Morgunblaðið - 17.06.1999, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Alþingi staðfestir stjórnskipunarlög um breytingar á kjördæmaskipan landsins
STJORNSKIPUNARLÖG þau sem Alþingi
íslendinga staðfesti í lok 124. löggjafarþings í
gær marka upphafíð að nýrri kjördæmaskipan
landsins og endurbótum á lögum um kosning-
ar til Alþingis. í nýju stjórnskipunarlögunum
er kveðið á um að kjördæmi landsins skulu
fæst vera sex og flest sjö en eins og kunnugt
er hefur landinu verið skipt í átta kjördæmi í
samtals fjörutíu ár eða allt frá því að grund-
vallarbreytingar voru gerðar á íslenskri kjör-
dæmaskipan árið 1959. A þeim tíma hefur
stjórnarskráin haft að geyma rækileg ákvæði
um kjördæmamörk og úthlutun þingsæta en
með nýju stjórnskipunarlögunum er almenna
löggjafanum falið það hlutverk að draga mörk-
in milli kjördæma og landskjörstjórn að auki
heimilt að ákveða kjördæmamörk í Reykjavík
og nágrenni.
Hin nýju stjórnskipunarlög sem nú hafa
verið staðfest útheimta þannig ákveðnar lág-
marksbreytingar á lögum um kosningar til Al-
þingis og verða tillögur um slíkar breytingar
væntanlega lagðar fram á næsta löggjafar-
þingi. f drögum að frumvarpi tfl laga um
breytingar á kosningalögunum, sem kynnt
voru á 123. löggjafarþingi, er tillaga um að
landinu verði skipt í sex kjördæmi;
þrjú stór landsbyggðarkjördæmi og
þrjú kjördæmi á suðvesturhomi
landsins. Búist er við því að sú skip-
an verði samþykkt nánast óbreytt á
næsta þingi.
Samkvæmt henni mun svokallað
Norðvesturkjördæmi samanstanda
af Vesturlandi, Vestfjörðum og
Norðurlandi vestra, án Siglufjarðar.
Svokallað Norðausturkjördæmi
mun samanstanda af Norðurlandi
eystra, Austurlandi og Siglufirði.
Svokallað Suðurkjördæmi af Suður-
landi og Suðumesjum. Svokallað
Suðvesturkjördæmi af Reykjanesi
án Suðumesja og að lokum er stefnt
að því að skipta Reykjavík í tvö
kjördæmi; Reykjavík vestur og
Reykjavík austur. Ágreiningur er
reyndar um hvemig skipta beri
Reykjavík í tvö kjördæmi þ.e. hvar
draga eigi kjördæmamörkin en
lauslega verður vikið að þeim deil-
um síðar í þessari grein.
Að því er fram kom í framsögu
Davíðs Oddssonar forsætisráð-
herra, er hann mælti fyrir fram-
varpi umræddra stjórnarskrár-
breytinga í upphafí þingsins nú í
sumar, fer því fjarri að nýskipan
kjördæma hafi víðtæk áhrif á skipu-
lag stjómsýslu og umdæmabundna
þjónustu af hálfu hins opinbera úti um land.
Hins vegar er ljóst að stjórnmálaflokkar og
flestir þingmenn, alltént þeir sem hyggjast
bjóða sig fram að fjóram árum liðnum, þurfa
og em jafnvel þegar famir að velta því fyrir
sér hvernig þeir geti lagað sig að breyttum að-
stæðum.
Þingmenn vinna bæði í fortíð
og framtíð
„Ég held að þingmenn fari fljótlega að huga að
því að kynna sig í þeim hluta hins nýja kjör-
dæmis sem þeir hafa ekki verið í áður; reyna
að koma sér þar á framfæri og afla sér upplýs-
inga um bæði staðhætti og viðhorf fólksins
þar,“ segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmað-
ur Framsóknarflokks í Vestfjarðakjördæmi.
