Morgunblaðið - 17.06.1999, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Iðnaðarsafnið á
Akureyri eins árs
IÐNAÐARSAFNIÐ á Akureyri var
opnað 17. júní í fyrra og verður því
eins árs í dag. Frá opnun þess hafa
margir orðið til að efla safnið með
ýmsum hætti, að sögn Jóns Arnþórs-
sonar, umsjónarmanns. Þegar það
var opnað voru kynntar þar 20 iðn-
greinar og 30 fyrirtæki þeim tengd,
en síðan hafa fimm iðngreinar bæst
við og 10 fyrirtæki. Að
auki eru nokkur í undir-
búningi.
Að sögn Jóns hafa
fjölmargir sýnt velvilja í
verki með gjöfum á
myndum, myndböndum
og bókum sem tengjast
starfsfólki, vélum og
verksmiðjum. I fréttatil-
kynningu frá safninu
eru taldir upp þeir sem
hafa látið eitthvað slíkt
af hendi rakna. Þeir eru
eftirtaldir; frá Reykja-
vík: Asgeir Asgeirsspn
fyrir hönd Iðnsögu ís-
lendinga, Haraldur
Sumarliðason vegna
Samtaka Iðnaðarins,
Hermann Þorsteinsson
vegna SÍS og Jóhann Briem vegna
Myndbæjar hf. Einnig Jóhann Tr.
Sigurðsson í Hveragerði og á Akur-
eyri eftirtaldir: Amtsbókasafnið, Ás-
grímur Ágústsson, Birgir Steinþórs-
son, Bjöm Sigmundsson, Dóra Gunn-
arsdóttir, Guðmundur Armann Sig-
urjónsson, Guðrún Guðmundsdóttir,
Hreiðar Jónsson, Jóhann Ingimars-
son, Jón Kristinsson, Rammagerðin,
Reynir Sveinsson, Sigurvin Jónsson
og Þorsteinn Davíðsson.
Safninu hafa einnig borist ýmis
handverkfæri, vélar og sýnishorn úr
framleiðslu frá Kristjáni Ólafssyni
og Ottó Jakobssyni, sem báðir eru á
Dalvík, Mjólkursamlagi KHB á
Egilsstöðum, Gerði Pálsdóttur og
Ásthildi Sigurðardóttur í Eyjafjarð-
arsveit, Valþóri Þorgeirssyni á
Norðfirði, Kristjáni Kjartanssyni á
Svalbarðsströnd og eftirtöldum aðil-
um á Akureyri: Agnai-i Tómassyni,
Ásgrími Ágústssyni, Ásmundi Guð-
jónssyni, Boga Péturssyni, Eðvarði
Jónssyni, Frímanni Haukssyni, Guð-
björgu Valdemarsdóttur, Guðjóni S.
Björnssyni, Gunnari Helgasyni,
Helga Jóhannessyni, Ingibjörgu Sig-
urjónsdóttur, Jóni Friðbjömssyni,
Kristni Amþórssyni, Kristni Bergs-
syni, Magnúsi Jónssyni, Minjasafn-
inu, Punktinum, Sigurgeiri Arn-
Morgunblaðið/Kristj án
JÓN Arnþórsson, umsjdnarmaður Iðnaðar-
safnsins, við elstu vél safnsins. Þetta er fyrsta
hraðpressa sinnar tegundar á íslandi, frá
1901, og var hún upphafið að POB, Prentverki
Odds Björnssonar.
grímssyni, Stefáni Sigurðssyni,
Strýtu, Sæmundi Hrólfssyni, Út-
gerðarfélagi Akureyringa, Þorsteini
Arnórssyni, Þorsteini Davíðssyni,
Þorsteini Kjartanssyni og Þorvaldi
Jónssyni.
„Af framangreindu má ljóst vera
að Iðnaðarsafnið snertir streng í
brjóstum margra,“ segir í frétt frá
safninu. ,jHlt hefir þetta orðið til
þess að fylla enn frekar inn í mynd-
ina af hinum fjölbreytta iðnaði lið-
innar tíðar. Og það er líka mikilvægt
með tilliti til þess, að kennarar í
grunnskólum bæjarins koma í vax-
andi mæli með nemendur sína til
kynningar og fræðslu.“
Á næstunni bætist við fjöldi
mynda frá Minjasafninu sem sýna
fólk að störfum við vélarnar og
spanna tímabilið frá 1940 til 1970.
