Morgunblaðið - 17.06.1999, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 17.06.1999, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ h FRÉTTIR Morgunblaðið/Sverrir NOVA Media - Nýmiðlun ehf. hefur gangsett nýja leitarvél á Netinu, en hún sérhæfir sig í að leita að orðum á íslenskum heimasíðum. Frá vinstri: Hermann Auðunsson, sölu- og markaðsstjóri Nova Media og Guðmann Bragi Birgisson, frá Símanum - Interneti. Islensk leitarvél á Netinu gangsett Framkvæmdastjóri fbúðalánasjóðs Oviðunandi að afgreiðsla taki meira en mánuð GUÐMUNDUR Bjaniason, fram- kvæmdastjóri íbúðalánasjóðs, segir að það sé óviðunandi að það taki meira en mánuð að fá afgreitt hús- bréfalán frá sjóðnum. Unnið sé að því - og hafi raunar verið gert allt þetta ár - að slípa það form á lán- veitingum sem sett hafi verið upp um áramótin og fá það til þess að virka betur en það hafi gert, en for- maður Félags fasteignasala segir í Morgunblaðinu í gær að afgreiðslu- tími umsókna um húsbréfalán sé 5-6 vikur. Guðmundur sagði að að hluta til væri verið að vinna lánsumsóknir í bankakerfinu og að hluta til hjá sjóðnum og það ylli erfiðleikum. Meiningin væri að þetta færi enn frekar inn í bankakerfið þannig að viðskiptavinurinn gæti leyst sín mál að sem stærstum hluta í viðskipta- banka sínum og á sem skemmstum tíma. „Pað sem stendur á í því efni er að klára hér forritunarvinnu og tölvusamskiptin við bankakerfið, þannig að bankamir geti gefið út fasteignaveðbréfin og skipt á fast- eignaveðbréfum og húsbréfum, sem ekki er enn komið í gagnið, en er hluti af þeim samningi sem gerður var við bankana um áramótin," sagði Guðmundur. Fundur með bönkunum Hann sagði að þeir hefðu átt fund með bönkunum fyrir tæpum hálfum mánuði þar sem farið hefði verið yf- ir þessi mál og það væri fullur vilji af hálfu beggja aðila að reyna að leysa þetta og koma þessum sam- skiptum í það form sem samningur- inn gerði ráð fyrir hið allra fyrsta. Væntanlega yrði það þó ekki fyrr en með haustinu. Hann hefði síðan boðað fund með fasteignasölunum þar sem farið yrði yfir málin með þeim og hlustað á ábendingar þeirra um hvernig kerf- ið gæti virkað sem best. Aðspurður hvort þetta væri ekki áfellisdómur yfir þeirri breytingu sem gerð var á fyrirkomulagi þessar hluta um áramót sagðist Guðmund- ur enn þeirrar skoðunar að rétt væri að reyna að koma þessum viðskipt- um sem mest út í bankakerfið. Þá þyrfti viðskiptavinurinn ekki að sækja þjónustuna á marga staði. Morgunblaðið/Kristbjörg Lóa Árnadóttir INDRIÐI Aðalsteinsson, bóndi á Skjaldfönn, með refinn sem hann skaut á bæjarhlaðinu. Skjaldfönn við ísafjarðardjúp Refur náðist á hlaðinu NY íslensk leitarvél á Netinu var formlega gangsett af Bimi Bjama- syni menntamálaráðherra á Hótel Holti í gær. Vélin, sem rekin er af ís- lenska tölvufyrirtækinu Nova Media - Nýmiðlun ehf., sérhæfir sig í að leita að ákveðnum orðum á íslensk- um heimasíðum, en slóð leitarvélar- innar er: http://www.leit.is. Pó ber að geta þess að með því að smella á einn hnapp er hægt að leita að sama orði í stærri gagnagrunni, sem við- haldið er af