Morgunblaðið - 17.06.1999, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 17.06.1999, Qupperneq 28
Þú velur stað og stund - við höfum grillið og áhöldin 28 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Nýr forseti kjörinn Lettlandi í dag JÓHANNES Páll páfí biðst fyrir undir róðukrossi við messu í pólska fjallabænum Stary Sacz í gær. Þá hóf páfi aftur dagskrá heimsóknar sinnar til Póllands, eftir að hafa hvflst í fyrradag vegna flensu og vægs hita. Páfí messaði sjálfur, en fól aðstoðar- manni sínum að lesa upp stól- ræðuna. Talsmaður Vatíkansins sagði páfann vera kominn til fullrar heilsu, nema hvað rödd hans væri ekki sem skyldi. Það kom því aðstoðarmönnum páfa og áheyrendum á óvart þegar hann lauk messunni með því að tala í 25 mínútur á fjórum tungumálum, bauð erlenda sendifulltrúa velkomna og nefndi hversu vel kunn fjöllin í grenndinni væru honum. Þá tal- aði páfi um átökin á Balkanskaga og sagði: „Eg treysti því að harmleiknum ljúki innan skamms. Ég hvet alla þá sem bera ábyrgð á örlögum fólks á Balkanskaga til að hætta að- gerðum sem valda eyðileggingu og harmleik." Fulltrúi Vatíkansins gaf í skyn að páfí hefði hafið aftur dagskrá heimsóknar sinnar þrátt fyrir andmæli Iæknis síns. „Læknirinn er góður og gegn kaþólikki sem hlýðir páfa sínum,“ sagði fulltrú- inn. Fyrirhugaðri för páfa til Ar- meníu, sem bætt hafði verið við dagskrá ferðarinnar, hefur nú verið aflýst, og heldur páfi til Vatíkansins í dag. 1 Lettar ganga að kjörborðinu í dag og kjósa sér nýjan forseta. Janis Udris greinir hér frá frambjóðendum og sigurlíkum þeirra. NYR forseti Lettlands verður kjör- inn í dag af 100 þingmönnum á lett- neska þinginu, Saeima. Fimm frambjóðendur hafa verið tilnefndir af þeim sex flokkum sem þar eiga sæti. Eining ríkir á þinginu um ut- anríkisstefnu og allir frambjóðend- umir hafa lýst yfir stuðningi við að landið sæki um inngöngu í Evrópu- sambandið og NATO. Kosningarn- ar munu því eingöngu snúast um innanríkismál. Guntis Ulmanis, íyrsti forseti Lettlands eftir að landið hlaut sjálf- stæði á ný árið 1991, hefur verið vinsæll meðal almennings og notið stuðnings allra flokka á þinginu, en samkvæmt lögum getur hann ekki sóst eftir kjöri þriðja kjörtímabilið í röð. Annar fyrrverandi kommúnisti og hinn annálaður glaumgosi Stjómmálaskýrendur spá því að slagurinn muni standa á milli tveggja frambjóðenda, annars vegar Anatoly Gorbunovs samgönguráð- herra, sem tilnefndur er af hálfu miðjuflokksins Leið Lettlands, og hins vegar tónskáldsins Raimonds Pauls, formanns Nýja flokksins, sem einnig er miðjuflokkur. Þrátt fyrir að þeir njóti báðir töluverðra vinsælda þykir ýmislegt standa í vegi fyrir kjöri þeirra í forsetaemb- ætti. Gorbunov, sem er ungur að áram og þykir bæði glæsilegur og um- burðarlyndur, er samkvæmt skoð- anakönnunum vinsælasti stjórn- málamaður Lettlands. Veikleiki Gorbunovs felst í fortíð hans sem kommúnista, jafnvel þótt hann hafi staðið með löndum sínum í upp- reisninni gegn Rússum árið 1989. Hann notaði þá áhrif sín sem einn af æðstu mönnum kommúnista- flokksins til að koma í veg fyrir blóðbað, sem fyrirhugaðar aðgerðir örvæntingarfullra harðlínukomm- únista hefðu óefað haft í fór með