Iðnaðarsafnið er opið alla daga frá
kl. 14 til 18 nema mánudaga, en þá
er lokað.
Morgunblaðið/Kristj án
Myndljóð um
hiís í Svartfugli
SÝNING á málverkum Gunnars R.
Bjarnasonar verður opnuð í dag í
Galleríi Svartfugli á Akureyri. Á
sýningunni eru íslensku sjávarþorp-
in Gunnari hugleikið myndefni þar
sem hann kallar fram mismunandi
stemmningar á stílfærðan og oft
Ijóðræðan hátt, að því er segir í
fréttatilkynningu. Á sýningunni eru
um 35 pastelmyndir allar málaðar á
þessu ári, og nefnir hann sýninguna
Myndljóð um hús.
Gunnar nam leikmyndahönnun og
leiktjaldamálum við Þjóðleikhúsið
1953-56 og sótti jafnframt námskeið
hjá Handíða- og myndlistaskóla ís-
lands. Hann stundaði nám við
Konstfackskolan í Stokkhólmi 1957-
58 og hefur síðan farið námsferðir til
Englands, Danmerkur, Noregs, Sví-
þjóðar, Tékkóslóvakíu og Póllands.
Gunnar starfaði sem leikmynda-
og búningahönnuður við Þjóðleik-
húsið 1958-74. Þá hóf hann rekstur
eigin vinnustofu þar sem hann vann
að myndlist, leikmyndahönnun og
margskonar annarri hönnunarvinnu.
Á ferli sínum hefur hann meðal ann-
ars hannað yfir 90 leikmyndh' fyrir
Þjóðleikhúsið og önnur leikhús,
einnig iðnsýningar, landbúnaðarsýn-
ingai- og ýmsar sérsýningar innan-
lands jafn sem utan. Árið 1988 kom
Gunnar aftur til starfa hjá Þjóðleik-
húsinu og hefur nú umsjón með leik-
myndagerð þess.
Gunnar hefur hlotið margskonar
viðurkenningar, meðal annars styrk
úr Menningarsjóði Þjóðleikhússins,
styrk frá ITI, alþjóðasamtökum leik-
hússfólks, starfslaun listamanna og
viðurkenningu fyrir hönnun sýninga
og sýningarbása.
Sýningin hefst kl. 15 í dag og henni
lýkur sunnudaginn 4. júlí. Opið er alla
daga nema mánudaga frá kl. 14 til 18.
Húsið Nyborg í Grímsey rifíð
Grímsey. Morgnnblaðið.
NÝBORG, hús sem stóð á
bakkanum fyrir ofan höfnina í
Grímsey, var rifið á dögunum
en það hefur staðið autt síðustu
ár. Áður en Nýborg fór í eyði
bjó ekkja í húsinu í um 3 ár,
sem varla mátti kallast manna-
bústaður. Kjallari Nýborgar
Mörg ung hjón
hófu þar búskap
Morgunblaðið/Margit Elva
hafði staðið hér frá ómunatíð
en byggt var ofan á hann upp
úr 1950.
Nýborg var fyrst notuð sem
verbúð og var í eigu sfldar-
stöðvarinnar Norðurbyggðar en
eftir að sfldin hvarf um 1960 fór
húsið í einkaeign og var leigt út.
Mörg ung hjón hófu búskap
sinn í Nýborg.
Nauðsynlegt þótti að rífa
Nýborg, Grímseyingum til
mikillar ánægju því húsið gat
verið hættulegt börnum og ekki
spillti fyrir að fá enn betra og
fallegra útsýni yfir höfnina.
Skólahátíð MA
STÚDENTAR verða brautskráðir
frá Menntaskólanum á Akureyri í
dag, að vanda, og hefst athöfnin kl.
10 í íþróttahöllinni. Stúdentsefnin
ganga fylktu liði í salinn, Skólameist-
ari, Tryggvi Gíslason, flytur því næst
ræðu og fulltrúar afmælisárganga,
gamlir stúdentar MA, ávarpa sam-
komuna. Að því loknu verða braut-
skráðir nýstúdentar, tæplega 120
talsins. Fulltrúi nýstúdenta ávarpar
samkomuna og athöfninni lýkur á
því að skólasöngurinn er sunginn.
