Morgunblaðið - 29.05.1999, Síða 60
60 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999
UMFMEÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Velta verslunar-
fyrirtækja í ESB
Smásala _ Heildsala
Heildarvelta 3.635 milljarðar evra
Mikilvægi heildsölu
og smásölu
sem hlutfall af heiidarviðskiptum
Velta
Störf
Smásala 145,0%
55,0%
Heildsala
68,2%
31,8%
Fyrirtæki
77,7%
22,3%
Nútíma
stórkaupmennska
HEITIÐ stórkaup-
maður heyrist ekki
jafn oft og áður, þó
nær það vel yfir
ákveðna starfsemi í
verslun, starfsemi sem
í eðli sínu er margþætt
og gjarnan á margra
höndum. Ymsir hafa
velt því fyrir sér hvort
til væri annað orð í ís-
lensku sem næði jafn
^vel yfir þessa starf-
semi. Það hefur ekki
fundist. Reyndar er
það víðar en á Islandi
sem menn eiga erfitt
með að skilgreina starf
stórkaupmanna. I hag-
skýrslum Evrópusambandsins er
talað um „Wholesale and
intemational trade“ sektorinn. Þar
er talið að greinin velti u.þ.b. 2 þús.
milljörðum Ecu eða 55% af allri
veltu í verslun innan Evrópu, þar af
er matvöruheildverslunin með 40%
Jaf veltunni. Skv. tölunum starfa sjö
milljónir manna í greininni eða 32%
af öllum sem starfa að verslun, og
fjárfestingar í greininni nema 40
milljörðum Ecu. Af þessu verður
greinilega ráðið að heildversl-
un/milliríkjaverslun er mikilvægur
þáttur í evrópsku efnahagslífi.
En hver eru þá viðfangsefni stór-
kaupmanna og þeirra fyrirtækja
sem starfa í þessari grein. I félagi
íslenskra stórkaupmanna segjum
við að stórkaup varði innflutning,
útflutning, umboðsviðskipti og
heildverslun. Reyndar er það svo í
okkar félagsskap að fjölmörg fyrir-
tækjanna sem áður fyrr stunduðu
eingöngu stórkaup(mennsku) reka
*núorðið einnig smásölu. Þetta er
ein ástæðan fyrir því að ákveðið var
fyrir rúmu ári að
breyta nafni félagsins í
Samtök verslunarinnar
- félag ísl. stórkaup-
manna. Jafnframt voru
smásölufyrirtæki sem
mörg stunda innflutn-
ing boðin velkomin í
samtökin. Verður ekki
nánar vikið að því í
þessum pistli. Erlendis
er gjarnan talað um
milliríkjaverslunina
sem hinn ósýnilega
hluta verslunar.
Astæðan er einfaldlega
Stefán S. sú að þessi hluti versl-
Guðjónsson unar snýr ekki beint að
almenningi. Almenn-
ingur þekkir ekki þessi fyrirtæki úr
verslunarmiðstöðinni eða miðbæn-
um. Milliríkjaverslunin hefur
gjaman aðsetur við hafnir eða í
nánum tengslum við samgöngu-
kerfið og verður því eðli málsins
samkvæmt ekki jafn sýnileg al-
menningi.
&
GÓLFEFNABÚÐIN
Borgartúni 33
i^jyæða flísar
i^jyæða parket
^jyóð verð
i^jyóð þjónusta
Milliríkjaviðskipti
Það er lítil sanngirni í
því, segir Stefán S.
Guðjónsson, að bera
saman hefðbundnar ís-
lenskar heildsölur og
t.d. heildsölur á Norð-
urlöndum.
íslensk innflutningsfyrirtæki
flytja inn margs konar varning t.d.
veiðafæri, verkfæri, hráefni til iðn-
aðar, vélar og tæki, tölvur, bygg-
ingarvörur, matvæli og lyf svo eitt-
hvað sé nefnt. Utflytjendur flytja
út allar íslenskar framleiðsluvörur.
í félagi stórkaupmanna eru útflytj-
endur sem um árabil hafa flutt út
sjávarafurðir, æðardún og ýmsar
aðrar iðnaðarvörur. Innan samtak-
anna verður einnig vart við vaxandi
fjölda innflutningsfyrirtækja sem
stunda endurútflutning erlendra
iðnaðarvara til annarra landa. Af
þessu má ljóst vera að fyrirtækin í
milliríkjaversluninni gegna veiga-
Afkoma í heildverslun
sem hlutfall af veltu
Hagnaður 11,5%
Fjárfesting I 2%
Viröisauki
Útflutningur
Innflutningur
40%
Heimild: Hagstofa ESB
miklu hlutverki við að tryggja ís-
lensku þjóðinni bætt viðskiptakjör
og aukna hagsæld.
