Morgunblaðið - 15.06.1999, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Kristnihátíð Vestfjarða á Patreksfírði
Frumflutt
voru tvö vest-
firsk tónverk
Patreksfirði - í Landnámu segir frá
því er Örlygur kom til Örlygshafnar
í Patreksfirði með kirkjuviði og
helga gripi. Má telja víst að fyrsta
íslenska messan hafi verið sungin á
sandinum þar sem hann tók land. Á
vorfundi Prestafélags Vestfjarða
árið 1998 var ákveðið að minnast
þessa sögulega atburðar með sam-
eiginlegri messu og hátíðarhöldum
Vestfirðinga vegna 1.000 ára afmæl-
is kristnitöku íslendinga. Hátíðin
var sl. sunnudag í Félagsheimili
Patreksfjarðar og hófst hún með
messu.
Messan er „gamla messan" með
Gregor-tónlagi, sem notað hefur
verið frá upphafi íslenskrar kristni.
Sálmar voru vestfirskir og frumflutt
voru tvö verk sem samin voru af til-
efninu. Prestar Vestfjarða önnuðust
messuna en 70 manna sameiginleg-
ur kirkjukór af Vestfjörðum söng
undir stjórn Helgu Gísladóttur.
Biskup íslands prédikaði, Haraldur
Bragason og Hulda Bragadóttir
léku á orgel. Sérstakir heiðursgest-
ir Vestfirðinga á þessum degi voru
biskup Islands, herra Karl Sigur-
bjömsson, og forseti Islands, herra
Olafur Ragnar Grímsson, sem flutti
hátíðarræðu.
Formaður kristnihátíðarnefndar
Vestfjarða sr. Hannes Bjömsson og
Haukur Már Siguðrsson, formaður
Fjórðungssambands Vestfjarða,
fluttu ávarp. Guðrún Jónsdóttir
sópransöngkonasöng einsöng, Unn-
ur Tara Jónsdóttir og Jónína Birg-
isdóttir nemendur í 4. bekk Pat-
reksskóla fluttu ljóð frá Vestfjörð-
um og leikþáttur var fluttur af leik-
húsinu frá Isafirði.
Eldri borgarar sem þjónað hafa
kirkju sinni af sérstakri alúð vom
heiðraðir og síðan vora veitingar
bomar fram. Þar má nefna harð-
fisk, reyktan rauðmaga, hangiket,
bjargfulgsegg, hveitikökur, rúgkök-
ur og annað vestfirskt góðgæti. Há-
tíðin var vel sótt og þótti takast vel í
alla staði.
Morgunblaðið/Ingibjörg Guðmundsdóttir
ANNAR heiðursgesturinn á hátíðinni var biskup íslands, herra Karl Sigurbjömsson, sem er hér ásamt for-
manni kristnihátíðarnefndar Vestfjarða, sr. Hannesi Bjömssyni og í baksýn er 70 manna kór af Vestfjörðuin.
UNNUR Tara Jónsdóttir flutti
yóð frá Vestíjörðum fyrir gesti.
HERRA Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, var heiðursgestur á
hátíðinni. Hann situr hér við hlið Þórólfs Halldórssonar sýslumanns.
Girt frá
Laxárbrú
að Skjálf-
andafljóti
Húsavík - Vegagerð ríkisins
girðir á þessu sumri meðfram
veginum frá Laxárbrú, suður Að-
aldalshraun og allt vestur að
Skjálfandafljótsbrú. Nú eru
staurarnir ekki úr rekaviði held-
ur úr stáli og ekki fimm strengja
gaddavírsgirðing eins og áður
tíðkaðist. Vírinn er sléttur en á
girðingunni er rafstraumur sem Morgunblaðið/Silli
skepnur forðast mjög. ÞAÐ er þægilegra að reka niður þessa staura en gömlu tréstaurana.
ÚTSKRIFTARNEMAR 10. bekkjar.
Morgunblaðið/RS
Grunnskóli Sandgerðis 60 ára
Sandgerði - Við skólaslit sem að
þessu sinni fóru fram í Safnaðar-
heimilinu í Sandgerði kom fram í
ræðu skólastjóra Guðjóns Krist-
jánssonar að 60 ár eru síðan skóla-
hald hófst í núverandi húsnæði skól-
ans við Skólastræti. Áður voru tveir
skólar í Miðneshreppi að Hvalsnesi
og við Skólatjörn. Á þeim sex ára-
tugum sem liðnir eru hafa orðið
miklar breytingar í öllu skólastarfi
frá því að tveir kennarar í rúmlega
100 fermetra húsnæðis sinntu allri
kennslu sem á sínum tíma þótti
gott.
I dag er skólinn f um 3.200 fer-
metra húsnæði og kennarar 32. Á
síðasta skólaári vora 294 nemendur
við skólann. Að loknum skólasiitum
í Safnaðarheimilinu bauð bæjar-
stjórn Sandgerðis ásamt foreldrafé-
lagi skólans nemendum og gestum í
afmælisveislu í sal grunnskólans.
Nemendur níunda og tíunda
bekkjar eru nýkomnir úr skóla-
ferðalagi til Danmerkur og tókst sú
ferð mjög vel.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
HINIR heppnu Húnvetningar í Búnaðarhankanum á Blönduósi: Frá
vinstri Ragnar Albertsson, Hjálmar Þór Aadnegaard, Hulda Hákonar-
dóttir sem tók við styrknum f.h. Þóru Margrétar Lúthersdóttur og úti-
biísstjórinn Svanborg Þ. Frostadóttir.
Þrjú hlutu styrki
Blönduósi - Austur-húnvetnsk ung-
menni vora heldur betur heppin
þegar dregið var síðast um hverjir
hlytu annarsvegar bflprófsstyrk og
hinsvegar vaxtalínustyrk Búnaðar-
bankans.
Ragnar Aibertsson á Blönduósi
og Þóra Margrét Lúthersdóttir úr
Vatnsdal hlutu bílprófsstyrk að
upphæð 10.000 kr. og auk þess
75.000 kr. uppígreiðslu á bfl ef þau
kaupa hann hjá Bflaþingi Heklu.
Hjálmar Þór Aadnegaard datt í
lukkupottinn og fékk dágott inn-
legg á vaxtalínureikning sinn í
Búnaðarbankanum. Það var Svan-
borg Þ. Frostadóttir útibússtjóri
sem afhenti hinum stálheppnu við-
skiptavinum Búnaðarbankans
styrkina.
Morgunblaðið/Áki
Handverk á Bakkafirði
Bakkafirði - Við skólalok grunn-
skóla Bakkafjarðar var opnuð
sýning á handverki nemenda
grunnskólans. Á sýningunni voru
skúlptúrar úr rekavið, dagatöl á
timbri, skálar úr gleri og heima-
sfður á netinu svo eitthvað sé
nefnt.
Það var samdóma álit þeirra
sem Morgunblaðið talaði við að
aldrei hefði verið jafn mikið af
fallegum hlutum til sýnis og nú
eftir þetta vetrarstarf. Að sögn
skólasjórans, Sigríðar Hlöðvers-
dóttur, má þakka það menntuð-
um handverksmenntakennara og
því að aukið var við kennslu í
handmennt.