Morgunblaðið - 29.05.1999, Page 42
MORGUNBLAÐIÐ
42 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999
EUROVISION SÖN6VAKEPPNIN
Islenska Eurovision-lagið AIl out of
Luck og Selma Björnsdóttir flytjandi
þess hafa hlotið mikla athygli í
Jerúsalem þar sem 44. söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva fer fram
í kvöld. Sigrún Birna Björnsdóttir
hitti Selmu þar sem hún naut sólar-
innar við sundlaugarbakka hótelsins
og Asdís Asgeirsdóttir myndaði hóp-
inn við hin ýmsu tækifæri.
„ÉG lít bara á þetta sem góða auglýsingu fyrir okkur
hvernig sem þetta fer.“
SLAPPAÐ af í Dauðahafinu í 40 stiga hita.
ÍSLENSKI hópurinn á stóra sviðinu í International Convention Center, eins og hann mun koma okkur fyrir sjónir á skjánum í kvöld,
ÞORVALDUR B. Þorvaldsson og Selma Björnsdóttir, höfundar og
flytjendur íslenska Eurovision-lagsins.
SELMA segir undirbúning
keppninnar hafa verið mjög
strangan. Henni hafí verið
boðið að taka þátt í keppn-
inni fyrir Islands hönd í janúar og
hún hafí þá þegar gengið til sam-
starfs við Þorvald Bjarna Þor-
valdsson lagahöfund, sem hún hafí
áður átt mikið samstarf við. Mikil
vinna hafí síðan farið í laga- og
textasmíði, upptökur, gerð mynd-
bands og nú síðast æfíngar.
Þá hafi hún verið upptekin við æf-
ingar á Litlu Hryllingsbúðinni í
Borgarleikhúsinu að undanfömu
og því orðið að ráða fólk til að sinna
ýmsum málum fyrir sig til þess að
geta einbeitt sér að söng- og
dansæfingum fyrir keppnina. Hún
hafí þó verið mjög heppin með það
að bæði Sjónvarpið og Skífan hafi
tekið virkan þátt í undirbúningnum
auk þess sem þau Þorvaldur hafí
notið liðsinnis ýmissa fagmanna.
„Síðan við komum hingað er
þetta hins vegar aðallega búið að
vera gaman,“ segir hún. „Auðvitað
hefði maður viljað fá tækifæri til að
sjá meira af Israel en ég hef þó
bæði fengið tækifæri til að ganga
um gömlu borgina og synda í
Dauðahafinu og það er meira en ég
bjóst við. Þá hefur verið einstak-
lega vel tekið á móti okkur. Fyrsta
kvöldið vorum við til dæmis boðin í
sérlega glæsilega veislu í boði
borgarstjórans í Jerúsalem.
Selma segir keppnina leggjast
vel í sig. Hún hafí aðeins verið far-
in að finna fyrir stressi áður en hún
fór frá Islandi en hún hafí róast
aftur eftir komuna til ísraels. „Við
fórum á fyrstu æfinguna á mánu-
dag og það var mjög gott að koma
inn í höllina," segir hún. „Sviðið er
náttúrlega stærra en öll svið á Is-
landi en þó er hvorki sviðið né sal-
urinn yfirþyrmandi. Þá er hljóm-
burðurinn mjög góður þannig að
þetta er bara eins og best verður á
kosið.“
Selma segir hópinn hafa fengið
tvær tuttugu og fimm mínútna æf-
ingar á mánudag og miðvikudag. Á
fóstudag hafi síðan verið tvö
rennsli á allri dagskránni með
áhorfendum og á laugardagsmorg-
un verði generalprufa með áhorf-
endum. Þannig að þegar að keppn-
inni komi verði þau í raun að gera
þetta í fjórða skipti.
Tek takmarkað mark
á sigurspám
Selma hefur hlotið mikla athygli
meðal þeirra fjölmiðla sem fylgst
hafa með undirbúningi keppninnar
enda hefur íslenska lagið trónað á
toppi hinna ýmsu vinsældalista í
tengslum við keppnina. Þannig fór
mikið fyrir vangaveltum um hugs-
anlegan sigur íslenska lagsins á
blaðamannafundi sem boðað var til
á miðvikudag. Á fundinum var
Selma m.a. spurð að því hvort ís-
lendingar væru í stakk búnir til að
halda keppnina ef til þess kæmi og
hvort hún teldi sig færa um að
takast á við þær miklu breytingar
sem hugsanlegur sigur hennar
hefði í för með sér. Selma svaraði
því til að Islendingar gætu að sjálf-
sögðu haldið keppnina ef til þess
kæmi enda tækju þeir þátt í henni
á sama grundvelli og aðrir kepp-
endur. Þá kvaðst hún reiðubúin til
þess að taka því sem að höndum
bæri í kjölfar keppninnar enda
stefndi hún á að koma sér á fram-
færi erlendis.
Selma, sem vakti mikla lukku er
hún tók hvert lagið á fætur öðru,
var einnig spurð að því á fundin-
um hvort unnt væri að anna hugs-
anlegri eftirspurn eftir laginu
strax að keppni lokinni. Steinar
Berg Isleifsson, umboðsmaður
hennar, svaraði því til að þótt ekki
væri búið að ganga frá samning-
um við erlenda aðila um útgáfu á
laginu hefði öll undirbúningsvinna
verið unnin og því ætti ekki að
taka langan tíma að koma laginu á
markað.
„Mér skilst að fjölmiðlar hafi
sýnt okkur óvenju mikla athygli og
það má sennilega rekja það að ein-
hverju leyti til þess hversu vel við
höfum komið út í veðbönkum og á
Netinu,“ segir Selma. „Þá hef ég
fundið fyrir mjög jákvæðum
straumum í kringum lagið. Ég er
hins vegar mjög jarðbundin og tek
því takmarkað mark á þessum sig-
urspám. Ég lít bara á þetta sem
góða auglýsingu fyrir okkur hvem-
ig sem þetta fer. En auðvitað fór-
um við einnig í þessa keppni með
það í huga að fá viðbrögð við tón-
listinni sem við erum að gera og
vonumst til þess að þessi jákvæða
umfjöllun opni okkur einhverja
möguleika."
Þá segir Selma þau þegar hafa
unnið stóran sigur á Islandi þar
sem lagið hafi náð fyrsta sæti á
öllum útvarpsstöðvum. Það sé
ákveðinn sigur þar sem Euro-
visionkeppnin virðist hafa verið í
einhverri lægð á Islandi að undan-
förnu og hún voni að þetta verði til
þess að ýta undir áhuga fólks á
keppninni. Þá vonist hún til þess
að geta haldið Islandi inni í keppn-
inni. Það sé hins vegar erfiðara en
hún hafi gert sér grein fyrir þar
sem tekið sé mið af meðaltali stiga
síðustu fimm ára og Islendingar
hafi hlotið mjög fá stig á undan-
förnum árum. „Ég þarf því að fá
yfir hundrað stig til þess að við
getum verið með á næsta ári,“
segir hún. „Ég hélt að ég þyrfti
bara að ná 20. sæti til að halda
okkur inni og komst ekki að því