Morgunblaðið - 17.06.1999, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999 13
FRETTIR
Menntun sjúkraflutningamanna
SAMSTARFSAÐILARNIR undirrita áframhaldandi samning.
Morgunblaðið/Jim Smart
Samstarfssamningur
framlengdur
SJÚKRAHÚS ReykjaUkur,
Slökkvilið Reykjavíkur, Rauði kross
Islands og fagdeild Landssambands
sjúkraflutningamanna hafa undirrit-
að samstarfssamning sín á milli um
áframhaldandi samstarf um mennt-
unarmál sjúkraflutningamanna til
ársins 2000. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá Rauða krossi
Islands.
Árið 1996 var settur á stofn skóli
er annast skyldi menntun og fræðslu
sjúkraflutningamanna. Að skólanum
standa aðilar sem hafa mikla reynslu
á sviði sjúkraflutninga, Sjúkrahús
Reykjavfloir, Slökkvilið Reykjavikur,
Rauði kross íslands og Landssam-
band sjúkraflutningamanna. Mark-
miðið með stofhun skólans var að
leggja sterkari grunn að menntunar-
málum sjúkraflutningamanna á ís-
landi, hafa umsjón með og halda
námskeið fyrir sjúkraflutningamenn
og aðra sem tengjast sjúkraflutning-
um á faglegan og árangursríkan hátt.
Undanfarin þijú ár hefur starf-
semi skólans farið vaxandi og fjöldi
þátttakenda aukist. Á síðastliðnu
skólaári voru haldin 20 námskeið og
var fjöldi nemenda um 240. Nám-
skeiðin eru haldin víða um land svo
og í Reykjavík. í boði eru meðal ann-
ars almennt sjúkraflutninganám-
skeið, neyðarflutninganámskeið,
meðferð, meðhöndlun og flutningur
slasaðra og sérhæfð endurlífgun.
Ný reglugerð um tóbaksvarnir
á vinnustöðum
Vinnuveitandi má
takmarka reyking-
ar á vinnustað
í REGLUGERÐ heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins um tó-
baksvamir á vinnustöðum, sem
gekk í gildi 15. júní síðastliðinn, er
þrengt enn frekar að reykinga-
mönnum og atvinnurekendum veitt
umtalsvert vald varðandi takmark-
anir á reykingum á vinnustað.
Reykingum úthýst
úr skólum
Með reglugerðinni er reykingum
nánast með öllu úthýst úr skólum
frá leikskólastigi upp að framhalds-
skólastigi og úr hvers kyns heil-
brigðisstofnunum. Eina undanþág-
an sem veitt er frá þessu reykinga-
banni varðar sjúklinga, sem er
heimilað að reykja „í sérstökum til-
vikum í sérstöku vel loftræstu af-
drepi“, eins og það er orðað í reglu-
gerðinni. Starfsfólki heilbrigðis-
stofnana er þó óheimilt að reykja í
þessum afdrepum. í öðrum opin-
berum stofnunum skulu forstöðu-
menn, í samráði við starfsfólk, gera
áætlun um bann við reykingum fyr-
ir árslok árið 2000 og skal þá vera
búið að takmarka reykingar við
sérstök afdrep eða banna þær al-
gerlega.
Reglugerðin kveður einnig á um
að reykingar séu með öllu óheimilar
á svæðum innan stofnana og fyrir-
tækja þar sem almenningur leitar
eftir afgreiðslu eða þjónustu. í öðru
atvinnuhúsnæði eru reykingar
óheimilar í vinnurými, nema í þar til
gerðu afdrepi, að uppfylltum þeim
skilyrðum að loftræsting þar sé full-
Athugasemd frá
Flutningsjöfnunarsjóði
VEGNA þeirrar athugasemdar
Skeljungs hf. sem Morgunblað-
ið birti í gær hefur Jón Og-
mundur Þormóðsson, stjórnar-
maður í Flutningsjöfnunarsjóði
olíufélaga, sent Morgunblaðinu
til birtingar tillögu þá sem
sjóðurinn samþykkti 8. febrúar
síðastliðinn, en þar koma fram
viðhorf fjögurra af fimm stjórn-
armönnum sjóðsins.
Tillagan er svo hljóðandi:
„Stjórn Flutningsjöfnunarsjóðs
dregur hér með til baka
ákvörðun sína frá 9. nóvember
1998 á grundvelli erindis Skelj-
ungs hf. I ákvörðuninni fólst að
Krossanes við Akureyri yrði
innflutningshöfn á gasolíu um
leið og fyrsti beini innflutning-
ur á gasolíu væri kominn í
tanka stöðvarinnar. Jafnframt
var það ákveðið að sjóflutning-
ur á gasolíu tæki mið af fram-
angreindu og taxtar sjóflutn-
inga á gasolíu miðist sem hing-
að til við skemmstu flutnings-
leið á sjó frá næstu innflutn-
ingshöfn á gasolíu.
