Morgunblaðið - 29.05.1999, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999 45
Halldór Asgrímsson, utanrfkisráðherra og formaður Framsóknarflokksins
Viðhald stöðugleikans
skiptir mestu máli
>»
Halldór Asgrímsson, utanríkisráðherra og
formaður Framsóknarflokksins, segir að
áherslur flokksins í kosningabaráttunni skili
--------------------7-----
sér vel inn í stjórnarsáttmálann. I samtali
Péturs Gunnarssonar við Halldór kemur
m.a. fram að hann vilji gjarnan sjá árangur
af starfi nefndar til að endurskoða fiskveiði-
stjórnunarkerfið innan árs, en hins vegar vill
hann engu spá um hvort einkavæðingu
Landssímans ljúki á kjörtímabilinu.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra og formaður Framsóknar-
flokksins á Bessastöðum í gær.
Issama hagstjórn
tanda
lið
nefnt sem dæmi að þegar ríkið seldi
hlut í Fjárfestingabanka atvinnulífs-
ins þá vildu ýmsar bankastofnanir
kaupa hann á 8,5-9 milljarða og þótti
afskaplega vel boðið. Mér sýnist í dag
að hann sé metinn í heild á 16 til 17
milljarða sem þýðir að ríkið ætti að fá
ekki minna en 13 til 14 milljarða í
heild, fimm milljörðum meira en boðið
var og þarna er verið að leggja
áherslu á að ríkið fái hámarksverð.“
Tekjum af sölu ríkisfyrirtækja á að
verja til að greiða niður skuldir, ráð-
ast í sérstök verkefni í samgöngumál-
um og í þriðja lagi að efla upplýsinga-
samfélagið. Forsætisráðherra segir að
líta megi til þess er Landssíminn var
að byggjast upp, hvernig hann færði
þjóðfélagið inní nútímann og hvernig
allir landsmenn lögðu sitt fram með
gjöldum sínum. „Þess vegna gæti ver-
ið eðlilegt að þegar menn leysa þetta
fé úr læðingi á nýjan leik þá fari það
ekki allt í að greiða niður skuldir held-
ur verði ráðist í fjárfestingar sem
gætu skilað sambærilegum umbótum
til þjóðarinnar og fyrirtækin gerðu
þegar þau voru að byggjast upp. Þá
erum við til að mynda að hugsa um
vegaframkvæmdir af stærra taginu,"
sagði Davíð og sagði jarðgöng til
dæmis koma til greina þar.
Ríkisfyrirtæki seld fyrir
50 til 70 milljarða
Hann sagði það nýmæli að tilgreina
þannig nýtingu fjármuna sem
fengjust við sölu ríkisfyrirtækja sem
væri mikilvægt. „Ef bankar og Lands-
síminn verða seldir á kjörtímabilinu
þá erum við að tala um 50 til 70 millj-
arða sem er áttfalt til tífalt hærri upp-
hæð en þegar hefur verið.“
Davíð segh’ varðandi endurskoðun á
fasteignagjöldum á landsbyggðinni að
það hafí verið ósanngjamt gagnvart
íbúum sumra sveitarfélaga að miða
gjaldstofn vegna fasteignaskatta við
það að eignir þeirra stæðu annars
staðar. „Þetta hefur verið ósanngjarnt
þai’ sem fasteignaverð er lágt en um
leið kannski h'ka ósanngjarnt að svipta
sveitarfélögin tekjunum og því er
kannski ekki óeðlilegt að ríkisvaldið
komi þarna til skjalanna og jafni
þennan mun. Þetta gætu verið tals-
vert miklii’ fjármunir, kringum einn
milljarð króna sem yrði fluttur frá rík-
inu til smærri sveitarfélaga sem búa
við þessar aðstæður. Þetta gæti þýtt í
sumum tilvikum allt að 30% lækkun á
fasteignagjöldum í sumum þessara
sveitarfélaga,“ segir forsætisráðheiTa
og nefnir að þetta skref yrði trúlega
stigið í fjórum áfóngum með 250 millj-
óna króna framlagi á ári.
Nokkrum sinnum hafa lög um
Stjórnarráðið verið endurskoðuð og
það er enn uppi á teningnum nú. Da-
víð sagði margar hugmyndir á lofti í
þeim efnum, setja á stofn atvinnu-
málaráðuneyti, gera skýrari skil milli
þeh-ra sem veita þjónustu og þeitra
sem selja hana, t.d. að færa trygging-
ar frá heilbrigðisráðuneyti til félags-
málaráðuneytis, þaðan gætu þættir
flust til dómsmálaráðuneytis og um-
ferðarmál gætu frekai’ átt heima hjá
samgönguráðuneyti.
