Morgunblaðið - 12.08.1999, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 12.08.1999, Qupperneq 1
179. TBL. 87. ÁRG. FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Stríðsherra frá Tsjetsjníu stjórnar uppreisninni í Dagestan Ætlar að hrekja Rússa frá Kákasushéruðunum Rakhata, Moskvu. Reuters. SHAMIL Basajev, einn af helstu skæruliðaleið- togum Tsjetsjníu, kvaðst í gær stjóma uppreisn íslamskra aðskilnaðarsinna í nágrannahéraðinu Dagestan og sagðist stefna að því að hrekja alla rússneska hermenn úr Norður-Kákasushéruð- unum. Blaðamenn í Tsjetsjníu fengu að fara til fjallaþorps í Dagestan til að ræða við Basajev, sem staðfesti að hann stæði á bak við uppreisn- ina og sagði að henni yrði haldið áfram þar til „vantrúaðir" Rússar yrðu hraktir af öllum land- svæðum Norður-Kákasushéraðanna. „Ef Rússar fara af sjálfsdáðum frá Kákasus látum við þá í friði,“ sagði hann. „Ef þeir gera það ekki neyðum við þá til þess.“ Skæruliðaleiðtoginn bætti við að uppreisnar- mennimir hefðu umkringt rássnesku hersveit- imar á átakasvæðinu. Álitinn stríðshetja Basajev er ef til vill þekktasti skæruliðaleið- toginn í Tsjetsjníu og stjórnaði blóðugri gísla- töku á sjúkrahúsi í rússneska bænum Búd- jonnovsk í Tsjetsjníu-stríðinu 1994-96 sem lauk með auðmýkjandi ósigri Rússa. Hann fór einnig fyrir skæruliðum sem vörðu Grosní, höfuðstað héraðsins, og margir Tsjetsjenar líta á hann sem stríðshetju. Skæruliðarnir hafa fengið sérstaka þjálfun í fjallahernaði og staðist loftárásir og umsátur rássneskra hersveita frá því þeir náðu nokkrum þorpum í Dagestan á sitt vald um helgina. Þeir hafa lýst yfir stofnun sjálfstæðs ríkis og „heilögu" frelsisstríði á hendur Rússum. Hóta skæruliðum öllu illu Vladímír Kolesníkov, aðstoðarinnanríkisráð- herra Rússlands, sagði í gær að tíu rássneskir hermenn hefðu fallið og 27 særst í átökunum síðasta hálfa mánuðinn. Uppreisnarmennirnir hefðu orðið íyrir mun meira mannfalli. Vladímír Rúshaílo, innanríkisráðherra Rúss- lands, sagði að hersveitimar hefðu umkringt skæmliðana og komið í veg fyrir að Tsjetsjenar gætu sent liðsauka til Dagestans. „Við stefnum að því að gjöreyða þeim.“ Fulltrúar stofnunar í Dagestan, sem nefnd er Islamska ráðið, sögðust í gær hafa beðið Basa- jev um að stjórna uppreisninni. Yfírvöld í Dag- estan, sem eru á bandi Rússa, hafa bragðist ókvæða við yfirlýsingum ráðsins og búa sig nú undir að sækja leiðtoga þess til saka. Tsjernomyrdín styður Pútín Vladímír Pútín, sem Borís Jeltsín forseti hef- ur tilnefnt forsætisráðherra, ræddi átökin í Dagestan við yfirmenn hersins og héraðsleið- toga í Sambandsráðinu, efri deild þingsins. Pútín kveðst vona að hægt verði að kveða upp- reisnina niður innan hálfs mánaðar. Viktor Tsjernomyrdín, íyrrverandi forsætis- ráðherra, lýsti því yfir í gær að flokkur sinn, Heimili okkar er Rússland, myndi styðja Pútín í atkvæðagreiðslunni um tilnefninguna í dúmunni, neðri deild þingsins, á mánudaginn kemur. Bandaríkin Hvirfílbyl- ur í Salt Lake City Salt Lake City. AP, Reuters. HVIRFILBYLUR reið yfir Salt Lake City, ríkishöfuðborg Utah- fylkis í Bandaríkjunum, rétt fyrir klukkan eitt eftir hádegi að staðar- tíma í gær með þeim afleiðingum að a.m.k. einn lést og um fjöratíu manns særðust. Tré og hjólhýsi tókust á loft og þakið á Delta-miðstöðinni, heima- velli Utah Jazz-körfuboltaliðsins, eyðilagðist auk þess sem gluggar á hótelum og heimilum fólks sprangu er skýstrókurinn gekk yfir á um 180 km hraða á klst. Rafmagn fór víðsvegar af í borginni, símalínur lágu niðri og fjölmargir fólksbílar og vörabílar lágu á hlið eða klesstir hver við annan á götunum. Haglél á stærð við marmarakúl- ur fylgdu hvirfilbylnum. Að sögn slökkviliðs á staðnum slösuðust yf- ir hundrað manns af völdum ský- stróksins og að a.m.k. sjö vora fluttir þungt haldnir á spítala. Reuters RABBINI í Jerúsalem í Israel horfði á sólmyrkvann í gegnum sérstök varnargleraugu í gær. Þar huldi tunglið 80 prósent sólar er myrkvinn var mestur. Síðasti sólmyrkvi 