Morgunblaðið - 15.06.1999, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 15.06.1999, Blaðsíða 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR * Friðlýsing- ar Islands krafist MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá Samtökum herstöðvaandstæðinga vegna her- æfmganna Norðurvíkings 99: „Samtök herstöðvaandstæðinga lýsa undrun sinni og vanþóknun á þeim heræfingum sem fara fram hér á landi hvað eftir annað undir nafninu Norðurvíkingur. Það er forkastanlegt hvemig hersveitir eru látnar vaða hér út um allt, í byggð og óbyggð og jafnvel inn í Reykjavík, og furðulegt að sveitar- stjórnir og borgarstjórn Reykja- víkur skuli láta slíkt óátalið. Þá er það líka fyrir neðan allar hellur að Almannavamir ríkisins, Rauði krossinn og björgunarsveitir skuli láta hafa sig í slíkt samkmll við vígamenn, eins og gerðist fyrir tveimur ámm, sem og að lögreglan og Landhelgisgæslan skuli dregn- ar inn í þetta hernaðarbrölt nú undir því yfirskini að verið sé að æfa vamir gegn hryðjuverkamönn- um. i?að er vandséð hvað lágflug ormstuflugvéla yfir afréttum og fiskimiðum kemur störfum ís- lenskra lögreglumanna við. Nægar em ferðir ormstuflugvéla NATO orðnar á þessu vori og við frábiðj- um okkur ferðir þeirra innan lög- sögu Islands. Við krefjumst friðlýs- ingar Islands, við krefjumst þess að allar herstöðvar hér verði lagðar niður og Island segi sig úr NATO.“ & GÓLFEFNABÚÐIN Borgartúni 33 flfaar i^jyæða parket ^jyóð verð ^jyóð þjónusta Styrkþegar árið 1999 ásamt dómnefnd. Málningarstyrkir Hörpu 1999 Fimmtán hlutu styrk MALNIN GARVE RKSMIÐ JAN Harpa afhenti málningarstyrki á Hótel Sögu þriðjudaginn 8. júní í boði fyrir styrkþega. Þetta er í ann- að sinn sem Harpa veitir málningar- styrki af þessu tagi, en það var fyrst gert á síðasta ári. Samkvæmt upplýsingum frá Hörpu er styrkurinn hugsaður til að hvetja landsmenn til að mála og fegra umhverfi sitt. Jafnframt viil Harpa styðja við bakið á einstaklingum, fé- lögum og samtökum sem hafa forystu um góð málefni af þessu tagi. Alls fara um 2.500 lítrar af Hörpumáln- ingu í þessi verkefni og er verðmæti þeirra rúm ein milljón króna. Fimmtán aðilar fengu styrk að þessu sinni en þeir voru þrettán á síðasta ári og að sögn Vigfúsar Gísla- sonar, sölustjóra Hörpu, barst þeim fjöldi umsókna sem þeim var vandi á höndum að velja úr. Dómnefndina skipuðu, auk Vigfúsar, þeir Helgi Magnússon, framkvæmdastjóri Hörpu, og Ólafur Jónsson, fyrrver- andi formaður Málarameistarafélags Reykjavíkur. Styrkina hlutu: Félag áhugamanna um minjasafn fyrir Síldarminjasafnið Húsbréf Útdráttur húsbréfa Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í eftirtöldum flokkum: 1. flokki 1989 - 35. útdráttur 1. ftokki 1990 - 32. útdráttur 2. flokki 1990 - 31. útdráttur 2. flokki 1991 - 29. útdráttur 3. flokki 1992 - 24. útdráttur 2. flokki 1993 - 20. útdráttur 2. ftokki 1994 - 17. útdráttur 3. flokki 1994 - 16. útdráttur Koma þessi bréf til innlausnar 15. ágúst 1999. Öll númerin veróa birt í Lögbirtingablaðinu. Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum hér að ofan birtí dagblaðinu Degi þriðjudaginn 15. júni. Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja frammi hjá íbúðalánasjóði, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafýrirtækjum. Ibúðalánasjóður Suðurlandsbraut 24 108 Reykjavík Sími 569 6900 Fax 569 6800 á Siglufirði, Skátafélagið Hraunbúar, Hafnarfirði íyrir Skátaskála, Blindrafélagið í Reykjavík fyrir fé- lagsmiðstöð, Brunavarnir Arnessýslu fyrir slökkvistöð, Thorvaldsensfélag- ið fyrir Austurstræti 4 í Reykjavík, Græni herinn fyrir ýmis verkefni á íslandi í sumar, KFUM og K á Akra- nesi fyrir sumarbúðir í Ölveri í Mela- sveit, Hússtjórnarskólinn í Reykja- vík fyrir Sólvallagötu 12, Styrktarfé- lag vangefinna fyrir Dagheimilin Lyngás, Lækjarás og Bjarkarás, Birna Hjaltalín Pálsdóttir í Bolung- arvík íyrir tvö aldamótahús á Hest- eyri, Hjálpræðisherinn í Reykjavík íýrir Herkastalann, Björgunarsveitin Albert á Seltjamarnesi fyrir nýbygg- ingu, Skálafélagið Tryggvaskáli á Selfossi fyrir endurbyggingu Tryggvaskála, Siglingaklúbburinn Siglunes í Reykjavík fyrir húsnæði í Nauthólsvík og að lokum Ingibjörg Sigurðardóttir o.fl. fyrir Jósafatshús í Stykkishólmi, en það var byggt árið 1900. Harpa hefur ákveðið að koma til móts við þá sem ekki hlutu