Morgunblaðið - 29.05.1999, Qupperneq 38
88 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
Námskynning Skólaárinu er að ljúka og kennarar eru byrjaðir að undirbúa næsta skólaár. Einnig verður ým-
isskonar nám í boði í sumar. Háskóli Islands byrjar í haust með nýjar námsleiðir sem eru stuttar og hagnýtar.
I framhaldsskólanum í Skógum verður ný umhverfísbraut. Tölvunám verður hægt að stunda í sumar.
N emendur
með eigin
hesta í skólann
Framhaldsskólinn í Skógum hefur í haust
starfað í hálfa öld. Tvær brautir voru
starfræktar við skólann í vetur, almenn
--------------------j..................
braut og hestabraut. I haust verður gerð
tilraun með umhverfísbraut.
49. STARFSARI Framhaldsskól-
ans í Skógum er lokið og innritun á
hið 50. hafín, en skólinn heldur upp
á 50 ára afmæli sitt í haust.
Nýliðið starfsár markar þó
um leið tímamót, því að það
var fyrsta starfsár skólans
eftir að rekstrarformi hans
var breytt í sjálfseignarstofn-
un. Aðilar að stofnuninni eru
héraðsnefndir Rangæinga og
Vestur-Skaftfellinga, skv.
sérstökum samningi við
menntamálaráðuneytið.
Skólameistari þetta fyrsta ár er
Guðmundur Sæmundsson.
Við skólann störfuðu í vetur tvær
brautir, almennt nám og hesta-
braut. 31 nemandi hóf nám við skól-
ann í haust. 17 þeirra luku því sem
þeir ætluðu sér um áramót eða
hurfu til annarra skóla og verkefna,
en 14 luku námi í vor. Þar af var
einn nemandi sem brautski'áðist af
hestabrautinni, sem nú hefur starf-
að í tvö ár, Unnur María Hreiðars-
dóttir. Tíu nemendur voru á 1. ári
hestabrautar, og hafa sjö þeirra
þegar sótt um nám á 2. ári í haust.
Námsárangur var mjög góður og
nemendum til sóma.
Þórir Magnús Lárusson M.Ag.
hefur veitt hestabrautinni forstöðu
frá stofnun hennar og byggt hana
upp faglega í samvinnu við sam-
kennara sína. Hann hverfur nú senn
til annarra starfa, en um næstu ára-
mót tekur við stjóm brautarinnar
Reynir Aðalsteinsson A-reiðmeist-
ari FT, víðkunnur reiðkennari hér-
lendis sem erlendis. Kennslan er og
verður áfram byggð upp af föstum
kennurum og gestakennurum.
Nemendur koma með sín eigin reið-
hross í skólann. Annars árs nem-
endur munu hafa bækistöð í Skóg-
um, en fyrsta árs nemar fá alla að-
stöðu á hrossabúinu Skálakoti undir
Rekstnr í
sjávarút-
vegi við
Háskólann
Nám í matvæla-
fræðiskor HÍ um rekst-
ur sj ávarútvegsiyrir-
tækja, veiðar og vinnslu
byrjar í haust segja
Guðrún Pétursdóttir og
Sigurjón Arason í Há-
*
skóla Islands.
HVARVETNA í atvinnulífmu eykst
þörfín íyrir bætta menntun starfs-
manna. Það á við um sjávarútveg
ekki síður en aðrar greinar
eins og fram kom á síðasta
aðalfundi Samtaka físk-
vinnslustöðva, þar sem sér-
staklega var fjallað um úr-
ræði til að bæta menntun í
sjávarútvegi. Háskóli Islands
hefur ákveðið að koma til
móts við þessar þarfír með
því að bjóða stuttar, hagnýtar
námsleiðir af ýmsu tagi. Þar
er haft að leiðarljósi að nýta
sem best þau námskeið sem
þegar standa til boða við Há-
skólann, en gera nemendum kleift
að velja saman námsgreinar eftir
eigin þörfum og óskum. Miðað er við
að námið taki um eitt og hálft ár og
lýkur því með sjálfstæðu prófi. Óski
nemendur eftir að halda áfram námi
við Háskólann, verður skilgreint í
hverju tilfelli hvemig námið er met-
ið inn í hefðbundið háskólanám.
Meðal þeirra þrettán námsleiða
Guðrún Siguijón
Pótursdóttir Arason
sem boðnar verða í haust, er nám í
matvælafræðiskor um rekstur sjáv-
arútvegsfyrirtækja, veiðar og
vinnslu. Markmið þess er að búa
þátttakendur undir stjómunar- og
sérfræðistörf í sjávarútvegi og
tengdum greinum. Auk bóklega
hluta námsins munu nemendur
stunda verklegt nám í Fiskvinnslu-
skólanum og þurfa einnig að ljúka
tiltekinni þjálfun í fyrirtæki í grein-
inni. Inntökuskilyrði er stúdentspróf
eða sambærileg menntun, en sér-
staklega verður samið við Fisk-
vinnsluskólann um mat á nemendum
þaðan inn í námið.
