Morgunblaðið - 29.05.1999, Page 88
MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RTTSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Þriðja rflrisstjórnin undir forsæti Davíðs Oddssonar tók við á rflrisráðsfundi
Talið að sala ríkiseigna
geti skilað 50-70 milljörðum
Morgunblaðið/Kristinn
RÁÐHERRAR hinnar njrju ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks stilltu sér upp til myndatöku
á tröppum Bessastaða að afloknum ríkisráðsfundi i gær.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
sagði í gær að ef ríkið seldi hluta-
bréf sín í bönkunum og Landssím-
anum á kjörtímabilinu væri verið að
tala um 50 til 70 milljarða króna fyr-
ir þær eignir. Hann sagði að stefnt
væri að sölu Landssímans en um
leið vildu menn fara með gát. Davíð
sagðist telja að ríkið ætti ekki að fá
minna en 13-14 milljarða fyrir hlut
sinn í Fjárfestingarbanka atvinnu-
lífsins.
, ^ Verja á tekjum af sölu ríkisfyrir-
''tækja til að greiða niður skuldir, en
Davíð sagðist einnig telja eðlilegt að
þegar þetta fé yrði leyst úr læðingi
færi það ekki allt í að greiða niður
skuldir heldur yrði ráðist í fjárfest-
ingar sem gætu skilað sambærileg-
um umbótum til þjóðarinnar og fyr-
irtækin gerðu þegar þau voru að
byggjast upp. „Þá erum við til að
mynda að hugsa um vegafram-
kvæmdir af stærra taginu,“ sagði
Davíð og kvað jarðgöng t.d. koma
A>ar til greina.
' Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks, sem er jafn-
framt þriðja ríkisstjómin sem
mynduð er undir forsæti Davíðs
Oddssonar frá árinu 1991, tók við
völdum á ríkisráðsfundi á Bessa-
stöðum sem hófst kl. 14 í gær.
Fimm nýir ráðherrar tóku við lykl-
um að ráðuneytum sem þeir munu
stýra strax að afloknum ríkisráðs-
fundinum.
3% verðbólga ekki
stórfellt hættumerki
Fram kom í samtali við Davíð
Oddsson að ríkisstjómin muni
leggja mikla áherslu á áframhald-
andi stöðugleika. „Það er búist við
verðbólgan geti orðið eitthvað
hærri milli ára en spáð var, jafnvel
3%. Ég tel það ekki stórfellt hættu-
merki, á uppgangstímum losnar
nokkuð um verðlagið og við þvi er
ekkert að segja. Menn verða bara
að gæta sín og við sjáum þegar
merki um að viðskiptahallinn fer
minnkandi og við sjáum einnig
merki þess að verð á afurðum okk-
ar, sem hefur verið gott í mörgum
greinum, hefur náð botni í öðmm
eins og lýsi og mjöli og við sjáum
líka að verð er að hækka á áli, sem
er okkur mikilvægt,“ sagði Davíð.
Árangur af endurskoðun físk-
veiðistjómkerfis innan árs
Halldór Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra og formaður Framsóknar-
flokksins, sagði í gær að mestu
skipti að ríkisstjóminni tækist að
viðhalda stöðugleika, örva efna-
hags- og atvinnulíf og skapa meiri
verðmæti. ;,Ég tel mikilvægt að efla
spamað. Ég bendi á að það hafa
orðið miklar launahækkanir í þjóð-
félaginu og þess vegna tel ég mikil-
vægt að allir leggist á eitt um að
efla spamað, m.a. með því að greiða
meira til lífeyrissjóða,“ sagði Hall-
dór. Hann sagðist einnig vilja sjá
árangur af starfi nefndar sem á að
endurskoða fiskveiðistjómunarkerf-
ið innan árs.
Gagmýni stjómarandstöðu
Forsvarsmenn stjómarandstöð-
unnar gagnrýna stefnuyfirlýsingu
ríkisstjómarinnar. Margrét
Frímannsdóttir, talsmaður Sam-
fylkingarinnar, sagði enga mark-
vissa stefnumörkun þar að finna og
ekkert væri tekið á þeim hættu-
merkjum sem uppi væm í efnahags-
lífinu. Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri hreyfingarinnar -
græns framboðs, sagði fátt nýtt að
finna í stjómarsáttmálanum og
Sverrir Hermannsson, formaður
Frjálslynda flokksins, sagði að í rik-
isstjóminni myndi áfram ráða ríkj-
um nýfijálshyggjustefna og fram-
sóknarmennska, sem væri ennþá
verri ef nokkuð væri.
