Morgunblaðið - 17.06.1999, Page 47

Morgunblaðið - 17.06.1999, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999 47 JONINA G UÐMUNDSDÓTTIR + Jónína Guð- mundsdóttir fæddist í Reykjavík 26. september 1910. Hún lést á hjúkrun- arheimilinu Ljós- heimum, Selfossi, 13. júní sl. Foreldr- ar hennar voru hjónin Guðmundur Helgason, sjómaður í Reykjavík, f. 4. apríl 1876 í Skál- holti, Arnessýslu, d. 19. febrúar 1959 og kona hans Guðrún Gísladóttir, f. 6. nóvember 1874 á Þverspyrnu í Hrunamannahreppi, d. 22. júní 1914. Jónína ólst að mestu upp í Skeiðháholti á Skeiðum hjá Bjarna og Guðlaugu. Árið 1934 giftist hún Eiríki Bjarnasyni frá Hlemmiskeiði á Skeiðum. Þau stofnuðu heimili að Grímsstöðum á Selfossi og bjuggu þar í 12 ár, en þá fluttu þau í nýbyggt hús að Reynivöll- um 9, og bjuggu þar síðan. Ei- ríkur lést 2. febrúar 1998. Jóninu og Eiríki varð þriggja barna auðið. Þau eru: 1) Inga, flugfreyja, f. 1936, í sambúð með Krist- jáni Jóhannessyni og á hún eina dótt- ur, Berthu sem að mestu ólst upp hjá ömmu sinni og afa á Reynivöllum. Hún vinnur við hjúkrun og er gift Tryggva Karli Magnússyni og eiga þau þrjú börn og eitt barna- barn. 2) Guðrún Ás- iaug, ski’ifstofu- stúlka, f. 1942, gift Kristjáni Jónssyni og eiga þau þrjú börn, Hafdísi Jónu, gifta Bergsteini Einars- syni, Jón Birgi, kvæntan Sigríði Björnsdóttur og Hrafnhildi, í sambúð með Steindóri Pálssyni. Barnabörn þeirra eru orðin sex. 3) Guðmundur, mjólkurfræð- ingur, f. 1946, kvæntur Guð- flnnu Ólafsdóttur og eiga þau tvö börn, Unni og Eirík Orra í sambúð með Guðrúnu Árna- dóttur. Útför Jónínu fer fram frá Sel- fosskirkju föstudaginu 18. júm og hefst athöfnin klukkan 14.30. Hinsta kveðja til móður minnar. Ertu horfin? Ertu dáin? Er nú lokuð glaða bráin? Angurs horfi ég út í bláinn, autt er rúm og stofan þín, elskulega mamma mín. Gesturinn með grimma ljáinn glöggt hefur unnið verldn sín. Eg hef þinni leiðsögn lotið, hka þinnar ástar notið, finn hve allt er beiskt og brotið burt er víkur aðstoð þín, elsku góða mamma mín. Alit sem gott ég hefi hlotið hefureflstviðráðinþm. Flýg ég heim úr fjarlægðinni, fylgi þér í hinsta sinni krýp með þökk að kistu þinni, kyssi í anda sporin þín, elsku góða mamma mín. Okkar seinna í eilífðinni eilíft ljós frá Guði skín. (Ámi Helgason.) Þín dóttir, Inga. bjó með fóður sínum. Jónína var lengst hjá fólkinu í Skeiðháholti á Skeiðum. Hún minntist oft þeirra stunda með mikilli ánægju. Jónína gekk að eiga Eirík Bjarna- son, bónda. Þau hjón voru gjarnan kennd við Reynivelli á Selfossi. Ei- ríkur var ættaður frá Hlemmiskeiði á Skeiðum. Eiríkur lést fyrir fáein- um misserum í hárri elli. Þau hjón voru mjög samrýnd. Þau Eiríkur eignuðust þrjú böm og ólu upp dótt- urdóttur sína. Bömin eru í aldurs- röð: Inga, Guðrún Áslaug, Guð- mundur Helgi og Bertha. Jónína var trygglynd, vinaföst og frændrækin og þess nutu fjölskylda hennar og frændfólk. Jónína var mikil fjölskyldumanneskja, fjöl- skyldan átti hug hennar allan. Jónína var ákaflega hlý kona, glöð og lífleg í sínum hópi. Aila tíð var mjög stutt í brosið, hún sá ætíð hið spaugi- lega. Hún