Morgunblaðið - 29.05.1999, Síða 37

Morgunblaðið - 29.05.1999, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999 37 Fedra á fjalir Þjóðleikhússins í haust ÆFINGAR eru hafnar í Þjóðleikhúsinu á harmleiknum Fedru eftir franska 17. aldar harmleikjaskáldið Jean Racine í þýðingu Helga Hálfdanarsonar. Fi-umsýning er fyrirhuguð á Litla sviðinu í haust. Þetta er í fyrsta sinn sem leikrit eftir Racine er sviðsett hér á landi en hann er eitt af þremur höfuðskáldum franskra leikbókmennta 17. aldar ásamt Pierre Corneille og Moliére. Þýðing Helga Halfdanarsonar hefur ekki birst á prenti og er þetta frumflutningur hennar á leiksviði. Efnið í harmleikinn sækir Racine í samnefnt leikrit eftir gríska fornskáldið Evrípídes sem sótti efnið í grísku goðsögnina um drottninguna Fedru sem lagði LEIKHÓPURINN og listrænir stjómendur Fedm ásamt þýðandanum Helga Hálfdanarsyni við samlestur á heimili leikstjórans. ofurást á stjúpson sinn Hippolytos. Leikstjóri sýningarinnar er Sveinn Einarsson og leikendur eru Tinna Gunnlaugsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Arnar Jónsson, Halldóra Björnsdóttir, Anna Kristín Arngrímsdóttir, Gunnar Eyjólfsson og Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir. Leikmynd og búninga gerir Elín Edda Arnadóttir og lýsingu annast Asmundur Karlsson. LISTIR__________________ Tákn og myndir í tölvu NÓTT RÁBÍTANS eftir Kristján Kristjánsson. MYJVDLIST Gallcrf Kambur TÖLVUKLIPPIMYNDIR KRISTJÁN KRISTJÁNSSON Opið daglega. Sýningin stendur til 30. maí. KRISTJÁN Kiástjánsson á að baki langan feril í myndlistinni og hefur þar einkum unnið við kollage-myndir en hefur einnig fengist við að ráða í táknfræði drauma og draumskynj- ana. Á sýningunni sem hann heldur nú í Galleríi Kambi á bökkum Þjórsár má segja að hann hafí með einstökum hætti sameinað þessi tvö viðfangsefni og þar hefur tölvutæknin verið hon- um til liðsinnis. I gamla húsinu á Kambi standa tveir tölvuskjáir þar sem skoða má fjörutíu nýjar myndir eftir Kristján sem allar eru unnar í tölvu úr ýmsu hráefni, ijósmyndum og tölvugerðum myndum. Táknheimurinn er Kristjáni hug- leikinn og minna myndimar um margt á þann veruleika sem birstist helst í draumum, hinn táknmagnaða samruna vökulífs og hugmyndaflugs sem einkennir innri sýn manneskj- unnar. Jafnframt má þó oft greina í myndunum kímni eða jafnvel kerskni og víða er að fínna súrrealískar sam- setningar sem virðast frekar lúta lög- málum myndbyggingarinnar en ein- hverjum fastmótuðum táknsæiskenn- ingum. Af myndum Kristjáns má sjá hve öflugt verkfæri tölvan er í höndum manns sem hefur góða reynslu og undirstöðu í vinnslu klippi- eða kolla- ge-mynda. Þegar menn hafa á undan- fómum árum gripið til tölvunnar sem sköpunarverkfæris hefur oft viijað svo að tölvan fái ráðið ferðinni og nið- urstaðan verður einhvers konar „effektasúpá* sem úreldist fljótt og hefur ekkert að segja. Reynsla Krist- jáns og öguð vinnubrögð verða hins vegar til þess að hann fær sjálfur hamið verkfærið og beitt því til að skapa heildstæðar myndir. Jón Proppé tmti ***** | v 'jjr 4 >j% M ■ 1 jlpifflBf is f, KÓR Grafarvogskirkju og stjórnandinn ásamt prestum sóknarinnar. Afmælistónleikar í Grafarvogskir kj u í TILEFNI10 ára afmælis safnaðar- og kórstarfs í Grafarvogssókn verða haldnir sérstakir afmæhstónleikar á morgun, sunnudag, kl. 16.30. Við kirkjuna eru starfandi þrír kórar: bamakór, unghngakór og Kór Graf- arvogskirkju. Kór Grafarvogskirkju er á leið í tónleikaferð til Itahu í byrjun júní, og mun kórinn flytja þá dagskrá á tón- leikunum á sunnudag. Einnig syngja á tónleikunum bamakórinn og ung- lingakórinn. Einsöngvari verður Valdimar Haukur Hilmarsson. Stjómandi ldrkjukórsins er Hörður Bragason en Hrönn Helgadóttir stjómar