Inntur eftir því hvort þeir þingmenn Fram-
sóknarflokksins sem tflheyra sama kjördæm-
inu, Norðvesturkjördæmi, eftir næstu kosning-
ar, eigi eftir að vinna frekar saman á því kjör-
tímabili sem nú er að hefjast, segist Kristinn
telja að það muni ekki gerast í bráð. „Kannski
þróast samvinnan í þá átt eftir því sem líður á
kjörtímabflið, en það er ekkert sem mun gerast
strax, held ég.“ Kristinn álítur sömuleiðis að
þingmenn fari ekki að huga að stöðu sinni í
hinu nýja kjördæmi, til dæmis hugsanlegu sæti
á framboðslista flokksins, af neinni alvöru íyrr
en líða tekur á kjörtímabilið. „Þá fara menn
væntanlega að undirbúa flokkinn skipulagslega
fyrir hin nýju kjördæmi og þingmenn um leið
að fínna sér stöðu í breyttu kjördæmi og koma
ár sinni þar sem best fyrir borð.“
Alþingismenn þeir sem Morgunblaðið ræddi
við voru almennt á því að þingmenn hljóti
fljótlega að fara að kynna sér málefni nýrra
svæða og tala til væntanlegra kjósenda en hitt
komi svo síðar þ.e. samvinnan við önnur
flokkssystkin hins nýja kjördæmis og vanga-
veltur og síðan barátta um hugsanleg sæti á
framboðslistum flokkanna. „Ég held að þing-
menn séu ekki endflega famir að velta fyrir
sér persónulegri stöðu sinni í hinum nýju kjör-
dæmum heldur séu þeir fyrst og fremst farair
að velta fyrir sér hlutum á borð við uppbygg-
ingu kjördæmanna og málefni þeiiTa," segir
Hjálmar Amason, þingmaður Framsóknar-
flokksins í Reykjaneskjördæmi.
Hjálmar talar reyndar um, eins og fleiri, að
Hagsmunir hinna
nýju kjördæma
knýja brátt dyra
Stjórnskipunarlögin sem Alþingi staðfesti í gær
marka upphafíð að afgerandi breytingum á
kjördæmaskipan landsins. Arna Schram kann-
aði hvaða áhrif þessar breytingar hafa á störf
stjórnmálaflokka og þingmanna á næstu
mánuðum eða misserum.
Tillaga að nýrri kjördæmaskipan
i_|f
W— Núverandi
I v~"\ kjördæmamörk
Norðausturkjördæmi
(Síglufjörður, Norðurland
eystra og Austurland)
28.754 kjós., 9+1 þingm,
>turkjördæmi
(Vesturland, Vesttirðir og
Norðuriand vestra án Siglufjarðar)
21.502 kíós., 9+1 þingm.
Reykjavík v
39.517 kjós.,
9+2 þingmenn
Reykjavík a
39.516 kjós.,
9+2 þingmenn
Suðvesturkjördæmi
(Reykjanes án Suðurnesja)
40.312 kjós., 9+2 þingm.
ákveðið millibilsástand eigi eftir að skapast
fram að næstu alþingiskosningum vegna þess-
ara breytinga. „Já, það má segja að ákveðið
millibilsástand verði við lýði, vegna þess að
fyrir utan heildarhagsmuni, verða þingmenn
að þjóna hagsmunum síns gamla kjördæmis
en um leið fara hagsmunir hins nýja kjör-
dæmis að knýja dyra,“ segir hann og útskýrir
þetta millibilsástand ennfrekar með því að
taka fram að þingmenn vinni þannig bæði í
fortíð og í framtíð. Ólafur Öm Haraldsson,
þingmaður Framsóknarflokksins í Reykjavík-
urkjördæmi, talar á svipuðum nótum. „Fyrst
og fremst mun maður náttúrlega sinna þing-
mennsku fyrir landið allt og fyrir það kjör-
dæmi sem maður var kosinn fyrir en smám
saman hlýtur meiri áhersla að verða lögð á
nýja kjördæmið,“ segir hann.
Þeir elstu hætti þingmennsku
I máli margra viðmælenda Morgunblaðsins
kom fram að „eldri“ þingmenn, þ.e.a.s. þeir
þingmenn sem hvað lengsta þingsetu hefðu að
baki, myndu nota tækifærið og hætta þing-
mennsku þegar kosið yrði eftir nýjum reglum
í næstu alþingiskosningum. „Væntanlega
hætta einhverjir þingmenn þegar þessu kjör-
tímabili lýkur bara vegna kjördæmabreyting-
anna. Þeir vilja ekki fara inn í ný kjördæmi og
takast á við nýtt og breytt umhverfi. Sérstak-
lega held ég að þetti eigi við um þá sem eiga
langa þingsetu að baki,“ segir Siv Friðleifs-
dóttir, umhverfisráðherra og þingmaður
Framsóknarflokksins í Reykjaneskjördæmi.
Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri-
hreyfingarinnar-græns framboðs í Norður-
landskjördæmi eystra, tekur í sama streng.