20. aldarinnar liðinn hjá Isfahan. Reuters, AFP. MILLJÓNIR manna fylgdust með siðasta sólmyrkva 20. aldarinnar víðsvegar um heim í gær. Á mörgum stöðum var himinninn þó skýjaður sem gerði að verkum að fjölmargir, sem beðið höfðu fullir eftirvæntingar eftir atburð- inum, misstu af myrkvanum. Sólmyrkvinn hófst við sólar- upprás klukkan eina mínútu yfir hálftíu að íslenskum tíma undan ströndum Nova Scotia í Suðaust- ur-Kanada. Á 2.400 km hraða á klst. lagðist skuggi tunglsins yfir Atlantshafið, Bretland, Frakk- land, Þýskaland, Mið-Evrópu, Júgóslaviu, Rúmeníu og alla leið yfir Tyrkland, frak, fran, Pakist- an og Indland áður en hann hvarf yfir Bengalflóa. Alls hafði myrkvinn ferðast um 13.000 km á rúmlega þremur klukkustund- um, en almyrkvi varð á 110 km breiðu belti. I Lundúnum, Brussel, París, Stuttgart, Frankfurt, Búkarest og Ankara var um 95 prósent myrkur, en í Rimnicu Vilcea í Rúmeníu, þar sem almyrkvi stóð hvað lengst, huldist hann manns- auganu af völdum skýja. Heiðskírt var víðast hvar í Miðausturlöndum og í Teheran lögðust þúsundir á fjöldabæn, líkt og í Egyptalandi og Líbanon. í Sýrlandi og Jórdamu var opin- ber frídagur í tilefni dagsins og íjölmargir fóru að fyrirmælum yfírvalda og héldu sig innandyra en horfðu á sólmyrkvann í sjón- varpi. Monsúnrigning skyggði á sól- myrkvann á flestum stöðum í Suður-Asíu en skammt frá Nýju- Delhí böðuðu 400.000 manns sig í heilögum vötnum Sannihet og Brahm, meðan á sólmyrkvanum stóð, í þeirri von að endurfæðast inn í æðstu stétt hindúa, Brahma. ■ Að séðum/26 Mikil spenna í samskiptum Indverja og Pakistana Asakanir á víxl Reuters ATAL Behari Vajpayee, forsætisráðherra Indlands, skoðaði flak pakistönsku flugvél- arinnar, sem Indveijar skutu niður í vik- unni, á skrifstofu sinni í Delhí í gær. Islamabad, N^ju-Delhí. Reuters, AFP. PAKISTANAR skutu í gær á indverskar her- þotur við landamæri ríkjanna við Arabíuhaf en neituðu alfarið að hafa skotið að þyrlum, sem höfðu að geyma blaðamenn sem unnu að fréttum er tengdust pakistönsku eftirlitsflug- vélinni sem Indverjar grönduðu á þriðjudag. Á sama tíma greindu ind- versk stjórnvöld frá því að fimm pakistanskir hermenn hefðu fallið í átökum við Siachen- jökulinn, í grennd við fjallalandamæri ríkjanna, eftir að þeir höfðu reynt að ná indverskri varðstöð á sitt vald. Pakistanar segja að sextán manna áhöfn eftirlitsflugvélarinnar hafi farist í „fyrirvaralausri“ árás Indverja á þriðjudag. Deilur standa um hvort Indverjar skutu vélina niður í lofthelgi sinni eða Pakistans og varð atburðurinn til að magna mjög á nýjan leik spennu í samskiptum landanna tveggja, en í síðasta mánuði mátti minnstu muna að stríð brytist út vegna Kasmír-deilunnar. Lengi deilt um landamærin á þessum slóðum Mushahid Hussain, upplýsinga- ráðherra Pakistans, sagði að pak- istönsk yfirvöld væra tilbúin til við- ræðna „en ef þeir [Indverjar] vilja stríð þá munum við svara í sömu mynt.“ Indversk stjómvöld sögðu það hins vegar vera Pakistana sem vildu æsa til stríðs. Sartaj Aziz, utanríkisráðherra Pakistans, hafði fyrr í gær skipað her landsins í viðbragðsstöðu vegna atburðarins, sem hann hafði á þriðjudag kallað „hreint og klárt morð“. Helsti yfirmaður indverska flughersins, A.Y. Tipnis, kvaðst hins vegar ekki eiga von á því að Pakistanar svöruðu árásinni. Lengi hefur verið deilt um landamærin á þessum slóðum en Indverjar viðurkenndu þó í gær að meginhluti braks eftirlitsvélarinn- ar hefði lent í Pakistan. Halda þeir því engu að síður fram að vélin hafi rofið flughelgi Indlands á þriðju- dag og engu sinnt viðvörunum ind- verska flughersins. Því hefði ekki verið um aðra kosti að ræða en granda vélinni. Þessu neitaði Rashid Qureshi, foringi í pakistanska hernum, hins vegar harðlega í gær. „Við erum nú staddir á pakistönsku landsvæði," sagði Qureshi við fréttamenn á staðnum þar sem flugvélin kom niður. „Ef þetta væri Indland þá væra indverskar hersveitir hérna.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.