Infoseek. Bjöm sagði í tilefni af gangsetn- ingu vélarinnar að þar sem nýjustu kannanir sýndu að um 82% Islend- inga hefðu aðgang að Netinu myndi hún vafalaust koma mörgum til nota. Björn ritaði síðan m.a. orðið Leifur Eiríksson í leitarvélina og fékk hann um 2.400 svör við þeirri fyrirspum. Vélin raðar svöram eftir því hvort leitarorðið kemur fyrir í fyrirsögn, merktu svæði eða í meg- inmáli. Pá er einnig hægt að raða svörum eftir aldri. Hermann Auðunsson, sölu- og markaðsstjóri Nova Media, sagði að vegna þess hversu Netið hefði þanist út síðustu ár hefði verið mikil nauð- syn á íslenskri leitarvél, þar sem stóra erlendu leitarvélamar færa æ sjaldnar á jaðarsvæði, eins og ís- land, til að leita að orðum á síðum. Notast við hugbúnað frá Infoseek Islenska leitarvélin byggir á hug- búnaði bandaríska tölvufyrirtækis- ins Infoseek, en að sögn Hermanns hefur það mikla reynslu á þessu sviði, þar sem það hefur rekið leitar- vél á Netinu í nokkur ár. Að sögn Halldórs Axelssonar, framkvæmdastjóra Nova Media, var ekki einungis samið við Infoseek vegna þess að þeir buðu góðan hug- búnað, heldur voru þeir tilbúnir til að vinna áfram með fyrirtækinu í að þróa leitarvélina. Hann sagði að fyr- irtækin myndu vinna saman að því að þróa leitarvélina á tungumála- sviðinu, með því að hanna einhvers konar þýðingarforrit. Þá sagði hann að í bígerð væri að þróa sérhæfðar leitarvélar, þar sem t.d. væri hægt að leita að ákveðnu orði innan ákveðins sviðs. Unnið hefur verið að því síðan um áramót að koma vélinni af stað, en áætlaður rekstrarkostnaður er um 10 til 20 milljónir á ári að sögn Her- manns. Nova Media hefur fengið styi'ki frá Símanum - Intemeti og EJS vegna leitarvélarinnar. REFUR gerði sig heimakominn í garðinum við bæinn Skjaldfónn við ísafjarðardjúp sunnan við Kaldalón fyrir skömmu. Þar var hann að atast utan í lömbum þeg- ar Indriði Aðalsteinsson bóndi kom að og skaut hann. Er þetta sjöundi refurinn sem hann nær frá sumarmálum. Indriði sagðist hafa átt leið fyrir húshomið þegar hann kom auga á ref rétt við tijágarðinn við húsið. „Þar stendur þá refur og virðir mig fyrir sér kannski ekki af minni undrun en ég hann,“ sagði Indriði. „Ég hörfaði í hvarf og fór inn um bakdymar til að ná í byssu og þegar ég kem út aftur og fyrir homið þá er ref- urinn kominn út úr garðinum og er að hoppa og snúast í kring um lömb sem voru í hlaðvarpanum. Þar skaut ég hann á 25 metra færi. Þetta var stór og frískur steggur." Indriði sagði að þetta væri sjö- undi refurinn sem hann næði síð- an á sumarmálum á og við túnið. „Þingmenn okkar Vestfirðinga hafa allir sem einn á síðustu tveimur þingum lagt fram þings- ályktunartillögu um að leyfa aft- ur veiðar í friðlandinu á Horn- ströndum en þeir hafa ekki verið vaskari en það að þeim hefur ekki tekist að koma því í gegn,“ sagði hann. „Ég er hér á byggð- aijaðri með sauðfjárbú og nytja einnig ijúpu sem hefur náttúr- lega snarminnkað. Allt fuglalíf er í stór voða vegna þessarar plágu sem hellist yfir okkur af þessu friðaða svæði.