Morgunblaðið - 17.06.1999, Side 33

Morgunblaðið - 17.06.1999, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999 33 A1 Gore og George Bush yngri tilkynna framboð vegna forsetakosninga í Bandarfkjunum AP GEORGE Bush yngri ásamt stuðningsmönnum sínum í New Hampshire á mánudag. Reuters AL Gore kyssir konu sína, Tipper, innilega á kosningafundi í Tenn- essee í gær, eftir að hann tilkynnti formlega að hann sæktist eftír út- nefningu demókrata fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. Þykja líklegir til að takast á um embættið AL Gore, varaforseti Bandaríkjanna, tilkynnti í gær formlega að hann sæktist eftir útnefningu Demókrata- flokksins vegna forsetakosninganna á næsta ári í ræðu sem hann hélt í fæðingarborg sinni, Carthage í Tennessee. Þótt afar líklegt sé að Gore verði frambjóðandi demókrata á varaforsetinn undir högg að sækja því skoðanakannanir sýna að George W. Bush, sem lýsti því yfir fyrr í vik- unni að hann sæktist eftir útnefn- ingu repúblikana vegna forsetakosn- inganna, hefur ótvírætt forskot á Gore. Gore hefur reynst erfítt að stíga út úr skugga Bills Clintons Banda- ríkjaforseta og hefur varaforsetan- um fram að þessu verið legið á hálsi fyrir að vera þurr á manninn og lit- laus. I ræðu sinni í gær, og í sjón- varpsviðtali sem sýnt var á ABC- sjónvarpsstöðinni í gærkvöldi, gerði Gore því tilraun til að skerpa á ímynd sinni, auk þess sem hann leit- aðist við að skapa fjarlægð milli sín og Clintons, ekki síst þeirra hneyksl- ismála Clintons sem svo mjög hafa sett mark sitt á veru þeirra tveggja í Hvíta húsinu. I viðtali við Diane Sawyer, sem sýnt var í þættinum „20/20“ á sjón- varpsstöðinni ABC í gær, sagði Gore m.a. að ástarsamband Clintons við lærlinginn Monieu Lewinsky hefði verið „óafsakanlegt" og að Clinton hefði logið að Gore um sambandið, rétt eins og hann hafði blekkt alla bandarísku þjóðina. Hefur Gore ekki áður tekið jafn sterkt til orða um kvennamál Clintons. Við ramman reip að draga fyrir Gore Var greinilegt að Gore þótti óþægilegt að ræða þessi mál og skaut hann sér m.a. undan að svara spumingu Sawyers um hvernig hon- um hefði liðið þegai- honum varð ljóst hversu blekkingar Clintons voru umfangsmiklar. „Þú getur ímyndað þér hvernig mér leið,“ lét Gore sér nægja að segja, og lét hjá líða að skilgreina tilfinningar sínar frekar, og sýndi aukinheldur engin svipbrigði. Meginþema ræðu Gores í Cart- hage í gær var í stíl við þá mynd sem hann vill að kjósendur fái af sér sem heiðarlegum fjölskyldumanni, og því telst líklega eðlilegt að Gore vilji koma því skýrt á framfæri að honum hafi mjög mislíkað hegðun Clintons. Ræddi Gore mikið um sjálfan sig og fjölskyldu sína í ræðunni og meðan viðtalinu á ABC stóð héldust þau Tipper, eiginkona Gores, allan tím- ann í hendur. Leggja Gore og aðstoðarmenn hans nú allt kapp á að sýna hina mannlegu hlið á varaforsetahjónun- um og hafa m.a. mjög beint kastljós- inu að vel heppnuðu hjónabandi þeirra, og þeii-ri staðreynd að þau eiga von á sínu fyrsta bamabarni. Bush fer vel af stað Gore og aðstoðarmenn hans fara þó ekki í neinar grafgötur um að það er við ramman reip að draga. Ekki einungis glímir Gore við ímynd Clint> ons, sem burtséð frá öllum hneykslis- málum þykir jafnan