Leitast hefur verið við að hafa sem
nánast samráð við aðila í atvinnu-
greininni um þessa nýju námsleið og
verður leitað til þeirra um stuðning
við að þróa ný námskeið og veita
nemendum sem besta þjónustu.
Stærstur hluti námskeiðanna kemur
hins vegar úr matvælafræðiskor og
viðskiptadeild Háskóla íslands.
Helstu viðfangsefni námsleiðar-
innar verða: Eðliseiginleikar sjávar-
fangs, fiskiðnaðartækni, rekstrai'-
hagfræði, rekstur sjávarútvegsfyrir-
tækja, gæðastjómun, fiskihagfræði,
markaðsfræði, flutningaíræði, út-
flutningur og markaðssetning sjáv-
arafurða, fiskveiðar og útgerð, skyn-
mat, framleiðslustjómun og loks
gæðakröfur, örverafræði og gæða-
kerfi í sjávarútvegi. Nánari upplýs-
ingar veitir skrifstofa nemenda-
skráningar Háskóla Islands, en inn-
ritun nemenda fer fram dagana 20.
maí til 4. júní.
Eyjafjöllum. Síðar meir mun þó
kennslan öll og allt sem henni fylgir
flytjast í Skóga, en þar er stefnt að
því að byggja veglega reiðskemmu
og ný hesthús, auk útiaðstöðu.
Hestabrautin nýtur faglegrar
ráðgjafar sérstakrar fagnefndar
sem í eiga sæti nokkrir virtustu að-
ilar landsins á sviði hestamennsku
og hrossaræktar. Þeir era auk
þeirra Þóris Magnúsar og Reynis,
sem áður hafa verið nefndir, þau
Svanhvít Kristjánsdóttir, fulltrúi
Félags tamningamanna, Jón B. Ól-
sen, fulltrúi Landssambands hesta-
mannafélaga, Kristinn Guðnason,
formaður Félags hrossabænda og
fulltrúi Hrossaræktarsambands
Suðurlands, Bjarni Eiríkur Sig-
urðsson, skólastjóri Reiðskólans
Þyrils í Reykjavík, og Sigurbjöm
Bárðarson, A-reiðmeistari FT og
formaður reiðkennslunefndar Hóla-
skóla.
Námið á hestabrautinni er blanda
verklegs og bóklegs náms. Auk
hestagreina era kenndar kjarna-
greinar framhaldsskólanáms, og er
námið skipulagt í áfanga, sem gefa
ákveðinn einingafjölda. Námið tek-
ur 2 ár, en nemendum sem lokið
hafa almennum námsgreinum
brautarinnar í öðrum skólum gefst
kostur á að Ijúka náminu á einu ári.
Auk hestabrautar starfrældr
skólinn almennt 1. árs framhalds-
nám, þar sem kenndar era kjarna-
greinar allra bóklegra brauta. Það
nýtist einnig að fullu sem undirbún-
ingur undir iðn- og starfsnám og
jafnvel menntaskólanám. í undir-
búningi er auk þess stofnun um-
hverfisbrautar, sem yrði svipuð
hestabrautinni að uppbyggingu,
sambland verklegs og bóklegs
náms. Er vonast til að þetta nám
geti hafist í haust sem tilraunaverk-
efni.
Nýtt nám í HI um
rekstur tölvukerfa
Náminu í rekstri tölvu-
kerfa er ætlað að koma
til móts við sívaxandi
eftirspurn eftir mennt-
uðum starfsmönnum á
sviði upplýsingatækni,
segir Helgi Þorbergs-
son umsjónarmaður
hagnýtrar námsleiðar
um rekstur tölvukerfa.
í HAUST hefst við tölvunar-
fræðiskor Háskóla íslands eins og
hálfs árs nám í rekstri tölvukerfa.
Lögð er áhersla á hagnýtan
grunn sem er fenginn úr raun-
vísindadeild, félagsvfsinda-
deild, heimspekideild og við-
skiptadeild. Þannig fær nem-
andi þverfaglega menntun á
sviði upplýsingatækni sem
nýtist vel í atvinnulífmu. Nám-
ið er 45 einingar og tekur að
jafnaði eitt og hálft ár og lýkur
með sjálfstæðu prófi, diplóma.
Einnig geta nemendur í öðrum deild-
um Háskólans tekið fyrstu tvö miss-
erin sem 30 eininga aukagrein.
Aætlað er að um fjögur þúsund
manns starfi við upplýsingatækni á
Islandi og útflutningstekjur iðnaðar-
ins eru um tveir milljarðar á ári pg
fer vaxandi. Þrátt fyrir að Háskóli ís-
lands hafi útskrifað yfir 400 tölvunar-
fræðinga og TVI (nú VHR) annað
eins er verulegur skortur á menntuð-
um starfsmönnum í hugbúnaðariðn-
aði á íslandi. Náminu í rekstri tölvu-
kerfa er ætlað að koma til móts við
sívaxandi eftirspurn eftir menntuð-
um starfsmönn-
um á sviði upp-
lýsingatækni.
Það mun verða
undirbúningur
undir margs kon-
ar störf sem
krefjast góðrar
þekkingar á
tölvunotkun,
einkum fyrir
starfsmenn sem
reka tölvudeildir fyrirtækja eða þá
sem vinna við þjónustu á tölvukerfum.
