Morgunblaðið - 15.06.1999, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
GUÐGEIR Ragnarsson, bóndi á Hjarðargrund, og Ármann Halldórs- SKRIÐAN átti ekki langt ófarið að íbúðarhúsinu eins og sjá má og alls
son við upptök skriðunnar í fjallinu ofan við Hjarðargrund. Stálið þar má ætia að um tíu hektarar gróins iands hafi farið undir skriðuna.
sem skriðan brotnar frá er ailt að 5 metrar á hæð.
Aurskriða féll fyrir ofan bæinn Hjarðargrund á Jökuldal
Skriðan stöðvaðist 100
metra frá íbúðarhúsinu
Vaðbrekku, Jökuldal. Morgunblaðið.
STÓR aurskriða féll fyrir ofan bæinn
Hjarðargrund á Jökuldal að morgni
sunnudags. Skriðan er um einn kíló-
metri á lengd og um 200 metrar á
breidd, þar sem hún er breiðust, og
teygir sig langleiðina niður undir
íbúðarhúsið á Hjarðargrund. Aðeins
rúmir 100 metrar eru ffá íbúðarhús-
inu að skriðunni svo að óst er að hús-
ið hefur verið í nokkurri hættu.
Mildi að ekki varð manntjón
Að sögn Guðgeirs Ragnarssonar,
bónda á Hjarðargrund, féll skriðan á
milli klukkan fimm og níu á sunnu-
dagsmorgninum og mildi var að hún
náði ekki niður að bæ, þar sem móðir
hans býr, og að ekki varð manntjón.
Tjón á gróðurlendi er nokkurt, þar
sem ætla má að tíu hektarar gróins
lands hafi farið undir skriðuna, auk
þess sem hún skemmdi girðingu ut-
an um trjágarðinn við bæinn.
Vonar að féð hafí sloppið
Guðgeir sagðist hafa verið nýbú-
inn að sleppa lambfé í hlíðina þar
sem skriðan féll. Kvöldið áður
sleppti hann þangað um þrjátíu
lambám og allt að hundrað kindum,
flestum með lömb, síðustu tvo dag-
ana áður. Guðgeir sagðist vona að
féð hefði sloppið. Skriðan væri hins
vegar svo stór og blaut að ekki væri
hægt að rannsaka hana náið nú. Þó
sæist ekkert fé í jöðrum skriðunnar
og þess vegna vonaði hann að þarna
hefði farið betur en á horfðist.
Allt að tíu hektarar
undir skriðuna
Skriðan fer af stað í hjallabrún
uppi undir fjallsbrún fyrir ofan
Hjarðargrund, upptökin eru um 30
metra breið og stálið allt að 5 metra
hátt. Síðan steypist hún niður snar-
bratta hlíðina um 50 metra breið og
um það bil 500 metra löng niður á
jafnsléttu. Þegar skriðan kemur
niður á sléttuna er krafturinn svo
mikill að hún grefur gíg við
brekkuræturnar, um það bil 50
metra í þvermál. Þar fer mesti
krafturinn úr henni áður en hún
breiðist 500 metra löng og 200
metra breið um sléttan hjalla fyrir
ofan bæinn og nær alveg heim í
trjágarðinn við húsið. Það er Ijóst
að bæjarhúsin sleppa vegna þess að
skriðan missir mikinn kraft þegar
hún grefur gíginn við brekkuræt-
umar og hjallinn fyrir ofan bæinn
er það breiður að skriðan stoppar
að mestu á honum.
Innritun í fram-
haldsskóla lokið
Flestir
sækja um
Iðnskólann
AÐSÓKN 1 framhaldsskóla
landsins er álíka mikil nú og
síðustu ár, að sögn Karls Krist-
jánssonar, deildarsérfræðings í
menntamálaráðuneytinu. Um
2.600 nemendur í Reykjavík
sóttu um skólavist að þessu
sinni en innritun lauk 5. júní
síðastliðinn.
„Þetta virðist ætla að ganga
upp að mestu leyti, þ.e. að allir
nýnemar fái skólavist,“ sagði
Karl. Að hans sögn er um tvo
hópa að ræða, þ.e. annars veg-
ar nýnema eða þá sem voru að
ljúka samræmdum prófum og
hins vegar þá sem eru að flytja
sig á milli skóla.
Flestir sóttu um nám í Iðn-
skólanum, um 1100 nemendur,
en tölvu- og hársnyrtibrautir
skólans laða marga nemendur
að og má búast við að einhverjir
fái ekki inngöngu og verði að
bíða um sinn. Um 900 manns
sóttu um Fjölbrautaskólann í
Breiðholti en þar er það einna
helst lista- og snyrtibrautin sem
trekkja að nemendur og má bú-
ast við að um 400 nemendum
verði vísað frá. Þó er búist við
að flestir nýnema fái inngöngu.
Þótt búið sé að skipa í alla þá
225 stóla sem ætlaðir eru ný-
nemum Menntaskólans í
Reykjavík í haust var það ekki
gert fyrr en í annarri umferð,
þ.e. eftir að þeir sem valið höfðu
skólann sem sinn annan kost
höfðu verið teknir með í reikn-
inginn.
Morgunblaðið/Jón Sig.
Aurskriður falla
í Vatnsdal
MIKLAR aurskriður hafa fallið í
vorleysingunum í Vatnsdal frá því á
laugardag og lokaði lögreglan vegin-
um til öryggis við bæina Hjallaland
og Bjamastaði síðdegis í gær. Að
sögn Ellerts Pálmasonai’, bónda á
Bjamastöðum, er óhemjumikill snjór
í fjallinu fyrir ofan bæinn og þegar
fór að hlýna vemlega í síðustu viku
safnaðist mikið vatn fyrir í fjallinu.