“ Benti hann á að Isafjarðarbær sem Snæíjallaströndin sameinað- ist sinnti engu um að fara á greni þrátt fyrir að bænum bæri skylda til þess. „Þá streymir þessi ófögnuður út úr friðlandinu og út úr þessu landi Isaíjarðar, þar sem ekki eru unnin greni og yfir okkur,“ sagði Indriði. „Það er ekki eingöngu í Hólmavíkur- hreppi heldur einnig í Arnes- hreppi á Ströndum sem þessi plága er. Það hafa náttúrlega verið þessir friðunarsinnar sem allt vilja friða og eru algerlega dottnir úr sambandi við eðlilegt líf sem hafa rekið upp ramakvein yfir þessum óskum þingmanna, sem hafa fylgt óskum okkar kjós- enda bæði hér um slóðir og fyrir norðan um að stemma stigu við þessu. Þeir átta sig náttúrlega ekki á því að það eru ekki ein- göngu iömbin sem við erum að reyna að vernda og veija heldur Iifríkið eins og það leggur sig, mófugl og annað. Að þetta skuli vera orðið svona mikið að maður geti næstum ekki þverfótað fyrir því hlaupandi innan um fé á tún- inu um miðjan dag sýnir í hvað stefnir." Island í miðjum hópi á EM í brids Góð byrjun hjá kvennaliðinu ÍSLAND er í 21. sæti af 37 þátttökuþjóðum eftir tíu umferðir í opnum flokki á Evrópumótinu í brids, en íslenska liðið vann m.a. Dani í gær og gerði jafntefli við Breta. Islenska kvennaliðið hóf keppni í gær og vann Grikki í fyrsta leiknum, 21-9. I opna flokknum tapaði íslenska liðið fyrsta leiknum í gær, 10-20, fyrir Iram, en vann síðan Dani 19-11 og gerði jafntefli, 15-15, við Breta. Eftir 10 umferðir er Island með 152 stig. Pólverjar eru efstir með 194 stig, Norðmenn hafa 192 stig, Italir og Svíar 191, Frakkar 188, Búlgarar 185, Spánverjar 183 og Belgar 182. Þrír leikir era í opna flokknum í dag og þá spilar ísland við Noreg, Austurríki og Holland. I kvennaflokknum spilaði Island við Svía í 2. umferð í gærkvöld en spilar í dag við Hollendinga, Frakka og Austurríkismenn. Mótinu lýkur 26. júní. ---------------- Færð á vegum GREIÐFÆRT er um helstu þjóð- vegi landsins, en víða er ófærð á fjallvegum, að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá Vegagerðinni. Lágheiði er ófær vegna aurbleytu og á Þorskafjarðarheiði takmarkast öxulþungi við 2 tonn. Uxahryggir og Kaldidalur eru jeppafærir og Kjal- vegur að norðan í Hveravelli. Búið er að opna um Skaftártungu í Eldgjá, í Lónsöræfi, um Hólssand og í Lakagíga. Aðrir hálendisvegir eru lokaðir vegna snjóa og aurbleytu. ------♦-♦■♦----- Réttindalaus á stolnum bil LÖGREGLAN í Kópavogi hafði í gær afskipti af réttindalausum öku- manni er hafði einnig tekið bílinn ófrjálsri hendi. Hafði ökumaðurinn ekki aldur til að aka bifreið. Einnig tók lögreglan á annan tug ökumanna fyrir of hraðan akstur í gær. ------♦-♦♦------ Mikið um árekstra ÓVENJUMIKIÐ var um árekstra í Reykjavík í gærdag en engin slys urðu á fólki. Að sögn lögreglunnar var þetta óvenjumikið miðað við að um miðvikudag var að ræða en það gæti hafa spilað inn í að í dag er frí- dagur hjá flestum. heimilisbankinn www.bi.is áhyggjulausífríi Þú velur greiðsludaginn - Heimilisbankinn borgar reikninginn fzefcmfíK tutiorytitonir IM 2000 ®BÚNAÐARBANKINN Traustur banki S k í m a
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.