„Mér þykir ekki ólíklegt að ein af afleiðingum
kjördæmabreytinganna verði þær að allmarg-
ir af eldri þingmönnunum hætti eftir þetta
kjörtímabil. Þeir ósköp einfaldlega standi ekki
í því að fara að baxa áfram í nýju og miklu
stærra kjördæmi komnir kannski á seinni-
hluta síns pólitíska lífaldurs," segir hann.
Þingmenn landsbyggðarinnar, þ.e. þeir sem
ætla að gefa kost á sér að nýju eftir fjögur ár,
tala aðallega um það að þeir þurfi á næstunni
að kynna sér málefni nýrra svæða í kjördæm-
inu og funda með nýjum kjósendum en þing-
menn af suðvesturhomi landsins standa
frammi fyrir öðrum vanda. Þeirra kjördæmi,
Reykjavíkur- eða Reykjaneskjördæmi, verður
skipt upp í tvo hluta og þurfa þeir að ákveða
hvorum hlutanum þeir ætla að fylgja. „Menn
geta nánast valið hvoram hlutanum þeir vflja
fylgja," segir Kristján Pálsson, þingmaður
Sjáífstæðisflokks í Reykjaneskjördæmi. Sjálf-
ur kveðst hann eini þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins sem býr á Suðurnesjum og því hafí
alltaf legið fyrir að hann fari með þeim yfír í
Suðurkjördæmið. „En það þýðir náttúrlega
um leið að ég fer að velta fyrir mér hinu nýja
kjördæmi, Suðurkjördæmi," segir hann. Líkur
eru á því að það kjördæmi verði stærra en
upphaflega var gert ráð fyrir þar sem íbúar
Austur-Skaftafellssýslu hafa gefið í skyn að
þeir vilji frekar fylgja Suðurkjördæmi en
Norðausturkjördæmi.
Óvissa um mörkin í Reykjavík
Fyrir þingmönnum Reykvíkinga liggur einnig
að ákveða hvorum hluta kjördæmisins þeir
ætli að fylgja. Einstaka þingmenn virðast
reyndar hafa gert upp hug sinn en aðrir segj-
ast lítið hafa leitt hugann að þessum málum,
ekki síst vegna þess að ekki liggur ljóst fyrir
enn sem komið er hvemig Reykjavík verður
skipt. Samkvæmt drögum að framvarpi til
laga um kosningar til Alþingis, sem áður var
minnst á, og lögð vora til kynningar fram á Al-
þingi í vetur er hins vegar gert ráð fyrir því að
Reykjavík skiptist í Reykjavíkurkjördæmi
austur annars vegar og Reykjavíkurkjördæmi
vestur hins vegar. I drögunum er ekki kveðið
nánar á um það hvar kjördæmamörkin eigi að
liggja en miða skal við það að kjósendur í
hvora kjördæmi um sig séu nokkurn veginn
jafnmargir. Þannig verða kjördæmamörkin
fljótandi ef svo má segja, þ.e. þau færast til
eftir því sem íbúum fjölgar í Reykjavík. Gert
er ráð fyrir því að landskjörstjórn ákveði mörk
kjördæma í Reykjavík í lok hvers árs og er tal-
að um að mörkin verði fyrst í stað einhvers
staðar í námunda við Grensásveginn þ.e. mið-
að við þá hugmynd að Reykjavík skiptist í
austur- og vesturkjördæmi.
Ólafur Örn Haraldsson, þingmaður Fram-
sóknarflokksins, er einn þeirra þingmanna
Reykvíkinga sem þegar hefur gert upp hug
sinn um það hvoram hlutanum hann ætli að
fylgja. „Ég geri ráð fyrir því að Reykjavík
verði sldpt í austur- og vesturkjördæmi og
mun sækjast eftir fyrsta sæti framboðslista
framsóknarmanna í síðarnefnda kjördæminu,“
segir hann. Samkvæmt öðrum heimildum
Morgunblaðsins era allar líkur taldar á því að
Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra og þingmaður Framsóknarflokksins í
Reykjavík, sækist eftir fyrsta sæti framboðs-
lista flokksins í austurkjördæmi Reykjavíkur.
Hins vegar virðist algengara meðal þing-
manna í Reykjavík að þeir hafi lítið sem ekk-
ert velt vöngum yfir þessum kostum. Geir H.
Haarde, fjármálaráðherra og þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík, segist til að
mynda ekkert vera farinn að velta þessu fyrir
sér og í sama streng tekur Ásta R. Jóhannes-.
dóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í
Reykjavík. Ástæðan, segir hún, er aðallega sú
að ekki er endanlega búið að ganga frá því
hvernig skiptingu Reykjavíkurkjördæmis
skuli háttað.