Myndataka er í Stefánslundi strax
að loknum skólaslitum. Gestir á
skólaslitum eru að jafnaði um og yfir
1.000 talsins.
Klukkan 15.00 til 17.00 verður opið
hús í Menntaskólanum á Akureyri.
Þangað er boðið öllum nemendum
skólans að fornu og nýju, vinum
þeirra og vandamönnum og öðrum
velunnurum skólans. Þar er jafnan
fjölmenni, gestir ganga um húsin,
hittast, rifja upp gömul kynni og
minningar. Kaffiveitingar verða á
hlaðborði á Sal skólans á Hólum.
Bókasafnið verður opið og sýnd
verða dæmi um námsverkefni nem-
enda. Gestir á Opnu húsi 17. júní hafa
hin síðustu ár verið á bilinu 400-800.
Hátíðarveisla nýstúdenta verður í
Iþróttahöllinni í kvöld, þar sem á átt-
unda hundrað manna njóta þrírétt-
aðs hátíðarkvöldverðar á vegum
Bautans, nýstýdentar, fjölskyldur
þeirra og gestir og kennarar og
starfsfólk skólans. Nýstúdentar
munu syngja saman og fara með
skemmtiatriði. Um miðnætti halda
nýstúdentar í stutta ferð niður í mið-
bæ Akureyrar og marséra um stræti
og torg en koma síðan til baka og
dansa fram á bjarta nótt við leik
tveggja hljómsveita, Stuðmanna og
200.000 naglbíta. Tveir þriggja nagl-
bítanna eru nýstúdentar en sá þriðji
eins árs stúdent úr MA.
Þór og Mitre
í samstarf
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Þór og
Mitre hafa undirritað samstarfs-
samning til fjögurra ára, eins og
fram kom í Morgunblaðinu í gær.
Vegna mistaka birtist ekki mynd
af undirskrift samningins og
birtist hún því hér með. Svala
Stefánsdóttir formaður Þórs og
Valdimar Magnússon frá Mitre
(Hoffelli) undirrituðu samstarfs-
samninginn. Fyrir aftan þau
standa í nýju búningunum, f.v.
Elmar Eirfksson, Páll Þorgeir
Pálsson, Hlynur Halldórsson og
Jónína og Andri Ásgrímsbörn.
Morgunblaðið/Kristján
Gengið á
Kerlingu
FERÐAFÉLAG Akureyrar
stendur fyrir gönguferð á Kerl-
ingu í Svarfaðardal laugardag-
inn 19. júní. Gengið verður frá
Þverá í Skíðadal.
Mjög gott útsýni er yfir
Svarfaðardalinn af Kerlingu,
sem er í um 1200 metra hæð.
Fararstjóri í ferðinni verður
Árni Þorgilsson. Skráning í
gönguna fer fram á skrifstofu
Ferðafélags Akureyrar, þar
sem einnig eru veittar nánari
upplýsingar. Skrifstofan er op-
in frá kl. 16-19 og síminn er
462-2720.
Kaffísala í
Glerárkirkju
ÁRLEG kaffisala kvenfélagsins
Baldursbrár verður haldin í
safnaðarsal Glerárkirkju í dag
kl. 15 til 17. Þar verður sýning
á munum sem konur í félaginu
hafa unnið. Einnig syngur Ellý
Hreinsdóttir með undirleik
Dórótheu Dagnýjar Tómas-
dóttur. í tilefni 80 ára afmælis
félagsins 8. júní sl. var ákveðið
að allur ágóðu kaffisölunnar
renni í minningarsjóð Judithar
Sveinsdóttur, en hann hefur
það að markmiði að kaupa
steinda glugga í Glerárkirkju.
List á
staðnum
STEINGRÍMUR St. Th. Sig-
urðsson, listmálari, verðui- í
París í göngugötunni á Akur-
eyri frá kl. 9 til 21 í dag og
teiknar skyndimyndir af fólki
sem þess óskar. „Þetta verður
raunverulega 94. sýningin
mín,“ sagði Steingn'mur í gær.
„Eg kalla þetta list á staðnum;
ég er svona fimmtán til tuttugu
mínútur með hverja mynd,
jafnvel fljótari,“ sagði list-
málarinn.