Morgunblaðið - 11.07.1999, Page 4

Morgunblaðið - 11.07.1999, Page 4
4 SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 7/6 -13/6 ►MAÐUR um tvíl ugt réðst með hrottafengnum hætti á tæplega fertuga konu, sem var á gangi í Fossvogsdal með barnakerru og tveggja ára bam meðferðis. Hann viðhafði nauðgunarhótanir en konan slapp frá honum. ►INGIMUNDUR hf. og Látrar hf. hafa gert samning við Básafell hf. á ísafirði um kaup á frystitogaranum Sléttanesi IS. Skipinu fylgja 4,5% aflaheimilda Básafells, en í Iok ágúst á síðasta ári átti Básafell alls um 7.000 þorskígildistonn. ►FASTAFULLTRÚI íslands hjá Alþjóðaviðskiptastofnun- inni í Genf, Benedikt Jóns- son sendiherra, flutti til- lögðu í aðalráði stofnunar- innar um afnám ríkisstyrkja í sjávarútvegi. Halldór Ás- grímsson, utanríkisráðherra, sagði að Islendingar hefðu talað máli þessarar hug- myndar lengi. ►FYRIRTÆKI Rauða hers- ins á Vestfjörðum afturköll- uðu beiðni um greiðslustöðv- un, sem fyrirtækjunum var veitt 24. júní. Ketill Helga- son, framkvæmdastjóri fyr- irtækjanna, sagði að beiðnin hefði verið afturkölluð þar sem ljóst hafl þótt að ekki væri grundvöllur fyrir nauðasamningum vegna þess að ekki hefði fengist lán frá Byggðastofnun. ►BÚNAÐARBANKINN Verðbréf keyptu rúmlega 20% eignarhlut í flugfélaginu Atlanta. I tengslum við kaup- in var undirritaður samning- ur milli fyrirtækjanna um að Búnaðarbankinn Verðbréf myndu undirbúa útboð og stefnt er að skráningu á Verðbréfaþingi íslands. Flugslys við Hornafjörð FLUGVÉL af gerðinni Gulfstream AA-5A fórst við Stokksnes við Horna- fjörð, skammt undan landi. Tvær breskar konur voru um borð í vélinni og sluppu þær báðar ómeiddar. Önnur kvennanna, flugmaðurinn, komst í land af eigin rammleik en hinni var bjargað um borð í vélbátinn Gústa í Papey tveimur tímum síðar. Þá var hún ná- lægt Hafnartanga inni í Lónsvíkinni. Konurnar voru báðar í flotgöllum og að sögn þeirra sem að björguninni stóðu hefur það ugglaust bjargað lífí þeirra. Bræla var á slysstað og voru konurnar orðnar kaldar eftir volkið. Þær voru fluttar til Reykjavíkur að lokinni lækn- isskoðun á Heilugæslustöðinni á Höfn í Hornafírði. Fangi á Litla-Hrauni sveik fé úr bönkum FANGI Á Litla-Hrauni er grunaður um að hafa haft að minnsta kosti hálfa milljón króna út úr fyrirtæki hérlendis með því að millifæra fé af reikningi þess inn á reikning á eigin vegum og samverkamanns utan múranna, sem tók síðan féð út. Grunur leikur á að um háar upphæðir kunni að vera að ræða. Maðurinn, sem komist hefur í kast við lögin vegna ýmiss konar afbrota, mun hafa notað peningasíma, sem fangar á Litla-Hrauni hafa til afnota, við svikin. Bætt við íslenska loftvarnakerfíð MANNVIRKJASJÓÐUR Atlantshafs- bandalagsins hefur samþykkt að ráðist verði í byggingu viðbótarbúnaðar, sem nefndur hefur verið Link-16, við ís- lenska loftvamakerfið. Að sögn Hall- dórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra er áætlaður kostnaður við verkið um 28 milljónir bandaríkjadala eða sem svar- ar til rúmlega tveggja milljarða ís- lenskra króna. Gert er ráð fyrir að und- irbúningur, hönnun og uppsetning kerfísins muni taka tvö og hálft til þrjú ár. Barak tekur formlega