Eins og fyrr greindi fi'á er ágreiningur um
hvernig skipta eigi Reykjavíkurkjördæmi í tvo
hluta og ljóst að lausn þeirrar deilu fæst ekki
fyrr en gengið hefur verið frá breytingum á
lögum um kosningar tfl Alþingis. Að
sögn forsætisráðherra, Davíðs
Oddssonar, verða þau lög endur-
skoðuð á næsta þingi en hann hefur
að sögn boðið öllum þingflokkunum
á Alþingi að koma að því starfi. Þær
hugmyndir sem helst hafa verið
nefndar varðandi skiptingu Reykja-
víkur í tvö kjördæmi era annars
vegar skipting borgarinnar í austur
og vestur eins og áður var getið um,
en hins vegar skipting hennar í
norður ög suður, þar sem kjör-
dæmamörkin lægju langsum yfir
borgina.
Kjördæmisráð sameinuð
Að síðustu skal vikið að því hvern-
ig stjórnmálaflokkar þeir sem eiga
fulltrúa á Alþingi hyggjast bregð-
ast við fækkun kjördæma úr átta í
sex. I því sambandi bendir Kjartan
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins, á að lands-
fundur flokksins sem haldinn var í
mars sl. hafi samþykkt að skipa
sérstaka nefnd til að endurskoða
skipulag og reglur flokksins m.a.
með tilliti til væntanlegra breyt-
inga á kjördæmaskipan landsins
og ber nefndinni að leggja fram
tilllögur fyrir næsta landsfund sem
væntanlega verður haldinn árið
2001. „Ég geri ráð fyrir því að nefndin verði
skipuð í sumar og að þá muni hún hefja sitt
verk,“ segir hann.
Kjartan tekur fram að sá háttur sé hafður
á hjá Sjálfstæðisflokknum að í hverju kjör-
dæmi sé kjördæmisráð sem beri ábyrgð á
flokksstarfinu í viðkomandi kjördæmi. Ein-
faldasta breytingin á skipulagi flokksins sé
því sú að láta hvert kjördæmisráð ná yfír
stærra svæði, þ.e. á þeim stöðum þar sem
kjördæmi verða sameinuð. I Reykjavík sé
þetta á hinn bóginn flóknara þar sem skipta
eigi borginni, einu sveitarfélagi, í tvö kjör-
dæmi fyrir alþingiskosningar. Þannig verði
að taka mið að því að Reykjavík verði eitt
kjördæmi í sveitarstjórnarkosningum en tvö
kjördæmi í alþingiskosningum.
Framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins,
Egill Heiðar Gíslason, segir að innan flokks-
ins séu menn aðeins farnir að velta því fyrir
sér hvernig laga eigi skipulag flokksins að
breyttri kjördæmaskipan en engin formleg
vinna sé enn þá farin af stað í því augnamiði.
„Menn eru auðvitað byrjaðir að velta þessu
framtíðarskipulagi fyrir sér,“ segir hann, „en
það liggur ekkert fyrir í þeim efnurn."
Sverrir Hermannsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins, segir aðspurður að flokkurinn
eigi að sjálfsögðu eftir að laga sig að breyttum
aðstæðum en tekur jafnframt fram að flokkur-
inn hafi hingað til vart fengist við nokkuð ann-
að en framboðið til Alþingis í vor og þá auðvit-
að farið eftir þágildandi kjördæmaskipan.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-
hreyfingarinnar-græns framboðs, segir sömu-
leiðis að sinn flokkur sé ekki farinn að skipu-
leggja flokksstarfið út frá nýjum kjördæmum.
Þessa dagana sé aðallega unnið að því að
skipuleggja flokksstarfið almennt á grandvelli
úrslita nýafstaðinna alþingiskosninga en að
sjálfsögðu standi til að byggja upp flokksstarf
í öllum kjördæmum landsins miðað við skipan
nýrra kjördæma. Svipaða sögu er að segja af
Samfylkingunni og hinum stjórnmálaöflunum
sem buðu fram í fyrsta sinn til Alþingis í vor.
Að sögn Ástu R. Jóhannesdóttur hefur lítið
sem ekkert verið unnið að því að laga starfið
að breyttri kjördæmaskipan enda sé næsta
skref að stofna nýjan stjórnmálaflokk, Sam-
fylkinguna.