Við töku ákvörðunarinnar
var byggt á þeirri forsendu að
innflutningur á heilum förmum
yrði hafinn fyrir alvöru en ekki
í slöttum úr förmum. Annað
kom ekki fram á fundi sjóðs-
stjórnar þótt sérstaklega væri
spurst fyrir um það. Þegar
Skeljungur hf. tilkynnti
innlfutning 4. desember 1998
var tilkynnt að farmi hefði ver-
ið landað. Ekki kom í ljós fyrr
en við eftirgrennslan sjóðsins í
janúar að á Akureyri var land-
að einungis um 500 tonnum af
gasolíu úr Kyndli hf. sem flutt
getur rösk 2000 tonn, þ.e. um
innflutning í mjög litlum mæli
var að ræða. Skilyrðin fyrir því
að Akureyri yrði innflutnings-
höfn og um leið umskipunar-
höfn hafa því ekki verið upp-
fyllt og ekki liggur fyrir að úr
því verði bætt á næstunni. Er
ákvörðunin því afturkölluð
vegna forsendubrests og þar
með sá þáttur ákvörðunarinnar
sem laut að breytingu á töxtum
vegna sjóflutninga á gasolíu.
Komi ný erindi um að stjórn
sjóðsins lýsi einstakar hafnir
innflutningshafnir verða þau er-
indi tekin fyrir er þau berast.“
Verð gæti hækkað á
einstökum stöðum
Jón Ögmundur vill jafnframt
skýra nánar fyrri ummæli sín
um að verð til notenda hækki
um nokkur prósent verði flutn-
ingsjöfnunarsjóðurinn lagður
niður. „Möguleiki er á hækkun
á einstökum oh'uvörum á ein-
stökum stöðum. Þetta byggi ég
á ummælum fulltrúa Olíufé-
lagsins hf. í efnahags- og við-
skiptanefnd Alþingis vorið
1998. Þar nefndi hann Þórshöfn
sem dæmi, þar sem verð á olí-
um öðrum en bensíni mundi
hækka um 1-2 krónur, en verð
á bensíni um margar krónur.
Aðspurður sagðist hann álíta
að þetta færi út í verðlagið væri
sjóðurinn lagður niður og að ol-
íuverð til Þórshafnarbúa gæti
hækkað um 10% en bensínverð
um 3-10%. Þess má líka geta að
hækkunin getur verið mismikil
eftir stöðum og sums staðar
getur hreinlega verið um lækk-
un að ræða,“ sagði Jón Ög-
mundur.
Samræmd próf í 10. bekk
Meðaleinkunnir skóla 1998
..þar sem 11 nemendur eða tleiri tóku próf Nágrannasveitarfélög R< Hvaleyrarskóli Stærðfræði Meðal- einkunn Islenska Meðal- einkunn Enska Meðal- einkunn Danska Meðal- einkunn
5,62 5,23 5,38 5,34
Öldutúnsskóli 4,40 4,27 4,80 4,12
Lækjarskóli 4,68 4,92 5,13 4,67
Setbergsskóli 4,91 4,88 5,25 4,86
Víðistaðaskóli 5,21 5,34 5,21 5,16
Garðaskóli 5,94 5,55 5,41 5,41
Þinghólsskóli 4,46 5,02 5,30 4,98
Kópavogsskóli 5,87 5,26 6,16 6,19
Digranesskóli 4,75 4,71 5,06 4,67
Snælandsskóli 5,76 5,34 5,13 4,81
Hjallaskóli 4,64 4,80 5,08 5,10
Valhúsaskóli 5,26 5,89 5,43 5,50
Gagnfræðssk. í Mosfellsbæ 5,19 5,70 5,09 5,56
Meðaltal 5,20 5,20 5,20 5,10
Gmnnskólinn á Hvammstanga 5,23 4,23 4,62 4,77
Laugarbakkaskóli 4,36 - 4,73 -
Húnavallaskóli 5,27 5,33 4,47 4,53
Gmnnskólinn á Blönduósi 4,44 4,69 4,81 4,75
Höfðaskóli 6,15 5,14 6,31 5,21
Gmnnskólinn á Sauðárkróki 5,15 5,24 4,59 4,85
Varmahlíðarskóli 5,88 5,81 5,25 5,47
Gmnnskóli Siglufjarðar 4,48 4,36 4,24 4,50
Meðaltal 5,10 5,00 4,80 4,80
Hvolsskóli 5,38 4,63 4,94 5,38
Gmnnskólinn Hellu 4,44 4,20 3,88 4,13
Laugalandsskóli Holtum 5,00 3,88 4,44 4,44
Sandvíkurskóli 5,13 4,52 5,03 5,29
Sólvallaskóli 5,09 5,05 4,11 4,77
Flúðaskóli 4,65 5,68 4,56 5,06
Reykholtsskóli 6,73 V 6,27 6,09 6,36
Gmnnskólinn í Hveragerði 5,23 4,17 4,60 4,23
Gmnnskólinn í Þorlákshöfn 5,67 4,72 4,83 5,06
Barnaskóli Vestmannaeyja 4,24 4,56 4,78 4,17
Hamraskóli 4,58 4,41 3,93 3,63
Meðaltal 4,90 4,70 4,50 4,60
Leiðrétting
nægjandi og tóbaksreykur berist
ekki til annarra svæða á vinnu-
staðnum.