við í ísrael EHUD Barak, leiðtogi Verkamanna- flokksins tók formlega við embætti for- sætisráðherra í ísrael á þriðjudag eftir langvinnar stjómarmyndunarviðræður en Barak sigraði Benjamin Netanyahu, leiðtoga Likud-bandalagsins, öragglega í forsætisráðherrakjöri 17. maí síðastlið- inn. Barak sagði í ræðu eftir að hann hafði svarið embættiseið að friðarum- leitanir yrðu forgangsverkefni sitt og hét hann því á miðvikudag að ræða við alla nágranna ísraels. Hann hitti Hosni Mubarak, forseta Egyptalands, á föstu- dag og gert var ráð fyrir því að hann hitti Yasser Arafat, leiðtoga Palestínu- manna, í dag, sunnudag. Ný framkvæmdastjórn ESB skipuð ROMANO Prodi, nýr forseti fram- kvæmdastjómar Evrópusambandsins (ESB), kynnti samsetningu nýmar nítján manna framkvæmdastjórnar á föstudag. Aðeins fjórir höfðu einnig ver- ið í fráfarandi framkvæmdastjórn sem neydd var til að segja af sér vegna hneykslismála. Prodi lýsti því yfír á fréttamannafundi að skipun hinnar nýju framkvæmdastjómar markaði upphaf mikils umbótaátaks. Skæruliðar hörfa í Kasmír INDVERJAR kváðust á föstudag hafa náð tangarhaldi á mikilvægum víg- stöðvum í Kasmír en Indlandsher hef- ur undanfarnar vikur tekist á við skæruliða þar í héraðinu. Fyrr í vik- unni höfðu Indverjar lýst vantrú á yfir- lýsingu sem Nawaz Sharif, forsætis- ráðherra Pakistans, hafði gefíð um að hann myndi fá skæraliðana til að hætta átökum og fara af svæðinu. Indverjar segja skæruliðana í raun liðsmenn Pakistanhers en þjóðirnar tvær hafa deilt hart um yfírráð yfir Kasmír und- anfarin fímmtíu ár. ►STRÍÐANDI fylkingar í Vestur-Afríkuríkinu Sierra Leone komust á miðvikudag að samkomulagi sem bindur enda á átta ára borgarastríð í landinu. Náðust samningar eftir að hreyfing uppreisnar- manna gaf eftir helstu kröfur sínar. Ahmed Tejan Kabbah, forseti Sierra Leone, og Foday Sankoh, leiðtogi Sameinuðu byltingarfylking- arinnar, skrifuðu undir sam- komulagið sem var fagnað víða um heim. ►SKRÚÐGANGA Óraníu- reglunnar í Portadown á Norður-írlandi siðastliðinn sunnudag fór friðsamlega fram og kom ekki til sam- bærilegra átaka og undan- farin ár. Tony Blair, forsæt- isráðherra Bretlands, hét því á mánudag í breska þinginu að sjá til þess að Sinn Féin, stjórnmálaarmur írska lýð- veldishersins (IRA), yrði úti- lokaður frá heimastjórn stæði IRA ekki við skuldbind- ingar varðandi afvopnun. ►HILLARY Clinton, forseta- frú Bandaríkjanna, lýsti þvf yfír í vikunni í fyrsta skipti að hún ætlaði að bjóða sig fram til setu í öldungadeild Bandarílqaþings fyrir New York-ríki í næstu þingkosn- ingum. Talið er að Clinton muni etja kappi við Rudolph Giuliani, borgarstjóra í New York, í kosningunum og sýna skoðanakannanir að þau hafa svipað fylgi meðal kjósenda. ►FJÖLDI manns hefúr látið líflð í blóðugum átökum milli marxi'skra skæruliða og sér- sveita stjórnarhersins í Kól- umbi'u í þessari viku og fara vonir um að friður komist á í landinu nú dvínandi. FRÉTTIR Bláa lónið Nýr baðstað- ur opnaður almenningi NÝR baðstaður Bláa lónsins var sl. föstudag opnaður almenningi. Fyrstu gestir til að baða sig voru liðsmenn meistaraflokks Grinda- víkur í körfuknattleik karla og kvenna, auk