Morgunblaðið - 29.05.1999, Side 76

Morgunblaðið - 29.05.1999, Side 76
76 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999 I DAG MORGUNBLAÐIÐ ■ V LERKIÐ í SKRÚÐI ÞAÐ vex eitt blóm fyrir vestan - og það veit ekki að ég sé til. Ég held að Steinn Steinarr hafi ort svo. En það vex eitt tré fyrir vest- an, og þetta tré og vaxtarstað þess langar mig til að fjalla örlítið um í þessum pistli. Um nokkurt skeið hefur Skóg- ræktarfélag íslands valið tré hvers árs. 1996 var lerki valið tré ársins. Það ætti varla að vera í frásögur færandi, svo mikið hefur verið gróðursett af lerki á undan- förnum áratugum, einkum á Hér- aði, og svo mikið hefur verið rætt um lerki sem nytjatré framtíðar- innar á íslandi. En lerkið sem varð fyrir valinu vex í andstæðum landshluta, lands- hluta sem fáir tengja við fögur tré af er- lendum uppruna, þótt víða vaxi birkikjarr í fjarðarbotnum á Vestfjörðum. Séra Sigtryggur Guðlaugsson var mik- ill brautryðjandi í skólamálum og orðstír Núpsskóla barst um allt land. Orðstír hans í rækt- unarmálum var einnig mikill og garð- ur hans rómaður um allt land. Sigtryggur og kona hans Hjalt- lína Guðjónsdóttir voru bæði heiðursfélagar Garð- yrkjufélags íslands. Sigtryggur gaf garði sínum nafnið Skrúður og taldi hann stofnaðan 1909 en und- irbúningur garðsins hófst nokkrum árum áður. Garðurinn telst því níræður um þessar mundir. Frægð þessa garðs lifir enn í orðinu skrúðgarður. Lerkið hans séra Sigtryggs er með alelstu trjám garðsins. Sig- tryggur hélt nákvæma dagbók yf- ir garðinn, en því miður sést ekki hvenær lerkið var gróðursett þótt flest bendi til að það hafi verið um 1910. Lerki var upphaflega kallað lævirkjatré eða barrfellir á ís- lensku og síðara nafnið er mjög lýsandi fyrir þá einstæðu eigin- leika trésins að fella barr á vetr- um. Greni og fura halda hins veg- ar nálum sínum og verða þess vegna oft iliþyrmilega fyrir barð- inu á vorfrostum, þegar sólin skín skært þótt kuldagjóla sé og frostið bítur svo á nóttum. Svona frost- og þurrkskemmdir eru mjög áber- andi núna bæði í greni og furu sunnan- og suðvestanlands. Til eru nálægt því 10 mismun- andi tegundir lerkitrjáa, sem vaxa einkum í meginlandsloftslagi í kaldtempraða beltinu nyrðra. Trjábolurinn er beinn og uppmjór, en greinarnar óreglulegar og oft slútandi. Nálarnar eru mjúkar og fmgerðar og sitja saman í þéttum vöndli 10-50 saman, breytilegt eft- ir tegundum. Þær falla á haustin og því vinnur sólarglenna í vor- frostum lerkinu ekki mein. Köngl- arnir eru breytilegir að lögun og sitja mörg ár á trénu en fræið þroskast og fellur á einu ári. Lerk- ið er ljóselskt og fljótvaxið og þrífst í ófrjóum jarðvegi vegna sambýlis við lerkisveppinn, sem er hinn besti matsveppur, sem völ er á hérlendis. Þær lerkitegundir sem hér eru ræktaðar til nytja eru síberíulerki, sem á heimkynni sín austan Úral- fjalla norður að 70. breiddarbaug, og Rússalerki, sem tekur við af Síber- íulerkinu og vex vest- ur fyrir Úralfjöll. Rússalerkið virðist eiga vaxandi vinsæld- um að fagna hérlend- is síðustu árin. Lerk- ið mikla í Skrúði er hins vegar evr- ópulerki - Larix deci- dua. I heimkynnum sínum í fjöllum Mið- Evrópu nær það 30- 40 m hæð en Skrúðslerkið er kom- ið á ellefta metra. Hvað verður um framhaldið er erfitt að spá, þar sem lerkið er nú komið upp fyrir reynitrén, sem hafa veitt því nokkurt skjól. Ellin ætti þó ekki að vera farin að hrjá það, þar sem lerki getur orðið 6-700 ára gamalt. Enginn sem ferðast um Vest- firði að sumarlagi ætti að láta hjá líða að koma við í Skrúði. Garður- inn, sem var meðal annars gerður til að sýna nemendum skólans fram á gróðurmátt íslenskrar moldar, hefur ýmis einkenni af skipulagi evrópskra garða um aldamót. Á árunum 1992-1996 var mikið þrekvirki unnið við endur- reisn