Sagði Ellert að skriðumar hefðu
byrjað að falla úr fjallinu eftir bæj-
arlæknum á laugardag og stóðu
skriðuföllin fram á aðfaranótt
Óánægja með
ÓANÆGJA sveitarstjómar með að
Gunnlaugur Júlíusson, sveitarstjóri á
Raufarhöfn, sótti um starf sem bæj-
arstjóri í Homafirði í febrúar síðast-
liðnum er ástæða þess að lýst var
vantrausti á hann, samkvæmt heim-
ildum blaðsins. Þessi ástæða er bók-
uð í gerðabók sveitarfélagsins. Gunn-
mánudags. „Skriðumar era um 100
metrar á breidd," sagði hann, en ýta
og grafa sáu um að halda þeim í
skefjum og aftra því að þær breidd-
ust út þegar mest gekk á. „Skrið-
urnai- voru margar og féllu hægt og
rólega niður fjallið, þegar lækurinn
óx og reif allan þennan aur með
sér,“ sagði Ellert. „Þetta er
óhemjumagn sem er komið niður
lækinn og hefur runnið út í Vatns-
dalsvatn um tveggja km leið. Það er
reyndar ennþá mikið vatn í læknum
og er hann eins og á á að líta.“
starfsumsókn
laugur hefur nú sagt upp starfi sínu.
Lýst var vantrausti á Gunnlaug
þar sem hann hefði sótt um starf
sem bæjarstjóri í Homafirði. Gunn-
laugur vill sjálfur sem minnst tjá
sig um málið en vísar því hins vegar
á bug að ástæða uppsagninnar sé að
óánægja hafi ríkt með störf hans.
Clinton þakkar forsætisráðherra
stuðninginn með símtali
DAVÍÐ Oddsson for-
sætisráðherra og
Bill Clinton Banda-
ríkjaforseti ræddust
stuttlega við í síma á
laugardagskvöld
vegna Kosovo. í
fréttatilkynningu frá
forsætisráðuneytinu
segir að Bandaríkja-
forseti hafí hringt í
forsætisráðherra til
að fara yfír stöðu
mála nú þegar hern-
Bill Clinton
aðaraðgerðum Atlants-
hafsbandalagsins gegn
Júgóslavíu væri lokið.
Bandaríkjaforseti
sagði forsætisráðherra
að hann mæti mikils
stuðning íslenskra
stjórnvalda á vettvangi
Atlantshafsbandalags-
ins við aðgerðimar
gegn Júgóslavíu. Þá
voru þeir sammála um
að bandalagið hefði
styrkst enn frekar fyrir
samheldni og einurð ríkja þess í
málinu, sem hefði ráðið úrslit-
um um árangurinn og staðfest
að það gegndi lykilhlutverki í
Evrópu.
í frétt frá AP-fréttastofúnni
segir að Bandaríkjaforseti hafí
hringt í kollega sína í Dan-
mörku, Noregi, íslandi, Pól-
landi og Albaníu í fíugi á leið-
inni frá Chicago til Washington
til þess að þakka þeim fyrir
stuðning landa þeirra á meðan
á átökunum stóð.
Margrét Frímannsdóttir um forystu Samfylkingarinnar
Of mikið gert úr
orðum mimim
MARGRÉT Frímannsdóttir, tals-
maður Samfylkingarinnar, segir að
of mikið hafi verið gert úr orðum
hennar um hugsanlegan forystu-
mann Samfylkingarinnar í fjölmiðl-
um um helgina. „Það sem ég sagði
einungis var að það er mín persónu-
lega skoðun að það sé ekkert endi-
lega sjálfgefið að það séu forystu-
menn A-flokkanna sem verði í fram-
boði til forystu í Samfylkingunni.
Þar megi alveg eins og ekki síður
hugsa sér einhvem þriðja aðila.
Auðvitað kemur sá einstaklingur úr
Samfylkingunni. Það er fáránlegt
að ætla annað,“ sagði Margrét í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Hún sagðist einungis hafa sagt að
sá hópur sem hugsanlegur forystu-
maður Samfylkingarinnar gæti
komið úr væri stærri en hópur nú-
verandi forystumanna A-flokkanna.
„Ég hef alla tíð sagt að mér fyndist
það skynsamlegt að einblína ekki á
núverandi forystu A-flokkanna
heldur eigi þar fleiri að koma til, en
auðvitað er það fólk innan Samfýlk-
ingarinnar, A-flokkanna, Kvenna-
listans og óháðra, sem ákveður
þetta,“ sagði Margrét.
Hún sagði að hún teldi engan úti-
lokaðan í þessum efnum. Hún hefði
ævinlega verið þeirrar skoðunar að
það væri skynsamlegt fyrir nýjan
flokk eins og Samfylkinguna að
horfa ekki einungis til forystu-
manna þeirra flokka sem hana
mynduðu.
Aðspurð hvort þetta þýddi að
hún myndi ekki sækjast eftir þessu
hlutverki, sagðist Margrét ekki
enn hafa gert það upp við sig. Hins
vegar teldi hún hitt skynsamlegra,
en það væri auðvitað flokksins þeg-
ar þar að kæmi að velja sér forystu
og ákveða hvernig hún væri skip-
uð.
Aðspurð sagði hún að tilgangur-
inn með því að ræða þessa hluti nú
væri einungis sá að ræða þau al-
mennu sjónarmið sem eðlilegt væri
að leggja til grundvallar þegar
gengið yrði til þessa verks. Hins
vegar væri nægur tími til þess því
ekki væri gert ráð fyrir að Samfylk-
ingin yrði að formlegu stjómmála-
afli fyrr en á næsta ári, árið 2000, og
það væri ekki fyrr en eftir að það
hefði verið gert sem flokkurinn
myndi kjósa sér forystu.