körfúknattleiksfólks úr Keflavík. Að sögn Magneu Guðmundsdóttur, kynningastjóra Bláa lónsins, höfðu um 800 manns brugðið sér í lónið strax á fyrsta degi. Lónið verður opið fyrir gesti um helgina. Framkvæmdum við Bláa lónið er nú nær lokið, en kostnaður við breytingarnar er um 500 milljón- Morgunblaðið/Halldór Kolbeins ÁNÆGÐIR gestir í Bláa lóninu. ir. Næsta fimmtudag verður bað- verður forseta íslands boðið á staðurinn opnaður formlega og opnunina. Hlaðvarpinn búinn að fá leyfí til skemmtanahalds til 3 á næturna „Ekki ætlunin að storka nágrönnum“ HLAÐVARPINN fékk vínveitinga- leyfi fyrir helgi að sögn Sigríðar Erlu Jónsdóttur, framkvæmda- stjóra staðarins, og þar með heimild til að hafa skemmtanir til klukkan þrjú eftir miðnætti um helgar. „Á fundi í gær [fimmtudag] fengum við fullt skemmtanaleyfí. Það var óskað eftir að hægt væri að hafa opið leng- ur þegar svo bæri undir, en það stendur hins vegar ekkert slíkt til, ekki fremur en að fullnýta leyfi sem við fengum til að hafa vínveitingar utan húss til klukkan 20 á kvöldin," segir Sigríður Erla. Hún kveðst harma það að dagskrá í Hlaðvarpanum hafí raskað ró íbúa í Grjótaþorpi, en þeir hafa kvartað yf- ir skemmtanahaldi þar og í Club Clinton. „Það er alls ekki meiningin að storka nágrönnum okkar og mér þykir ákaflega leiðinlegt að þeir telji þetta hafa verið svona óbærilegt. Þarna er um mjög sjaldgæfa við- burði að ræða, alls ekki reglan," seg- ir hún. Óskað eftir stefnumörkun íbúasamtök Gijótaþorps sendu yf- irstjóm Reykjavíkurborgar erindi 5. júh' sl., þar sem óskað er eftir stefnu- mörkun af hálfu borgarráðs Reykja- víkur varðandi framtíð íbúðarbyggð- ar og búsetu í Gijótaþorpi. Segir þar að íbúar hverfisins búi við algert óör- yggi hvað varðar lágmarksskilyrði búsetu, og hafi þeir af þeim sökum staðið í langvarandi bréfaskriftum við stjómkerfi borgarinnar vegna skemmtanahalds í ábataskyni sem borgaryfirvöld hafi leyft ýmsum aðil- um að stunda í hverfinu. Bendir formaður samtakanna, Kolbeinn Árnason, á í bréfinu að há- vaði sé af skemmtistöðunum Club Clinton og Hlaðvarpanum, þeim fylgi mikil umferð drakkins og há- vaðasams fólks á svefntíma íbúa hverfisins, sóðaskapur og traflun á aðgengi, þar sem gestir og starfs- fólk þessara staða leggi bifreiðum sínum í hverfinu. Af því síðast- nefnda stafi m.a. sú hætta að ekki sé hægt að koma slökkviliðs- eða sjúkrabílum um hverfið með eðlileg- um hætti. Þá fylgi starfsemi þessara staða menningarsnauð og siðferðileg lágkúra, og er einkum bent á Club Clinton í því sambandi. Leyfi ekki rýmkað Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri segir að málefni skemmti- staðarins sem nú nefnist Club Clint- on séu að mörgu leyti erfið viðfangs. Umræddur staður teljist til miðbæj- arsvæðis, jafnvel þó svo að hann teygi sig inn í íbúðarhverfið Gijóta- þorp, og samræmist starfsemi hans því skipulagi sem gert er ráð fyrir á miðbæjarsvæði, þ.e. verslun, veit- ingastarfsemi eða öðra slíku. ,Áf þeim sökum getum við ekki lagst á móti veitingastarfsemi á þessum stað, en við getum hins veg- ar haft skoðanir á því hvemig þessi rekstur á að vera. Meðal annars vegna þess að veitingastarfsemi á þessum stað raskaði