Þá sagði forsætisráðherra að koma
-------- myndi að því að stjómar-
igöng flokkamh- myndu vilja end-
ikjur af urskoða verkaskiptingu
kisins“ s'na- »Við höfum báðir gert
þingflokkum okkar grein
fyrir því að við munum
áskilja okkur rétt til að gera tillögur
um breytingar. Við höfum líka sagt að
þótt menn hafi staðið sig vel sem ráð-
herrar sé ekki endilega víst að þeir sitji
allt kjörtímabilið. Það gildir í báðum
flokkum," sagði Davíð. Því gætu ráð-
herraskipti einnig orðið hjá Sjálfstæð-
isflokki og Framsóknarflokki.
Að lokum er Davíð spurður hvernig
breytingarnar á þingflokki og ráð-
herraskipan flokkanna leggist í hann:
„Þær leggjast vel í mig, ég sakna
margra gamalla vina en mér finnst
líka gott að sjá nýtt fólk.“
HALLDÓR segist mjög
ánægður með það á hvem
hátt áherslur framsóknar-
manna í kosningabarátt-
unni skila sér í nýjum stjómarsátt-
mála. „Ég tel að þær áherslur sem
við voram með skili sér inn í þennan
stjómarsáttmála. Það sem mun
skipta mestu máli í því sambandi er
hvernig okkur gengur að viðhalda
stöðugleika, örva efnahags- og at-
vinnulíf og skapa meiri verðmæti.
Það er mikil áhersla lögð á það í
stjórnarsáttmálanum. Ég trúi því að
við getum það og í framhaldi af því
skapist svigi’úm til að ná fram áhersl-
um í fjölskyldumálum, fíkniefnamál-
um og ekki síst byggðamálum.
Efla lífeyrissparnað
- Hvaða aðferðum viltu að verði
beitt til að viðhalda stöðugleika?
„Ég tel mikilvægt að efla sparnað.
Ég bendi á að það hafa orðið miklar
launahækkanir í þjóðfélaginu og þess
vegna tel ég mikilvægt að allir leggist
á eitt um að efla sparnað, m.a. með
því að greiða meira til lífeyrissjóða.
Eftirlaun eru víða mjög lág og við
hljótum að þurfa að tryggja að eftir-
laun kynslóða framtíðarinnar verði
hærri. Það er mikil þörf á að styrkja
lífeyrissjóðakerfið. Við ætlum jafn-
framt að beita skattalegum aðferðum
til að efla sparnað, t.d. í sambandi við
frjálsan lífeyrissparnað, kaup á
hlutabréfum og það verður jafnframt
hugað að öðrum leiðum í því sam-
bandi.“
Halldór var spurður hvort skilja
mætti þessi orð sem svo að hann teldi
að við næstu kjarasamninga ætti að
leggja áherslu á lífeyrismál fremur
en beinar launahækkanir.
„Það er að sjálfsögðu samningsað-
ila að fjalla um það, en ég held að það
geti allir verið sammála um að það
væri æskilegt að efla lífeyrissparnað í
landinu. Hver á að ganga þar á undan
skal ég ekki fullyrða um, en þörfin er
fyrir hendi,“ sagði hann.
- Nú er í stjórnarsáttmálanum vik-
ið að ýmsum skattalækkunaraðgerð-
um. Er það ekki til þess fallið að ýta
undir þenslu og ganga þar með þvert
á önnur markmið stefnuyfirlýsingar-
innar hvað varðar stöðugleika?
„Það er rétt að skattalækkanir á
röngum tíma geta aukið þenslu. En
við erum að huga að öllu kjörtímabil-
inu og í þessu sambandi mun skipta
miklu máli hvernig til tekst um kjara-
samninga á næstu misserum. Við er-
um sammála um að þörf sé á því að
jafna kjörin með því að draga úr jað-
aráhrifum, ekki síst vegna barnabót-
anna. Ég vona að um það geti orðið
góð samstaða í þjóðfélaginu, m.a. við
þá aðila, sem takast á um tekjuskipt-
inguna í landinu," sagði Halldór.
