum. „Ég er viss um að engin
hætta er á því að kjarnorkustríð
blossi upp í þessum heimshluta
vegna svo lítilla hagsmuna," sagði
Ishtiaq Hossain, lektor við háskóla í
Singapúr.
Einræktaðar kindur virðast vera frábrugðnar frummyndunum
Erfðaefnið
eldra en
dvrið sjálft
VÍSINDAMENNIRNIR sem ein-
ræktuðu kindina Dolh' í Skotlandi
hafa greint frá því að útlit sé fyrir að
mikilvægir framueiginleikar, sem
þeim tókst ekki að yfirvinna er Dollí
var ræktuð, valdi því að hún eldist
hraðar en venjulegar ær. Hún sé þó
að öllu leyti fullkomlega heilbrigð.
Fréttaskýrandi The New York
Times segir að erfðaefnið í Dollí sé í
rauninni eldra en kindin sjálf, sem
er þriggja ára. Erfðaefnið var hins
vegar tekið úr sex ára gamalli kind,
og er það því níu ára. í skýrslu sem
birtist. í tímaritinu Nature í ga;r
velta vísindamenn við Roslin
Institue og PPL Therapeutics í Ed-
inborg því fyrir sér hvort einrækt-
aðar skepnur kunni að vera veikari,
eldast hraðar og deyja fyrr en
skepnur sem verða til með venju-
legum hætti.
Styttri oddhlutar
Ian Wilmut, sem stýrði einrækt-
un Dollíar fyrir þrem árum, sagði í
viðtali við breska ríkisútvarpið, að
ekki væri ljóst hverjar afleiðingam-
ar yrðu fyrir Dollí sjálfa. „Við telj-
u^.allt ejns ljklegt.að hún ,mupi, lifa
HVAÐ ER DOLLI GOMUL?
Kindin Dolií er fyrsta einræktaða spendýrið,
en ekki er alveg á hreinu hversu gömul hún
getur talist. Hún kom í heiminn fyrir þrem
árum, en erfðaefnið sem notað var til einrækt-
unarinnar var fengið úr sex ára gamalii kind
og því er erfðaefni Dollíar sex árum eldra en
nemur ævilengd hennar.
m í kjarna hverrar einustu frumu f Dollí er að finna
fullkomið mengi allra litninga hennar, sem bera
í QPr nnnQlíriftina nvinm frnmiim