Morgunblaðið - 17.06.1999, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Arnaldur
FÁLKINN með unga sína en verkaskipting er milli kynja hjá fálkum og sér kvenfuglinn um að liggja á og
gæta unganna í hreiðrinu eins og kemur fram í Fuglum íslands eftir Hjálmar R. Bárðarson.
TÍGULEGT flug fálkans
í leit að æti.
Fálkar á
hreiðri
FÁLKAPAR með þrjá bragglega
unga hefur komið sér fyrir í
hreiðri á Austurlandi. Áð sögn
heimamanna er þetta ekki í
fyrsta sinn sem parið leitar á
þessar slóðir og hefur sést til
þeirra rífa til sín rjúpur og færa
ungunum, en rjúpan er mikil-
vægasta fæða fálkans.
Rétt er að taka fram að um-
hverfisráðuneytið veitti heimiid
til myndatöku.
Fjallað um virkjunaráform norðan Vatnajökuls f Aftenposten
WWF telur málið vekja
athygli norsks almennings
Margir
gefa blóð
NEYÐARKALLI Blóðbankans
hefur verið vel svarað af almenningi
og fólk hefur flykkst í bankann til
að gefa blóð. Við það hefur staðan
batnað verulega en að sögn Bjargar
Ólafsson hjá Blóðbankanum eru
þau ekki enn sloppin, svo að þau
vonast eftir að fleira fólk komi á
næstu dögum.
Björg segir að síðustu þrír dagar
hafi verið alveg frábærir og í gær
komu 154. Par af gáfu 110 blóð í
poka en hinir 44 voru skráðir sem
nýir blóðgjafar. Hún vildi ítreka að
enn vantaði meira blóð þrátt fyrir
góð viðbrögð fólks og minnti á að
Blóðbankinn væri opinn frá 8-14 á
föstudaginn.
-------------
Sláttur haf-
inn undir
Eyjafjöllum
ÓLAFUR Eggertsson, bóndi á Þor-
valdseyri undir Eyjafjöllum, hóf
slátt í gær og sló fimm hektara. Ólaf-
ur sagði að það hefði áður komið fyr-
ir að sláttur hæfist um miðjan júní á
þessu svæði en þetta sýndist kannski
óvenjusnemmt vegna kuldans sem
hafi ríkt að undanfómu. Að sögn
Ólafs lá orðið á að slá þetta tún en nú
yrði gert hlé í þrjá til fjóra daga en
svo hæfist sláttur á ný. Ólafur sagði
að útlit væri fyrir að sláttur hæfist
almennt eftir viku eða tíu daga á
bæjum undir Eyjafjöllum.
Ekki var nóg með að Ólafur hæfí
slátt í dag heldur hirti hann af tún-
inu líka. Hann heyjar í súrhey og
seint í gærkvöld sagði hann að allt
heyið væri komið í tuminn. Að sögn
Ólafs lítur ágætlega út fyrir
sprettu.
Morgunblaðið/Þorkell
Fengu kort fyrir
för í Dimmugljúfur
Umhverfisverndarsamtökin
World Wide Fund for Nature hafa
opnað fyrir opinbera umræðu í Nor-
egi um fyrirhuguð virkjunaráform
norðan Vatnajökuls með því að upp-
lýsa norska fjölmiðla um hvað sé í
húfi hérlendis.
Peter Prokosch, framkvæmdastjóri
WWF Arctic Programme, sagðist
telja að málefnið myndi vekja athygli
almennings í Noregi sem væri mjög
meðvitaður um umhverfismál og
byggingu vatnsaflsvirkjana. ,Aðilar í
ríkisstjóm íslands, sem ég get ekki
gefið upp hverjir em, sögðu okkur að
ef við vildum hjálpa til við að bjarga
hálendi íslands yrðum við að tala við
Norsk Hydro og sannfæra þá um að
hætta við sín áform um að eiga hlut í
álverinu. Ef við gerðum það myndi
það marka stór skref fram á við við að
bjarga hálendinu," sagði Peter Pro-
kosch, en fulltrúar samtakanna hafa
þegar átt slíkan fund með fulltrúum
Norsk Hydro.