■ Ný stjóm/12/44-45
■ Viðbrögð/13-14/26
Samtök
verslunarinnar
Baugur
gagn-
rýndur
TALSMENN Samtaka versl-
unarinnar fóra í gær á fund
Samkeppnisstofnunar til að
skýra fyrir stofhuninni afstöðu
samtakanna til ástandsins á
matvörumarkaðnum, en að sögn
Hauks Þórs Haukssonar, for-
manns Samtaka verslunarinnar,
telur hann að Baugur hf. hafi
með kaupum sínum á 10-11
verslununum stórskaðað sína
eigin hagsmuni með drottnunar-
tilburðum á markaðnum og
hortugheitum gagnvart birgjum.
Samtök verslunarinnar töldu
þörf á að Samkeppnisstofnun
skoðaði mál þetta vel þar sem
það væri hlutverk stofnunar-
innar að grípa inn í þegar
markaðsráðandi aðili væri far-
inn að misnota aðstöðu sína.
,Afleiðingin af þessum kaup-
um er að minnsta kosti 60-70%
markaðshlutdeild í Reykjavík
og það stefnir í fákeppni á þess-
um markaði sem við þekkjum
allt of vel hér á íslandi," sagði
Haukur Þór Hauksson.
■ Samtök/26
Tvennt á
slysadeild
TVÖ ungmenni, tæplega tvítug að
aldri, vora flutt á slysadeild Sjúkra-
hússins á ísafirði í gærkvöld eftir
útafakstur í Álftafirði við Hatteyri í
umdæmi ísafjarðarlögreglunnar.
Meiðsli ungmennanna vora þó
minniháttar en bifreið þeirra, sem
var fólksbifreið, er gjörónýt eftir
óhappið.
Tildrög slyssins vora til rann-
sóknar hjá Isafjarðarlögreglunni í
gær en ekki er enn Ijóst hvað olli
útafakstrinum.
Hlutafjártilboð Búnaðarbanka til starfsmanna
skattskyld hlunnindi að mati skattstjóra
Mismunurinn skattlagð-
-ur og bætt við 25% álagi
SKATTSTJÓRINN í Reykjavík
hefur sent starfsmönnum Búnaðar-
bankans og dótturfélaga, sem nýttu
sér tilboð bankans til að kaupa
hlutabréf í bankanum á lægra gengi
en almenningi var boðið, bréf þar
sem mismunurinn á söluverði til al-
mennings og þess verðs sem starfs-
mönnum stóð til boða er sagður
vera skattskyld hlunnindi. Jafti-
framt hefur skattstjóri í hyggju að
•^ita 25% álagi þar sem umrædd
'Tuunnindi hafa ekki verið færð til
tekna í skattframtali.
Starfsmönnum voru boðin hluta-
bréf í lokuðu útboði í október sl. á
genginu 1,26 en almenningi vora
boðin og seld sömu hlutabréf á
genginu 2,15 í almennu útboði í des-
ember. í bréfi skattstjóra til eins af
rtárfsmönnum, sem Morgunblaðið
hefur undir höndum, segir að kaup-
verð hans þyki lágt miðað við það
verð sem almenningi stóð til boða
og verði ekki annað séð en að sá
mismunur sem er á gangverði
hlutabréfanna og því verði sem
starfsmenn greiddu teljist til skatt-
skyldra hlunninda. „Telja verður að
ofangreindra hlunninda hafið þér
alfarið notið á grandvelli starfssam-
bands, sem uppbót á laun yðar það-
an, eða vegna starfslokasamnings,"
segir í bréfinu.
Ráðleggingar stjórnenda
bankans samrýmast ekki
niðurstöðum skattyfírvalda
Skv. upplýsingum Morgunblaðs-
ins era dæmi um að umræddur mis-
munur á milli söluverðs til starfs-
mannanna og gangverðs, sem skatt-
stjóri h'tur á sem skattskyld hlunn-
indi, geti numið á þriðja hundrað
þúsund kr.
í bréfi skattstjóra segir enn-
fremur að embættið hafi í hyggju
að beita 25% álagi skv. heimild í
106. grein tekjuskattslaganna.
Ekki verði annað séð en að skýrt
liggi fyrir að framtalsskilum hafi
ekki verið hagað með réttum hætti
„þar sem framteljanda mátti ljóst
vera að ráðleggingar stjórnenda
Búnaðarbanka Islands hf. og at-
hafnir samrýmast ekki niðurstöð-
um skattyfirvalda, sbr. ódagsett
bréf Búnaðarbanka íslands hf. og
almennum skyldum hans, sem
launagreiðanda svo sem kveðið er
á í gildandi ákvæðum skattalaga",
segir í bréfi skattstjórans í
Reykjavík.
Morgunblaðið/Ómar
Fumlaus hjóla-
brettameistari
HANN sýndi snilldartilþrif þessi
hjólabrettameistari þegar hann
lét sig renna niður eftir handriði
á Ingólfstorgi í blíðviðrinu í gær.
Hver hreyfing virðist útmæld og
svo virðist sem hann svífi í lausu
lofti. Engum sögum fer af lend-
ingunni.