skyggja á hvem þann sem í návist hans er, heldur mun hann í forsetakosningunum sennilega etja kappi við George Bush yngri, ríkisstjóra í Texas, og sam- kvæmt skoðanakönnunum er Bush mun vinsælli meðal kjósenda en Gore. Bush lauk á þriðjudag við sína fyrstu kosningaferð og þótti honum takast afar vel upp. Þykir hann ótvi- rætt standa betur að vígi en keppi- nautarnir um útnefningu Repúblik- anaflokksins, en þar standa framar- lega þau Elizabeth Dole og Pat Buchanan, þótt baráttan sé öllu jafn- ari á þessum vígstöðvum en hjá demókrötum. Bush hefur undanfarið verið á ferð og flugi og heimsótt nokkra staði þar sem hann þarf nauðsynlega að styrkja stöðu sína, eigi hann að tryggja sér útnefningu Repúblikana- flokksins, en jafnframt var fjögurra daga ferðalag hans fjáröflunarferð og tókst hún framar vonum, ef marka má bandaríska fjölmiðla. Alþjóðlegt bann við nauðimgarvinnu barna Clinton beitir sér gegn barnaþrælkun Genf. AFP. Reuters BILL Clinton Bandarflg'aforseti, Hillary forsetafrú og Chelsea dóttir þeirra, komu til Genfar í gær við upphaf Evrópuferðar sinnar. Þar hélt Clinton ræðu á þingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar og hvatti rfld heims til að samþykkja nýgerðan samning er kveður á um bann við nauðungarvinnu barna. Alþjóðavinnumálastofnunin (ILO) samþykkti í dag alþjóðlegan samn- ing sem kveður á um bann við barna- þrælkun og önnur atriði er varða ómannúðlega meðferð á börnum undir átján ára aldri. Hefur samn- ingur þessi verið í burðarliðnum undanfarna tólf mánuði en á mánu- dag náðist breið samstaða um orða- lag hans meðal hinna 174 aðildar- ríkja ILO, sem aðsetur hefur í Genf í Sviss. Er samningnum einkum beint að fátækari ríkjum suðursins, sér- staklega Asíu þar sem barnaþrælk- un er afar útbreidd. Talið er að mik- ill meirihluti þeirra 250 milljóna ung- menna sem vinna til að sjá sér far- borða sé á aldrinum 5-14 ára. Bill Clinton Bandaríkjaforseti ávarpaði þing Alþjóðavinnumálastofnunarinn- ar í gær og hvatti ríki vel'aldar til að staðfesta samninginn og gefa þannig hinu „hnattræna hagkerfi ásjónu mannúðar." Clinton, sem í gær hóf opinbera heimsókn sína til Evrópuríkja, sagð- ist í ræðunni í gær vera stoltur af því að geta sagt að Bandaríkjastjórn styðji samninginn heils hugar. „Hvern einasta dag starfa tugmillj- ónir barna um allan heim við aðstæð- ur sem ganga fram af samvisku okk- ar,“ sagði forsetinn að viðstöddu fjöl- menni. Lýsti hann jafnframt dæm- um af því er ungmenni neyðast til að vinna með hættulegar efnablöndur, starfa i verksmiðjum þegar þau ættu með réttu að ganga í skóla og eru dæmd, nauðug viljug, til að stunda vændi eða berjast í stríði. „Þetta eru ekki kafiar úr sögu eftir Charles Dic- kens. Þetta viðgengst allt of víða enn þann dag í dag.“ Clinton lagði áherslu á að björninn væri ekki unninn þótt samningurinn hafi verið samþykktur. Enn ættu að- ildarríki ILO eftir að staðfesta hann. Fylgja yrði málinu fast eftir svo „komast megi fyrir rætur vandans, hin samofnu mein fátæktai- og von- leysis sem leitt hafa til barnaþrælk- unar.