Morgunblaðið - 29.05.1999, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 29.05.1999, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999 33 Reuters MYNDIN sýnir rammgerð mannvirki Imrali-fangelsiseyjunnar í Marmarahafi þar sem réttarhöld yfir Abdullah Öcalan munu hefjast; á mánudag. Réttarhaldanna yfír Ocal- an beðið með óþreyju Ankara, Mudanaya. Reuters, AFP. Lög- reglu- morð í Svíþjóð Stokkhólmi. AP. GRÍMUKLÆDDIR bankaræningj- ar skutu tvo lögreglumenn til bana eftir æsilegan eltingaleik í Kisa, um 200 km suð-vestur af Stokkhólmi síðdegis í gær. Er talið að morðingj- arnir hafi verið þrír að tölu. I gær- kvöldi stóð yfir umfangsmikil leit að mönnunum og sagði sænska dag- blaðið Expressen frá því að Lars Engström, yfirmaður sænsku lög- reglunnar, hefði farið fram á að varalið lögreglunnar væri kallað út vegna málsins. Um tíma var talið að náðst hefði að klófesta morðingjana en hinir grunuðu reyndust ekki hafa verið viðriðnir málið. Ræningjarnir réðust inngöngu í útibú Enskilda bankans í Ostgöta um klukkan þrjú að staðartíma síð- degis í gær. Voru þeir vopnaðir vél- byssum og skutu að lögreglumönn- um sem umkringt höfðu staðinn. Komust þeir undan fyrirsátinni á hvítri Toyota-bifreið og eru taldir hafa keyrt úr bænum á ofsahraða. Er út úr bænum var komið er talið að þeir hafi verið stöðvaðir af lögreglumönnunum tveimur sem nú liggja í valnum, fyrir utan Östgöta. Lögreglubifreið kom að staðnum skömmu síðar en þá voru lögreglu- mennirnir þegar látnir. „Við vitum enn ekki nákvæmlega hvað gerðist, en er Iögreglumenn komu á vett- vang voru starfsbræður þeirra látn- ir,“ sagði Lars Delleborg, lögreglu- stjóri í Linköping í gær. Lögreglu- maður í Boxholm varð á vegi ræn- ingjanna en slapp naumlega undan kúlnahríðinni. Pá er og talið að ræningjarnir hafi notað hand- sprengjur gegn lögreglunni á flótta sínum. Nokkru síðar fannst einn maður, sem grunur leikur á að hafi verið meðal bankaræningjanna, þar sem hann lá i vegarkanti með tvö skotsár á bringu. Var hann fluttur á sjúkrahús, en lögreglan varðist í gær allra frétta af því hvar honum hefði verið komið fyrir. Talið er að yfirheyrslur yfir manninum hafi hafist um leið og hann fannst. Aðeins 28 lögreglumenn hafa verið myrtir við skyldustörf í Sví- þjóð frá upphafi þessarar aldar og morðin nú eru þau fyrstu síðan árið 1990. eðlilegu lífi og verði í engu frá- brugðin [öðrum kindum].“ Auk Dollíar, sem var fyrsta skepnan sem einræktuð var af full- orðnu dýri, hafa vísindamenn ein- ræktað mýs, kýr og geitur, að því er virst hefur án teljandi vandkvæða. Hefur jafnvel verið tilkynnt um ein- ræktun af einræktungum. En nú segja vísindamennirnir, sem rækt- uðu Dollí, að hún og tvö önnur ein- ræktuð dýr séu greinilega frá- brugðin frummyndum sínum. Þær einræktuðu kindur, sem um ræðir, hafa styttri oddhluta en dýr- in sem þær eru einræktaðar af. Oddhlutar þeirra eru einnig styttri en í venjulegum kindum sem eru jafngamlar þeim. Oddhlutar eru eins konar hetta á enda litninga og halda erfðaefni óskertu. Vísinda- menn hafa mikinn áhuga á oddhlut- um, sem eru taldir eiga þátt í öldr- un. Að sögn fréttaskýranda blaðsins Globe and Mail er kenning vísinda- mannanna sú, að í hvert sinn sem fruma skiptist styttist oddhlutinn. Eftir margar skiptingar hafi hann eyðst og sé orðinn að óstöðugum hnúð er leiði til skemmda á erfða- efninu og neyði frumuna til þess að annaðhvort að hætta að skiptast eða deyja. „Þetta bendir til þess að það sé eiginlega ekki hægt að einrækta fullkomna eftirmynd," hefur- blaðið NÆSTKOMANDI mánudag munu réttarhöld í máli Abdullah Öcalans, skæruliðaleiðtoga Kúrda, hefjast á Imrali-fangelsiseyjunni í Marmara- hafi. Öcalan, sem fangaður var af ör- yggissveitum tyrkneska hersins í Naíróbí í febrúar sl. eftir æsOega leit, er gefið að sök að hafa stuðlað að morðum 29.000 manna í vopnaðri baráttu