Morgunblaðið - 17.06.1999, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999 37
LISTIR
SIGURJÓN Ólafsson myndhöggvari við verk sitt Ljósmynd frá 1949.
Listasetrið Kirkjuhvoli
47 ár af ferli Sigur-
jóns Olafssonar
SÝNING á höggmyndum úr Lista-
safni Sigurjóns Ólafssonar verður
opnuð í Listasetrinu Kirkjuhvoli,
Akranesi, í dag 17. júní kl. 16.
Sýnd verða 14 verk frá árunum
1931-1978, unnin í ólík efni s.s. brons,
kopar, leir, stein, jám og tré. Verkin
spanna 47 ár af ferli listamannsins.
Sigurjón var einn af bestu mynd-
höggvurum landsins, hann fæddist á
Eyrarbakka árið 1908. Fyrstu til-
sögn í myndlist hlaut hann hjá Ás-
grími Jónssyni listmálara og síðan
hjá Einari Jónssyni myndhöggvara.
Samhliða listmáminu lauk Sigurjón
sveinsprófí í húsamálun frá Iðnskól-
anum í Reykjavík vorið 1927 og ári
síðar hóf hann nám við Konunglega
Akademíið í Kaupmannahöfn hjá
Utzon-Frank. Haustið 1930 hlaut
hann gullverðlaun Akademísins fyr-
ir styttuna Verkamaður sem nú er í
eigu Listasafns Islands.
Pegar Sigurjón sneri heim að
loknu stríði varð hann meðal braut-
ryðjenda afstraktlistar á íslandi.
Auk þess var hann talinn helsti por-
trettlistamaður sinnar samtíðar.
Mörg verk Sigurjóns má sjá í
Reykjavík og eru einnig verk eftir
hann í Danmörku.
Sýningunni lýkur 11. júlí. Lista-
setrið er opið alla daga nema mánu-
daga frá kl. 15-18. Landsbankinn og
Vátryggingafélag íslands eru
styrktaraðilar sýningarinnar.
Nýjar bækur
• „RURA“ er eftir Þóru Þórodds-
dóttur sjúkraþjálfa og kemur út í
Færeyjum. Bókin er skrifuð sam-
tímis á íslensku og færeysku; ís-
lenska gerðin hefur vinnuheitið Að
hreyfa sig og hjúfra. Fjallað er um
skyn- og hreyfiþroska, einkum það
sem á íslensku hefur verið nefnt
skynreiða (sanseintegration). Bókin
er samin jafnt fyrir fagfólk og for-
eldra.
Höfundurinn hefur starfað á ann-
an áratug í færeyska grunnskóla-
kerílnu með óvirk og klunnaleg böm.
Útkomu bókarinnar var fagnað í
Pórshöfn 6. maí sl. með fjölsóttri
hátíðarsamkomu í Sjónleikarahús-
inu. Þar fluttu ávörp Hentzar Ell-
ingsgaard, frá Kennslu- og mennta-
málastjórninni, Helena Dam á
Neystabo, heilbrigðisráðherra, frá
Landstjórninni og Hedin M. Klein,
rithöfundur, fyrir hönd útgefenda
bókarinnar. A milli léku tvær ungar
stúlkur á hljóðfæri, Marjun Olsen
(flautu og píanó), og hafði hún þá
nýverið hlotið tvenn heiðurslaun í
samkeppni í Danmörku, og Guðný
Næs (fiðlu), en hún er dóttir Þóru.
Að lokum gerði Þóra grein fyrir
vinnu sinni að bókinni og viðfangs-
efni hennar.
Þóra er dóttir hjónanna Guðnýjar
Pálsdóttur og Þórodds Jónassonar
læknis (1919-1995) og fæddist á
Breiðumýri árið 1954. Hún varð
stúdent frá MA 1974 og lauk námi í
sjúkraþálfun í Kaupmannahöfn
1978; starfaði eftir það í Færeyjum,
en á Bjargi á Akureyri frá 1983 til
1985, og síðan einvörðungu með
bömum í Færeyjum þar sem hún
hefur gegnt nýrri stöðu í grann-
skólakerfinu, en bók hennar byggist
á skoðun á 250 grunnskólabömum,
sem fram fór á áranum 1987-1997.
Þóra er gift Martin Næs, rithöf-
undi og landsbókaverði, og eiga þau
þrjú böm.
Utgefandi bókarinnar er Fgroya
skúlabókagrunnur.
Golfsett og
fylgiUutir
fbf
mmmmm
. % if
HIISASMIÐJAN
Sími 525 3000
Aösendar greinar á Netinu http://www.rit.cc ferðaþjónusturáðgjöf, markaðsaðstoð, arðsemis- útreikningar, kynningarrit
^mbl.is ALL.TAf= G/TTH\SA£? A/ÝT7
Höldur ehf
BÍLAR FYRIR ALLA
SMIÐSBÚÐ 2 - GARÐABÆ - SÍMI 5 400 800
Sýnum Fiat / Alfa á Akureyri og í Garðabæ
Frumsýnum Coupé Fiat
Á bílasýningu Bílaklúbbs Akureyrar 17 júní og hjá ístraktor laugardaginn 19 júní.
Sýnum: Coupé Fiat, 220 hestöfl, 6 gírar, Recaro leðurinnrétting, Viscodrive spólvörn, 16” álfelgur. starthnappur ofl.
Alfa 156 Selespeed með Formúla I skiptingu í stýri.
Fiat Bravo HGT með 155 hestafla 2 lítra og 5 strokka orkubúi.
Multipla Fiat sem vakið hefur mikla athygli fyrir óvenjulega hönnun og ótrúlegt rými.
Komið og skoðið það besta frá Fiat og Alfa Romeo.
• w
Istraktor
www.alfaromeo.com
www.fiat.com