Þá er starfsfólki heimilt að reykja
í vinnurými sem það er eitt um og
tengist öðni vinnurými einungis
með lokuðum dyrum, auk þess sem
reykja má í vinnurými sem deilt er
með öðrum ef allir sem hlut eiga að
máli reykja og eru samþykkir slíkri
tilhögun.
Auk þess að þrengja kost reyk-
ingamanna með ofangreindum
hætti veitir hin nýja reglugerð at-
vinnurekendum vald til að tak-
marka reykingar enn frekar á
vinnustöðum sínum og mega þeir
raunar banna reykingar með öllu á
þeim stöðum þar sem sjálf reglu-
gerðin heimilar reykingar í sérstök-
um afdrepum. Nær þetta vald at-
vinnurekenda bæði til þess húsnæð-
is og þeirrar lóðar sem tilheyra
vinnustaðnum.
NOKKRAR misfærslur voru í töfiu
yfir árangur í samræmdum prófum
í tíunda bekk grunnskóla, sem birt-
ist í Morgunblaðinu í gær. Ekki
voru réttar tölur í einkunnum Set-
bergsskóla. Þá voru ekki allir dálk-
ar réttir í einkunnum á Norður-
landi vestra og Suðurlandi.
Þreytti
sjúkrapró
fið í Genf
ÍSLENSK fjölskylda varð að
breyta ferðatilhögun í sumar-
fríi sínu á Ítalíu í byrjun mán-
aðarins til þess að dóttirin,
sem stundar nám í Mennta-
skólanum í Reykjavík, kæm-
ist í sjúkrapróf í enskum stíl.
Fjölskyldufaðirinn, Sigurður
Pétursson, ók samtals í átta
klukkustundir frá sumarleyf-
isstaðnum á Norður-Italíu til
Genfar, þar sem stúlkan
þreytti prófið hjá fastanefnd
Islands í Genf, og að prófi
loknu, aftur til baka. Hann
segir að stjórnendur MR hafi
sýnt ósveigjanleika í þessu
máli sem hafi valdið sér og
fjölskyldu sinni óhagræði og
kostnaði.
Átti á hættu að verða
vísað úr skólanum
Sigurður segir að dóttir sín
hafi fengið meðaleinkunn upp
á 6,70 á öðru ári í MR en hafi
ekki náð tilskildri einkunn í
enskum stíl. Henni var gefinn
kostur á því að þreyta sjúkra-
próf 4. júní, en fjölskyldan hélt
til Italíu daginn áður í sumar-
frí sem hafði verið skipulagt
með löngum fyrirvara. Segir
Sigurður að hefði hún alls ekki
mætt í sjúkraprófið hefði hún
átt á hættu að vera vísað úr
skóla eða verið skikkuð til að
taka annað árið upp á nýtt.
Þótt hún hefði ekki náð tilskil-
inni einkunn í sjúkraprófinu
átti hún enn kost á því að taka
prófið upp að hausti.
„Ég talaði við konrektor
skólans og spurði hvort hægt
væri, í ljósi kringumstæðna,
að færa prófið fram fyrír þann
tíma sem við áætluðum að
fara í sumarfrí. Hann sagði
mér að við þessu væri ekki
hægt að bregðast. Skólinn
bauð upp á það að ég fyndi
næsta sendiráð við sumarleyf-
isstað okkar. Ég yrði að gjöra
svo vel að koma henni þangað
á prófdag og sjá til þess að
ábyrgur aðili, sem skólinn
gæti samþykkt, annaðist
framkvæmd prófsins," sagði
Sigurður.