“ Barnaþrælkun útbreiddust í Asíu ILO telur að sú starfsemi sem valdi börnum undir átján ára aldri mestum skaða sé m.a. skuldaánauð, þrældómur og nauðungai-vinna, barnavændi, eiturlyfjasmygl og ann- ar starfi sem líklegur sé til að valda heilsu bai-na tjóni. Forsenda samn- ingsins er að koma í veg fyrir skað- lega starfsemi af þessum toga. Samkvæmt tölum ILO er sá ald- ursflokkur sem í hvað mestri hættu er vegna barnaþrælkunar börn á aldrinum fimm til ellefu ára. Alls er talið að um 50 til 60 milljónir barna í veröldinni á þessum aldri vinni nauð- ungarvinnu. I Asíu er talið að mest sé um nauðungarvinnu þá sem samningurinn tekur til. Telur ILO að um 61% hinna 250 milljóna ung- menna sem starfa nauðbeygð séu í Asíu, samanborið við 32% í Afríku og um 7% í Rómönsku Ameríku. Alþjóðavinnumálastofnunin telur að almenn fátækt sé rót vandans og að mörg ungmenni þurfi að vinna sökum þess að foreldrar þeirra hafi ekki efni á að senda þau til náms. Þá taki vinnuveitendur böm oft fram yf- ir fullorðna þar eð auðveldara sé að stjórna þeim og um ódýrara vinnuafl sé að ræða. Asíuríki banna sölu matvæla frá ýmsum Evrópulöndum vegna díoxín-meng- unarmálsins ESB undirbýr málaferli gegn Belgíu Singapore, Bangkok, Brussel. Reuters, AFP. STÓRMARKAÐIR í mörgum Asíuríkjanna fjarlægðu í gær mikið magn matvæla frá Evr- ópuríkjunum úr hillum sínum á sama tíma og framkvæmda- stjóm Evrópusambandsins (ESB) gerði sig líklega til að hefja málaferli gegn Belgíu vegna díoxín-mengunarmáls- ins, sem upp kom þar í landi fyrir skömmu og varð m.a. ríkisstjórn Jeans-Lucs De- haene að falli í þingkosningum um síðustu helgi. Engin mengun í frönskum matvælum Fulltmar ESB sökuðu As- íuríkin í gær um að bregðast óþarflega hart við díoxín- menguninni í Belgíu en þá höfðu Indónesía, Kína, Fil- ippseyjar og Burma bæst i hóp þeirra landa í álfunni sem bannað hafa innflutning kjöt- vara, fiðurfénaðs og mjólkur- afurða frá mörgum löndum Evrópu. Frönsk stjórnvöld sögðu á þriðjudag að rann- sóknir á matvælum og dýra- fóðri þar í landi hefðu leitt í ljós að ekki væri um díoxín- mengun að ræða í frönskum matvælum, líkt og hafði komið á daginn í Belgíu, en Asíu- þjóðirnar létu sig það einu gilda. Jafnframt létu þær sér fátt finnast um yfirlýsingar ESB um að kjötafurðir frá þremur af hverjum fjóram kjúklinga- búum í Belgíu væru fyllilega öraggar. ESB undirbýr málaferli Franz Fischler, sem farið hefur með landbúnaðarmál í framkvæmdastjórninni, sagði í gær að ESB undirbyggi nú málaferli gegn Belgíu en sagði að sennilega yrði ekki form- lega gripið til slíkra ráðstaf- ana fyrr en í næstu viku. „En það er ljóst að um málaferli verður að ræða,“ sagði Fischler á fréttamannafundi í Brassel eftir að landbúnaðar- ráðherrar ESB-landanna höfðu rætt saman. Sagði Fischler allar líkur á því að málaferlin myndu ekki aðeins snúast um þá stað- reynd að belgísk stjórnvöld hefðu bragðist þeirri skyldu sinni að gera ESB-ríkjunum viðvart nægilega snemma um díoxín-mengunina heldur yrðu Belgar einnig að svara ásök- unum um að hafa ekki hlýtt að fullu matvælatilskipunum frá ESB sem hafa það markmið að tryggja hagsmuni og ör- yggi neytenda. Er það m.a. mat fulltrúa ESB að Belgíustjórn hafi ekki skipað verslunum þar í landi að hætta sölu mjólkur- vara hvers fituinnihald er 25% eða meira, þrátt fyrir að tilskipun ESB hafi kveðið á um þetta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.