Samræma
atvinnuþróunarstarf
- Komið hefur fram að það sé að
frumkvæði Framsóknarflokksins að
ákveðið er að flytja Byggðastofnun
frá forsætisráðuneytinu og
undir iðnaðaiTáðuneytið.
Hvaða sjónarmið búa þar
að baki?
„Þau sjónarmið, að á
vegum iðnaðarráðuneytis-
ins eru ýmsar aðgerðir til
að styrkja og stuðla að fjölbreyttara
atvinnulífi í landinu. Stofnun eins og
Iðntæknistofnun er á vegum þess
og iðnaðarráðuneytið hefur varið
verulegum fjármunum til að stuðla
að fjölbreytni í atvinnulífi og hefur
verið með starfsemi á því sviði. Við
höfum verið þeirrar skoðunar að
nauðsynlegt væri að samræma allt
þetta starf. Með þessu gefst tæki-
færi til að gera það. Við trúum því
að þar með verði þetta starf öflugra
og það er jafnframt mikilvægt fyrir
Framsóknarflokkinn að koma meira
að þessum málaflokki. Aðalatriðið
er að við trúum því að með þessu
getum við náð betri árangri og það
skiptir miklu máli fyrir flokkana
báða.“
Halldór var spurður hvort Páli
Péturssyni væri ætlað að taka yfir
umsjón með byggða- og atvinnuþró-
unarátaki í tengslum við sameiningu
iðnaðarráðuneytisins og Byggða-
stofnunar. „Það kemur vel til álita en
það er ekki aðalatriði málsins. Aðal-
atriðið er að fara í þessa vinnu og
ljúka henni,“ sagði hann.
I stjómarsáttmálanum segir að
flutningur Byggðastofnunar til iðnað-
arráðuneytis og Seðlabanka til for-
sætisráðuneytis séu fyrsta verkefnið
í endurskoðun verkaskipt-
ingar milli stjómarflokk-
anna. Hvað segir Halldór
um næstu skref í þeirri
endurskoðun?
„Það hafa margar hug-
myndir komið fram;
breytingar á verksviði dómsmála-
ráðuneytisins, heilbrigðisráðuneytis-
ins, félagsmálaráðuneytisins; sam-
ræming og jafnvel sameining á at-
vinnuvegaráðuneytum. Allt era þetta
sjónarmið sem eiga rétt á sér og það
hefur nánast engin breyting orðið á
ráðuneytaskipan í langan tíma. Við
tökum eftir því í norrænu samstarfi
að verkefni hér á landi era undir allt
öðrum ráðuneytum en á hinum Norð-
urlöndunum og í sumum löndum
Evrópu. Þetta torveldar alþjóðlegt
samstarf og sýnir að það er mikil
þörf á því að við fóram yfir þessi mál
og lögum ráðuneytin að breyttum að-
stæðum og breyttri þjóðfélagsskip-
an.“
Halldór kvaðst eiga von á að end-
urskoðun af þessu tagi lyki á kjör-
tímabilinu. Spurður um hvort hann
byggist við að sitja sjálfur í utanríkis-
ráðuneytinu til loka kjörtímabilsins,
sagði Halldór: „Ég hef ekki tekið
neina ákvörðun um það. Það er mikið
verk að vinna í utanríkisráðuneytinu
næstu mánuðina og ég ætla að reyna
að sinna því eins og ég get.“
Mismunandi framleiðendur
orku en sameiginleg dreifing
I stefnuyfirlýsingunni er fjallað um
breytt skipulag í orkumál-
um til að auka samkeppni
og lækka orkuverð. Um
leið verði unnið að jöfnun
orkuverðs. Halldór var
spurður á hvaða sviði
orkumála hann sæi helst
fyrir sér samkeppni af þessu tagi og
vísaði hann til þess að iðnaðarráð-
herra hefði tjáð sig um þetta mál á
ýmsum vettvangi. „Samkeppni er
vaxandi á öllum sviðum. Þetta getur
m.a. komið fram með þeim hætti að
mismunandi aðilar framleiði orku og
selji inn á sameiginlegt dreifingamet
til landsmanna þannig að það verði
virk samkeppni milli þeirra sem
framleiða orku,“ sagði Halldór.
- Er þá ekki með þessu opnað á
möguleika t.d. Orkuveitu Reykjavík-
ur til að selja rafmagnsframleiðslu
sína beint á markað á höfuðborgar-
svæðinu?