næturró fólks, ákvað borgarráð að veita staðnum ekki opnunartíma lengur en til 23.30 virka daga og 1 eftir miðnætti um helgar, og við það hefur verið staðið. Við höfum ekki fjallað um óskir um rýmkun leyfis og lengri opnunartíma hjá borginni, þannig að íbúar Grjóta- þorps hafa enga ástæðu til að vera með yfirlýsingar um það mál. Ég get hins vegar sagt að miðað við það áreiti sem hefur verið af þessum stað og þær kvartanir sem hafa borist, tel ég ekki að af rýmkun leyfis verði. Ég get líka tekið undir raddir þess efnis að það er sannarlega ekki menning- arauki af þessum nektarstöðum, en borgaryfirvöld hafa ekki tök á að ákveða hvers kyns skemmtanastarf- semi fer fram í þessum húsum,“ seg- ir Ingibjörg Sólrún. Kvartanir athugaðar Varðandi málefni Hlaðvarpans segir borgarstjóri það eiga við hann eins og aðra slíka staði, að þeir verði að gæta þess að hávaði berist ekki frá þeim þannig að næturró fólks raskist. „Mér skilst að Hlaðvarpinn hafi verið með sk. tækifærisleyfi, þ.e. leyfi sem sækja þarf um fyrir hvert tilvik. Við munum hins vegar skoða þessi mál og athuga hvaða kvartanir hafa borist lögreglu, enda er hún um- sagnaraðili hvað varðar leyfisveiting- ar.“ Sigríður Erla vildi koma því á framfæri, að í Hlaðvarpanum hefði verið rekin menningarmiðstöð kvenna um fimmtán ára skeið og verði gert áfram. Hlaðvarpinn hafi átt mjög gott samstarf við Reykja- víkurborg í gegnum tíðina varðandi starfsemi í húsinu og alla uppbygg- ingu á svæðinu, og endurbætur standi m.a. yfir um þessar mundir. „Það sem við eram að gera ætti að vera Grjótaþorpinu til framdráttar og fegurðarauka. Fram til þessa höf- um við einnig átt mjög góð samskipti við íbúa í hverfinu og vonum að svo verði áfram. Við erum eingöngu að auka lífið í húsinu, efla og styrkja Hlaðvarpann bæði innan sem utan, og höfða til sem flestra,“ segir hún. Mikill mannfjöldi í bænum Karl Steinar Valsson, aðstoðaryfir- lögregluþjónn hjá lögreglunni í Reykjavík, segir að lögreglan hafi fengið kvartanir og farið til eftirlits á þessu svæði. Hann segir málin þar hafa verið til skoðunar eins og mál- efni allra veitingastaða í miðborginni. Ekki sé hins vegar hægt að merkja að hávaðinn komi sérstaklega frá ákveðnum veitingastað eins og Odd- ur Bjömsson sagði í samtali við Morgunblaðið og birtist sl. fóstudag. „Það era fjölmargir veitingastaðir á svæðinu og mikill mannfjöldi og við höfum því ekki getað tekið undir allt sem hann talar um og merkt það ein- um veitingastað. I sumum tilvikum höfum við getað tekið undir að hjá honum hafi verið hávaði og ónæði án þess að geta sagt að það stafi frá ákveðnum veitingastað,“ segir Karl Steinar og bendir á að bæði Hlað- varpinn og Club Clinton hafi skert leyfi og aðrir veitingastaðir í ná- grenninu hafi opið mun lengur. PÁLL ÁSGEtR ÁSGEIRSSON fiórar af vinsælustu Leiðsögurit um f)óraraf\ gönculeií landsins: GÖNGUUIDm - þórsmðfk llríðub. Srf-lÁBSÖRcfi HhMtws - Hvnawöii Landmannalaugar • Þórsmörk | Herðubreiðarlindir • Svartárkot j Snæfell • Lónsöræfi Hvítámes • Hveravellir Fjöldi Ijóemynda Mál og menning Laugavogi 18 • Slmi 515 2500 • Síðumula 7 • Simi 510 2500

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.