Morgunblaðið - 17.06.1999, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999 9
FRÉTTIR
Þjóðhátíðardagur-
inn haldinn
hátíðlegur í Berlín
Sendiráð
Islands flutt
til Berlínar
Berlín. Morgunblaðið.
SENDIRÁÐ íslands í Þýskalandi
flutti starfsemi sína frá Bonn til
Berlínar 1. júní síðastliðinn. Starf-
semi sendiráðsins fer enn sem komið
er fram á gömlu útibússkrifstofunni
skammt frá nýju samnorrænu sendi-
ráðsbyggingunni í Tiergarten. Að
sögn Ingimundar Sigfússonar, sendi-
herra Islands í Þýskalandi, mun
sendiráðið flytja í nýja húsnæðið í
byrjun júlímánaðar. Fyrirhugað var
að flutningunum lyki í þessum mán-
uði en vegna tafa á byggingarfram-
kvæmdum seinkar þeim um eina til
tvær vikur.
Hinn 20. október næstkomandi
verða sendiráðsbyggingarnar vígðar
formlega að viðstöddum öllum þjóð-
höfðingjum Norðurlandanna fimm.
Island og Finnland flytja fyrst land-
anna skrifstofur sínar í nýju bygg-
ingarnar og Danmörk, Svíðþjóð og
Noregur reka lestina.
Ingimundur Sigfússon og kona
hans, Valgerður Valsdóttir, halda í
dag móttöku fyrir Islendinga bú-
setta í Berlín í tilefni af þjóðhátíðar-
deginum og er það í fyrsta sinn sem
haldin er móttaka á vegum sendi-
ráðsins á þjóðhátíðardaginn í Berlín.
---------------------
Eystrasaltsráðið
Vilja auka
tengsl við Evr-
ópusambandið
AUKIN tengsl við Evrópusamband-
ið voru ofarlega á baugi á árlegum
utanríkisráðherrafundi Eystrasalts-
ráðsins, sem haldinn var í Palanga í
Litháen 14.-15. júní. Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra sat
fundinn fyrir hönd íslands.
Á fundinum var m.a. rætt um hlut-
verk Eystrasaltsráðsins í næstu
framtíð, eflingu samskipta þeirra
ríkja sem aðild eiga að ráðinu og auk-
in tengsl þess við Evrópusambandið.
Á dagskrá voru einnig samgöngumál,
orku- og umhverfismál sem og mann-
réttinda- og menntamál.
Halldór Ásgrímsson ræddi m.a.
um lýðræðis- og mannréttindamál á
fundinum og lagði áherslu á að
Eystrasaltsríkin hefðu þau málefni
áfram á sinni dagskrá. Hann kynnti
jafnframt væntanlega ráðstefnu um
konur og lýðræði, sem íslensk stjóm-
völd standa fyrir í október nk. í sam-
vinnu við bandarísk stjómvöld og
Norræna ráðherraráðið. Þá ræddi
utanríkisráðherra einnig um mennta-
máj og vék að umhverfismálum.
Á fundinum í Paianga tóku Norð-
menn við formennsku í Eystrasalts-
ráðinu af Litháum.
------♦-♦-♦-----
Vinnumiðlun
skólafdlks
Færri umsóknir
um sumarvinnu
hjá borginni
SAMKVÆMT yfirliti frá Vinnumiðl-
un skólafólks hafa 1.175 skólanemar
verið ráðnir til sumarstarfa hjá
Reykjavikurborg og fyrirtækja henn-
ar en 1.575 voru ráðnir sl. sumar.
Samtals hafa borist 1.824 umsókn-
ir skólafólks en á sama tíma sl. ár
höfðu 2.304 umsóknir borist. Ráðnir
hafa verið 1.175 en 57Q hafa ekki
staðfest umsóknir sínar og enginn er
á biðlista. Samkvæmt upplýsingum
stofnana og fyrirtækja má ætla að
enn eigi eftir að ráða í 35 störf.
Þátttakendur í Vinnuskóla
Reykjavíkur í sumar eru 2.100 en
voru 2.900 árið 1998 og leiðbeinend-
ur eru 195 en voru 220 í fyrra. Fjöldi
vinnuflokka í sumar er 145 en þeir
voru 167 sl. sumar.
*
Ikonar
Ljósakrónur
/ Borðstofuborð
f y/T \ Bókahillur
(IZinm \
i jjipfnao I9T4. muntc *
Úrval góðra gripa
Antíkmunir, Klapparstíg 40, sími 552 7977.
Stendhal
P a r i s
kyrming
Spennandi kaupaukar
Ráðgjöf á staðnum
á morgun
frá kl. 13-18 og
laugard.frá kl. 12-17
Snyrtivörudeild
Hagkaups
Smáratorgi
Borðdukar til
bráðargiafa
Uppsetningabúðin
Hverfisgötu 74, sími 552 5270.
FUGLAHUS
fúgjahúsum
Hverfisgötu 37,
sími 552 0190.
Rýmum fyrir
nýjum vörum
Borð, stólar, sófasett, ljósakrónur,
lampar, skrifborð, bókahillur,
Opið virka daga frá kl. II-18
og laugardaga frá kl. 11-16
Nœrföt í úrvaíi #*£ ' \
fyrir öíl tœkifœri Y i
N ^ " ,.A
Laugavegi 4 sími 551 4473
Silfurpottar í Háspennu frá 3.júní til 14.júní 1999
Dags. Staður Upphæð
3. júní Háspenna, Skólavörðustíg...151.088 kr.
4. júní Háspenna, Hafnarstræti......59.205 kr.
4. júní Háspenna, Laugavegi........100.545 kr.
8. júní Háspenna, Laugavegi.............98.512 kr.
9. júní Háspenna, Skólavörðustíg....55.086 kr.
10. júní Háspenna, Laugavegi........105.522 kr.
13. júní Háspenna, Hafnarstræti.....353.652 kr.
14. júní Háspenna, Laugavegi........120.556 kr.
14. júní Háspenna, Laugavegi.............59.874 kr.
Tölvur og tækni á Netinu \g> mbl.is
alltaí= errrH\sA£> a/ýtj
Víðtækar rannsóknir hafa sýnt fram á mjög áhugaverðar niðurstöður fyrir notendur hins einstaka
m _ . fæðubótarefnis PROLOGIC
\NS
S
fæst i flestum apotekum og lyfjaverslunum um land allt.
O R K U