Morgunblaðið - 12.08.1999, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1999 13
FRÉTTIR
Eignarhaldsfélagið Orca S.A. ekki enn skráð í Lúxemborg
Þagnarskylda
og nafnleynd
Tilgangur með stofnun félags í Lúxemborg á veg-
*
um Islendinga virðist sá að öðlast þá nafnleynd
sem þar ríkir. Annar tilgangur væri skattalegt
hagræði en tvísköttunarsamningur ríkjanna hef-
ur ekki tekið gildi. Steingerður Ólafsdóttir var í
Lúxemborg á dögunum en viðmælendur vildu
samkvæmt hefðinni ekki láta nafns síns getið.
í LÚXEMBORG stendur skamm-
stöfunin S.A. fyrir „Société
Anonyme" sem útleggst á íslensku
„nafnlaust félag“. Þessi skammstöf-
un er lýsandi fyrir þá leynd sem ríkir
í Lúxemborg og viðmælendur blaða-
manns staðfestu. Enginn vildi láta
hafa eftir sér ummæli um fjárfest-
ingu á borð við þegar eignarhaldsfé-
lagið Orca S.A., skráð í Lúxemborg
en í eigu Islendinga, fjárfesti í rúm-
um fjórðungshlut í Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins á Islandi. Nafn
þess sem stofnar fyrirtæki í Lúxem-
borg þarf hvergi að koma fram nema
hjá Bankaeftirliti í Lúxemborg sem
hefur þagnarskyldu.
Viðmælendur voru sammála um
að ekki væri nokkur leið, nema fyrir
tilviljun eða einskæra heppni, að
nálgast upplýsingar um raunveru-
lega aðstandendur fyrirtækisins í
Lúxemborg. Tilgangur með skrán-
ingu félaga í Lúxemborg væri m.a.
að fela slíkar upplýsingar. Að end-
ingu kom í ljós að Orca S.A. er enn
ekki skráð í Lúxemborg og því
ómögulegt að segja til um hvaða
upplýsingar skráningarskjöl um fyr-
irtækið munu hafa að geyma.
Skattalegt hagræði kemur ís-
lendingum ekki til góða
Annar tilgangur með skráningu
félags í Lúxemborg virðist vera það
skattalega hagræði sem þar ríkir.
Eftir því sem blaðamaður komst
næst, er það svo að ef eignarhlutur
aðila í félagi fer yfir 25%, er sölu-
hagnaður af viðkomandi hlutabréf-
um skattfrjáls í Lúxemborg.
Búið er að draga upp tvísköttunar-
samning á milli Islands og Lúxem-
borgar en hann hefur ekki verið und-
irritaður. Samkvæmt upplýsingum
frá utanríkisráðuneytinu verður það
í september. Þegar leitað var upplýs-
inga um þær skattareglur sem gilda
hér á landi, varð Símon Á. Gunnars-
son, varaformaður félags löggiltra
endurskoðenda, fyrir svörum. Hann
var spurður hvar Orca S.A. myndi
borga skatt ef eignarhlutur þess í
FBA yrði seldur. „Eins og staðan er
í dag er félag í Lúxemborg sem seldi
hlutabréf í íslensku hlutafélagi skatt-
skylt vegna hagnaðar hér á landi og
ætti að borga 20% tekjuskatt. Það er
hins vegar væntanlegt að tvísköttun-
arsamningur ríkjanna myndi breyta
þeirri stöðu og hin eiginlega skatt-
lagning þá fara fram í Lúxemborg,"
segir Símon.
Ef tvísköttunarsamningur á milli
Islands og Lúxemborgar tekur gildi
áður en Orca S.A. hugsanlega selur
hlutabréf sín í FBA, má gera ráð fyr-
ir að félagið greiði engan skatt af
þeim söluhagnaði sem skapast.
Meirihluti allra skuldabréfa sem
skráð eru í Evrópu er skráður í Lúx-
emborg og verðbréfamarkaður í
landinu gengur að mestu út á skulda-
bréf. Aðhald bankaeftirlits í Lúxem-
borg virðist vera mikið og þagmælsk-
an eftir því. Bankar í Lúxemborg
þurfa að skila skýrslu um starfsemi
sína til bankaeftirlits daglega. Stofn-
un fjárfestingarbanka og fjármála-
fyrirtækja krefst rannsóknar og eft-
irlits áður en leyfi fást og nefna má
að aðdragandinn að stofnun dóttur-
fyrirtækis Kaupþings, Kaupthing
Luxembourg, var hátt í ár.
Hver sem er á að geta stofnað
hlutafélag í Lúxemborg og er hluta-
félagagerðin S.A. algengust og sam-
bærileg við hf. hér á landi. Svo lengi
sem stofnandi félags hefur peninga á
milli handanna, á hann hægt um vik
að stofna félag í Lúxemborg.
Islendingar í Lúxemborg eru á
fímmta hundrað, margir hverjir
fyrrum starfsmenn Cargolux. Marg-
ir starfa enn við flug eða flugtengdan
rekstur. I fjármálageiranum í Lúx-
emborg starfa yfir tíu Islendingar,
þar af fimm hjá Kaupthing Luxem-
bourg. Það var að heyra á þeim ís-
lendingum sem rætt var við að sam-
band þjóðanna væri gott og von um
að það yxi og dafnaði enn frekar
væri til staðar.
tiinn árlegi stóraansleÍKur
MILLJÓhAMÆRIMGAMNA
ásamt E>jarna Arasyni, Páli (Dstari, Paqnari Ejarnasqni,
asami ujarna nrasqm
Stefáni tiiln
marssqm oq uoqomi
14. áqúst á Hótel íslandi
I Font
c
y '
„ .1
iK| I |
i
Sérstakur gestur
Helena
lEyjólfsdóttir
í tilefni dagsins verður splunkunýr
safndiskur Milljónamæringanna
á kynningarverði kr. 1.300.
Ath.: Eingöngu á Broadway.
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA
fimmtudag og föstudag í Hljóðfæraverslun-
inni Samspili, Laugavegi 168, sími 562 2710
Laugardag frá kl. 13.00
í Broadway, sími 533-1100
SPARIKLÆÐNAÐUR
MIÐAVERÐ KR. 1.500
HÚSIÐ OPNAÐ KL. 22.00