sér. En fjölmiðlar hafa harðlega gagnrýnt útnefningu hans sem for- setaframbjóðanda á grandvelli þess að hann hafi áður verið kommún- isti. Hinn þekkti rithöfundur Mara Zalite lét til dæmis þau ummæli falla að ef Lettar kysu sem forseta mann, sem áður var háttsettur í kommúnistaflokknum, væra þeir að senda Vesturlöndum röng skilaboð. Raimond Pauls öðlaðist vinsældir í Lettlandi á 8. og 9. áratugnum fyrir tónlist sína, sem þótti ala á þjóðerniskennd Letta og sameina þá í sjálfstæðisbaráttunni. Hann gegndi embætti menningarmála- ráðherra í fyrstu ríkisstjórn Lett- lands eftir að landið hlaut sjálf- stæði, og hefur síðan verið ráðgjafi Ulmanis forseta. Fregnir herma að Ulmanis líti til hans sem eftir- manns síns. Þrátt fyrir vinsældir Pauls hafa sumir haft í flimtingum að tónlistarmaður verði ekki ýkja trúverðugur á forsetastóli, og hann hefur auk þess á sér nokkra glaum- gosaímynd, sem ekki þykir hæfa forsetaembættinu. Menntamenn kjósa konu Hópur þekktra lettneskra menntamanna hefur skrifað þing- inu opið bréf, þar sem segir að eng- inn hinna fimm frambjóðenda standi undir þeim miklu kröfum sem gera verði til forseta. Leggja þeir til að vísindamaðurinn Vaira Vike-Freiberga verði kjörin í emb- ættið, en hún gegnir forstöðu Lett- lands-stofnunarinnar, er meðlimur í Vísindaakademíum Lettlands og Kanada og er varaformaður félags sálfræðinga í Kanada. Hefur hún meðal annars tekið þátt í rannsókn- arverkefnum á vegum NATO og veitt kanadískum stjórnvöldum ráðgjöf um ýmis verkefni. Lettar sem komnir era til ára sinna muna flestir eftir spámannin- um Fynks, sem kommúnistar tóku af lífi, en hann spáði því eftir her- nám Sovétmanna árið 1940 að Lett- land yrði aftur frjálst þegar ártalið mætti lesa bæði aftur á bak og áfram. Hann spáði því einnig að gósentíð hæfist í landinu þegar kona yrði kjörin forseti. Fyrsti spá- dómur Fynks rættist vissulega, því Lettland hlaut sjálfstæði á ný árið 1991, en enn á eftir að koma í ljós hvort síðari spádómurinn muni rætast. Höfundur er fréttastjóri á dagblað- inu Latvjjas Vestnesis í Riga. Renndu inn á næstu stöð! ESSO-stöðvarnar Grilltíminn. , er genginn i garð Kola- og gasgrill í úrvali og auðvitað gas, kol, grillvökvi, áhöld og ýmislegt til að gera grillveisluna enn skemmtilegri. ::!i- Reuters Póllands- heimsókn lýkur i Heimilistæki KUCHENTECHNIK Falleg og vönduð tæki á hagstæðu verðií http://www.heildsoluverlsunin.is Innréttingar & tæki Við Fellsmúla Sími 588 7332 OPIÐ: Mánud. - föstud. kl. 9-18, • laugard. kl. 10-14 Auglýsingar fjarlægðar Chicago. Reuters. NÝ tækni, er gerir sjónvarpsá- horfendum kleift að taka upp dagskrá með stafrænum hætti, og horfa síðan á hana án aug- lýsinga, er mesta ógn sem nokkumtíma hefur stafað að bandarískum sjónvarpskeðjum, segir framkvæmdastjóri Fox-sjónvarpsins. Hin nýja upptökutækni, sem þróuð hefur verið af fyrirtæk- inu TiVo, fjarlægir auglýsingar, sem yfirleitt birtast á um tutt- ugu mínútna fresti á bandarísk- um sjónvarpsstöðvum, og er óttast að þetta fæli auglýsendur frá. Er því spáð, að eftir fimm ár muni um 40% sjónvarpsá- skrifenda í Bandaríkjunum hafa yfir þessari tækni að ráða.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.