Morgunblaðið - 17.06.1999, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999 39
„Bjartar nætur í júní“
Þátttakendur
í Mozart-veislu
Egilsstaðir. Morgunblaðið.
GUÐNÝ Guðmundsdóttir fiðlu-
leikari og Gerrit Schuil píanó-
leikari héldu tónleika í Egils-
staðakirkju. Tónleikarnir voru
liður í hátíðinni „Bjartar nætur
í júní“ sem haldnar eru á Aust-
urlandi. A efnisskrá voru ein-
ungis verk eftir Mozart. Aðrir
tónleikar hátíðarinnar verða í
Neskaupstað en þar munu Stef-
án Höskuldsson fiautuleikari og
Gerrit Schuil píanóleikari flylja
verk eftir Mozart og fleiri. Síð-
asta sýning Töfraflautunnar
verður 19. júní og hátíðinni lýk-
ur svo með því að flutt verður
sálumessan Requiem í Egils-
staðakirkju 20. júní.
Á myndinni eru Guðný Guð-
mundsdóttir og Gerrit Schuil að
loknum Mozart-tónleikunum í
Egilsstaðakirkju.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
Cirkus Cirk-
ör með
aukasýningu
CIRKUS Cirkör - The Scand-
inavian Challenge verður með
aukasýningu á verkinu 00:00 í
Laugardalshöll föstudaginn
18. júní kl. 20.
Sýningin 00:00 gerist á broti
úr sekúndu þegar árið 2000
gengur í garð, í miðri hringiðu
þess þegar svífandi rykkom
rekast á háspennulínu.
Sýningin er innblásin úr
leikhúsi, dansi, rokktónlist og
ljóðum.
Lista-
hátíðin Á
Seyði sett í
Skaftfelli
Á SEYÐI, Listahátíð á Seyðisfirði
verður nú haldin í fimmta sinn og
verður formlega opnuð í Skaftfelli,
menningarmiðstöð, laugardaginn 19.
júní kl. 17. Fjölda gesta er ’ooðið við
opnunina. Ávörp flytja m.a. Arn-
björg Sveinsdóttir alþingismaður,
Hjálmar H. Ragnarsson rektor
Ólafur Sigurðsson bæjarstjóri o.fl.
Hljómsveitin Spaðar leikur nokkur
lög við opnunina.
Aðalsalur Skaftfells verður form-
lega tekinn í notkun eftir endurbæt-
ur. Listsýningar verða opnaðar víða
um bæinn og hljómsveitin Spaðar
heldur tónleika í Herðubreið kl. 22
laugardagsvöldið 19. júní.
Peir sem sýna að þessu sinni eru
Bemd Koperling og Bjöm Roth í
Skaftfelli, Daði Guðbjörnsson, Tolli,
Eggert Einarsson og Ómar Stefáns-
son í Seyðisfjarðarskóla. I Félags-
heimilinu Herðubreið sýna heima-
mennirnir María Gaskell, Þorkell
Helgason, Rut Finnsdóttir, Vil-
mundur Porgrímsson og Olga Kol-
brún Vilmundardóttir og þar er
einnig að finna finnskan arkitektúr.
Á Hótel Seyðisfirði verður sýning
Guðlaugai- Sjafnar frá Hólma, en
hún er brottfluttur Seyðfirðingur,
Verk Stefáns frá Möðmdal „Stór-
vals“ verða í upplýsingamiðstöð
ferðamála við Vesturveg 8. Þar
verða til sýnis verk í einkaeigu að-
standenda Stórvals og einnig verk
sem aldrei hafa verið sýnd áður en
fundust nýlega í geymslu lista-
mannsins. Sýningarnar verða opnar
alla daga nema mánudaga kl. 14-18.
Sunnudaginn 20. júní verður
menningardagur barna, Karlinn í
tunglinu. Kl. 14 verður opnuð sýning
á þrívíðum verkum barna á leik-
skólaaldri, við opnunina verða Sn-
uðra og Tuðra. Snuðra og Tuðra
verða síðan með leiksýningu í
Herðubreið kl. 16 á sunnudaginn.
Þess má geta að verkefnið Karlinn í
tunglinu - börnin á jörðinni, hefur
verið valið sem samstarfsverkefni
sveitarfélaga og Reykjavíkur menn-
ingarborgar Evrópu 2000.
Framkvæmdastjórar listahátíðar-
innar Á Seyði eru Aðalheiður Borg-
þórsdóttir og Gréta Garðarsdóttir.
Borðdúkar til
Uppsetningabúðin
Hvcrfisgötu 74, sími 552 5270.
64mb vinnsluminni
6.4 gb Seagate harðurdiskur
17" MAGskjár
16 mb Riva TNT Skjákort
Sound blaster 128
40x Geisladrif
300w Hátalarar
56k V.90 módem
4mánaða internet
áskrift hjá Skímu
Windows 98
Verð 134.900.-
450 mhx
pentium fff
128mb vinnsluminni
6.4 gb Seagate harðurdiskur
17“ MAG skjár
32 mb Savage4 Skjákort
Sound blaster Live
DVD Geisladrif 6X Dxr3
4 Hátalarar m/bassaboxi
56k V.90 módem
4 mánaða internet
áskrift hjá Skímu
Windows 98
Verð 169.900.-
64mb vinnsluminni
6.4 gb Seagate harðurdiskur
17“ MAG skjár
8 mb 3D Skjákort
Sound blaster 128
40x Geisladrif
300w Hátalarar
56k V.90 módem
4 mánaða internet
áskrift hjá Skímu
Windows 98
PC / skipholti 17 / sími 530 1800
Macintosh / skipholti 21 / sími 530 1820
www.aco.is / www.apple.is
opið virka daga: 9-18
|
|
I
I
i