Kúrda gegn tyrkneskum stjórnvöldum. Akæran á hendur Öcalan hljóðar upp á landráð vegna ítrekaðra tilrauna hans til að kljúfa Tyrkland. Er dauðadómur talinn vera hugsanleg niðurstaða hins sér- skipaða herréttar sem dæmir í mál- inu. Réttarhöldin eru af flestum talin verða eldfim enda hefur Tyrkland verið undir smásjánni hvað brot á mannréttindum varðar. Sérstaklega hefur það verið gagnrýnt að herrétt- ur en ekki borgaralega skipaður réttur fellir úrskurð í máli Öcalans. Hafa tyrkneskir stjórnmálaleiðtogar brugðist við þessari gagnrýni að undanfórnu og gefið því undir fótinn að löggjöf landsins verði breytt í því skyni að borgaralega skipaður dóm- ur muni kveða upp úrskurð í stað eftir Leu Harrington, frumulíffræð- ingi við Krabbameinsstofnun Ont- ariofylkis. Hún hefur sinnt rann- sóknum á oddhlutum í tíu ár og seg- ir ekki vera fyllilega ljóst hvernig málum sé háttað í líkamanum, en við frumuræktun hafi komið í Ijós að því styttri sem oddhlutar séu því styttri verði ævi frumunnar. Grunur staðfestur Harrington segir að þegar fregn- ir hafi borist af einræktun Dollíar hafi vísindamenn, er sinna odd- hlutarannsóknum, grunað að odd- hlutar Dollíar væru styttri en í venjulegum kindum. Peter Lansdorp, erfðafræðingur við Krabbameinsstofnun British Columbia, segir skýrsluna í Nature mikilvæga því að hún staðfesti það sem sérfræðinga í oddhlutum hafi grunað. „Dollí hóf ævina við sex ára markið, þannig að segja má að þeg- ar hún verður tíu ára eru oddhlutar hennar sextán ára,“ segir Lans- dorp. Hann telur skýrsluna í Nature vera „skynsamlega og varfærna, vandlega orðaða". Ef niðurstöðurn- ar séu túlkaðar til hins ítrasta megi draga af þeim þá ályktun, að ekki væri ráðlegt að maður einræktaði sjálfan sig þegar maður væri um fimmtugt, því þegar einræktungur- inn næði 50 ára aldri yrðu hlutar hans orðnir hundrað-ára:-----—- herdómstóls. Mannréttindadómstóll Evrópu kvað upp úr um það á síð- asta ári að nærvera hers geti haft áhrif á niðurstöðu dómsmála. Þrátt fyrir það eru taldar miklar líkur á að dauðadómur verði að lokum kveðinn upp þar eð ný þjóðemissinnuð ríkis- stjóm Tyrklands sé ekki líkleg til að koma í veg fyrir fyrstu opinberu af- tökuna í Tyrklandi síðan árið 1984. Takmarkaður hópur „áhorfenda“ mun fá að fylgjast með framgöngu réttarhaldanna á Imrali-eyju og hef- ur ríkisstjórn Tyrklands ákveðið að nokkrir erlendir aðilar fái að vera í þeim hópi. Skilyrði þessa er hins vegar að þeir séu skilgreindir sem „einstaklingar“ þar eð Tyrklands- stjórn hefur alfarið hafnað eftii'lits- hlutverki alþjóðlegra aðila. Munu einstaklingarnir koma frá átján Evr- ópuríkjum, þ.á m. íslandi sem nú gegnir formennsku í Evrópuráðinu, auk Bandaríkjanna og Kanada. Fjöldi áhorfenda hefur þó verið tak- markaður við tólf hvern dag réttar- haldanna. Þá hefur fulltrúa Human Rights Watch verið gefið leyfi til að verða viðstaddur réttarhöldin. Að auki hefur tuttugu fréttamönnum BULENT Ecevit, forsætisráðherra Tyrklands og formaður Lýðræðis- lega vinstriflokksins (DSP), og leið- togar Framtakssinnaða Þjóðemis- flokksins (MHD) og Föðurlands- flokksins (ANAP) gerðu í gær með sér samning um ríkisstjórnarmynd- un. Fái tillögur þeirra um ráðherra- skipan samþykki þings og forseta mun þetta verða í fimmta skipti sem Ecevit gegnir embætti forsætisráð- hema, en jafnoft hafa tilraunir verið gerðar til að setja saman ríkisstjórn sl. jjögur ár. í kosningunum 18. apríl sl. hlaut DSP, flokkm' Ecevits, flest atkvæði og var hann því skipaður í sæti for- sætisráðherra og jafnframt gert að leiða stjórnannyndunarviðræður. Ecevit, sem í gær varð 75 ára gamall, kynnti tillögur um nýja ráð- herraskipan fyrir blaðamönnum, áð- ur en hann bar þær undir Suleyman Demirel, forseta Tyrklands. I júní næstkomandi mun svo þingið taka tillögur þeirra fyrir. Telja frétta- skýrendur líklegt að verði stjórnar- myndun