var góðgjöm, skilningsrík og tillitsöm, svo að gott var að eiga hana að. Þess naut móðir mín á erf- iðleikatímum, sérstaklega er hún missti fóður minn og ekki síst er systir mín lést 39 ára gömul eftir langa og erfiða sjúkdómslegu. Þá var gott að aka austur á Selfoss og mæta þeirri hlýju og góðvild sem ætíð fylgdi Jónu frænku eins og hún var gjama kölluð. Er 'ég sem þetta skrifa var fimm ára, dvaldi ég, vegna veikinda móður minnar, hjá Jónu frænku og Eiríki í nokkrar vikur. Aila tíð síðan hafa verið sérstök vináttubönd milli mín og fólksins á Reynivöllum 9. Eftir að ég stofnaði fjölskyldu vom farnar margar ferðir austur fyrir fjall. Ég og fjölskylda mín minnumst margra ánægjulegra stunda á heimili Jónu og Eiríks. Hér með þakka ég henni allt sem hún gerði fyrir mig, fjöl- skyldu mína og móður mína. Okkur, sem nú fylgjum Jónínu síð- asta áfangann, finnst mikill sjónar- sviptir við hvarf hennar úr samfélagi okkar. En það sem mest er um vert er það, að hún skilur eftir í hugum okkar allra, sem þekktum hana, bjarta og hreina minningu um per- sónu sem bar með sér góðvild og hlýju og gerði lífið bjartara og betra umhverfis sig. Gott er að minnast hennar og minningin um hana mætti verða okkur áminning til eftir- breytni. Eftir er mikill söknuður, enginn fyllir hennar skarð, en minn- ingin um góða, trygga og göfuga manneskju lýsir okkur sem þekktum hana best. Mestur er söknuðurinn hjá börn- um hennar og fjölskyldum þeirra, sem sjá á bak móður, ömmu, langömmu og langalangömmu en þau eiga bjartar minningar um hana sem þau geta yljað sér við með Guðs hjálp. Guð varðveiti þau og blessi í sorg þeirra. Guðmundur Hjálmarsson, María Kristmundsdóttir og Daði Guðmundsson. Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EGILL STEFÁNSSON bóndi, Syðri Bakka, Kelduhverfi, verður jarðsunginn frá Garðskirkju laugardaginn 19. júní kl. 14.00. Hún Amma á Reynó hefur yfirgef- ið þennan heim, og heldur nú á fund við hann afa sem hún saknaði svo mikið. Aldrei er hægt að vera sáttur við fráfall nákomins ættingja en maður verður að trúa því að við taki eitthvað betra. Litli langalangömmu- strákurinn hann Aron Kai-1 fékk ekki langan tíma með henni ömmu sinni og þegar við litum inn til hennar daginn áður en hún dó var svo áber- andi hvað hann sótti mikið í að fá að koma við hana, brosa til hennar og sýna henni allar sínar kúnstir. Það verður skritið að fá ekki að eiga fleiri jól með henni, þegar engin jól hafa verið án hennar. „Hafðu það gott og láttu þér líða vel.“ Þetta voru orðin sem við kvödd- um hana langömmu með á laugar- deginum. Þessi sömu orð viljum við nota núna sem okkar síðustu orð tO hennar. Þórir, Aðalbjörg og Aron Karl. Ingibjörg Jóhannesdóttir, Eyrún Egilsdóttir, Bernharð Grímsson, Egill Egilsson, Erla Björk Helgadóttir og barnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda faðir, afi og langafi, HÖSKULDUR GUÐLAUGSSON frá Réttarholti, Grýtubakkahreppi, verður jarðsunginn frá Grenivíkurkirkju laugar daginn 19. júní kl. 14.00. Arnbjörg Halldórsdóttir, Haraldur Höskuldsson, Sigrún Aðalsteinsdóttir, Guðlaugur