Morgunblaðið - 29.05.1999, Síða 88

Morgunblaðið - 29.05.1999, Síða 88
MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RTTSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK Þriðja rflrisstjórnin undir forsæti Davíðs Oddssonar tók við á rflrisráðsfundi Talið að sala ríkiseigna geti skilað 50-70 milljörðum Morgunblaðið/Kristinn RÁÐHERRAR hinnar njrju ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks stilltu sér upp til myndatöku á tröppum Bessastaða að afloknum ríkisráðsfundi i gær. DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði í gær að ef ríkið seldi hluta- bréf sín í bönkunum og Landssím- anum á kjörtímabilinu væri verið að tala um 50 til 70 milljarða króna fyr- ir þær eignir. Hann sagði að stefnt væri að sölu Landssímans en um leið vildu menn fara með gát. Davíð sagðist telja að ríkið ætti ekki að fá minna en 13-14 milljarða fyrir hlut sinn í Fjárfestingarbanka atvinnu- lífsins. , ^ Verja á tekjum af sölu ríkisfyrir- ''tækja til að greiða niður skuldir, en Davíð sagðist einnig telja eðlilegt að þegar þetta fé yrði leyst úr læðingi færi það ekki allt í að greiða niður skuldir heldur yrði ráðist í fjárfest- ingar sem gætu skilað sambærileg- um umbótum til þjóðarinnar og fyr- irtækin gerðu þegar þau voru að byggjast upp. „Þá erum við til að mynda að hugsa um vegafram- kvæmdir af stærra taginu,“ sagði Davíð og kvað jarðgöng t.d. koma A>ar til greina. ' Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, sem er jafn- framt þriðja ríkisstjómin sem mynduð er undir forsæti Davíðs Oddssonar frá árinu 1991, tók við völdum á ríkisráðsfundi á Bessa- stöðum sem hófst kl. 14 í gær. Fimm nýir ráðherrar tóku við lykl- um að ráðuneytum sem þeir munu stýra strax að afloknum ríkisráðs- fundinum. 3% verðbólga ekki stórfellt hættumerki Fram kom í samtali við Davíð Oddsson að ríkisstjómin muni leggja mikla áherslu á áframhald- andi stöðugleika. „Það er búist við verðbólgan geti orðið eitthvað hærri milli ára en spáð var, jafnvel 3%. Ég tel það ekki stórfellt hættu- merki, á uppgangstímum losnar nokkuð um verðlagið og við þvi er ekkert að segja. Menn verða bara að gæta sín og við sjáum þegar merki um að viðskiptahallinn fer minnkandi og við sjáum einnig merki þess að verð á afurðum okk- ar, sem hefur verið gott í mörgum greinum, hefur náð botni í öðmm eins og lýsi og mjöli og við sjáum líka að verð er að hækka á áli, sem er okkur mikilvægt,“ sagði Davíð. Árangur af endurskoðun físk- veiðistjómkerfis innan árs Halldór Ásgrímsson, utanríkis- ráðherra og formaður Framsóknar- flokksins, sagði í gær að mestu skipti að ríkisstjóminni tækist að viðhalda stöðugleika, örva efna- hags- og atvinnulíf og skapa meiri verðmæti. ;,Ég tel mikilvægt að efla spamað. Ég bendi á að það hafa orðið miklar launahækkanir í þjóð- félaginu og þess vegna tel ég mikil- vægt að allir leggist á eitt um að efla spamað, m.a. með því að greiða meira til lífeyrissjóða,“ sagði Hall- dór. Hann sagðist einnig vilja sjá árangur af starfi nefndar sem á að endurskoða fiskveiðistjómunarkerf- ið innan árs. Gagmýni stjómarandstöðu Forsvarsmenn stjómarandstöð- unnar gagnrýna stefnuyfirlýsingu ríkisstjómarinnar. Margrét Frímannsdóttir, talsmaður Sam- fylkingarinnar, sagði enga mark- vissa stefnumörkun þar að finna og ekkert væri tekið á þeim hættu- merkjum sem uppi væm í efnahags- lífinu. Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, sagði fátt nýtt að finna í stjómarsáttmálanum og Sverrir Hermannsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagði að í rik- isstjóminni myndi áfram ráða ríkj- um nýfijálshyggjustefna og fram- sóknarmennska, sem væri ennþá verri ef nokkuð væri. ■ Ný stjóm/12/44-45 ■ Viðbrögð/13-14/26 Samtök verslunarinnar Baugur gagn- rýndur TALSMENN Samtaka versl- unarinnar fóra í gær á fund Samkeppnisstofnunar til að skýra fyrir stofhuninni afstöðu samtakanna til ástandsins á matvörumarkaðnum, en að sögn Hauks Þórs Haukssonar, for- manns Samtaka verslunarinnar, telur hann að Baugur hf. hafi með kaupum sínum á 10-11 verslununum stórskaðað sína eigin hagsmuni með drottnunar- tilburðum á markaðnum og hortugheitum gagnvart birgjum. Samtök verslunarinnar töldu þörf á að Samkeppnisstofnun skoðaði mál þetta vel þar sem það væri hlutverk stofnunar- innar að grípa inn í þegar markaðsráðandi aðili væri far- inn að misnota aðstöðu sína. ,Afleiðingin af þessum kaup- um er að minnsta kosti 60-70% markaðshlutdeild í Reykjavík og það stefnir í fákeppni á þess- um markaði sem við þekkjum allt of vel hér á íslandi," sagði Haukur Þór Hauksson. ■ Samtök/26 Tvennt á slysadeild TVÖ ungmenni, tæplega tvítug að aldri, vora flutt á slysadeild Sjúkra- hússins á ísafirði í gærkvöld eftir útafakstur í Álftafirði við Hatteyri í umdæmi ísafjarðarlögreglunnar. Meiðsli ungmennanna vora þó minniháttar en bifreið þeirra, sem var fólksbifreið, er gjörónýt eftir óhappið. Tildrög slyssins vora til rann- sóknar hjá Isafjarðarlögreglunni í gær en ekki er enn Ijóst hvað olli útafakstrinum. Hlutafjártilboð Búnaðarbanka til starfsmanna skattskyld hlunnindi að mati skattstjóra Mismunurinn skattlagð- -ur og bætt við 25% álagi SKATTSTJÓRINN í Reykjavík hefur sent starfsmönnum Búnaðar- bankans og dótturfélaga, sem nýttu sér tilboð bankans til að kaupa hlutabréf í bankanum á lægra gengi en almenningi var boðið, bréf þar sem mismunurinn á söluverði til al- mennings og þess verðs sem starfs- mönnum stóð til boða er sagður vera skattskyld hlunnindi. Jafti- framt hefur skattstjóri í hyggju að •^ita 25% álagi þar sem umrædd 'Tuunnindi hafa ekki verið færð til tekna í skattframtali. Starfsmönnum voru boðin hluta- bréf í lokuðu útboði í október sl. á genginu 1,26 en almenningi vora boðin og seld sömu hlutabréf á genginu 2,15 í almennu útboði í des- ember. í bréfi skattstjóra til eins af rtárfsmönnum, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, segir að kaup- verð hans þyki lágt miðað við það verð sem almenningi stóð til boða og verði ekki annað séð en að sá mismunur sem er á gangverði hlutabréfanna og því verði sem starfsmenn greiddu teljist til skatt- skyldra hlunninda. „Telja verður að ofangreindra hlunninda hafið þér alfarið notið á grandvelli starfssam- bands, sem uppbót á laun yðar það- an, eða vegna starfslokasamnings," segir í bréfinu. Ráðleggingar stjórnenda bankans samrýmast ekki niðurstöðum skattyfírvalda Skv. upplýsingum Morgunblaðs- ins era dæmi um að umræddur mis- munur á milli söluverðs til starfs- mannanna og gangverðs, sem skatt- stjóri h'tur á sem skattskyld hlunn- indi, geti numið á þriðja hundrað þúsund kr. í bréfi skattstjóra segir enn- fremur að embættið hafi í hyggju að beita 25% álagi skv. heimild í 106. grein tekjuskattslaganna. Ekki verði annað séð en að skýrt liggi fyrir að framtalsskilum hafi ekki verið hagað með réttum hætti „þar sem framteljanda mátti ljóst vera að ráðleggingar stjórnenda Búnaðarbanka Islands hf. og at- hafnir samrýmast ekki niðurstöð- um skattyfirvalda, sbr. ódagsett bréf Búnaðarbanka íslands hf. og almennum skyldum hans, sem launagreiðanda svo sem kveðið er á í gildandi ákvæðum skattalaga", segir í bréfi skattstjórans í Reykjavík. Morgunblaðið/Ómar Fumlaus hjóla- brettameistari HANN sýndi snilldartilþrif þessi hjólabrettameistari þegar hann lét sig renna niður eftir handriði á Ingólfstorgi í blíðviðrinu í gær. Hver hreyfing virðist útmæld og svo virðist sem hann svífi í lausu lofti. Engum sögum fer af lend- ingunni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.