styrk, og jafnframt önnur félög, með því að veita þeim sérstök kjör á málningu sé hún keypt vegna góðgerðarfélaga, menningarfélaga, íþrótta- og ung- mennafélaga eða sambærilegrar starfsemi. LEIÐRÉTT Rangt nafn trommuleikara I umfjöllun um hljómplötu hljóm- sveitarinnar Sigur Rósar misritað- ist nafn trommuleikara hennar. Hann heitir Agúst Ævar Gunnars- son. Beðist er velvirðingar á þessu. Loftþurrkarar Allar stærðir og gerðir af þurrkurum. Hagstætt verð. Hreint og þurrt loft sparar bæði vinnu og fjárútlát. PAÐ LIGGUR I LOFTINU AVSHAGt/iKI Hf= Garösenda 21,108 R.vík. Sími 568 6925. Morgunblaðið/Árni Sæberg Úrskurðar- nefnd al- mannatrygg- inga skipuð INGIBJÖRG Pálmadóttir, heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað úrskurðarnefnd al- mannatrygginga. í nefndinni sitja þrír fulltrúar, þar af tveir tilnefndir af Hæstarétti. „Þetta er sjálfstæð, óháð úr- skurðarnefnd, sem hefur það hlut- verk að skera úr í ágreiningsmálum sem upp koma á milli Trygginga- stofnunar ríkisins og þeirra sem hafa samskipti við TR um grund- völl, skilyrði og upphæð bóta frá stofnuninni. Tilgangurinn er að færa stjórnkerfi Tryggingastofnun- ar ríkisins nær nútímaviðhorfum stjómsýsluréttar og með því tryggja betur rétt almennings. Tryggingaráð sinnti áður þessu hlutverki, en eftir lagabreytingu 11. mars síðastliðinn verður hlutverk þess að stjórna og hafa eftirlit með Tryggingastofnun, eins og nánar er mælt fyrir um í lögum um almanna- tryggingar. Tryggingaráð hefur úrskurðað árlega í hátt á fjórða hundrað mál- um og þykir ástæða til að sérstök nefnd fari með þetta mikilvæga hlutverk á sviði almannatrygginga. Samkvæmt lögunum skipar heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra þrjá menn og jafn marga til vara í úrskurðarnefndina til sex ára í senn. Formaður og varamaður hans skulu uppíylla skilyrði sem sett eru um embættisgengi héraðs- dómara. Varaformaður og vara- maður hans skulu vera læknar. Þeir sem skipa úrskurðarnefnd almannatrygginga eru: Friðjón Örn Friðjónsson, hrl., formaður, Guðmundur Sigurðsson, læknir, varaformaður, Þuríður Arnadóttir, lögfr. Framkvæmdastjóri nefndarinnar er Steinunn M. Lárusdóttir, lög- fræðingur. Úrskurðarnefnd almannatrygg- inga verður til húsa að Laugavegi 103, 105 Reykjavík," segir í frétta- tilkynningu frá heilbrigðisráðuneyt- Sögukennarar mótmæla nýrri námsskrá MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ákyktun frá Félagi sögukennara: „Með gildistöku nýrrar námskrár 1. júní sl. hefur skipulag sögu- kennslu gjörbreyst. Sögukennarar telja óhugsandi að hefja kennslu samkvæmt þeirri skipan nema til komi algerlega nýjar námsbækur. Fundurinn leggur áherslu á að vel verði staðið að námsefnisgerð svo að kennarar geti valið úr góðum bókum. Það er á ábyrgð mennta- málaráðuneytisins að svo verði. Vegna smæðar markaðarins hér er þetta vart mögulegt nema til komi rausnarlegt framlag ráðuneyt- isins, bæði til námsefnisgerðarinnar og endurmenntunar kennara. Fundurinn ítrekar því fyrri ályktun fundar sögukennara í janúar sl. um nauðsyn þessa.“ Vinningshafi fékk handunna leðurvöru „SÍÐUSTU vikuna í maí gafst út- skriftarnemum tækifæri til að skrá sig í leik hjá Valdísi Gunnarsdóttur á útvarpsstöðinni Matthildi. I vinn- ing var handunnin leðurvara frá Leðuriðjunni ehf. Tilefni leiksins var það að verslun Leðuriðjunnar á Laugavegi 15 var að fá nýtt nafn, Leðurbúðin," segir í fréttatilkynn- ingu frá Leðurbúðinni. „Hinn 31. maí síðastliðinn var nafn hins heppna dregið út. Vinningurinn, Fundamappa úr kálfaskinni og hlýra- roði, er framleiddur hjá Leðuriðjunm ehf. Hverfisgötu 52. Leðuriðjan, sem framleiðir Atson-Ieðurvörurnar, var stofnuð árið 1936 og hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar frá upp- hafi. Einungis er notað fyrsta flokks hráefni og eru allar vörurnar hand- unnar, enda er gott handverk aðals- merki íyrirtækisins. Hér sést vinningshafinn, Helena Sif Kristjánsdóttir, sem útskrifaðist úr leikskólaskor í Kennaraháskóla Islands laugardaginn 5. júní, taka á móti vinningnum af Söndru Grétars- dóttur, verslunarstjóra Leðurbúðar- innar," segir þar jafnframt. /TIGFk SLATTUVELAR Útsölustaðir um allt land Notendavænar Margar gerðir Landsþekkt varahlutaþjónusta VETRARSOL HAMRABORG 1-3 • Sími 564 1864
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.