Höskuldsson, Óli Gunnar Höskuldsson, Halldór Sigurbjörn Höskuldsson, Janette Þórkatla Höskuldsson, barnabörn og langafadætur. Okkur langar að kveðja með nokkrum orðum kæra móðursystur og frænku, Jónínu Guðmundsdóttur, húsmóður, sem andaðist 13. þessa mánaðar á Sjúkrahúsi Suðurlands á Selfossi. Jónína var fædd hér í Reykjavík 26. september 1910, og hefði því orð- ið 89 ára á þessu ári. Jónína var næstyngst af fimm börnum þeirra hjóna Guðmundar Helgasonar tog- arasjómanns og Guðrúnar Gísladótt- ur konu hans. Jónína missti móður sína þegar hún var á fjórða ári. Eins og títt var á þeim tíma leystist heim- ilið upp og fóru börnin í fóstur hjá vandalausum eða frændfólki. Móðir mín sem var elsta barnið, þá tíu ára, + Elskuleg móðir mín og tengdamóðir, SIGRfÐUR RAGNA HERMANNSDÓTTIR, til heimilis á Norðurbrún 1, Reykjavík, sem lést fimmtudaginn 10. júní sl., verður jarðsungin frá Háteigskirkju mánudaginn 21. júní kl. 13.30. Magnús Erlingsson, Kristln Torfadóttir. + Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir okkar, tengdafaðir og sonur, ÞORKELL MÁNI ANTONSSON, Hjallavegi 3 (Björgvin), Eyrarbakka, verður jarðsunginn frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 19. júní kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. María E. Bjarnadóttir, Guðmundur Þorkelsson, Líney Magnea Þorkelsdóttir, Eiríkur Vignir Pálsson, Ólöf Þóra Þorkelsdóttir, Sigurgeir Trausti Höskuldsson, Guðrún Telma Þorkelsdóttir, Líney Kristinsdóttir. + Útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, EYRÚNAR GUÐJÓNSDÓTTUR, Gröf, Hrunamannahreppi, fer fram frá Hrunakirkju laugardaginn 19. júní kl. 14.00. Guðjón Emilsson, Sigríður Guðmundsdóttir, Guðrún Emilsdóttir, Guðmundur fsak Pálsson, Áshildur Emilsdóttir, Þorsteinn J. Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, BÖÐVAR SVEINBJARNARSON frá ísafirði, verður jarðsunginn frá Isafjarðarkirkju föstudaginn 18. júní kl. 14.00. Bergljót Böðvarsdóttir, Jón Guðlaugur Magnússon, Eiríkur Böðvarsson, Halldóra Jónsdóttir, Kristín Böðvarsdóttir, Pétur S. Sigurðsson og barnabörn. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÉTUR ÁGÚSTSSON múrarameistari, Fannafold 129 A, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstu- daginn 18. júní kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á FAAS. Guðrún Kristjánsdóttir, Sigurbjörg Pétursdóttir, Ágúst Pétursson, Kristján Pétursson, Elí Pétursson, Lára Pétursdóttir og fjölskyldur. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, bróður, mágs, afa og langafa, EYÞÓRS BJÖRGVINSSONAR frá Klöpp á Akranesi, til heimilis á Hlíðargötu 2, Sandgerði. Jacqueline Björgvinsson, Auður Eyþórsdóttir, Herdís S. Eyþórsdóttir, Svanborg Eyþórsdóttir, Björgvin Ó. Eyþórsson, Rannveig Eyþórsdóttir, Hjördís Eyþórsdóttir, Björn Rasmussen, Vilhjálmur Friðþjófsson, Ragnheiður Gunnarsdóttir, Sigurður K. Guðnason, Curtis S. Cheek, Jón Valgeir Björgvinsson, Karlotta Óskarsdóttir, Bettý Kr. Fearon, Róbert Fearon, Hildur Óskarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. m

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.