garðsins og hefui- hann nú gengið í endurnýjun lífdaga. Þar lögðu margir hönd á plóginn og ekki er hlutur kennara og nem- enda Garðyrkjuskóla ríkisins und- ir forystu Grétars Unnsteinssonar minnstur. Til að unnt verði að halda þessu viðreisnarstarfi áfram og annast garðinn sem skyldi hef- ur verið stofnaður framkvæmda- sjóður Skrúðs. Nú stendur yfir fjársöfnun og er gíróreikningur sjóðsins í Sparisjóði vélstjóra 1175-26-757. Öll framlög, stór sem smá, eru þegin með þökkum. Allir eru velkomnir í Skrúð, sem eiga leið um Vestfirði, og er garðurinn opnaður 17. júní ár hvert. S.Hj. BLOM VIKLNMR 407. þáttur llmsjón Sigríð- ur Hjartar VELVAKAJVDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Nýjasta tækni í sölumennsku ÞAÐ var eitt kvöldið að síminn hringdi. Falleg konurödd tilkynnti mér að í úrtaki hjá bókaútgáfunni Vöku-Helgafelli hefði mér hlotnast bókagjöf. „Mætti hún senda mann heim til mín annað kvöld með bók- ina og myndi hann einnig ræða við mig um útgáfu- starfsemi fyrirtækisins.“ Allt væri þetta án skuld- bindinga. „Sjaldan hefi ég flotinu neitað," hugsaði ég og samþykkti þetta. Gjörvilegur piltur birtist næsta kvöld með svarta leðurtösku og dró upp úr henni stóra fallega mynd- skreytta fuglabók. Lyftist nú á mér brúnin, en hún seig aftur er hann sagði að þessa bók byði hann mér með kostakjörum - þús- und kall á mánuði í 17 mánuði, vaxtalaust og þyrfti ekki að byrja að borga fyrr en í ágúst og hann lagði undirskriftar- pappíra á borðið. „En bókagjöfin?" stamaði ég. Dró hann þá upp reifara- kver útgefið 1994 af Vöku- Helgafelli hf. og segir á bókarkápu þess: „Spenn- andi saga um miklar ástríður og svik.“ Fyrr á árum kynntist ég álíka sölumennsku í Portú- gal. Þeir sölumenn byrj- uðu á að mýkja væntanlegt fómarlamb með kampa- víni. Tengdasonur minn lenti líka í sams konar „gjafaúr- taki“ hjá þessari bókaút- gáfu - og hversu margir aðrir? Sigurður Þorkelsson, Grænagarði. Kennaralaun KENNARAR mega ekki láta sér detta í hug að semja nema laun þeirra verði fyrst tvöfólduð og síðan bætt 30% ofan á. Þeir verða að komast til jafns við sína viðmiðunar- stétt sem er alþingismenn. Fyrir 30 ámm höfðu þess- ar tvær stéttir sömu laun en aumingja kennararnir hafa setið iila eftii'. Það er að vísu rétt að kennarar gera mörg asnastrik og ættu kannski þess vegna að hafa lítil laun. Þeir kom- ast þó ekki í asnastrikum með tærnar þar sem þing- menn hafa hælana þegar þingmenn taka sig til og samþykkja lög á færibandi án þess að hafa hugmynd um hvað í lögunum stend- ur. Dæmi um þetta em lögin um fjöleignarhús og lögin um fiskveiðistjórnun. Einar Kristinsson, Funafold 43, Rvík. Dýrahald Kettlingar fást gefins TVEIR gæfir og góðlyndir kassavanir kettlingar fást gefins. Upplýsingar í síma 552 0834. SKÁK Þmsjón Margeir Pétursson STAÐAN kom upp á alþjóð- legu móti í Katrineholm í Svíþjóð í vor. Þjóðverjinn Christopher Lutz (2.610) var með hvítt, en Svíinn Patrick Lyrberg (2.405) var með svart og átti leik. Lyr- berg hafði teflt djarflega gegn stigaháum and- stæðingi sínum og fómað skiptamun fyrir sterka sókn. Honum fataðist nú flugið og lék 35. - Rxc2?? 36. Dg3 - Df5 37. Dg4 - Dxg4 38. Hxg4 - Rxa3 39. Hxc3 - Rc4 40. Hd4 - Hc5 41. h4 og svartur gafst upp, því endataflið er von- laust. I staðinn gat hann leikið: 35. - Re2! með tvöfaldri hótun, 36. - Rxcl og 36. Rf4 og stendur þá til vinnings. Úrslit á mótinu urðu: 1.