Heildverslun
En hver er þá staða heildverslun-
ar í landinu og er það rétt sem ýms-
ir halda fram að heildverslun á Is-
landi heyri í raun sögunni til enda
séu fleiri heildverslanir hér á landi
en í nágrannalöndunum. Þessi um-
ræða er ekki alveg ný af nálinni og
virðist einskorðast við heildverslun
með dagvöru. Umræðan mun hafa
byrjað á mektarárum verslunar-
deildar Sambandsins. En hvað
veldur umræðunni og þeim ruglingi
við samanburð á íslenskum og er-
lendum heildverslunum sem ávallt
fylgir? Undirritaður er helst þeirr-
ar skoðunar að mismunandi mál-
notkun eða einhvers konar brengl í
hugtakanotkun sé sennilegasta
skýringin. Því er lítil sanngirni í því
að bera saman hefðbundnar ís-
lenskar heildsölur við t.d. heildsöl-
ur á Norðurlöndum, eins ólíkar og
þær eru í raun. Á Norðurlöndum
eru heildverslanir í raun birgða-
dreifingarmiðstöðvar sem dreifa
framleiðsluvörum allra framleið-
enda, innlendra sem erlendra, og
eru að öllu leyti óháðar vörumerkj-
um og vörumerkjaeigendum. Is-
lenskar heildverslanir eru hins veg-
ar innflutningsfyrirtæki sem sinna
birgðahaldi og markaðsstarfi fyrir
erlenda framleiðendur. Þær dreifa
til að mynda ekki vörum framleið-
enda sem eru í innbyrðis sam-
keppni, erlendu framleiðendurnir
myndu ekki fallast á slíkt. í raun
má segja að birgðamiðstöðvarnar
séu viðbótar sölustig sem til
skamms tíma tíðkaðist ekki hér á
landi. Það er ekki fyrr en með til-
komu Búrs og Aðfanga að þetta
viðbótar sölustig verður einnig til á
Islandi.
Það er þvi rangt að halda því
fram að fyrirkomulag vörudreifing-
ar á Islandi sé mjög frábrugðið því
sem er á Norðurlöndum, þvert á
móti má fullyrða að við síðustu
breytingar hafi mál þokast enn
meir í sömu átt. Öll þessi fyrirtæki,
heildverslunin/innflutningur,
birgðamiðstöðvar og að sjálfsögðu
smásalan gegna mikilvægu hlut-
verki í dreifingarkeðjunni. Þau
tryggja að Islendingum standi
ávallt til boða allar nýjungar, hvar
sem þær verða til í veröldinni, á
hagstæðustu kjörum, neytendum
og samfélaginu öllu til góða.
Höfundur er framkvæmdastjéri
Samtaka verslunarinnar, félags ísl.
stórkaupmanna.
Svanasöngur
Sigrúnar
„ÞAÐ ER eðlilegt
fyrir mann þegar hann
eldist, að mótmæla
breytingum - einkan-
lega ef þær eru til hins
betra,“ ritaði ameríski
rithöfundurinn John
Steinbeck einhverju
sinni. Þetta rifjaðist
upp fyrir mér er ég las
grein eftir Sigrúnu Da-
víðsdóttur í hvíta-
sunnudagsblaði Mbl.
um Herbalife. Ekki
veit ég aldur Sigrúnar,
en Morgunblaðið er
hátt í nírætt.
Þeim sem yngri eru
getur stundum veist
erfitt að fylgjast með í þeim hraða
sem einkennir hátækni og upplýs-
ingasamfélög nútímans, hvað þá
hinum sem þegar hafa skilað sínu,
og sem betur fer þurfum við ekki
að beita þeim fyrir vagninn. Skarð
hinna öldruðu verður vonandi
ávallt fyllt meðan heimurinn stend-
ur, enda eðlilegt að svo sé.
Grein Sigrúnar er nánast sam-
felld hljómkviða svanasöngs, og
hefur auk þess „söluyfirbragð“
metnaðarlausra æsifréttablaða,
sem við væntum ekki í blaði sem
lengi hefur notið trausts. í grein-
inni er svo mikið af rangfærslum
og dylgjum að manni óar við að
svara þeim öllum nema í stóru riti,
og má segja að gildi þar hið fom-
kveðna, að meira getur einn óupp-
lýstur spurt en hundrað vitringar
svarað.
Sigrún gerir sér ekki ljóst að
fæðubótaefni eru komin til að vera.