þessi að veruleika, muni verið leyft að fylgjast með réttar- höldunum og munu átta þeirra verða af erlendu bergi brotnir. Lifnaðarhættir hafa breyst Miklar öryggisráðstafanir eru á Imrali-eyju vegna réttarhaldanna og eru t.a.m. öll síma- og tölvusamskipti stranglega bönnuð auk þess sem ljósmyndavélar verða ekki leyfðar. Hafa ráðstafanimar breytt lifnaðar- háttum íbúa þorpsins Mudanya, sem stendur næst Imrali-eyju og hvaðan áætlunarferðir til eyjarinnar eru farnar. Þorpið er nú yfirfullt af blaðamönnum, erlendum erindrek- um og lögreglumönnum, sem allir bíða réttarhaldanna með óþreyju. „Friðurinn er úti og við óttumst um öryggi bama okkar á götum úti vegna hugsanlegra morðtilræða,“ sagði Rahime Eker einn íbúa þorps- ins í viðtali við fréttamann AFP í gær. Lögmenn Öcalans sem fá að heim- sækja skjólstæðing sinn tvisvar sinn- um í viku, hafa að undanförnu orðið fyi'ii' ágangi og mótmælum heima- manna sem vilja harðan dóm yfir Öcalan. hún glæða efnahag landsins nýju lifi og njóta stuðnings hersins. Samkvæmt stjórnarsáttmálanum mun DSP fara áfram með embætti utanríkis- og menntamála, MHP mun fara með varnarmál en innan- ríkis- og fjármálaráðherrar munu koma úr röðum ANAP. Þykir það sæta tíðindum í Tyrk- landi að vinstriflokkurinn DSP og hægriflokkurinn MHP skuli ganga í eina sæng þar sem flokkamir hafa löngum eldað grátt silfur saman. En seint á áttunda áratugnum háðu þeir blóðuga baráttu á götum úti með þeim afleiðingum að um 5.000 manns létust. Fulltrúar MHP hafa hins vegar ít- rekað breyttar og nútímalegri áherslur flokksins. Enn gætir nokk- urra efasemda meðal stjórnmála- manna í Tyrklandi um ágæti þessara yfirlýsinga en þó virðist sem þær eigi sér grundvöll þar sem flokkur- inn hefur nú þegai' sýnt framá við- horfsbreytingar með því að ganga að þeim skilmálum sem hinir flokkarnir tveir settu fyrir stjðrnai-mynduninni. Simao seg- ir af sér JOSE Veiga Simao, vamar- málaráðherra Portúgals, sagði af sér embætti í gær eftir að leynilegar upplýsingar um 69 njósnara auk nákvæmra upplýs- inga um þau verkefni sem þeir hefðu fengist við höfðu lekið til vikublaðsins Independente. Svo virðist sem upplýsingamai' hafi komist í hendur blaðsins er þær vom sendai' fyrir þingnefnd varnarmála. í hans stað hefur verið skipaður Jaime Gama, ut- anríkisráðherra, en hann mun gegna báðum embættum. Havel af spítala VACLAV Havel, forseti Tékk- lands, var útskrifaður af spít- ala í gær, en langvinnt bronkít- is hafði tekið sig upp á ný þann 20. mars sl. Að sögn aðstoðar- manns hans mun hann ekki sinna opinberum störfum þar til í lok næstu viku. Verkfall Louvre- starfs- manna STARFSMENN á Louvre- safninu í París ákváðu í gær að framlengja verkfall sem þeir hafi verið í frá 19. maí sl. eftir að samningarviðræður við full- trúa ríkisstjórnarinnar fóm út um þúfur. Að sögn talsmanns Louvre-safnsins tapar safnið um sex milljónum króna á dag vegna verkfallsins þar sem það verður af um 20.000 gestum daglega. Blair vin- sælastur í NÝLEGRI skoðanakönnun sem gerð var fyrir breska blað- ið Times kom fram að 58% Breta em ánægð með störf Tony Blairs, forsætisráðherra Bretlands, sem er hæsta hlut- fall sem nokkur forsætisráð- herra hefur fengið sl. 20 ár. Ur- takið í könnuninni var 2.000 manns. William Hague, leiðtogi breska Ihaldsflokksins virðist hins vegar ekki njóta jafn mik- illa vinsælda meðal landa sinna, en hann nýtur fylgis 20% að- spm-ðra. Utanrflris- ráðherra Kúbu rek- inn ROBERTO Robaina, utanríkis- ráðherra Kúbu, hefur verið rek- inn og í hans stað skipaður Felipe Perez Roque, aðstoðar- maður Fidel Castro, forseta Kúbu. Ekki er með vissu vitað um ástæður fyrir uppsögn hans en Robaina hefur af mörgum verið talinn fulltrúi umbóta á Kúbu og hugsanlegur eftirmað- ur Kastro. Erkifjendur sam- an í ríkisstjórn Ankara. Reuters, AFP.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.