Námið gæti einnig verið grannur að
frekara námi í hugbúnaðarfræðum og
byggist það að verulegu leyti á því
námi sem íýrir er í tölvunai'fræði við
Háskóla Islands.
Námsgreinar sem kenndar verða
eru: Tölvunarfræði I; Gagnasaftis-
fræði; Reikningshald I; Notendaþjón-
usta, rekstur tölvukerfa; Upplýsinga-
tækni II; Hönnun hugbúnaðar;
Reikningshald og tölvunotkun; Við-
mótsforritun; Stýrikerfi II; Tölvunet
og öryggi; Skjalastjómun í tölvu, EDI
og rafræn viðskipti; Kaup á hug- og
vélbúnaði; Málnotkun. Væntanlegir
nemendur skulu hafa lokið stúdents-
prófi af eðlisfræði- eða náttúrufræði-
braut framhaldsskóla eða sambæri-
legu prófi. Sjá nánar um skilyrði til
inntöku í nám í raunvísindadeild í
Kennsluskrá HÍ. Nám þetta hentar
jafnt nýstúdentum og fólki sem þegar
er úti á vinnumarkaði, vill afla sér
vandaðrar háskólamenntunar, en á
erfitt með að taka sér leyfi í þrjú til
fjögur ár.
Bent er á vefsíðu tölvunar-
fræðiskorar, http://www.hi.is/HI-
/Deild/Raun/Tolv/'heima.html og vef-
síðu um hagnýtar námsleiðir HI:
http://www.hi.is/stjorn/sam/namslei-
dir.html til frekari upplýsinga.
Skráningafrestur í Háskóla íslands
er til 4. júní nk.
Hclgi
Þorbergsson
Þrjú
námskeið
fyrir
kennara
Þrjú sérsniðin nám-
skeið fyrir kennara
verða haldin í sumar
og einnig verður
tölvusumarskóli hj á
Tölvu- og verkfræði-
þjónustunni fyrir
ungmenni.
TÖLVUSKÓLI Tölvu- og verk-
fræðiþjónustunnar, Grensásvegi
16, er nú að hefja sumarmisseri
sitt en kennt verður sam-
fellt frá júníbyrjun og
fram í september. Af
helstu nýjungum má nefna
þrjú sérsniðin námskeið
fyrir kennara; netumsjón í
skólum, námsefnisgerð og
vefsíðugerð með FrontPa-
ge. Þá verður Tölvusumar-
skóli fyrir ungmenni á
aldrinum 9-15 ára.
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
hefur haldið námskeið á sumrin
frá stofnun fyrirtækisins fyrir 13
árum. „Þetta hefur mælst vel fyr-
fr hjá þeim sem geta notað sum-
arið til að fræðast um tölvur og
rekstur þeirra. Kennarar, sjálf-
stæðir atvinnurekendur, lands-
byggðarfólk og þeir sem ekki
komast auðveldlega frá á veturna
eru meðal þeirra sem koma. Þá
mú ekki gleyma unga fólkinu sem
sækir Tölvusumarskólann okk-
ar,“ segir Halldór Kristjánsson,
framkvæmdastjóri Tölvu- og
verkfræðiþjónustunnar. í sumar
verða tveir afsláttarpakkar í boði.
Annars vegar er það Unglinga-
pakkinn hjá Tölvusumarskólan-
um. Þeir sem panta bæði grunn-
og framhaldsnámskeið fá 16% af-
slátt af báðum námskeiðunum.
Hins vegar eru það námskeið um
Windows, Word, Excel, Outlook
og Netið í einum pakka með 25%
afslætti. Námskeiðið er 67
kennslustunda langt (45 klst.).
íslensk kennslubók
um FrontPage
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
hefur gefið út íslenska kennslu-
bók um notkun vefsíðugerðarfor-
ritsins FrontPage. Höfundur er
einn af starfsmönnum fyrirtækis-
ins, Ásgeir Eggertsson fjölmiðla-
fræðingur. Bókin er skrifuð sér-
staklega með þarfir íslenskra
tölvunotenda í huga og er hval-
reki fyrir þá vilja læra allt um
vefsíðugerð með FrontPage for-
ritinu frá Microsoft. Bókin verð-
ur notuð við kennslu hjá Tölvu-
og verkfræðiþjónustunni auk
þess sem hún fæst á skrifstof-
unni.
Af fleiri nýjungum fyrir sum-
armisserið má nefna að nú er
hægt að bóka sig á námskeið á
vefsíðu Tölvu- og verkfræðiþjón-
ustunnar. Slóðin er
http://www.tv.is/bokanir/ Stunda-
skráin er ó vefnum. Einnig býður
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
svokölluð MOUS-próf (Microsoft
Office User Specialist) en með
þeim geta íslenskir tölvunotend-
ur fengið alþjóðlega vottun á
þekkingu sinni á Microsoft Office
95 og 97 forritunum. Tölvu- og
verkfræðiþjónustan var fyrsti
viðurkenndi aðilinn hér á landi til
að halda slík próf.