Morgunblaðið - 29.05.1999, Qupperneq 71
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999 71
Taktu vel á mðti skðtum
FRÉTTIR
HARALDUR Johannessen nkislögreglustjóri ávarpar nemendur.
Honum til hliðar er Arnar Guðmundsson skólastjóri.
NEMENDUR Lögregluskólans við útskriftina.
Skólaslit Lögreglu-
skóla ríkisins
LÖGREGLUSKÓLA ríkisins var
slitið miðvikudaginn 12. maí sl.
Nemendur á síðari önn skólans voru
alls 30 í vetur og útskrifuðust 28
þeirra að þessu sinni. Tveir nemend-
ur náðu ekki tilskilinni lágmarksein-
kunn og þurfa því að endurtaka nám
í önninni til þess að útskrifast sem
fullgildir lögreglumenn. Við Lög-
regluskólann eru gerðar meiri kröf-
ur um námsárangur en tíðkast í öðr-
um framhaldsskólum og má geta
þess m.a. að þeir verða að ná a.m.k.
6,0 í aðaleinkunn og fái þeir lægra
en 5,0 í tveimur greinum eða fleiri
hafa þeir fallið á önninni.
Þessi hópur var sá fyrsti sem út-
skrifaðist eftir að lögreglulögin nýju
tóku gildi og aðgengi að skólanum
var breytt. Nú getur hver sem er, og
uppfyllir almenn skilyrði til náms í
skólanum, sótt um skólavist en áður
völdu lögreglustjórar fólk til náms.
Sérstök valnefnd fer nú yfír allar
umsóknir og ræðir við umsækjend-
ur og velur fólk til náms eftir að rík-
islögerglustjóri hefur ákveðið fjölda
þeirra sem hefja eiga nám hvert
sinn. Þessi breyting hefur haft það í
fór með sér að fleiri, með mikla
menntun, sækja um skólann og jafn-
framt hefur hlutur kvenna farið vax-
andi.
Að þessu sinni náði Hinrik Páls-
son bestum árangri á lokaprófi, fékk
1. ágætiseinkunn 9,31, í öðru sæti
varð Haukur Öm Sigurjónsson með
9,06 og í þriðja sæti varð Jónas H.
Ottósson með 8,66. Hinrik Pálsson
hlaut einnig íslenskubikarinn sem
veittur er þeim nemanda sem best-
um árangri nær í íslensku á loka-
prófi og Haukur Öm var valinn lög-
reglumaður skólans en sá titill veit-
ist þeim er hæstur verður í stigagjöf
kennara við skólann þar sem þeir
leggja mat á hæfileika útskriftar-
nema til að sinna hinum ýmsu verk-
efnum, ekki síst verklegum þáttum
námsins.
Arnar Guðmundsson skólastjóri
brautskráði nemendur. Auk hans
fluttu ávörp Þröstur Brynjólfsson,
yfirlögregluþjónn á Selfossi, sem
talaði sérstaklega til nemenda en
Þröstur átti 25 ára útskriftarafmæli
frá skólanum, Haraldur Johannes-
sen ríkislögreglustjóri og Bjöm
Friðfinnsson, ráðuneytisstjóri í
dómsmálaráðuneytinu. Ríkislög-
reglustjóri kynnti við þetta tækifæri
skipun nefndar sem ætlað er að
kanna hvort ástæða sé til að verð-
launa starfsmenn lögreglu eftir far-
sæla þjónustu eða þá sem unnið hafa
framúrskarandi störf.
Starfsemi skólans eykst ár frá ári.
Nú er starfsemi framhaldsdeildar
skólans komin í fullan gang og síð-
ustu tvö ár er ekki langt frá því að
um 1.000 manns hafi árlega hlotið
einhverja fræðslu við skólann. Ljóst
er að starfsemin mun enn vaxa á
næstu ámm.
Þjóðkikhúsið á fcrð um landið
r' TTmffl 1 /
ifpilf i
if '•R&kAl
.
Maður í mislitum sokkum
Sprenghlægilegur gamanleikur eftir Arnmund Backman
2. júní Félagsheimilinu Ólafsvík
4. og 5. júní Félagsheimilinu Hnífsdal
8. júní Félagsheimilinu Blönduósi
9. júní Félagsheimilinu Ydölum
11. og 12. júní Valaskjálf, EgilsstöÖum
MIÐAPANTANIR I MIÐASÖLU ÞJÓÐLEIKHÚSSINS S. 551 1200
og miðasala á hverjum stað sýningardag. Sýningar hefjast kl. 20.30.
Cfp ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Símanum-Internet
Lífsstíll '99
a symngunm
færð þú 3ja mánaða
fría Internetáskrift
SÍMINNinternet
ntei ki
Þriggja mánaða Lúxuslíf