bama- og unglingakómum. Ágóði af tónleikunum rennur í org- elsjóð sem stofnaður var til minning- ar um fyrsta organista kirkjunnar, Sigríði Jónsdóttur. KÓR Öldutúnsskóla ásamt stjórnandanum, Agli Friðleifssyni. Vortónleikar Kórs Öldutúnsskóla KÓR Öldutúnsskóla heldur vortón- leika sína í Hásölum, Safnaðarheim- ili Hafnarfjarðarkirkju, í dag, laug- ardag, kl. 17. Á efnisskránni eru lög allt frá 17. öld til okkar daga, eftir innlend og erlend tónskáld, auk þjóðlaga. Kórinn kemur fram í þremur hópum og munu um 100 kórfélagar taka þátt í tónleikunum. Gestir kórsins eru tveir íyrrverandi kórfé- lagar, þær Hanna Björk Guðjóns- dóttir sópransöngkona og Fríða Björk Teitsdóttir sellóleikai-i. Kórinn undirbýr nú tónleikaferð til Peking í Kína, en honum hefur verið boðin þátttaka í stóru alþjóð- legu kóramóti sem þar fer fram í ágúst í sumar. Stofnandi og stjórnandi Kórs Öldutúnsskóla er Egill Friðleifsson. Sæt en fyr- irsjáanleg KVIKMYIVPIR Regnboginn / Sambíó SHE’S ALL THAT ★* Leikstjóri: Robert Iscove. Handrit: Lee Fleming. Aðalhlutverk: Freddie Prinze Jr., Rachel Leigh Cook, Chris Owen og Kieran Culkin. Miramax 1999. í KALIFORNÍSKUM menntaskóla þar sem útlitið skiptir öllu í tilvem unglinganna er Laney vægast sagt skrítin. Hún læðist meðfram veggj- um druslum klædd, með öll heims- ins vandamál á herðunum sem hún tjáir í list sinni. Hún fær hins vegar óvænta athygli þegar Zack, vinsæl- asti gæinn í skólanum, veðjar við fé- laga sína að hann geti breytt henni í sætustu gellu skólans á sex vikum. Þessi bandaríska unglingamynd byggist á gömlum og margnýttum hugmyndum og er gjörsamlega fyr- irsjáanleg. Þeir sem fara í bíó til að sjá litla sæta ástarsögu ættu hins vegar ekki að verða fyrir vonbrigð- um. Það er mikill húmor í myndinni og bara býsna góður á köflum. Handritshöfundur gerir óspart grín að bæði snobbhænunum og lista- spírunum, og hefði átt að halda sig við þann íroníska stíl. En hann freistar þess að læða inn sálfræði- legri dýpt, sem er að vissu leyti virðingarvert, en virðist þó þvælast fyrir hér. Laney hefur axlað of mikla ábyrgð á heimilinu síðan mamma hennar dó og lokað sig af tilfinningalega. Zack er hins vegar undir þrýstingi að feta í fótspor föð- ur síns, sem hann veit ekki hvort hann kærir sig um. Þetta eru góð og gild vandamál sem margir kannast við, en þeim er því miður ekki kom- ið til skila inn í handritið á sannfær- andi hátt. Þannig verður myndin samansull stíltegunda, svo hvorki leikstjórinn né leikaramir vita í hvorn fótinn þeir eiga að stíga. Leikaramir em misgóðir en allir voða sætir, m.a.s. Laney sem á að vera sú allra hræðilegasta í skólan- um. Ætti samt að reynast ágætis af- þreying fyrir ungu kynslóðina. Hildur Loftsdóttir Söngleikurinn Hósíanna Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir BARNAKÓRAR á Egilsstöðum og Seyðis- firði fluttu söngleikinn Hósi'anna. Egilsstöðum. Morgunblaðið. BARNAKÓRAR á Egilsstöðum og Seyðisfirði fluttu frumsaminn söng- leik, Hósi'anna eftir Julian Michael Hew- lett fyrir skemmstu. Söngleikurinn var fluttur í Egilsstaða- kirkju hvítasunnu- dag og í Seyðisijarð- arkirkju annan í hvítasunnu. Með helstu hlutverk fóru Kolbrún Anderson sem var lesari, Jó- hann Axel Schram Reed sem lék Jesús, Sædís Sif Harðardóttir sem lék Pflatus og Sandra Ósk Magnús- dóttir sem lék Maríu og spilaði á þverflautu. Aðrir hljóðfæra- leikarar voru Charles Ross, Páll fvan, Rosemary Hewlett og Julian Hewlett. Aðstoðarmenn voru María Gaskell og Halldóra Ólafsdóttir. Söngleikurinn íjall- aði um fæðingu Jesú Krists, líf hans, krossfestingu og upprisu. Kórfélagar voru tæplega tutt- ugu og það var höfundur sem stj'órnaði uppsetningu leiksins.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.