Líkt og brauð og sími eru þau orð-
in eðlilegur og nauðsynlegur hlutur
í heimilishaldi milljóna manna um
heim allan, þ.m.t. Islandi, og ekki
seinna vænna. Fjöldi kúnna minna
sem Herbalife-dreifanda, hefur náð
af sér kílóum sem stefndu heilsu
þeirra í bráða hættu, kílóum sem
hvorki vildu af hægt né hratt með
öðrum ráðum. Sjálfur styrkti ég
svo ónæmiskerfi mitt með þessari
náttúrulegu hágæðanæringu, að sl.
tvö ár hef ég verið laus við ofnæmi
sem varla gaf mér stundarfrið í tvo
áratugi.
Sigrún gefur með grein sinni í
skyn að milljónir Herbalife-neyt-
enda séu ginningarfífl og bjánar!
Hvað ráðleggurðu mér, Sigrún;
kannski lyfjablöndur og stera sem
valda þurrki í slímhúð, blóðnösum,
sleni og hækkuðum blóðþrýstingi?
Nei takk, ég gafst fljótt upp á því
öllu, og hélt mig við tissue-pakkann
þar til Herbalife blessunarlega rak
á fjörur mínar. Og Sigrún, hvaða
lausn ætlarðu að bjóða 70 þúsund
offeitum íslendingum; - kannski
efnablönduna Xenical sem var svo
fjálglega kynnt í föstudagsblaði
Morgunblaðsins þann 21. maí á
þeirri virðulegu síðu sem nefnd er
heilsa? I þeirri grátbroslegu grein
segir m.a. um lyfja-
blönduna; „Inntaka
getur orðið til þess að
fólk með offituvanda-
mál temji sér nýja lifn-
aðarhætti, því óhjá-
kvæmilega hljóta þeir
að draga úr fituneyslu
vegna óþægindanna
sem lyfinu fylgja, það
er mikils vindgangs og
niðurgangs!!! Frábært
- það er búið að finna
antibus fyrir feita fólk-
ið! En mér er spum,
hvað ef fólkið tæki svo
ekki sönsum á lyfja-
blöndunni? Yrðu við-
rekstrar og steinsmug-
ur sjötíu þúsunda ekki alvarleg
ógnun við landið okkar hreina og
ósonlagið? I þeirri sömu „heilsu-
grein“ er reyndar einnig fjallað um
spekúlasjónir íslenskra athafna-
manna um að framleiða duft úr
rækjuskel sem bindur fitu í mat!
Elsku fólkið mitt, í guðanna bæn-
um kíkið á almanakið ykkar, því
Herbalife leysti þetta mál fyrir
meira en áratug og það án þess að
Herbalife
Fjöldi viðskiptamanna
minna, segir Stefán
Stefánsson, hefur náð
af sér aukakílóum, sem
stefndu heilsu þeirra í
bráða hættu.
fara að blanda skeljum í frönsku
kartöflumar okkar og kokteilsós-
una, sem við Herbalife-fólkið og
kúnnarnir okkar getum svo vel
leyft okkur að neyta annað slagið
og viljum fá að njóta áfram án
skeljanna! I grein Sigrúnar er gef-
ið í skyn að markaðurinn fyrir
Herbalife mettist fljótt. Öðru nær!
Okkur er gert að sinna viðskipta-
vinum okkar svo vel, að kaup-
mannastétt heimsins fengi martröð
ef slíkar kröfur væm gerðar til
hennar. Því er viðskiptamannahóp-
ur hvers Herbalife-dreifanda mjög
takmarkaður, og þörfin á starfs-
fólki mikil í svo persónulegri þjón-
ustu. Auk þess setur Herbalife
okkur dreifendum þau skilyrði, að
hver og einn umsetji lágmarks-
vömbirgðir sem viðkomandi þarf
að staðfesta með undirskrift sinni
mánaðarlega, og sem lýtur athug-
unarrétti Herbalife fyrirvaralaust.
Sé þetta ekki uppfyllt, fær viðkom-
andi engin umboðslaun af því
starfsfólki sem undir honum
starfar. Þannig tryggir Herbalife-
fyrirtækið, að dreifingaraðilar séu
ávallt að vinna á heiðarlegan hátt
..
Stefán
Stefánsson
SEUHA VINNUR
sem kaupa sjónvarp í
endurgreitt ef Selma vimiinr
Engin skilyrdi. Reglurnar eru einfaldar:
ef Selma vinnur - borgar BTS
Ath: Ekki verður hægt að skila sjónvörpum eftir keppni á þeim forsendum að Selma hafi ekki unnið!
Hverjar eru llkurnar á því ad Selma vinni? Sjádu nýjustu spárnar á www.bt.is