-2. Speelman, Englandi og Gavrikov, Lit- háen 6F2 v. af 9 mögulegum, 3. Andersson, Svíþjóð 6 v., 4. -6. Ibragimov, Rússlandi, Fedoriv, Hvíta-Rússlandi og Lutz, Þýskalandi 5'/2 v., 7. Pia Cramling 4 v., 8. Lyr- berg 3 v., 9. Laveryd U/2 v. 10. Berg 1 v. SVARTUR leikur og vinnur. HÖGNI HREKKVÍSI Víkverji skrifar... VÍKVERJI fyllir ekki flokk þeirra sem hafa allt á homum sér gagnvart Ríkisútvarpinu. Þvert á móti telur Víkverji að Ríkisút- varpið hafi mikilvægu hlutverki að gegna í íslensku samfélagi, ekki síst í menningarlegu tilliti. Nú er reyndar svo komið að oftar en ekki stillir Víkverji á Rás eitt, eða „gömlu gufuna“ sem stundum er nefnd svo, þegar hann hlustar á út- varp. Er það þægileg tilbreyting frá síbyljunni og kjaftavaðlinum á hinum stöðvunum, þar sem drýldni, aulafyndni og sjálfumgleði dagski-árgerðarmanna ríður ekki við einteyming, þótt á því megi að vísu finna örfáar heiðarlegar und- antekningar. Á „gömlu gufunni" geta menn hins vegar gengið út frá því, í flestum tilvikum, að fá vandað efni í fagmannlegri umfjöllun dag- skrárgerðarmanna Ríkisútvarps- ins. Helgarnar hafa reynst Víkverja drýgstar til útvarpshlustunar og á laugardögum og sunnudögum má finna fjölmarga vandaða þætti á Rás eitt í Ríkisútvarpinu. Þannig datt Víkverji niður á tvo tónlistar- þætti á laugardegi fyrir skömmu, sem voru ólíkir hvað efnistök varð- ar, en báðir bráðskemmtilegir að mati Víkveija. Annar þeirra bar heitið „Til allra átta“ þar sem flutt var framandi tónlist frá ýmsum heimshomum, en hinn fjallaði um John heitinn Lennon og tónlist hans. Að loknum þættinum um Lennon var svo fluttur þýddur þáttur frá BBC um eiginkonur gamalla meistara og því næst hlustaði Víkverji á Inúitasögur og var að þeim loknum leiddur inn í heim harmónikkunnar og voru allir þessir þættir hinir áheyrilegustu á að hlýða. XXX IKVERJI var þaulsetinn fyrir framan útvarpstækið sitt þennan tiltekna laugardag og hyggst leggja við hlustir í enn rík- ara mæli í framtíðinni, því hér hef- ur aðeins verið nefnt brot af at- hyglisverðu útvarpsefni, sem Rík- isútvarpið býður hlustendum sín- um upp á um helgar. í því sam- bandi má nefna þáttaröðina „Sam- tal á sunnudegi" þar sem þjóð- kunnir Islendingar eru spurðir um bækurnar í lífí sínu og unnendur sígildrar tónlistar geta gengið að þættinum „Sunnudagstónleikum" vísum síðdegis á sunnudögum. Fyrir áhugamenn um ferða- og umhverfismál skal ennfremur bent á þáttinn „Út um græna grundu“, sem er á dagskrá Rásar eitt á laug- ardagsmorgnum og endurfluttur á miðvikudagskvöldum, sem kemur sér eflaust vel fyrir þá sem vilja nota helgamar til að sofa út. Á virkum dögum reynir Víkverji að hlusta á „Víðsjá“ eftir því sem við verður komið, en þátturinn er á dagskrá Rásar eitt síðdegis og fjallar um listir, vísindi, hugmyndir og tónlist. Að mati Víkverja er þátturinn fagmannlega unninn og hlutaðeigendum til sóma, sem og áðumefndir þættir og fjölmargir aðrir, sem Ríkisútvarpið býður hlustendum sínum upp á alla daga vikunnar, árið um kring. XXX ÍKVERJI vill einnig nota tækifærið til að taka upp hanskann fyrir Ríkissjónvarpið. Allt tal um að Sjónvarpið sé leiðin- legt og niðurdrepandi á ekki við rök að styðjast að mati Víkverja. Þvert á móti finnst honum Sjón- varpið bjóða upp á hæfilega blöndu af skemmtilegu afþreyingarefni og fróðlegum heimildarmyndum og þáttaröðum, sem hafa bæði fræðslu- og skemmtanagildi. Má þar nefna bandaríska heimildar- myndaflokkinn um „Kalda stríðið", sem Víkverji hefur fylgst með af áhuga undanfarin mánudagskvöld. í síðasta þætti vai- fjallað um upphaf Víetnamstríðsins, en þau hemaðarátök eru Víkverja enn 1 fersku minni, þótt langt sé um liðið síðan þeim lauk. Það var oft erfitt að vera ungur lýðræðissinni á þeim árum og veija aðgerðir Banda- ríkjamanna í þessum íjarlæga heimshluta. Þættirnir endurspegla tilgangsleysi stríðsins, sem skildi eftir sig djúp sár í bandarískri þjóðarsál og klauf þjóðina í tvær andstæðar fylkingar, með og á móti Víetnamstríðinu. Reyndin varð enda sú að Bandaríkjamenn töpuðu þessu stríði á heimaslóðum, en ekki á vígvellinum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.