„Rafmagnsveitur Reykjavíkur era
með raforkuframleiðslu á Nesjavöll-
um og sama gildir um nokkrar aðrar
rafveitur, en við verðum að halda
áfram að jafna raforkuverð í landinu
og þess vegna gætu aðgerðir af því
tagi virkað í öfuga átt,“ sagði hann.
I stefnuyfirlýsingunni segir að
hefja skuli undirbúning að sölu
Landssímans. Um það hvernig hann
teldi að haga ætti þeim undirbúningi
sagði Halldór að hann áliti nauðsyn-
legt að fara ofan í þetta mál. „Við höf-
um ekki hafið mikla vinnu að því. Það
er nauðsynlegt að tryggja neytend-
um sem lægst verð á þjónustunni og
öllum landsmönnum aðgang að upp-
lýsingahraðbrautinni, hvar sem þeir
búa á landinu, með sambærilegum
hætti. Þannig er þetta ekki að öllu
leyti í dag, en það er nauðsynlegt að
svo verði, því ef við ætlum að tryggja
viðgang og eflingu byggðar um allt
land er þetta eitt aðalatriðið til þess
að svo geti orðið.
- Áttu von á að einkavæðingu
Landssímans ljúki á þessu kjörtíma-
biii?
„Ég vil engu spá um það. Ég vil
fyrst fara í þessa vinnu og líta á kosti
og galla þessa máls, en ég vil hins
vegar standa þannig að málum að
þau verðmæti, sem í þessu fyrirtæki
eru, nýtist okkur en við glötum þeim
ekki. Mér finnst hins vegar of
snemmt að spá fyrir um hvernig það
muni fara.“
Árangur í sjávarútvegsmálum
innan árs
Samkvæmt stjórnarsáttmálanum
verður skipuð nefnd til að endur-
skoða lög um stjóm fiskveiða. Hall-
dór sagðist telja mikilvægt að þessi
nefnd starfaði hratt en störfum henn-
ar hefði ekki verið settur neinn tíma-
frestur. „Ég gæti vel hugsað mér að
sjá einhvern árangur af slíku starfi
innan eins árs,“ sagði hann.
Um hugsanlega niðurstöðu af
starfi nefndarinnar sagði Halldór:
„Þetta er margslungið mál og inn í
það kemur m.a. tekjuskiptingin í
sjávarútveginum. Ég ætla ekki að
spá fyi’ir um það, en það kemur fram
að það eigi að miða að því að sjávar-
útvegur sé sem öflugastur og þar
með byggðirnar. Byggðirnar þurfa á
öflugum sjávarútvegi að halda, en
það eru margir sem átta sig ekki
nægilega vel á hve mikil áhrif breytt-
ar aðstæður hafa haft á sjávarútveg-
inn, þ.e. opnara hagkerfi og sú stað-
reynd að við jöfnum ekki lengur
sveiflur í sjávarútvegi með gengis-
breytingum, heldur þurfa fyrirtækin
að hafa möguleika á að aðlagast
breyttum aðstæðum og geta hagrætt
til að lifa af samdrátt. Þetta kemur til
að mynda fram í erfiðu dæmi sem
menn glíma við í sambandi við fyrir-
tæki, sem er rekið bæði í Vestmanna-
eyjum og Þorlákshöfn. En þar með
getur hagræðingin haft umtalsverð
áhrif á afkomu þess fólks sem þar
vinnur í dag. Þetta era
mál sem þarf að fara
vandjega yfir,“ sagði Hall-
dór Ásgrímsson.
Eitt þeirra mála, sem
mest var í umræðunni í
kosningabaráttunni, voru
kjör aldraðra og öryrkja. Ekki er vik-
ið með beinum hætti að aðgerðum í
þágu þessara hópa í stefnuyfirlýsing-
unni, en aðspurður um stefnu ríkis-
stjórnarinnar í málefnum þeirra vís-
aði Halldór til þess kafla í inngangi
stefnuyfirlýsingarinnar þar sem seg-
ir að með því að „virkja framtak ein-
staklinga í þágu aukinnar verðmæta-
sköpunar verði áfram stuðlað að hag-
sæld, félagslegum umbótum, afkomu-
öryggi einstaklinga og fjölskyldna,
ekki síst þeirra sem höllum fæti
standa.“
„Endurskoðun
stjórnarráðs*
ins Ijuki á
kjörtímabilinu“
„Virk sam-
keppni miiii
raforkufram-
leiðenda“