Opinber umræða er greinilega
hafin í Noregi en í dagblaðinu Aften-
posten í dag er fjallað um málið und-
ir fyrirsögninni „Stærstu ósnortnu
víðemi Vestur-Evrópu í hættu“. í
greininni er sagt frá baráttu nátt-
úruverndarsinna, „með fyrrverandi
forseta lýðveldisins, Vigdísi Finn-
bogadóttur, í fararbroddi“, fyrir frið-
un hálendisins. Er meðal annars
sagt frá því að virkjunaráætlanimar
muni hafa áhrif á stórbrotin gljúfur
og votlendissvæði með þrjú árkerfi.
Alta-virkjunin smámunir
í samanburði við þetta
Vitnað er í Prokosch í greininni
þar sem hann segir fórnimar sem
færðar vom við byggingu Alta- og
0vre Otta-virkjananna í Noregi séu
smámunir í samanburði við það sem
verði fórnað á íslandi nái áætlanim-
ar fram að ganga, en Alta-virkjunin
vakti upp heiftug mótmæli í Noregi á
sínum tíma.
Þá staðfestir Thomas Knutzen,
upplýsingafulltrúi Norsk Hydro, í
greininni það sem Helge Stiksrud,
upplýsingafulltrúi fyrirtækisins um
umhverfismál, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að ef íslendingar
vilji byggja virkjunina sem sjái álver-
inu fyrir orku, þá muni fyrirtækið
ekki blanda sér í þau mál. „Island hef-
ur akveðið að virkjunin verði reist og
ef Islandi er sama um náttúruspjöllin
getum við einnig lifað með þeim,“ er
haft eftir Knutzen í greininni.
Prokosch sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að WWF myndi
fylgja þessari kynningu á málinu eft-
ir í fleiri fjölmiðlum í Noregi. Sagði
hann að samtökin væru einnig í sam-
bandi við fjölmiðla á alþjóðavísu og
til dæmis hefði evrópsk sjónvarps-
stöð lýst yfir áhuga á að gera sjón-
varpsþátt um efnið.
Prokosch sagði að almenningur í
Noregi væri mjög meðvitaður um
umhverfismál og byggingu vatns-
aflsvirkjana, sérstaklega vegna
deilna um Alta-virkjunina sem hefðu
verið mestu deilur um umhverfismál
sem komið hefðu upp í Noregi. Sagði
hann jafnframt að norskir skatt-
greiðendur ættu rétt á að fá upplýs-
ingar um áform Norsk Hydro þar
sem fyrirtækið væri í meirihlutaeigu
(51%) norska ríkisins.
Prokosch sagði einnig að Helge
Stiksrud, upplýsingafulltrúi Norsk
Hydro um umhverfismál, hefði sagt
við sig fyrir nokkrum dögum að
ástæða þess að hann væri nú að fara
til íslands væri afleiðing af fundi
WWF með Norsk Hydro. Sagði
hann að fyrirtækið sæktist eftir því
að fá meiri upplýsingar og sagðist
Prokosch túlka þessi orð Stiksrud á
eftirfarandi hátt: „Norsk Hydro er á
þunnum ís og vill finna út af eigin
raun hvaða áhrif verkefnið sem þeir
eru að fara út í muni hafa á almenn-
ingsálitið. En eins og stendur eru
þeir sannfærðir um að Islendingar
séu hlynntir þessu verkefni," sagði
Prokosch.
ÓLAFUR Örn Haraldsson, al-
þingismaður og formaður um-
hverfisnefndar Alþingis, færði
leiðangursmönnum, sem ætla að
fara niður Dimmugljúfur á
gúmbátum, kort af gljúfrunum
er þeir voru að leggja af stað í
leiðangurinn í gærkvöld.
Ólafur Örn Haraldsson afhenti
kortið leiðangursmönnunum
Skúla Hauki Skúlasyni, Hauki
Parelíus og Hauki Hhðkvist
Ómarssyni. Ólafur Öm sagði við
afhendinguna að hann fagnaði
þessu einkaframtaki áhugasam-
taka að fara niður gljúfrin og
opna almenningi sýn í þau, en ætl-
unin er að taka kvikmynd af ferð-
inni. Fylgjast má með henni á
fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is.
Sérblöð í dag fW o X'iöitnlilab ib
Viðskiptablað
Morgunblaðsins
Sérblað um viðskipti/'atvinnulíf
Viðskiptablað
Morgunblaðsins
Fram og Leiftur úr leik í
bikarkeppninni C/1
Maurice Greene bætti heims
metið í 100 m hlaupi C/1
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is